Dagur - 04.07.1946, Síða 6
6
D A G U R
Fimmtudagur 4. júlí 1946
Ur bæ og byggð
KIRK JAN. Messað á Akureyri
sunudaginn 7. júlí kl. 11 f. h. Prests-
vígsla. Arngrímur Jónsson guðfræði-
kandidat vígður til Odda. Séra Stefán
Eggertsson lýsir yígslu.
Örlagagátan eftir Björgvin Guð-
mundsson verður flutt í heilu lagi n.k.
föstudag kl. 9.30 síðdegis í Nýja-Bíó
af Kantötukór Akureyrar. — Kórmeð-
limir eru beðnir að mæta, til æfingar
í Nýja-Bíó, fimmtud. kl. 6.15 stund-
víslega.
. .1 sambandi við Brautarhólsmótið
verða samkomur í Zíon mánudó 8. og
þriðjud. 9. þ. m. kl. 8.30 e. h. Ræðu-
menn verða: Séra Sigurbjörn Einars-
son dósent, Steingrímur Benediktsson
kemiari Vestmannaeyjum, Vestur-ís-
lendingurinn Kristinn Guðnason verk-
smiðjueigandi o. fl.
Ferðafélag Akureyrar fer til Öskju
og Vatnajökuls um næStu helgi. Laug-
ardaginn 13. júlí næstk. verður farið
til Austurlands (6 daga ferð). Ef til
vill til Vopnafjarðar og Breiðdalsvík-
ur, samanber ferðaáætlun í „Ferðir“.
Farmiðar og upplýsingar þeirrar ferð-
ar hjá Kristófer Vilhjálmssyni, c/o.
skrifstofu Flugfélags Islands.
Glæsileg söngiför Kantötukórs
Akureyrar til höfuðstaðarins
, (Fnimhald ai 1. úðu).
Landssambandsins með miklum
ágætum og var kórinn leystur út
með gjöfum, hlaut vandaða fána-
stöng, en mér færði sambandið
fagran, útskorinn ask. Eg er
mjög ánægður með förina í
heild.“
— Er ætlunin að flytja Örlaga-
gátuna hér á Akureyri?
„Já, við munum flytja verkið
í Nýja-Bíó annað kvöld, föstu-
dag, kl. 9.30. Einsöngvarar verða
þeir sömu og fyrir sunnan. Kór-
inn gerir sér vonir um góðar við-
tökur bæjarbúa."
Blaðadómar um Örlagagátuna
og flutning kórsins bera með sér
að koma kórsins hefir ekki þótt
neinn hversdagsviðburður í tón-
listarlífi höfuðstaðarins. Hall-
grímur Helgason tónskáld ritar í
Alþýðublaðið um verkið og
sönginn:
„Björgvin Guðmundsson hefir
ráðizt í j^að lofsverða fyrirtæki,
að kynna söngdrápu sína „Ör-
lagagátuna“ fyrir blandaðan kór
og sjö einsöngsraddir með undir-
leik. Hefir kórinn — hinn mann-
í'lesti innlendi aðkomukór með
rösklega fimmtíu söngfélögum,
er gist hefir Reykjavík — þar
með leyst af höndum þjóðhollt
starf og merkilegt, er lengi mun
í minnum haft og skapa gott for-
dæmi. Félög, er vinna jafn Joýð-
ingarmikið menningarstarf og
Kantötukór Akureyrar undir
handleiðslu Björgvins Guð-
mundssonar, eiga að v.erða miklu
gildari þáttur þjóðlífsins en raun
er á orðin, því að Jiau hafa boð-
skap að flytja langt fram yfir
flest önnur félög og stéttafélög
og stéttasamtök innan þjóðfé-
lagsins. Það er hlutverk menn-
ingarstjórnmálanna, að huga að
þessum gróðurkvistum þjóðar-
meiðsins og laða þá til hins
mesta og bezta jnoska og fullrar
döfnunar landslýð öllum til auk-
ins andlegs velfarnaðhr. Ekkert
félag á gjörvöllu íslandi hefir
lielgað alla krafta sína óskipta
ævistarfi og köllunarverki eins
manns í lifanda lífi, og unnið af
ósleitilegri og dyggðaríkri trú-
HER HVILIR R00SEVELT
Myndin er ai hinu einfalda o£ íagra minnismerki á gröf Roosevelts torseta
i garöinum i Hyde Park, óðalssetri hans og Rooseveltsættarinnar. Hyde Park
er nú eign Bandaríkjaþjóðarinnar.
mennsku, svo sem gjört hefir
Kantötukórinn í þágu Björgvins
Guðmundssonar. Með þessum
trygga og dáðfúsa hóp kvenna og
karla, hefir tónskáldið brotið sér
braut sem alþjóðlegur laghöf-
undur og þjóðvinur og nú loks
öðlazt þá sjálfsögðu viðurkenn-
ingu, að vera leystur undan um-
svifamikilli og tímafrekri söng-
kennslu við tvo stóra skóla, sem
ætíð hlýtur að standa skapandi
gáfu hættulega fyrir þrifum og
sljóvga hana.
Óratóría Björgvins Guð-
mundssonar er samin af mikilli
sönggleði, svo að ánægjan við
lausn verksins verður yfirsterkari
öllum heilabrotum um nýjan
stíl. Þannig hefir Björgvin tekizt
að skapa alþýðlegt verk í stóru
formi, með Jíví einu að „mússí-
séra" eftir hjartans lyst og löng-
un einni saman. Slík afstaða höf-
undarins réttlætist fyrst og
fremst með góðri laglínu, sem
hann dregur greinilega fram
með hefðbundnum undirleik í
ætt við síð-barok-tímann, með
staðgóðum þríhljómum og tengi-
hlaupum. Sem kórsöngshöfund-
ur markar Björgvin sér breiðast
svið. Hermiröddun hans og
gegnfærðar eftirlíkingar verða
oft að stórkostlegum hljóm-
stöplum, sem spenna atvikarás-
ina til dramatískfa átaka við efn-
ið, eins og í lokakór fyrra þáttar,
„En böl ei bítur á oss“. Hins veg-
ar keniur fölskvalaus hugargleði
og gneip kátína l'ram í veiz.lu-
kórnum „Glatt var á hjalli“, en
hámark kórhlutverksins birtist í
hinum ógnþrungna leigðar-
galdri „Úti þýtur helreið“ og í
nornasenunni grimmúðugu, fyr-
ir kvenankór, „Sækjum á“ ....
Kantötukórinn flutti verkið
undir óskeikulli stjórn höfundar-
ins. Raddgæði tenórs og. sóprans
ber af sakir hins góða og fylíing-
armikla hreims, er einkennir
báðar raddir; sömuleiðis ber alt-
inn sína byrði með sóma, en bass-
ann skortir hinn djúpa og
breiða blæ undirstöðunnar og er
í nokkru áfátt um nákvæma tón-
hæfni, skýtur endrum og eins yf-
ir markið. Einsöngvararnir
Helga Jónsdóttir, Ingibjörg Ól-
afsdóttir, Björg Baldvinsdóttir,
Ingibjörg Steingrímsdóttir,
Hreinn Pálsson, Hermann Stef-
ánsson og Ólafur Magnússon,
reyndust höfundinum hinar
styrkustu stoðir og juku gildi
flutningsins að miklum mun,
með öruggri framkomu sinni og
alúð í starfi. Lena Otterstedt var
hinn óbrigðuli og samvizkusami
NÝJA BÍÓ
Fimmtud.kv. kl. 9:
Við lifum þótt við
deyjum
Laugardág kl. 6:
Kvennaglettur
Laugard.kv. kl. 9:
Gasljós
Sunnud. kl. 3:
Fjórar stúlkur
í „]eppa“
Sunnud. kl. 5:
Við lifum þótt við
deyjum
Sunnud.kv. kl. 9:
I björgunar
bátnum
SÁ,
Innilega þökkum við auðsýnda samúð við íráfall og jarð-
arför konu minnar, móður okkai og ömmu,
PÁLÍNU M. J. MÖLLER.
Eðvald Möller, börn og barnabörn.
undirleikari kórs og einsöngvara,
lék Jrar að auki millispil öll ein
og sýndi lofsamlega árvekni og
dugnað gegnum allt verkið frá
fyrsta til síðasta takts og var jafn-
an reiðubúin að greiða söng-
flokknum götuna, ef vanda bar
að höndum. Björgvin Guð-
mundsson tók með þökkum, vin-
samlegum undirtektum áheyr-
enda, blómum og miklu l^fataki,
og mun hann eflaust geyma ])á
minningu sem áskorun um, að
láta hér eftir skemmri tíma líða
milli heimsókna Kantötukórs
Akureyrar til Suðurlands, en ver-
ið hefir til þessa.“
Islandskort
115 kort í einu vönduðu bindi. Mælikvarði
1 : 100.000. Verð kr. 369.00. Aðeins fá eintök óseld.
Einnig aðalkort öll, sem fáanleg eru kr. 4.50. —
Yfirlitskort með bílvegum kr. 1.80.
b ék
Sími 444.
KbkhkhkhkhkhkhkhkhkbkbkbkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhkhcbkhkhK
>mKHKHKH>mKHKHKHKH><rO<HKHKHKHKHKH>m>mKHKH><HKHKHKHKH><H:
Frá Happdrættinu
Endurnýjun til 7. flokks er hafin. Á að vera lokið 5. júlí.
Dregið verður 10. jtilí.
Þeir, sem ekhi endurnýjuðu fyrir siðastn flokk, geta
endurnýjað nú, séu miðarnir óseldir.
Eftir er nð draga 4869 vinninga, samtals fyrir
1.714.100 krónur
Endurnýið í tíma. Kaupið .miða rneðan til eru
Bifreiða
tryggijigar
! V átryggingardeild^Þ*
Zenith og B. S. A. -
mótorhjól, í góðu standi, til
sölu. — Upplýsingar í pósl-
húsinu.
sem tók regnhlíf á þriðju-
dagskvöldið að Hótel Norð-
urlandi, skili henni strax á
sama stað.
Kvenarmbandsúr
tapaðist nú í vikunni á leið-
inni frá sundlauginn niður
Oddeyrarg. í Hólabraut. —
Finnandi góðfúslega beðinn
gera aðvart í afgr. Dags.
Barna-regnkápur,
nýkonmar.
Verzlunin L () N D O N
Tapast liefur
Vil selja vörubifreið
Ghevrolet, árg. 1943, með
miklu af varastykkjum.
INGIMUNDUR ÁRNASON.
rauður hestur með blesu
á fl ipa, e. t. v. með band
um liáls. Góðfúslega til-
kynnið mér ef þið verðið
hans varir.
KRISTJÁN E. KRISTJÁNSS.
Hellu.
Hreppsnefndarkosningar og kosn-
ing til sýslunefnda, fer fram um land
allt næstk. sunnudag.
Bændur skera úr deilunni um til-
i högun stéttarsambands síns með at-
I kvæðagreiðslu á sunnudaginn kemur.
Á Akureyri fer kosningin fram við
Kaupvangstorg, þar sem áður var af-
greiðsla Dags.
| Sildveiðin. Fyrsta síldin á þessari
! vertíð barst til SR í Siglufirði og Dag-
verðareyrar um sl. helgi. Flest veiði-
skipanna eru komin á veiðar, en síld-
ar hefir óvíða orðið vart, enda tíðin
óhagstæð til þessa.
* Dagur er 6 bls. í þetta sinn.
I Dánarfregn' |
Þegar blaðið er að fara í press-
una berst sú sorgarfregn að Jó-
hannes G. V. Þorsteinsson,
píanóleikari, haf'i látizt í Kaup-
mannahöfn.
Jóhannes, öllurn Akureyring-
um kunnur, var Jrekktasti jazz-
píanóleikari landsins, og hafði
nýlega haldið hljómleika í
Khöín ásamt söngkonunni Elsu
Sigfúss. — Jóhannes var innan
við þrítugt.
Flugferðir milli Akur-
eyrar og ísafjarðar
Næstkomandi laugardag hefj-
ast reglubundnar flugferðir milli
Akuteyrar og ísafjarðar á vegutn
Flugfélags Islands. Flogið verður
einu sinni í viku, ef ástæður
leyfa. Eyrsta ferðin verður farin
héðan með Catalinaflugbát á
laugardaginn kemur, tekið á
móti pöntunum á skrifstofu fé-
lagsins hér. Afgr. á ísafirði hjá
Kaupfélagi Isfirðinga,