Dagur


Dagur - 15.08.1946, Qupperneq 3

Dagur - 15.08.1946, Qupperneq 3
Fimmtudagur 15. ágúst 1946 D A G U R 3 ÚTILlF OG ÍPRÖTTIR Fundur stjórnar í. B. A. 18. júlí var haldinn fundur í stjórn í. B. A. Mætti þar íþróttafulltrúi rík- isins, Þorsteinn Einarsson, og íþrótta- svæðanefnd K. A. og Þórs. Til um- ræðu var íþróttasvæðismál bæjarins, og rakti formaður í. B. A. forsögu þess máls, og það, sem gert var í mál- inu á síðastliðnum vetri, m. a. var lagt fram bréf það, sem íþróttafélögin skrifuðu bæjarstjórn 5. apríl sl. Samþykkt var að halda áfram að vinna að málinu á þeim grundvelli er lagður var með samþykkt allsherjar- nefndar bæjarstjórnar Akureyrar 1944 og fjallar um æfingavelli á Odd- eyri, enda er nefnt bréf frá 5. apríl í samræmi við þá samþykkt. Samþykkt að óska eftir því að svæðið sunnan við sundlaugina verði nú þegar ákveðið fyrir íþróttasvæði og það sléttað lárétt sem allra fyrst. Svör þau, sem stjórnmálaflokkarnir gáfu við bréfi íþróttafélaganna við- komandi vallarmálunum, fyrir síðast- liðnar bæjarstjórnarkosningar, virtust bera það með sér, að allir flokkarnir vildu leysa þetta mál fljótt og vel. Enda er varla annað sæmandi, þar sem allir vita að núverandi ástand í vallarmálum bæjarins er algjörlega óviðunandi og hefir verið það lengi. Vænta íþróttamenn bæjarins þess fastlega, að bæjarstjórnin taki þessi mál til alvarlegrar yfirvegunar nú þegar, svo að hægt sé að hefja undir- búning að byggingu æfingavallanna. * Drengjamót í frjálsum íþróttum. Nýlokið er í Reykjavík 5. drengja- meistaramóti Islands, í frjálsum iþróttum. 5 drengjamet voru sett á mótinu. Bezti árangur í hverri grein þessi: 100 metra hlaup: Haukur Clausen, í. R., 11,7 sek. Hástökk: Orn Clausen, I. R., 1.70 m. 1500 m. hlaup: Stefán Gunnarsson, Á., 4.34.6 mín. Kringlukast: Vilhj. Vilmundarson, K. R., 44.21 m. Langstökk: Björn Vilmundarson, K. R., 6.80 m., nýtt drengjamet og bezti langstökksárangur ársins. Stangarstökk: Isleifur Jónsson, í. B. V., 3.20 m. Kúluvarp: Vilhj. Vilmundarson K. R., 14.86 m. 400 m. Vilaup: Pétur Sigurðsson, K. R. 53.6 sek., nýtt drengjamet. Þrístökk: Björn Vilmundarson, K. R., 13.08 m. 3000 m. hlaup: Stefán Gunnarsson, Á., 9.35.0 mín. Spjótkast: Ásm. Bjarnason, K. R., 53.97 m., nýtt drengjamet. Einn keppandi var á mótinu frá Akureyri, Ofeigur Eiriksson úr K. A. Kastaði hann í spjótkasti 48.22- m. og varð þriðji i röðinni. * Þá er nýlokið drengjamóti hér á Akureyri, jóku þátt í þvi 16 keppend- ur frá K. A. og Þór. Árangrar urðu þessir: 80 m. hlaup (16—19 ára). 1. Jón Hjaltason, Þór, 10.1 sek. 2. Haraldur Ólafsson, Þór, 10.4 sek. Innan 16 ára. 1. Baldur Jónsson, Þór, 9.9 sek. 2. Agnar B. Óskarss., Þór, 10.0 sek. 3. Hannes Guðmundsson, Þór, 10.3 sek. Langstökk. 16—19 ára. 1. Haraldur Ólafsson, Þór, 5.47 m. 2. Jón Hjaltason, Þór, 5.36 m. Innan 16 ára. 1. Agnar B. Óskarss., Þór, 5.54 m. 2. Hannes Guðmundss., Þór, 5.19 m. 3. Stefán B. Einarss., K. A., 5.09 m. Hástökk. 16—19 ára. 1. Jón Hjaltason, Þór, 1.45 m. 2. Haraldur Ólafsson, Þór, 1.40 m. Innan 16 ára. 1. Agnar B. Óskarss., Þór, 1.50 m. 2. Baldur Jónsson, Þór, 1.45 m. 3. Áki Eiríksson, K. A., 1.45 m. Þrístökk. 16—19 ára. 1. Haraldur Ólafsson, Þór, 11.43 m. 2. Jón Hjaltason, Þór, 11.00 m. 3. Ófeigur Eiríkss., K. A., 10.96 m. Innan 16 ára. 1. Baldur Jónsson, Þór, 11.49 m. 2. Guðmundur Órn Árnason, K. A., 10.33 m. 3. Hannes Guðmundsson, Þór, 10.03 m. Spjótkast. 16—19 ára. 1. Ofeigur Eiríkss., K. A., 47.03 m. 2. Jón Hjaltason, Þór, 37.15 m. 3. Haraldur Ólafsson, Þór, 36.57 m. Innan 16 ára. 1. Axel Kvaran, K. A., 35.10 m. 2. Kristján G. Kristjánsson, Þór, 31.93 m. 3. Tryggvi Georgsson, Þór, 31.22 m. Kringlukast. 16—19 ára. 1. Ófeigur Eirikss., K. A., 36.96 m. 2. Jón Hjaltason, Þór, 33.12 m. 3. Lárus Zóphoníass., Þór, 27.77 m. Innan 16 ára. Agnar B. Óskarss., Þór, 31.30 m. 2. Hannes Guðmundsson, Þór, 29.75 m. ' 3. Trausti Hallgrímss., Þór, .29.53 m. Kúluvarp. 16~19 ára. 1. Ófeigur Eiríksson, K. A., 12.93 m. 2. Jón Hjaltason, Þór, 11.92 m. 3. Haraldur Ólafsson, Þór, 9.79 m. Innan 16 ára. 1. Agnar B. Óskarss., Þór, 11.69 m. 2. Baldur Jónsson, Þór, 11.51 m. 3. Guðmundur Örn Árnason, K. A., 11.36 m. Arangrar á þessu móti eru ef til vill ekki sérlega góðir, t. d. í samanburði við drengjameistaramótið, og ber margt til. — Drengirnir eru flestir innan við 16 ára aldur og nýlega byrj- aðir að æfa. Þá hefir og gengið mjög erfiðlega að útvega gaddaskó og ann- að til æfinganna, en það, sem mestu veldur þó, er, að aðstaðan til æfing- anna er mjög bágborin, og þarf vart að vænta mikilla afreka meðan ekki skipast betur í þessum málum, en nú er. Margir þeirra drengja, sem fram komu á þessu móti eru tvímælalaust ágætis íþróttamannaefni, sem mikils má vænta af haldiiþeir áfram að æfa af kappi. Hér fer á eftir greinargerð, sem Tryggvi Þorsteinsson hefir sent félög- unum, en hann þjálfaði drengina fyr- ir mótið. * „Dagana 18. júl, til 1. ágúst hafði eg umsjón með æfingum nokkurra drengja, sem æfðu frjálsar íþróttir. Drengirnir voru úr K. A. og Þór, og æfðu sameiginlega. Aðstaða á vellinum var slæm, en áhugi margra drengjanna mjög mikill. Margir drengjanna höfðu eitthvað fengist við frjálsar íþróttir áður og var reynt eftir megni að veita hverj- . um einum þá tilsögn, er hann þurfti. Æfingar stóðu yfir einn til tvo tima á kvöldi. Þrjú síðustu kvöldin fór fram mót i frjálsum íþróttum og fylgir hér með keppendaskrá og árangrar þeir er náð- ust. Að þessu sinni var mótið ekkert auglýst og var það ráð tekið með til- liti til þess að einhverjir keppend- anna hefðu ekki komið fram hefðu þeir átt von á mörgum ókunnugum áhorfendum. í sambandi við áframhaldandi æf- 1 ingar tel eg nauðsynlegt: 1. Aðstaðan til æfinga í frjálsum | íþróttum verði bætt svo sem unnt er á einum stað, og allir bæjarbúar, sem þessar íþróttir æfa hafi jafnan að- gang að og æfi sameiginlega. 2. Að séð verði fyrir fleiri áhöldum til æfinga. 3. Að félögin hlutist til um að frjálsra-íþróttamenn geti fengið gaddaskó og hentug æfingaföt. Legg til að I. B. A. taki upp rauðbrún æf- ingaföt fyrir félög innan sinna vé- banda, og hvert félag merki síðan sina menn með viðkomandi félagsmerki. 4. Legg til að reynt verði að koma upp annarri drengjakeppni i frjálsum íþróttum, t. d. í september í haust. Akureyri, 4. ágúst 1946. Tryggvi Þorsteinsson." * Norðurlandsmót í handknattleik kvenna hófst sl. laugardag á Akureyri. Kepptu þá K. | A. og Þór — en þriðji þátttakandinn er Völsungar á Húsavík. — Veður þótti ekki gott á laugardaginn, en stundum láta stúlkur sér ekkert fyrir brjósti brenna! K. A. hafði greinilega yfirburði í þessum leik og sigraði með 3:1 marki. Næsti leikur var kl. 2.30 á sunnud. milli Völsunga og Þórs. I'liði Völsunga eru flest korn- ungar stúlkur og nýliðar í keppninni. En þær eru sprettharðar og sýna oft góðan samleik. En Þórs-„dætur“ höfðu nú sótt í sig veðrið og unnu leikinn með 5 : 3 mörkum. Síðasti leikurinn — samkv. áætlun — var svo kl. 6.15 sama dag. Mættust þar K. A. og Völsungar. Var það hraður og skemmtilegur leikur, hættuleg upphlaup hjá báðum og góð markskot en lika vel varið. Völsungar sýndu nú öflugri leik en á móti Þór, og þarna nokkra yfirburði, og unnu leikinn með 5 : 4 mörkum. •— Voru þá félögin jöfn með 2 stig hvert, og verður því að leika að nýju. Ráðgert er að ljúka mótinu næstk. laugardag. Mun áhugi mikill hjá öll- um liðunum að sigra á mótinu — og verður ekki annað séð ,en þar hafi öll svipaða möguleika. Við úrslit mun velta á því, hvert liðið er sterk- ast i ,,taugastríðinu“, og getur haldið ró sinni til athafna, þrátt fyrir kapp- saman leik og æsandi hróp mann- fjöldans, sem að mun safnast á laug- ardaginn kemur. ERLENT YFIRLIT 14. ÁGÚST. * Frá ársþingi íþróttasambands Islands. Ársþing Iþróttasambands íslands var haldið í Reykjavík 20. og 21. júní sl. Alls voru mættir á þiriginu 40 full- •trúar. Fulltrúar frá Akureyri voru form. I. B. A., Ármann Dalmannsson, Hermann Stefánsson og Bjarni Hall- dórsson. Fjölda mörg mál lágu fyrir þinginu, og voru ýmsar samþykktir gerðar. Skorað var á Alþingi að lög- skipa 17. júní sem þjóðhátíðardag. Margar tillögur voru samþykktar í áfengis- og löggæzlumálum og var skipuð þriggja manna milliþinganefnd til að undirbúa raunhæfar tillögur til úrbóta í áfengismálum. Stjórn sam- bandsins var falið að vinna að því að öll félög og félagasambönd innan í. S. I. hafi fána- eða merkjasölu einu sinni á ári og skiptist ágóði jafnt milli I. S. I. og viðkomandi félags. Að unn- ið verði að auknum krafti að eflingu íþróttaheimilissjóðs I. S. I. Að undir- búið verði sem bezt 35 ára afmaglis- mót í. S. í. á Þingvöllum 1947ogjafn- framt skorað á öll íþróttafélög lands- ins að senda sem flesta keppendur. Er ástæða að taka þetta til athugun- ar og hefja undirbúning nú þegar. Ár- gjald til sambandsins var ákveðið óbreytt kr. 0.75 fyrir hvern meðlim. Ymsar fleiri tillögur voru samþykkt- ar, svo sem tillögur frá laganefnd I. S. í. og verður þeirra ef til vill getið síðar, er lögin með áorðnum breyting- um hafa borizt félögunum. Að loknu þingi bauð bæjarstjórn Reykjavíkur þingfulltrúum til miðdegisverðar á Þingvöllum. Kommúnistaflokkur Frakklands úlvörður ráðstjórn- arinnar gegn brezk-frönsku bandalagi Skjót endurreisn atvinnuvega Frakklands er trygging fyrir auknu sanrstarfi vestur-evrópsku þjóðanna London. — Brezka ríkisstjórnin tók mikilvæga ákvörðnn nndir lok síðasta mán^ðar. Ákveðið var að taka boði Bandaríkjamanna um elnahagslega einingu hernámssvæða Bandríkjanna og Bret- lands í hýzkalandi. Jafnframt munu hafa verið lögð drög að auknu samstarfi vestur-evrópisku þjóðanna í heild. Amrar hornsteinninn í slíkri samvinnu hlýtur óhjákvæntilega að verða Frakkland og brezka ríkisstjórnin gerir sér nú ljóst, að brezk-franskt bandalag í Iramtíðinni er komið undir efnahagslegri endurreisn Frakklands og minnakandi áhrifum kommúnistaflokksins á stjórn landsins. — Kommtmistarnir eru mótfallnir slíku bandalagi. Þeir vilja „hlut- leysi" Frakklands í tilraunum stórveldanna til þess að skapa ríkja- samsteypur í vestri og austri. Umfram allt er það áhugamál þeirra, að Bretum og Bandaríkjamönnum takist ekki að sameina vestur-* evrópisku þjóðirnar í samstillta heild á pólitískum og efnahagsleg- um vettvangi. Rtissar telja slíka samsteypu fela í sér hættu, jafnvel Jré)tt Jreir hafi þegar komið á samsteypu eftir sínu höfði í Austur- Evrópu, og Jressi stefna Rússa er kjarninn í utanríkismálastefnu franska kommúnistaflokksins. ------- Þetta viðhorf Breta kom greinilega fram í ræðu, sem einn ráð- herranna brez.ku, Noel-Baker, hélt í þinginu nú um mánaðamótin. Noel-Baker sagði m. a.: „Frakkland getur skapað Jrjíiðhagslegt og viðskiptalegt öryggi, ef Jrað hefir ylirráð yfir nægilega miklu af kol- um. Tap 50.000 smálesta af koltím nú, áðtir en vetur gengur í garð, mundi verða gífurlegt áfall fyrir Irönsku ríkisstjórnina, sem er að reyna að endurreisa hið lamaða I járhagskerfi landsins. Þetta sama gildir í Hollandi og Belgíu. Endurreisn lýðræðislegs fjárhagsörygg- is í þessum löndum er mikilvægt hrezkt hagsmunaatriði.“ Með öðrum orðum: Skipan öryggismála Vestur-Evré)pu er nátengd hinni efnahagslegu endurreisn. Undanfari pólitísks og og hernaðarlegs samstarls er viðskipta- og fjárhagslegt samstarf. Slíkt samstarf, er að gagni mætti verða, er óluigsandi, ef kommúnistaflokknum franska tekst að halda Frakklandi hlutlausu í átökum hinna stórveldanna urn skipan mála í Evrópu. ------- Margt bendir nú lil Jress að styrkur kommúnistanna sé að fjara út í Frakklandi. A síðustu vikum hefir verið talsvert áberandi frá- hvarf frá stefnu þeirra meðal ýmsra kunnra manna. Néfna má sem dærni, að kommúnistaleiðtogarnir stóðu einir uppi í þinginu í árás- inni sem þeir gerðu á Reynaud og Daladier fyrir skömmu. Og glöggir stjórnmálamenn í París benda á, að Marxisminn sé ekki lengur þjóðmálakenning, sem sé í tízku meðal franskra mennta- manna. Þrátt fyrir Jtessi merki um hrörnun, er augljóst, að Bidault á íullt í fangi að halda stjórninni sarnan og fá kommúnistana til að styðja stjórnina og endurreisnarsLefnuskrá hennar, án Jress að um pólitíska eftirgjöf af hans hálfu sé að ræða. Kommúnistar fengu 25% greiddra atkvæða í síðustu kosningum. Flokkurinn telur heila milljón manna, og fjórar milljónir annarra Frakka kusu frambjóð- éndur hans. Þeii eru Jrví sem næs.t einráðir í verklýðssamtökunum og geta í einu vetfangi stöðvað alla endurreisnina og sett allt á ringulreið með ]>vi að fyrirskipa allsherjarverkföll. Sem stendur standa Jreir að ]>ví, ásamt hinum flokkunum, að auka framleiðslu landsins. S'msar nterkilegar framkvæmdir eru á döfinni, )>ar á meðal má nefna tilraunir til þess að vinna ný hráefni í nýlendun- um og áherzluna, sem lögð er á að auka kola- og rafmagnsfram- leiðsluna. Þessar framkvæmdir hafa gengið að óskum, en mjóu hefir munað stundum að samstarfið slitnaði. Sérstaklega hafa kommúnistar verið erfiðir í launamálum. Krafizt var 25% kaup- hækkana almennt, en Bidault, sem sá, í hvern voða slíkt mundi steypa I jármálakerfi landsins, snerist öndverður, en gekk inn á 15% hækkun til samkomulags. Kommúnistar gera sér vel ljéist, að MRP, flokkur Bidaults, er vaxandi flokkur í landinu, en jalnaðarmenn minnkandi. Baráttan í framtíðinni muni ]>ví standa í milli kommúnista og MRP- eða miðflokksmanna. MRP-flokkurinn vill þjóðnýta ýnisar atvinnu- greinar, en hann viðurkennir einstaklingseign og einstaklings- íekstur og stefnuskrá hans er lýðræðisleg. Hann er og hlynntur kirkju og kristindéimi. I milli ]>essa flokks og kommúnista mun baráttan standa. Kommúnistar hafa verklýðssamtökin á sínu valdi og því sterkt vopn I hendi. Sennilegt er, að þegar í odda skerst, ]>á \erði boðað til allsherjarverkfalls í landinu. Upp úr þeim átökum mun hið nýja Frakkland — í hvaða mynd sem J>að verðttr — verða skapað. Aukið afkomuöryggi og el'ling franska iðnaðarins nú þegar styrkir Bidault og flokk hans. Þess vegna munu Bretar veita hvern þann stuðning, er ]>eir mega, til ]>ess að endurreisnin stöðvist ekki af hráefnaskorti. Það er þeirn lífsnauðsyn, að hið vestræna — en ekki austræna — lýðræði nái að skjóta föstum róturn í frönskum stjórnmálum, svo að engir misvindar nái að kippa þeirn rótum étr

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.