Dagur - 28.03.1946, Síða 1
Eini þingfulltrúi
kommúnista í Kanada
sekur um njósnir
fyrir Rússa
Um líkt leyti og Kommún-
istaflokkur Islands ákvað að
skipta um nafn, afneita
kommúnistaheitinu og kalla
sig Sameiningarflokk alþýðu
— Sósíalistaflokkinn — skeði
nákvæmlega sama fyrirbrigð-
ið í Kanada og fleiri löndum
liins vestræna heims. Komm-
únista flokkur Kanada ltafði
fengið litla áheyrn hjá þjóð-
inni og átti engan þingfull-
trúa. Hann ákvað að reyna
gæfu sína undir nýju heiti og
; nmskapaðist á einni nóttu í
„Progressive Labour Party“,
eða framsækinn Verkamanna-
l'lokk. Undir þessu nýja heiti
lagði flokkurinn í „þjóðlega“
kosningabaráttu fyrir tveimur
árum síðan og hlaut eitt þing-
sæti. Sá hét Fred Rose er kosn-
inguna hlauu
Áður er skýrt frá njósna-
málunum í Kanada hér í blað-
inu. Kommúnistarnir njósn-
uðu fyrir Rússa endurgjalds-
lítið, aðeins til þess að sýna að
þeir væru góðiir flokksmenn.
Þeir unnu Sovét-sendiráðinu
trúnaðareið, sem var helgari
en trúnaður þeirra við föður-
land sitt. Enn liggja fyrir nýj-
ar upplýsingar um starfsemi
þessa „þjóðlega“ flokks. Þing-;
maður hans, Ered Rose, var;
handtekinn, sakaður um lilut- '•
deild í njósnum Rússa.
Uppvíst er orðið, að þing-!
maðurinn veitti alla að-!
stoð, sem hann mátti, til
þess að Rússar fengju um-
beðnar upplýsingar um
hervarnir Kanada, Banda-
ríkjanna og atómleyndar-
málið, og ennfremur, að
flokkurinn í heild vann að
njósnunum eftir fremstu
getu og liðsinnti rússnesku
sendisveitinni í hvívetna.
Þingmaðurinn var bund-
inn hinum makalausa
kommiinista-eið gagnvart
Sovét-sendiráðinu.
Eftir þessar upplýsingar um
starfsemi kommúnistaflokks-
ins í Kanada, vaknar þessi
spurning: Ur því að eini þing-
fulltrúi kommúnista í Kanada
stóð þannig í ístaðinu fyrir
föðurland sitt á örlagatímum,
má þá gera ráð fyrir, að land-
ráðamenn á borð við hann,
séu yfirleitt jafnmargir í
hverju þjóðfélagi og þingfull-
trúar kommúnista eru fjöl-
mennir?
0
Aðalfimdur Rauða kross
deildar Akureyrar
Rauðakrossdeild Akureyrar
liélt aðalfund sinn sl. mánudags-
kvöld að Hótel KEA. Fyrir fund-
inum lágu eingöngu venjuleg
aðalfundarstörf. Stjórnin var
endurkosin. Hana skipa: Guðm.
Karl Pétursson, yfirlæknir, for
maður, Jón Sigurgeirsson, kenn-
(Framhald á 8. síðu).
AGUR
XXIX. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 28. mar;
1946
15. tbl.
Nær mánuður liðinn síðan flufningaskip kom hér á höfnina
Andbrezkur áróður kommúnista um
allan heim skipulagður í Moskvu
Hlutdeild íslenzka „íitibúsins“
Fyrir nokkru gat Bevin, utanríkisráðherra Breta, þess í ræðu, að
andbrezkur áróður kommúnista, sem skipulagður væri í Moskvu,
væri nú fluttur í kommúnistablöðum flestra landa og mjög í sama
anda. Brezka blaðið „Observer“ ræðir þessi mál 17. þ.m. og segir
meðal annars:
— Áróður gegn Bretlandi frá
Rússum og rússnesk-ættaðri
fréttastarfsemi hefir verið mjög
áberandi nú um nokkurra mánaða
skeið. Moskvu-útvarpið er sínkt og
heilagt að saka Breta um vernd
„fasista" og fylgi við „afturhalds-
stjórnir“ í ýmsum löndum. Hinn 7.
þ. m. var útvarpað frá Moskvu
löngum fyrirlestri um brezku blöð-
in. Þar var rangt skýrt frá ýmsu og
því m. a. haldið fram, að „prent-
frelsi væri raunverulega ekki ríkj-
andi í Englandi." Þá hefir þeirri
furðulegu fullyrðingu Stalins, að
lýðræði sé ekki ríkjandi í Bret-
landi af því að einn flokkur fari
þar með völd sem stendur, verið
mjög á lofti haldið i rússneskum
áróðri upp á síðkastið. Eftir fyrsta
fund UNO var tekinn upp áróður
um að Bretar beittu fáheyrðu of-
beldi í ýmsum löndum, sem eru
undir brezkri stjórn eða í vinsam-
legu sambandi við Bretland. Var
einkum rætt um Egyptaland í því
sambandi og sagt að áhrif Breta í
landinu hefðu skapað fjárhagslega
og pólitíska niðurlægingu þjóðar-
innar.
Það er fróðlegt að athuga þessi
ummæli hins brezka hlaðs í sam-
bandi við tóninn í komnninista-
hlöðnnnm íslenzkn.
í Þjóðviljanum þann 8. þ.
mán. er nijög áberandi grein, er
nefnist: Hið brezka „Herren-
volk“. Grein þessi er samtvinn-
aður róguf og illmælgi í garð
Breta. Skal hér sýnt lítið sýnis-
horn af rithættinum:
„En til er hrokafull yfirstétt,
sem litið hefir á sig sem sjálfkjör-
ið „Herrenvolk" (yfirþjóð). Það
eru brezku auðdrottnarnir, er
svælt hafa undir sig fjórðung
mannkynsins og finnst þeir sjálf-
sagðir til að arðræna aðrar þjóðir,
sem þeir neita um frelsi, meðan
þeir í heimskunnri hræsni sinni
sjálfir flíka orðunum „frelsi“ og
„lýðræði“ í tíma og ótíma.“.....
þá lætur brezka keisarastjórnin
skjóta sveltandi fólkið og drepa
vini frelsisins. Byssukúlumar eiga
að seðja hungrið, fallbyssumar að
fullnægja frelsisþránni." „Hvar,
sem litið er í heimsríkinu, þar sem
sólin gengur ei undir, stynja kúg-
aðar og sveltandi þjóðir undir oki
brezkra arðræningja, — og fá að
svari dauðann úr brezkum byssu-
kúlum eða eyðingu þorpa sinna af
brezkum flugvélasprengjum, ef
þær heimta frelsi.“ „Og í ýmsum
löndum, þar sem brezkt auðvald
liefir ekki kverkatakið sem stend*
ur, býr það sig til stuðnings við
versta afturhaldið og fasismann."
Þessi sýnishorn nægja til að
sanna, að kommúnistarnir ís-
lenzku hafa ekki villzt út af „lín-
unni“ í þessu efni, frekar en á
öðrum sviðum.
Bridgekeppnin:
Tvær jafnar sveitir
keppa til úrslita
Fimmta og síðasta umferð
meistarakeppni Bridgef’él. Akur-
eyrar var spiluð sl. sunnudag. Að
henni lokinni stóðu leikar þann-
ar: Sveit Þorsteins *8tefánssonar
4 v., Þórðar Sveinssonar 4 v., Jó-
hanns Snorrasonar 3 v., Tómasar
Steingrímssonar 2 v„ Jóns Stein-
grímssonar 1 v. og Sigv. Þor-
stéinssonar 1 v. Fjórar fyrst töldu
sveitirnar skipa því meistara-
flokk, en þar sem tvær þær efstu ln”ul
eru jafnar að vinningatölu
keppa þær til úrslita um efsta
sæti og má búast við skemmti-
le’gri. viðureign. Morgunblaðið
hel'ir, fyrir atbeina Hallgr.
Valdemarssonar, fréttaritara,
gefið B. A. veglegan verðlauna-
grij) til þess að keppa um í meist-
araflokki og verður hann veittur
nú í fyrsta sinn.
Gegnir erfiðu embætti.
Þetta er Trygve Lie, fyrrv. utanríkis-
ráðherra Noregs, núv. aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna. Myndir er tekin á
fyrsta þingi UNO í London. Oryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna ræðir Irans-
málin um þessar mundir á fundum
sinum í New York.
Tilraunaferð til
útlanda
Eimskipafélagið hefir aug-
lýst, að „Reykjafoss" sé á för-
um til Antwerpen og ætlunin
sé að skipið hefji reglulegar
ferðir þangað, e£ nægur flutn-
ingur fæst. Á sarna tíma og fé-
lagið lætur þetta ski]) hefja
þessar tilraunaferðir, er nær
því algjört samgönguleysi
milli hafna úti um land. Um-
hleðsluvörur úr mörgum
skipum bíða flutnings í Rvík,
sem er orðin eina innflutn-
ingshöfn landsins. Þannig
hugsar „óskabarn þjóðarinn-
ar“ um hág Norður- og Aust-
urlands.
1
Ungur Akureyringur
sigrar á hljómleikasam-
keppni í Stokkhólmi
Hinn 16. þ. m. var efnt til
hl jómleikasamkeppni harmon-
ikuleikara frá Norðurlöndunum
öllum í Stokkhólmi. Þátttakend-
ur voru fjórir Svíar og einn frá
hverju hinna Norðurlandanna.
íslenzki þátttakandinn var Lýð-
ur Sigtryggsson, ungur Akureyr-
sem dvalist hefir í Noregi
v-’ \0
undanfarin ár. Leik hinna ungu
listamanna var útvarpað frá
Stokkhólmi og heyrðist útvarpið
vel hér. Lýð Sigtryggssyni voru
dæmd fyrstu verðlaun í þessári
keppni.
Lýður er sonur hjónanna Sig-
tryggs Sigurðssonar, trésmiðs og
Önnu Sigfúsdóttur, Norðurgötu
28 hér í bænum. Hann hef'ir
dvalið í Noregi nær því fjög'ui
ár, numið harmoniku- og annan
hljóðfæraleik. Norska hlaðið
„RYTME’ birti nýlega viðtal
við Lýð og segir hann þar frá
uppvexti sínum hér á Akureyri,
dvöl sinni í Noregi, námi sínu
hjá Hartvig Kristoffersenj" einttm
kunnasta harmonikuleikara
Noregs, og konsertum sem hann
og Kristoffersen hafa haldið víðs
vegar í Noregi. Nokkrar myndir
fylgja greininni.
Lýður og Kristoffersen hafa í
hyggju að korna til íslands í maí
næstk. og halda hér hljómleika.
Þjófnaðarmál upplýst
Lögreglan hefur haft upp á
manni Jreim, er nýlega fravndi
innbrot í KEA og Gufupressun
Akureyrar. Er þetta ungur mað-
ur, á tvítugsaldri. Mál hans bíð-
ur dóms.
Siglingar síðan um ára-
mót þær verstu í áratugi
Hinn 4. þ. m. kom e.s.
FJALLFOSS hingað til
Akureyrar með vörur frá
umhleðslu-birgðabúrum
Eimskipafélagsins í Rvík.
Síðan hefir ekkert skip
flutt vörur hingað eða héð-
an og eru horfur á að a. m.
k. mánuður verði í milli
ferða að þessu sinni. Óhætt
er að fullyrða, að þessar
siglingar séu ekki aðeins
þær aumustu, sem þetta
hérað hefir þekkt í fjölda-
mörg ár, heldur áratugi.
Tjón alls athafnalífs hér
um slóðir af völdum þessa
ófremdarástands mun þeg-
ar orðið gífurlegt.
Á sama tíma og þannig er bú-
ið að Norðnrlandi, og þó ennþá
verr að Austurlandi, auglýsir
Eimskipafélagið það fyrir öllum
landslýð í útvarpi á hverju ein-
asta kvöldi, að það hafi til um-
ráða meiri skipakost en það hef-
ii- nokkru sinni fyrr haft, en það
l'ylg'ir jafnan með í þessum út-
varpstilkynningum, að skipin
séu, nær undantekningarlaust,
annað tveggja á leið til Reykja-
víkur, lrá útlöndum, eða frá
Reykjavík, til útlanda. Af þess-
ari tilkynningu í útvarpinu, er
það fyrir löngu ljóst öllum lands-
lýð, að lélagið hefir skipakost til
þess að halda uppi viðunandi
siglingum til hafna úti um land,
el það vildi láta sig hag byggð-
anna nokkru skipta.
Þótt siglingaleysið í marz hafi
til þessa verið einna bagalegast,
fer því þó fjarri, að viðunandi
ástand hafi ríkt í þessum efnum
á undanförnum mánuðum. Eft-
irfarandi tafla um skipakomur
til Akureyrar síðan um áramót
gefur nokkra hugmynd um
ástandð:
„Fjallfoss": 18/1. Átti að
koma .með jólavöfurnar, en
varð þetta síðbúinn.
„Hrímfaxi“ 29/1 (Ríkisskip);
Kom austan fyrir land, flutti
lítið af vörum hingað.
„Lagarfoss“: 31/1. Kom með
sáralítið af vörum, því að skip-
ið kom norður til þess að lesta
síldarmjöl o. fl.
„Súðin“: 10/2. Venjulegur
flutningur hingað fæst sjald-
an með „Súðinni", því að
skipið á af eðlilegum ástæðum
(Framhald á 8. síðu).