Dagur - 15.08.1946, Blaðsíða 4

Dagur - 15.08.1946, Blaðsíða 4
4 DAGUR Fimmtudaginn 15. ágúst 1946 DAGUR Ritstjóri: Hcrukur Snorrason Afgreiðslu og innheimtu annast: Marínó H. Pétursson Skrifstofa í Hafnarstreeti 87 — Sími 166 Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi Árgangurlnn kostar kr. 15.00 Prentverk Odds Bjömssonar Tveir pokar. J^IN AÐAL áróðursstöð kommúnista og þeirra fylgifiska hér á landi, „bókmenntafélagið'' Mál og menning í Reykjavík, hefir nýskeð gefið út heilmikinn doðrant, þýðingu á bók ameríska blaðanrannsins Richard E. Lauterbachs: Tlrese are the Russians, er nefnist í hinni ísl. þýðingu: Réttlæti, en ekki hefnd. Einn fjögurra þýðenda bókarinnar, kommúnistinn Ásgeir Blöndal Magnússón, lýkur í formálsorðunr rniklu lofi á höfundinn og verk lrans, enda nrun það nraklegt að ýmsu leyti. Segir þýðandinn lröfund bókarinn- ar gæddan „ágætis athyglisgáfu, heiðarlegan r frá- sögn sinni, enda geri hann sér einlæglega far unr að komast að því sanna." Er því harla ólíklegt, að kommúnistar hér á landi hafi nokkuð við það að athuga, þótt vitnað sé í rit þetta, þótt lrvorki sé hér staður né stund til þess að gera bók Lauter- baclrs og lærdóma þá, senr athugull lesandi nreð sænrilegri athygli og gagnrýnisgáfunr, getur at henni dregið, að umræðuefni fram yfir það, sem ákveðið málefni, senr nú er ofarlega á baugi víða í héiminum — og einnig hér á landi — gefur sér- stakt tilefni til. BLS 22—23 í hinni ísl. þýðingu bókarinnar segir höf. frá reynslu sinni af útimörkuðum þeim, senr hann lieimsótti oft á ferðalagi sínu um Rússland. Rússnesku liðsforingjarnir og em- bættismennirnir höfðu nóg af rúblum, en hvorki ferðafélaganrir amerísku né heldur óbreyttir, rússneskir borgarar, sem þeir kynntust, höfðu mikið aflögu al þeim dýrmæta varningi. Lauter- bach blöskfar því, þegar hann kenrst að því, að „lítill kjúklingur kostaði 200 rúblur (urn 260 kr.), og ein dós af niðursoðnu kjöti var 80 dollara (um 500 kr.) virði. Gamlar, lreilar flöskur kostuðu milli tuttugu og fjörutíu rúblur á markaðinum. “ Verðlagið á skömnrtunarvörunum var að vísu nriklu lægra en þetta, en harla naunrlega var skammtað, og óbreyttum almúginn átti ákaflega óhægt um vik að bæta sér það upp á hinunr opin- bera „svarta nrarkaði1', eða hinum „sérstöku verzlunum" stjórnarinnar. Höf. getur þess síðar í bókinni, að vinstúlka hans, Natasja að nafni, hafi t. d. fengið 1350 rúblur r laun á mánuði, en „miðað við slíkt verð voru mánaðarlaun Natösju virði tveggja sykurpunda og eins smjörpunds!" (Bls. 50). En æðri enrbættismenn stjórnarinnar og framleiðendurnir höfðu nógar rúblur til að bæta sér upp skömmtunina. „Bændurnir komu til markaðarins með tvo poka: lítinn poka fyrir vörurnar, sem þeir ætluðu að selja, og stóran poka fyrir rúblurnar, sem þeir fengu lyrir þær.“ (Bls. 23). pjVORT MUNDl HÉR ekki fengin hæfileg og eðlileg skýring á því fyrirbrigði, sem orðið hefir mörgum manninum mikið undrunarefni fram að þessu, sem sé því, hverju það sætir, að forsvarsmenn þeirra flokka, er telja vilja sig sér- staka forsvarsmenn verkalýðsins, háfa látið flokk stríðsgróðamanna og auðjöfra ginna sig til sam- starfs og fylgis við fjármálastefnu, sem leiðir óhjá- kvæmilega til sívaxandi verðbólgu og dýrtíðar í landinu. Fyrirmyndin er sem sé rússnesk, og þá er auðvitað ekki að sökum að spyrja: Stór poki undir launin, en lítill poki undir verðmætin, nauðsynjavörurnar, sem fyrir þau er hægt að kaupa. Þetta er hin fagra fjárhagshugsjón, sem þessir „foringjar verkalýðsins og launastéttanna" Heiður þeim, sem heiður ber. j SÍÐASTA blaði var getið um skaða og truflanir, sem orðið höfðu hér í bænum þó fyrir skemmstu af völdum ökumanna úr Reykjavík. I þetta skipti voru það þó aðeins ljósastaurar og girðingar, sem urðu fyrir barðinu á gestunum og farartækjum þeirra, en víst má það tilviljun og heppni kall ast, meðan önnur og verri slys hljót- ast ekki af slíkum árekstrum. Ollum landslýð er þegar kunnugt orðið, að varla líður sá dagur að kalla, að ekki verði einhver umferðaslys í höfuð- staðnum eða vegum þar í nánd — oft hörmuleg hrakföll, meiðingar, sem af hljótast, æfilöng örkuml, eða jafnvel bráður bani fleiri eða færri vegfar- enda. Annars staðar á landinu eru slík tíðindi miklu sjaldgæfari tiltölulega, sem betur fer. Hér á Akureyri má t. d. kalla, að alvarleg bílslys séu mjög fátíð, og er þó umferð orðin harla mikil á sumum gatnamótum hér og á vegum í nánd við bæinn. Og auðvitað fer þvi fjarri, að vegir og götur séu yfirleitt betri eða greiðfærari hér en i höfuðstaðnum, nema siður sé, svo sem að likum lætur. JJVAÐ VELDUR þessum mikla mun? Ekki þarf að fara í nokkrar grafgötur með svarið: Okumenn hér á Akureyri og annars staðar úti um land virðast yfirhöfuð vera miklu gætnari, samvizkusamari og hæfari í starfi sínu en stéttarbræður þeirra í Reykjavik. Auðvitað eru til margar heiðarlegar undantekningar á þeirri aðalreglu, að umferð vélknúinna farartækja á göt- um höfuðstaðarins og ó næstu vegum út frá bænum, fer fram með miklu meiri hraða, ógætni, tillitsileysi og þjösnahætti en títt er annars staðar. Og það er segin saga, að sjáist slíkt ökutæki á vegum hér norðanlands, á þeim tíma órs, þegar vegir eru opnir suður á bóginn, þá verður mönnum ósjálfrátt fyrst fyrir að skyggnast um eftir þvi, hvort það munu ekki vera Reykvíkingar, sem þar séu á ferð, svö ótrúlegt mun mönnum finnast, að hin- ir góðu og þrautreyndu norðlenzku bílstjórar taki upp á svo ósvífnu og heimskulegu háttalagi. Og kórónan á þessum afrekum ökuníðinganna verð- ur svo oftast sú, að þeir reyna að læð- ast á burt, eftir að hafa valdið slysum og óhöppum, án þess að gera vart við sig eða taka á sig réttmæta ábyrgð verka sinna, svo sem raunin varð á í báðum þeim tilfellum, sem um var getið í síðasta blaði. sjá fyrir sér í anda! Þess vegna samþykkja þeir tneð þögninni aðrar eins aðgerðir ríkisvaldsins og stórfölsnn vísitölunnar aðeins kindárlega í eins Off glotta kampinn, Jregar aðalmálgagn verðbólgustjórnarinnar, Morg- unblaðið, hælist um og ögrar sámtsarfsflokkum sínum með því að lýsa því yíir, að „tilgangs- laust sé að fá hækkað kaup, ef verð á nauðsynjavörum heldur áfram að hækka um leið.“ Morg- unbláðið og flokkur Jress hefir völdin og heldur áfram að græða í skjóli verðþennslunnar og ver/.lunarokursins. En barátta verkalýðsins fyrir bættum kjör- um og aukinni menningu er smám saman að renna að fullu út í sandinn og breytast f fullt tilgangsleysi fyrir stjórnmálaað- gerðir ,,leiðtoga“ þeirra og „for- ingja“: Launapokinn stækkar að vísu óðum, en litli pokinn með nauðþurftunum og lífsþægind- unum minnkar bara og léttist óðfluga í hlutfal 1 i við rúblna- pokann, sem stækkar og þyngist! Bifreiðastæðin. Ymsir borgarar hafa haft orð ó því við blaðið, að lítil bæjarprýði sé að nýbyggingunni, er bæjarstjórnin hefir leyft til bráðabirgða sunnan Strand- götu, og ætluð er fyrir vörubílaaf- greiðslu. Satt er það, að skúr þessi sómir sér illa á þessum stað, en á hitt er einnig að líta, að lausn bifreiða- 1 stæðamálsins er engan veginn auð- veld, svo að vel fari. Svo er að sjá, sem á skipulagsuppdráttum bæjarins sé aðeins gert ráð fyrir bifreiðaakstri, en bifreiðastæðin hafi gleymzt. Það eru stundum furðulegir hlutir, sem „gleymast" hjá sérfræðingunum. Vita- skuld er byggingin sunnan Strandgötu engin framtíðarúrlausn og það er æf- inlega slæmt, þegar tekið er upp á því að drepa vandamálunum á dreif, og það sem verra er, tefur venjulega þær framkvæmdir, sem óumflýjanlegar eru. T>AÐ er fyrir löngu augljóst, að skipuleggja þarf stæði fyrir bif- reiðastöðvar bæjarins allar. Því fyrr, sem hafizt verður handa um það, því betra. En þarna er talsverður vandi á ferðum, því að bifreiðastöðvarnar þurfa helzt að vera nálægt miðsvæð- um bæjarins, og þar er þegar þröngt fyrir dyrum. Ýmsir bifreiðastjórar telja að mál þetta verði e. t. v. bezt leyst með uppfyllingu í króknum utan við nyrðri Torfunefsbryggjuna, eða í nágrenni bátakvíarinnar frægu. At- hugun á þessu máli þyrfti að gera sem fyrst og miða framkvæmdir allar héð- an i frá við framtíðarlausn. Bifreiða- stöðin, sem nú fær plóss sunnan Strandgötu, verður ekki sú einá, sem verður á hrakhólum með bílastæði á næstunni. Augljóst er, að einhvern tíma rekur að því, að bifreiðarnar verða að fara af Ráðhústorgi. Þegar að því kemur, þarf bærinn að hafa séð fyrir viðunanlegum stæðum fyrir þessa fjölmennu stétt bæjarmanna og hinn nauðsynlega atvinnurekstur þeirra. Vegirnir með versta móti. I sambandi við þessi mál ber vega- viðhaldið oft á góma. Eg hefi heyrt það á mörgum bilstjórum, að þeir telja vegaviðhaldið í sumar óvenju- lega lélegt. Sem dæmi nefna þeir veg- inn hér fram Eyjafjörðinn, sem sé allt of sjaldan heflaður, og fleiri vegi nefna þeir í þessu sambandi. Þá eru sumar götur bæjarins ekki allt i sóm- 1 anum og því miður virðist tækninni í viðhaldi þeirra lítið miða áfram, þrótt fyrir þær nýju vinnuaðferðir í götu- gerð, sem nú ryðja sér til rúms hér ó landi. Og meðal annarra orða: Er eigi kominn tími til þess fyrir Akureyrar- bæ, að eignast nýtízku tæki til mal- bikunar og þéttunar? Ekki kæmi mér það á óvart, þótt athugun leiddi í ljós, að gatnalengdin hér og hin mikla um- ferð á sumrin, hefðu nóð því marki, að bærinn hafi alls ekki efni á því lengur, að halda gamla laginu um við- gerðir og nývirki. jgÆJARSTJÓRNIN skipaði í vor nefnd til þess að athuga umferða- mál bæjarins. Frá nefndinni hefir ekkert heyrzt ennþá, en vonandi verð- ur það því meira og betra, er fylling tímans er komin. Gott væri, ef nefnd- in tæki til athugunar gatnaviðhaldið almennt, því að vissulega hefir það mikla þýðingu fyrir umferðina, og gerði því skil. Eftir að nefnd þessi hefir skilað áliti sínu, þarf að taka j öll vega og umferðamálin, ásamt með bílastæðunum, til gagngerðrar athug- ! unar og gera þá strax þær óætlanir, ! sem hægt er að byggja á í framtíðinni. | Umferðin á fyrirsjáanlega eftir að i aukast stórkostlega á næstu árum ó I „Puella“ segir fréttir frá London „Puella“ — frk. Anna S. Snorradóttir, sem er lesendmn kvennadálksins að góðu kunn, kom lieim nú eltir helgina, eftir átta mánaða dvöl í London. Dagur kom að máli við frk. Önnu og bað liana segja lesendum Dágs eitthvað um líl'ið í London — tízkuna, búskapinn og hváð jrað arihað, sem gaman væri að heyra um. — Eg hefi svo sem ekkert sérstakt að segja, sagði frk. Anna. — Allir vita, að Bretar hafa enn orðið að herða á mittisólinni. Það er sannarlega ekkert sældarbrauð að vera húsmöðir í London á Jressum dögum. Allt er skammtað, — og naumt skammtað. Það er enginn afgangur af |ní, að menn fái nægilegt viðurværi og a. m. k. þarf hús- múðirin að vera hagsýn og ráðdeildarsöm til þess að láta skömmtunarmiðana endast svo að allri fjölskyldunni líði vel. Um hvað er mest talað? — Karhnennirnir tala um stjórnmáíaástandið og bjórhallærið — en húsmæðurnar um brauð- skömmtunina, sem er ótrúlega erfið og óvinsæl — Jjótt flestir viðurkenni að hún hafi verið ill nauð- syn. Allir þrá þann dag, er lnin verður afnumin — og menn gera sér von um að jiað verði á þessu hausti. — Hvað vanhagar mest um? — Allt feitmeti. — Húsmóðirin í London hefir bókstaflega ekki eliii á Jjví að Jjvo steikarpönn- urnar sínar — því að engin arða af feitinni má fara forgörðum. Sápa er vandfundin menn þurfa að hafa með sér sápu er Jjeir gista á þótel- um. Þeir sem eiga kunningja í Bretlandi og vilja gleðja þá bg verða Jreim að liði í þrengingunum — geta ekki gert Jrað betur en með því að senda Jjeim sápustykki og smjörbita. Það eru gjafir sem eru vel þegnar. — Tízkan? — Það er naumast hægt að tala um tízku í Lon- don. Fólk )>ar tjaldar ]>ví sem til er — því að það er af skornum skammti. Menn slíta fötum sínum bókstaflega þar. Gömlu fötin héðan að heiman eru áreiðanylega með því fínasta þar. En það er hægt að sjá nóg af fínum kjólum og fötum í búð- argluggum. En )>að er bara ekki fyrir Bretann. Það er fyrir útlendingana — útflutningsvara, sem :i að afla þjóðinni gjaldeyris. Bretar urðu fátæk þjóð í stríðinu og nú er allt gert sem hægt er til |>es.s að afla gjaldeyris. Þjóðin skilur [>essa nauð- syn og leggur fúslega á sig þessar byrðar. Annars er þetta að breytast, eftir Jrví sem framleiðslan vex og brezkur almenningur er smátt og smátt að verða að'njótandi sumra þeirra gæða, sem flestum þjóðum vár lofað að mundu falla þeim í skaut, er Iriður rynni á ný. Bretarnir bíða komu þessara lífsins gæða með sinni alkunnu ró óg þolinmæði. * Eldhúsið öllum vegum landsins. Menn keppast um að ná í bíla, og áður en varir verð- ur umferðin orðin margföld miðað við það, sern var fyrir stríð. Skipulagning (Eramhald á 5. síðu). ítölsk eggjakaka, 75 gr. af makkaroni er brotið er í smá-stykki og soðið í mjólk. Mjólkin er svo notuð í eggjakök- una, og sjá verður um, að hún sé nægileg, svo að makkaroni-stengurnar verði ekki of þurrar í pott- inum. Mjólkin er síuð frá og á að vera fullur kaffibolli. Skorti eitthvað á að bollinn sé fullur, má bæta við kaldri mjólk til að fylla hann. 4 eggjarauður eru hrærðar vel og í Jjær er látin ein matskeið af rilnum osti, og dálítið af salti. Ut í makkaronistykkin, sem nú eru síuð en volg, er látinn biti af smjöri og hrært í. Þá er mjólkinni blandað í eggjarauðurnar og makkaronibitum hrært saman við. Síðast er þeyttum eggjahvítun- um blandað gætilega saman við Jjetta. Bakað á pönnu eins og fleskeggjakaka og snú- ið. Sterk tómatsósa er borin með. TIL ATHUGUNAR. Hæfilegt saltvatn til suðu er 8°/co saltvatn, eða tæpar 2 sléttfullar tesk. af salti í lítra af vatni. Þessi selta svar- ar til seltunnar í blóðinu og hefir því hin réttu áhrif á bragðlauka tungunnar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.