Dagur - 28.06.1946, Blaðsíða 5
Föstudagur 28. júní 1946
D A G U R
5
Hlutur
samvinnumanna - hlutur
stjórnarliðsins
Þegar þingmaður kaupstaðarins hafði lokið við að lesa skýrsluna
um úthlutun innflutningsleyfa Nýbyggingarráðs, á fi'amboðsfund-
inum, varð hæjarmönnum ljóst, að ekkert af þeim vélum og áhöld-
um, sem þar um getur, utan einn togari, er ætlað til þess að efla at-
vinnulíf bæjarfélagsins. Þegar sleppir síldarverksmiðjubyggingun-
um, er ílestum þeirn tækjum, sent þar voru nefnd,úthlutaðtilReyk-
víkinga. Frambjóðendur stjórnarliðsins hæklu sjálfum sér óspart
fyrir framtakssemi, en sökuðu Framsóknarmenn um „afturhald“ og
„íjandskap gegn nýsköpuninni“.
Hverjar eru staðreyndirnar?
Akureyri á að fá einn togara af þeim 30, sem ríkið keypli í liret-
landi. Samvinnumenn lögðu fram 1/5 hlutafjárins til’þein'a kaupa.
Samvinnufélögin hafa keypt stórt og vandað flutningaskip, sem
koma mun til landsins í sumar. Þá verður hafin markviss starfsemi
til þess að hnekkja einokunaraðstöðu Reykjavíkur í flutningamál-
unum. Samvinnumenn undirbúa miklar endurbætur á ullar-
vinnslunni í landinu. Þær framkvæmdir munu hafa mikla þýðingu
fyrir allt atvinnulíif Akureyrar. Hvað leggja stjórnarflokkarnir íram
á móti þessu? — Þarna tala staðreyndirnar um afstöðu samvinnu-
manna til atvinnulífs bæjarins. HVað segja staðreyndirnar um
stuðning stjórnarliðsins við atvinnulíf bæjarins? Áburðarverk-
smiðjan, niðursuðuverksmiðjan o. fl. af liinum svokölluðu „ný-
sköpunaríVamkvæmdum" tala þar sínu skýra máli. Sjálfshól og
skrum stjórnarliða dugar ekki til þess að breiða yfir þau augljósu
sannindi, að stjórnarflokkarnir vilja ekkert lyrir atvinnulíf bæjar-
félagsins gera.
ÚTILÍF OG
ÍÞRÖTTIR
Héraðsmót U. M. S. E.
var að Hrafnagili laugardag og
sunnudag sl. Var undanrásum lokið
fyrri daginn. Kl. nál. 3 á sunnudag
hófst svo mótið að nýju með ræðu
formanns sambandsins, Guðm. Bene-
diktssonar, þá söng karlakór frá Ol-
afsfirði og síðan úrslitakeppni í frjáls-
um íþróttum og ísl. glímu. Urðu nið-
urstöður sem hér segir:
Hlaup kvenna, 80 m. 1. Kristín
Friðbjarnard. UMF Æskan 11.2 sek.
2. Jónína Magnúsd. UMF Svarfdæla
11.4 sek. (Jafnar): Bára Eyfjörð
UMF Svarfdæla 11.6 sek., Helga
Þórsdóttir UMF Þorst. Svörfuður
11.6 sek.
Hlaup karla, 100 m. 1. Haraldur
Sigurðsson UMF Möðruv.sóknar 11.4
sek. 2. Halldór Jóhannesson UMF
Atli 12.0 sek. 3. Pétur Sigurðss. UMF
Möðruv.sóknar 12.6 sek.
Hlaup, 400 m. 1. Pétur Einarsson
UMF Möðruv.sóknar 60.5 sek. 2.
Óskar Valdimarsson UMF Atli 61.5
sek. 3. Friðbjörn Jóhannss. UMF
Skíði 62.2 sek.
Hlaup, 3000 m. 1. Óskar Valdimars-
son UMF Atli 11 mín. 2.8 sek. 2. Pét-
ur Einarss. UMF Möðruv.sóknar 11
mín. 5.7 sek. 3. Friðbjörn Jóhannss.
UMF Skíði 11 mín 8.0 sek.
Boöhlaup, 1000 m. 1. Sveit UMF
Möðruv.sóknar 2 mín. 32.2 sek. 2.
Sveit UMF Árroðinn 2 mín. 37.4 sek.
3. Sveit UMF Atli 2 mín. 37.6 sek.
Hástökk. 1. Jón Árnason UMF Ár-
roðinn 1.60 m. 2. Haraldur Sigurðss.
UMF Möðruv.sóknar 1.56 m. 3
Pálmi Pálmason UMF Möðruv.sókn-
ar 1.53 m.
Þrístökk. 1. Halldór Jóhanness.
UMF Atli 13.32 m. 2. Jón Árnason
UMF Árroðinn 12.15 m. 3. Eggert
Jónsson UMF Möðruv.s. 11.63 m.
Langstökk. 1. Har. Sigurðss. UMF
Möðruv.s. 5.99 m. 2. Halldór Jó-
hannss. UMF Atli 5.97 m. 3. Sigurjón
Jóhannss. UMF Skíði 5.71 m.
Kringlukast. 1. Har. Sigurðss. UMF
Möðruv.s. 34.03 m. 2. Pétur Sigurðss.
UMF Möðruv.s. 28.53 m. 3. Júlíus
Daníelsson UMF Þorst. Svörfuður
28.20 m.
Spjótkast. 1. Pálmi Pálmas. UMF
Möðruv.s. 48.53 m. 2. Júlíus Daníelss.
UMF Þörst. Svörf, 46,02 m. 3, Jó-
UMF Þorst. Svörf.
hann Daníelss.
42.22 m.
Kúluvarp. 1. Har. Sigurðss. UMF
Möðruv.s. 12.82 m. 2. Halldór Jó-
hanness. UMF Atli 11.18 m. 3. Ingvi
Rafn Baldvinss. UMF Möðruv.s.
10.79 m.
Glíma, þátttkendur 5. 1. Pétur Sig-
urðss. UMF Möðruv.s. 4 vinn. 2.
Steinn Snorras. Bindindisfél. Vakandi
3 vinn. 3. Ragnar Sigtryggss. Bind-
indisfél. Vakandi 2 vinn.
Sund, frjáls aðferö, karlar, 100 m.
1. Herm. Stefánss. UMF Æskan 1.
mín. 31 sek. 2. Sigurjón Óskarsson
UMF Þorst. Svörfuður 1 min. 34.4
sek. 3. Ingvi Júlíusson UMF Æskan
1 mín. 41.9 sek.
Sund, frjáls aöferð kvenna, 50 m.
1. Freyja Guðmundsd. UMF Þorst.
Svörf. 50.7 sek. . Guðrún Guðmunds-
d. UMF Þorst. Svörf. 55.0 sek. 3.
Hildur Eiríksd. UMF Æskan 55.1
sek.
Urslit urðu þá þau, að UMF Möðru-
vallasóknar vann mótið með 34 stig-
um. UMF Atli hlaut 15 stig. UMF
Þorst. Svö.rfuður 11 Vá stig.
1. Haraldur Sigurðsson hlaut 14
stig. — . Halldór Jóhannesson hlaut
9 stig. — 3. Pétur Sigurðsson hlaut 6
stig.
Það er i þriðja sinn í röð, sem
UMF Möðruvallasóknar vinnur á
þessum héraðsmótum og hlaut nú til
eignar fagran, ágrafinn silfurbikar.
Á mótinu eru ekki sérstaklega góð
afrek unnin, miðað við metin. En þeg-
ar tekið er tillit til aðstöðu þessa
fólks til að æfa íþróttir og svo að
keppa á þessum velli, þá má bæði
undrast og gleðjast-yfir mótinu i heild
bæði þátttöku og afrekum.
Að lokinni keppni sýndu stúlkur
frá Dalvík, 15 að tölu, fimleika undir
stjórn Gísla Kristjánssonar. Aðstaðan
var ekki góð: úti á.grasi í kalsa veðri
og hálfgerðri rigningu. Þegar tillit er
tekið til þessa, má heita að sýningin
tækist mjög vel. Æfingar voru fjöl
breyttar, sumar erfiðar og kröfðust
mikils í mýkt, samtökum og jafnvægi
en aðrar léttari — sem vera ber —
með undirspili og jafnvel söng, sem
er ánægjuleg nýbreytni. Stúlkurnar
komu mjög vel fram og sýndu sig fær-
ganga sýnilega glaðar til þessa starfa.
Helzt mætti það að finna sýningunni
— ekki sízt þegar öllum er hrollkalt
— að endurtekningar einfaldari æf-
inga séu of miklar.
Um kvöldið var úthlutað verðlaun-
um og síðan dansað til kl. 1 e. m. n.
Veður var oftast fremur gott um dag-
inn. Mótið fór vel fram — þegar loks
var hægt að byrja — og fólk var
:>arna margt saman komið.
Akureyri.
Vormótsleikur meistaraflokks var
háður á Þórsvelli sl. laugardag. Safn-
aðist fólk að vellinum af talsverðum
áhuga, þvi að búist var við að meist-
arar Þórs myndu leitast við að rétta
hlut sinn eftir hrakförina á afmælis-
mótinu. — Svo virtist og, að betur
myndi nú skipað á vallarhelmingi
Þórs en í afmælismótinu, en K. A.-
liðar reyndust enn sterkir og þó sér-
staklega vörnin.
Leikurinn var hraður, en þó ekki
harður. Glæsilegur samleikur eða
sterk upphlaup sáust sjaldan og þó
frekar hjá K. A. Þórsliðar voru
óheppnir, en lika ónákvæmir i skot-
um sínum, bæði i samleik og að
marki. Seinlæti var lika áberandi hjá
sumum leikmönnum Þórs, vantaði
herzlumuninn, en þar var öðru máli
að gegna hjá leikmönnum K. A., og
gerði það gæfumuninn. Þó sýndi
framlína Þórs skarpa sókn, eftir að
hafa fengið á sig annað markið.
Gerðu þeir frá miðju gott upphlaup
og skot frá Dúlla beindi knetti laglega
slána neðanverða og i netið bak við
Svein, sem annars tók vel á móti
hverju skoti að kalla. En K. A. átti nú
eftirleikinn og innan mínútu hafði
Þór fengið á sig þriðja markið. Voru
Darna skoruð 3 mörk á 4 min! Gísli
varði oft vel, en annars var vörn Þórs-
megin óviss mjög og í molum. Svo
lauk, að K. A. átti sigri að fagna með
1 marki. K. A. sá um mótið. Línu
varzla var ekki góð. Við mörkin var
3Ó færra áhorfenda en oft áður. —
Dómari var Jakob Gíslason. Honum,
sem og fleiri dómurum okkar, hætti
um of til að spara skósólana á vellin-
um, vera of þungur til að elta. Sá
dómari, sem vel fylgir eftir knettin
um, losar sig við mikla — oft rétt
mæta — „kritik“.
Afmælismóti Þórs á að ljúka í
kvöld með fjölbreyttri sundkeppni
hér uppi í lauginni. Verður siðan getið
um mótið í heild.
- Fokdreifar
(Framhald at' 4 .síðu).
að hann reynir i einu og öllu að gera
eftir vilja húsbænda sinna og túlka
skoðanir þeirra. Hann vantar bara að
læra, að færa rök fyrir máli sínu, en
það geta húsbændur hans máske ekki
kennt honum, enda kemur það ekki
ósjaldan fyrir að röksemdir hans
stangast við röksemdir flokksbræðra
hans. Pistill Sjálfstæðismanna hefir
undanfarið verið, að eitthvað sjúk-
legt sé við Framsóknarflokkinn, þar
sem ýmsir, sem verið hafa áhrifa-
menn eigi ekki lengur samleið með
honum. I fyrrnefndri óhróðursgrein J
P., brigslar hann Olafi Jónssyni um
flokkssvik. Þegar Framsóknarmaður
lendir málefnalega á öndverðum
meiði við flokkinn, segja Sjálfstæðis-
menn að það sé fyrir sjúkleika
flokknum, en þegar Sjálfstæðismað-
ur hefir hreinlyndi og drengskap til
þess að ávíta flokk sinn fyrir að gera
það, sem hann telur rangt, heitir það
é máli J. P. flokkssvik.
Þannig eru röksemdir postulanna á
Sjálfstæðisheimilinu og þar á Jón
Pálmason heima.“
Syndakvittunin.
gÍÐASTI Islendingur gefur Garðari
Þorsteinssyni aflausn og synda
kvittun fyrir allt brask á liðnum árum
og setur ofan í við Dag fyrir að hafa
ekki talað nógu virðulega um mann
inn. Dagur hefir ekkert illt um Garð
ar sagt, aðeins getið þess að hann
væri einn af heldri bröskurum höfuð-
staðarins. Islendingur getur naumast
státað af meiri háttvísi í umtali um
Garðar. Ekki er nema röskur mánuð-
Þökkum öllum nær og í jær auðsýnda vináttu við
fráfall og jarðarför
liENEDIKTS SIGURJÓNSSONAR
Vandamenn.
Hjnrlans þnkkir til allra ætlingja og vina, nœr og fjœr,
i er glöddu tnig d sjöl.ngs afmcelinu, 22. þ. m., með heimsókn-
1 nin, gjöfutn, blómuni og skeytmn og gjörðu mér daginn'
t dnœgjulegan.
C.uð blessi ykkur öll.
ELÍSA BEl Á RNA DÓ TTIR.
Stuðningsmenn
Þorsteins M. Jónssonar!
Verið samtaka um að
vinna ötullega á sunnu-
daginn!
Enginn má liggja á
liði sínu, enginn sitja
heima. — Hafið jafnan
samband við kosninga-
skrifstofuna í Skjaldborg
Áríðandi er, að þið kjós-
ið snemma. Takmarkið
er, að sem flestir kjósi
fyrri hluta dags. Það auð-
veldar störf kosninga-
skrifstofunnar.
Minnist þess, að kosn-
ingin hér getur oltið á
einu atkvæði. Stöndum
fast saman um kosningu
Þorsteins. Ef allir gera
skyldu sína, er sigur
unninn!
Tjöld
Tjaldbeddar
og Svefnpokar
Verzlunin HRÍSEY
Ennþá er liægt að fá góðu
Rakvélablöðin í
Verzlunin HRÍSEY
Dökkgrár liestur,
airakaður, gamal járnaður, í
óskilum á Ytri-Bægisá.
Trillubátur,
1 tons, með 4 ha. Stuart-vél,
er til sölu. — .Upplýs. hjá
TryggVa Gunnarssyni,
skipasmið, Dráttarbrautinni.
ur síðan blaðið nefndi þetta þing-
ar að leysa þarna flesta raun. Þær mannsefni Sjálfstæðisflokksins „pen-
ingagráðugan bíófursta". Þetta var i
sama blaðinu sem Islendingur til-
kynnti að Garðar mundi ekki vera x
kjöri. Hann var þá ekki betri en þetta.
En síðan breyttist þetta. Garðar er í
kjöri, og nú segir Islendingur hann
hreinan af allri synd, og gefur út af-
lausnarbréf. Nú er eftir að vita hvort
eyfirzkir kjósendur taka meira mark
á vitnisburði Islendings um bíóeig-
andann eða frambjóðandann, svo
gjörólíkir sem þeir eru að dómi blaðs-
ins.
Akureyringar velja
milli Þorsteins og
Steingríms .
FramboðsfundurÍHn á
mánudagskvöldið brá
upp glöggri mynd af
fylgi flokkanna í bæn-
um. Fleiri hundruð bæj-
arbúa hlýddu á fram-
bjóðendurna og létu í
ljósi álit sitt á málflutn-
ingnum. Tvímælalaust
var, að Framsóknar-
menn áttu mest fylgi á
fimdinum og kommún-
istar næst mest, en fylgis-
leysi Sjálfstæðisflokksins
var sérstaklega áberandi,
enda var málflutningur
hans atkvæðalítill og á-
hugaleysi um málefni
bæjarfélagsins ótrúlega
mikið. Það er því öllum
augljóst, að baráttan um
þingsætið er í milli Þor-
steins M. Jönssonar og
Steingr. Aðalsteinssonar.
Allir lýðræðissinnaðir
borgarar, sem vilja jöfn-
um höndum forða bæn-
um frá því að senda full-
trúa einræðisflokksins á
þing, og stuðla að ötulli
baráttu fyrir málefnum
bæjarfélagsins — kjósa
Þorstein M. Jónsson á
sunnudaginn kemur. —
Atkvæði sem falla- á
Alþýðuflokkinn og Sjáíf-
stæðisflokkinn á sunnu-
daginn verða gagnslaus í
þessari baráttu.
Leggið hönd á plóg-
inn til þess að spyrna
gegn áhrifum komrnún-
ismans á íslandi. Kjósið
gegn stjórnarsamstarfi
við kommúnista. Kjósið
með lýðræðisöflunum.
Kjósið
Þorstein M. Jónsson.