Dagur - 16.05.1946, Page 3
Fimmtudáginn 16. maí
DAGUR
3
ÓDÁÐAHRAUNSLEIÐÁNGUR JÖNS A ARRI
í ísafold og Verði, 3. maí,
sendir forseti 'sameinaðs þings,
Jón Pálmason á Akri, mér
kveðjn sína. Þetta kom ekki flatt
npp á mig, því að segja má, að eg
hafi gefið honurn ástæðu til þess,
en ekki hafði eg búizt við því, að
svar lians yrði jafn nauða
ómerkilegt, ofstopafullt og órök-
víst og þessi grein hans er og
sannar hún öll, átakanlega um-
mæli mín um höfundinn í grein
minni í Degi, frá 17. apríl sl. í
raun og veru hefði eg getað
sparað mér að elta ólar við mein-
loku J. P. í þessari grein, því að
vnikill hluti hennar er efninu,
sem um rætt, óviðkomandi og
þegar hann svo þykist svara grein
minni, þylur hann upp sömu
öfgarnar og fjarstæðurnar, sem
hann hefir tuggið svo að segja í
hverju ísafoldarblaði nú í vetur,
eða látið sína nánustu, þá Gáinn
og Kolka, endurtaka, svo að ekki
er nú af miklu að miðla. Auk
þessa gæti eg látið nægja að vísa
til greinar, sem eg hefi ritað um
deilumálin milli ríkisvaldsins og
Búnaðarþings og nú er í þann
veginn að birtast almenningi. í
grein J. P. eru þó ýms atriði, sem
eg ekki get neitað mér um að
taka lítið eitt til meðferðar,
vegna þess, að þau lýsa innræti
mannsins og ntálsmeðferð einkar
vel.
Heimsókn í Gróðrarstöðina.
Jón Pálmason upphefur ræðu
sína á því að lýsa heimsókn sinni
í Gróðrarstöð Ræktunarfélagsins
um hátúnsláttinn 1944. „Þetta
var þó að aflíðandi hádegi á
rúmhelgum degi,“ segir þing-
maðurinn. Enginn stóð úti til að
fagna hans hágöfgi og gefur hann
í skyn, að starfsfólk stöðvarinnar
hafi legið inni og svikist um. Nú
getur ,,að aflíðandi hádegi", þýtt
rnilli kl. tólf og eitt, ep þá er
matmálstími hér og víða hér um
slóðir, en þótt þetta hafi skeð á
öðrum tíma, var þess engin von,
að starfsfólkið stæði heima við
hús til að taka á móti J. P. Eða
heldur Jón Pálmason, að vinnu-
stöðvar þess séu aðeins umhverf-
is Gróðrarstöðvarhúsið? En hvar
var svo höfuðpaurinn Ölafur
Jónsson? Jú, svarið var: „Inn í
Ódáðahrauni“, og um þetta var
Jóni Pálmasyni svo mikið, að
hann gleymdi erindinu, sem var
að sjá níu ára vöxt og viðgang
Gróðrarstöðvarinnar, kvaddi í
skyndi og hvarf aftur argur og
vonsvikinn, þungt þenkjandi um
hinn ótrygga ráðsmann, sem um
há sláttinn strauk inn í Ödáða-
hraun, í stað þess að standa á
pinna við að taka á móti höfð-
ingjum eins og Jóni Pálsmasyni,
sem þóknaðist að konia í heirn-
sókn, án þess að gera boð á und-
an sér.
Það leynir sér ekki, að í þess-
um þvættingi ber illkvittni,
dómgreind og skynsemi höfund-
arins ofurliði. Fyrst dylgjar hann
um sviksemi og ótrúmennsku
starfsfólks Gróðrarstöðvarinnar,
svo gerir hann það að árásarefni
á mig, að eg hefi um nokkurra
ára skeið kosið að eyða sumar-
Eftir Olaf jónsson, framkv.stjóra
leyfum mínum í Ódáðahrauni og
gert það á þann liátt, að þau
mættu líka bera þjóðinni nokk-
urn ávöxt. Fg hefði líka getað
tekið þann kostinn, að eyða öll-
um sumarleyfum mínum í flakk
um byggðir landsins, láta dekra
við mig í mat og clrykk og tefja
fyrir öðrum, sem ef til vill áttu
annríkt og líklega hefði Jón lát-
ið það óátalið, þvi varla getur
jiað verið meining Jóns Pálma-
sonar, að jreir, sem hafa gert það
að æfistarfi sínu að vinna fyrir
landbúnaðinn, skuli sviptir þeim
kjarabótum, sem hann, ásamt
öðrum þingmönnum, hefir í or-
lofslögunum lögtekið fyrir allan
almenning í kaupstöðum og við
op'inber störf'að minnsta kosti.
Vera má itð J. P. svari hér til, að
auðvitað eigi jreir, er að land-
búnaði starfa, að fá sitt orlof, en
bara ekki um hásláttinn, og vil
eg því benda honum á það, sem
hann, þrátt fyrir allt orðagjálfur
uip nýsköpun og aukna rígktun,
virðist ekki koma auga á, að Jteg-
ar sú skipun er á komin, að allur
heyfengur er tekinn af ræktuðu
landi, sláttur hefst á réttum tíma
fyrir og um miðjan júní, og unn-
ið er að heyöfluninni með vél-
un, hlýtur í öllum sasmilegum
heyskaparárum að verða nokk-
urt hlé á milli slátta. Þannig hef-
ir þetta verið hér í Gróðrarstöð-
inni alllengi. Þetta ldé getur ver-
ið tvær til þrjár vikur og er sá
tími sumarsins, þegar minnst er
annríkið og þá hagkvæmast að
gefa fólki orlof. Hér í Gróðrar-
stöðinni er vor og haust miklu
meiri annatími en miðsumarið,
eða tímabilið frá miðjum júlf
fram í ágúst, en Jún Páhnason
er, þrátt fyrir a 111 sitt framfara-
gaspur ,svo aftur úr í hugsunar-
hætti, að hann skilur jTetta ekki
og hyggst Jtví að gera það að árás-
arefni á mig, um vanrækslu og
sviksemi í starfi mínu, að eg tek
mér stundum frí um miðsumar-
ið, þegar minnst er að starfa hér
í stöðinni. Svo mjög hefir Jón
Pálmason fengið ferðir mínar
um Odáðahraun á heilann, að
segja má, að þær séu uppistaðan
í grein lians og svo ójijóðlegur og
grunnhygginn er hann, að hann
heldur að það geti orðið mér til
ámælis, að eg hefi tekið nokkru
ástfóstri við þennan lándshluta,
sem frá jarðfræðilegu, og eink-
um eldf jallafræðilegu sjónar-
miði, á fáa líka, en er líka gagn-
auðugur af fegurð, hrikaleik og
yndislegum gróðurblettum, þótt
J. P. haldi, í fáfræði sinni, að Jrar
sé ekkert nema ömurleikinn.
„Afskriftir“ Jóns Pálmasonar.
Næst kemst J. P. að jjeirri
skarpvitru niðurstöðu, að eg hafi
hafnað í Ódáðahrauni „Tíma-
liðsins“, vegna þess, að mér hafi
ekki þótt Sjálfstæðisflokkurinn
nógu íhafdssamur, eftir að hann
gekk í flatsængina með sósíalist-
um. Þetta Ódáðahraunsskraf J.
P. er ekki svo illa til fundið.
Þekking Jóns og sköðun á
Ódáðahrauni virðist vera á seytj-
ándu aldar stigi og sjálfsagt er
beygur hans við Ódáðahraun
Tímamanna, áþekkur ótta
byggðarfólks á s.eytjándu öld við
Odáðalíi'aun, þar sem það hugði
víðlendar, blómlegar útilegu-
mannabyggðir skipaðar fólki, er
að afli, atgerfi og búhyggju tók
byggðamönnum langt fram. Jón
óttast nú ekkert meira en Tíma-
menn og hyggur þar hvern mann
tvígildan í Ódáðahraunsórum
sínum og jiess vegna æpir hann
að hverjum, sem andmælir
óhæfuverkum st jórnarl iðsins:
Tímamaður! útilegumaður!
Jón Pálmason þykist sjálfsagt
hafa ráð á því að afskrifa mig og
rnarga aðra óflokksbundna
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks-
ins og sjálfur hyggst hann vafa-
laust vinna upp tapið með til-
styrk vina sinna, kommanna, en
vel gæti svo farið, að sumum
skoðanabræðrum hans og sam-
starfsmönnum yrði jretta tjón til-
finnanlegra og sjálfsagt verður
Jíað flokknum lítill álitsauki,
þegar hann fer að afskrifa suma
sína virðulegustu, kunnustu «g
gætnustu menn, eins og þá Gísla
Sveinsson, Pétur Ottesen og Jón
Sigurðsson á Reynistað, en þessir
rnenn ’allir munu hafa sýnt fram-
komu stjórnarmeirihlutans í
sumu.m landbúnaðarmálum, eigi
minni gremju og fyrirlitningu en
eg.
Kúvendingin.
Það er gleðilegt að fá nú jrá yf-
irlýsingu frá svo háttsettum
manni í stjórnarliðinu, sem for-
seta sameinaðs Aljhngis, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi skipt um
stefnu er hann gekk til stjórnar-
samvinnu við sósíalistana. Jón
mælir svo: „Maðurinn (þ. e. eg)
hefir áður verið talinn Sjálfstæð-
ismaður. Hefir hann sýnilega
treyst }tví að Jjar væri að finna
hina sönnu íhaldsmennsku. Þeg-
ar þetta bregst með öllu við
myndun núverandi ríkisstjórn-
arP) þá þolir maðurinn ekki mát-
ið.“ Það er rétt að ég heli fulla
tvo áratugi fylgt Sjálfstæðis-
flokknum að málum, jíótt eg hafi
aldrei gengið í flokkinn eða ver-
ið flokksbundinn sem kallað er.
Allan þennan tíma mufi verða að
telja, að flokkurinn hafi haft
íhaldssama stefnu (Konservativa)
þótt um jrað megi deila, en hann
hefir að minnsta kosti fylgt nokk-
urn veginn sömu stefnu. „Þegar
svo þetta bregst með öllu“, ráða-
menn flokksins svíkja stefnu sína
og stuðningsmenn, þá þarf engan
að undra, þótt bæði mér og fleir-
um sé nóg boðið. Þetta er svo
merkilegt atriði, ekki síst nú fyr-
ir kosningarnar, að ástæða er til
að gera því frekari sk.il. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefir fram að síð-
ustu stjórnarmyndun talið sig
fullkomna andstæðu sósíalistisks
skipulags, að eg ekki nefni
kommúnisma. Jón Pálmason hef-
D Leturbreyting mín.
ir predikað ákaft tveggja flokka
fyrirkomulag, Jrar sem miðflokk-
ar, eins og Framsóknarflokkur-
inn, áttu að hvérfa, skiptast til
hægri og vinstri, svo að aðeins
tveir andstæðir flokkar yrðu til í
landinu, sósíalistar annars vegar
og andsósíalistar hins Vegar og
átti Sjálfstæðisflokkurinn að vera
kjarni hins síðartalöa. Hvernig
hefir Jretta nú þróast hér? Jú
þannig, að J. P. ásamt verulegum
hluta Sjálfstæðisflokksins, hefir
gengið til innilegs samstarfs við
sósíalistana og fyrst og fremst
kommúnistana, á þeim grund-
velli, að ekki sé hægt að stjcrrna
landinu nema í sameiningu við
þá, en hver maður, sem hugsar
rökrétt, hlýtur að sjá, að þetta er
samá og að hér verði að taka upp
sósíal istiskt stjórnskipulag eða að
sósíalistar geti aheg ráðið stjórn-
arstefnunni. Er margt, sem ber
þess vott, þótt ekki verði Jrað rak-
ið að sinni, en það er mikils
virði, fyrir gamla stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins, að hafa nú
fengið hreint og klárt frá forseta
sameinaðs þings, að samvinna
hans og meiri hluta þingmanna
Sjálfstæðisflokksins við sósíalist-
ana, sé kúvending frá fyrri stefnu
flokksins.
Samstarfið á BúnaðarJringi.
Eg Jrarf ekki miklu að svara
dylgjum J. P. um, að eg hafi, á
síðasta Búnaðarþingi, gengið á
hönd Framsóknarflokksins. Veit
eg ekki hvernig ber að skilja
þetta. Aðeins örsjaldan hefir ver-
ið nokkur ágreiningur milli
Sjállstæðis- og Framsóknar-
manna á Búnaðarþingi, heldur
ekki á síðasta Búnaðarþingi. Hitt
mun rétt, að fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins á Búnaðarjringi,
munu nær allir hafa verið óá-
nægðir með stefnuskipti meiri
hluta Sjálfstæðisþingmanna og
gerðir stjórnarsamvinnunnar og
höfðu fulla ástæðu til Jress. Af
þessum ástæðum hefir J. P. og
hans nótar ekki látið neitt tæki-
færi ónotað að ausa Búnaðar-
þingið svívirðingum, rangfæra
samþykktir þess og sýna því
margháttaðan fjandskap. Þetta er
ekki óalgengt fyrirbrigði, að
þeir, sem bregðast trausti ein-
hverra og trúnaði, fyllast. nokk-
urs konar ofsóknaræði' gegn
þeim, er Jreir hafa brugðizt. Um
meðferðina á Búnaðann;íIasjóðn-
um er gagnslaust lyrir J. P. að
reyna að skjóta sér á bak við
meiri hluta Alþingis pg sex ráð-
herra. Staðreyndirnar eru Jjær,
að hann og Sigurður Guðnason,
kommúnisti, eiga frumkvæðið.
Hvor Jreirra hefir átt fyrstu
uppástunguna að breytingunni
skiptir engu máli, Jón hefir frá
öndverðu stutt hana og krafizt
með offorsi, að hún næði fram
að ganga. Greinargerðin, sent er
einstætt þingplagg, ættu sem
flestir að lesa. Hún lýsir J. P. bet-
ur en eg get gert.
Búnaðarmálastjóðurinn.
Svo fer Jón að rekja sögu Bún-
aðarmálasjóðs, og má þá segja, að
flest sé rangfært og umsnúið.
Sjóðurinn á að vera framhald af
skem mtiferða f ru m varp i Her-
manns Jónassonar, sem borið var
fram í sambandi við orlofslögin,
en kommarnir og sálufélagar
Jóns úr Sjálfstæðisflokknum
léku sér að, hröktu milli deilda.
hornskelltu og afmörkuðu, þar
til forseti efri deildar var látinn
úrskurða það sem nýtt frumvarp. v
Meðferð Jressa frumvarps er gott
dæmi um vinnubrögð þessára
herra og velvilja til bænda, en
kom í Jressu tilfelli að engu tjóni,
því að frumvarpið naut álíka á-
huga hjá bændum og fulltrú-
um þeirra. Búnaðarmálasjóðs-
lögin eigá ekkert skylt við þetta
frumvarp og hafa aldrei átt og í
þeim ekkert, er minnir á Jretta
frumvarp, annað en 1/2% gjald-
ið. Að Jrau hafi verið framhald
al ferðasjóðslögunum, er því
hreinn upjrspuni Jóns Pálmason-
ar. Um þessi lög er ekkert sam-
eiginlegt annað en meðferð
meiri hluta Alþingis á þeim.
Breyting þeirra J. P. og S. G. á
Búnaðarsjóðslögunum gerbreytti
eðli þeirra og tilgangi, svo að Jrau
voru orðin alveg ný lög er þau
fóru frá þinginu.
Þá er ákvæðið um íhlutun ráð-
herra. J. P. heldur því nú fram,
að það hafi verið sett til að
hindra, að Býnaðarþingið notaði
sjóðinn sem flokkssjóð „Tíma-
liðsins'* og fjargviðrast í því sam-
bandi um pöntuð inótmæli, hlið-
stæð ákvæði í öðrum lögum og
tyggur loks þau margjórtruðu
ósannindi, að meginhluta sjóðs-
ins hafi átt að verja til hótel-
byggingar í Reykjavík. Þessu
þarf ekki miklu að svara, því að
eg hefi gert það á öðrum stað, en
þó skal dreþið á nokkuð. Mót-
mælin, gegn íhlutun ráðherra
um úthlutun sjóðsins, voru ekki
pöntuð, eins og J. P. er að reyna
að telja fólki trú um, þau komu
án þess og áf þeirri einföldu
ástæðu, að bændur um allt land,
bæði Framsóknar- og Sjálfstæðis-
bændur, fundu að félagssamtök
þeirr^ voru, með þeim, beitt ó-
jöfnuðir Morgunbl. og J. P. hafa
haldið því fram, að þettásé alveg
hliðstætt samþykki Alþingis á
fjárhagsáætlun Búnaðarfélags ís-
lands, en Jrað er argasta blekk-
ing. Fjárhagsáætlun Bunaðarfé-
lagsins byggist að langmestu leiti
á fjárframlagi úr ríkissjóði og
fjallar nær einvörðunngu um
leiðbeiningar, atvinnulegk
fræðslu og styrktarstarfsemi.
Búnaðarþing taldi sér ekki fært
að auka félagslega starfsemi sína
og færa hana út á hið stéttarlega
svið, nema afla til þess sérstaks
framlags bændanna sjálfra, með-
fram vegna þess, að það áleit að
Alþingi mundi að öðrurn kosti
ekki samþykkja fjárhagsáætlun
þess. Búnaðarmálasjóðurinn átti
að vera Jretta framlag bændanna,
sem Jreir legðu hejldarsamtökum
sínum til og þau fengju fullan og
óskoraðan rétt yfir. Hlutverk Al-
(Framhald á 6. síðu).