Dagur - 05.09.1946, Blaðsíða 3

Dagur - 05.09.1946, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 5. september 1946 DAGUR 3 Frá bókamarkaðiiium John Steinbeck: Litli Rauður. — Jónas Kristjánsson íslenzkaði. — tiökaútgáfa Pálma H. Jónssonai, Akureyri 1946. Svo virðist sem ameríski rit- höfundurinn John Steinbeck sé orðinn mjög í tízku, einnig hér á landi. Fimm skáldsögur hans höfðu þegar verið þýddar á ís- lenzku — þ. á. m. tveggja binda skáldverk, Þrúgur reiðinnar — og nú bætist sjötta sagan í hóp- inn. En Steinbeck er ekki aðeins tízkuhöfundur, hann er einnig snjallt og stórbrotið skáld, en þetta tvennt þarf ekki endilega ætíð að fara saman. Litli Rauður er ekki stór bók, en sagan er Ijómandi af stíltöfr- um, sönn, einíöld, en þó litauð- ug mynd af lífinu í sveitaþorp- unum á strönd Kaliforníuskag- ans. Náttúra landsins, menn og málleysingjar standa okkur ljós- lifandi fyrir hugskotssjónum, meðan á lestrinum stendur. At- hugunargáfa höfundar er frábær, og hljóðlát og innileg samúð hans með mönnum og dýrum varpar ljóma á frásögnina. Það Er komið fram yfir 11. stund? (Framhald af 2. síðu). einu sinni miður sennilegt, að Alþýðufl. og kommúnistar, flokkarnir, sem ekki þykjast sjá sólina fyrir fátæklingunum, létu næstliðið kjörtímabil renna út í sandinn án þess að koma verzlun- armálunum í viðunandi horf. — Þannig fór það þó. Nú er lofað bót og betrun. Hvað hefir breytzt, svo ástæða sé til að taka alvarlega þann loforðalestur? Ekki hefir íhaldið breytzt, enda vildi nú svo til, að það lofaði engu í þessum efnum. Kjarni þess er enn sem fyrr milliliðir og hvers konar braskarar og pen- ingamenn. „Aldrei var því um Álftanes spáð, að ættjörðin frels- aðist þar“. Ekki hefir foringjalið kommúnista breytzt. Það er sama fylking sannfæringalausra jákoppa og augnaþjóna aust- ræna trúboðsins og áður, reiðu> búnir, þrátt fyrir svardaga Katr- ínar, að faðma og kyssa fótspor „félaga“ Stalins. Það þekkist nú að afneitað liafi verið þrisvar. Og hvað svo um Alþýðufl.? Hann hefir að vísu setið rólegur í ríkis- stjórninni, sem haldið hefir verndarhendi yfir öllu því sukki og ranglæti, sem blöð og málsvar- ar flokksins átöldu mest við nýaf- staðnar kosningar. En þingliði hans hafa bætzt nýjir menn, menn, sem nokkurs má af vænta. Þá berst að eyrum sú furðuk.ga fregn, að komið sé fram yfir 11. stund eða m. ö. o. að eiginlega sé orðið of seint að gera nokkuð. Einmitt það. Er hér kannske verið að ,,komponera“ eitthvert vöggidag, sem svæfa á samvizku hinna værukæru verklýðsleið- toga? Nei, við skulum vona að betri helmingur flokksins megi sín meir og standi við gefin lof- orð því „nýsköpun“ verzlunar- og skattamálanna þolir ekki langa bið úr þessu. Magnús H. Gíslason. er sumra manna mál, að Litli Rauður sé hið bezta, sem Stein- beck hefir skrifað hingað til, og ein bezta smásaga á enska tungu, og það sé fjarri mér að rengja, að hvorttveggja sé rétt. Islenzka þýðingin er þróttmik- il og skemmtileg, en sums staðar þó miður smekkleg, einkum þar sem seilzt er til nýrra eða sjald- gæfra orða að þarflausu. Ennisól á reiðbeizli er t. d. kölluð brúna- band, hundarnir eru tréstirðir, runnarnir nefnast brúsknar, kalkúnarnir klúkka syfjulega, drengurinn er þvolgumæltur (líklega prentvilla af slæmri teg- und) og vinnur kvöldverkin með hálfgerðu semsi, svo að fáein dæmi séu nefnd um það, sem miður fer. En kostir þýðingar- innar eru þó yfirgnæfandi, enda má segja, að yfirleitt sé hún svip- falleg og hressileg. Kverið er snoturlega gefið út, enda prent- að i Prentverki Odds Björnsson- ar. J. Fr. SJAVARUTVEGSSYNING Fólk utan aí landi, sem kemur til Reykja- víkur, ætti ekki að láta undir höfuð leggj- ast að sjá Sjávarút- vegssýninguna í Rvík. UNGUR, reglusamur maður, í góðri átvinnu, óskar eftir her- bergi nú þegar eða 1. okc. — IJpplys. á afgi. blaðsms. Höfum allar tegundir af kryddi í haustmatinn Nýlenduvörudeild KEA og útibú CBKbkhKHKhKKbKHKhKhKhKHKhkhkhkhkhkhkhKbkhKhkhkhkKlcKh; Kynnist sjávarútveginum, komið og sjáið líkön af skipum og verksmiðjum. — Fræðist um útflutning, afl'amagn og ýmislegt fleira, kynnist fortíð sjávarútvegsins og framtíð- aráætlunum íslenzku þjóðarinnar í þessum efnum. SÝNINGIN ER OPIN FRÁ KL. 10-22 DAGLEGA. ATHUGIÐ Framvegis seljum vér ! á miðvikudögum og I laugardögum kjöt í útibúum vorum: Strandgötu 25 Hafnarstræti 20 Brekkugötu 47 Hamarstíg 5 I Kaupfélag Eyfirðingaí Kaup verkamanna í september 1946 Grunnl. Dagv. Eftirv. N. & hdv. Almenn vinna og skipavinna...... 2.65 7.84 10.74 15.68 Kola-, salt- og sementsvinna, slippv., vinna víð loftþrýstivélar, hrærivélar og ryðhreinsun. Fagvinna ............. 2.90 8.58 12.87 17.17 Boxa- og katlavinna ............ 3.60 10.66 15.98 21.32 Vinna í grjótnámi bæjarins, heillulagn- ing, sorphreinsun og vinna í holr. . . 2.80 8.29 12.43 16.58 Kaup drengja 14—16 ára.......... 2.00 5.92 8.88 11.84 Ef drengir vinna við salt, kol eða sement fá þeir sama kaup og full- orðnir. — Dagvinna skal hafin kl. 7.20 og lokið kl. 5, nema á laugard., þá kl. 11.40. — Vísitalan er 296 stig. VERKAMNNAFÉLAG AKUREYRARKAUPSTAÐAR. «xSxS>^x»^>^><Sx®.<S>^xí.^x$><SxJx$x$>^x$x«>^xíx$x$xíx$xS^xSx$xíxí>^x$x$x»<íxíx$xSxíxSx$x$x^x$x$^ Kariiiianna- nærföt nýkomin. I Kaupfélag Eyfirðinga 1 V eif naðarvörudeild. o< >>^KÍ><$><Sx®><^X$X^xS><$X$xS><MxíX$>^XÍ><$X®X®X$X$><ÍX$X$X^xSx^X$X$X$X$xM>^X®KÍx$X«XÍxá>^X$>^><$X$><í> NOTIÐ SJAFNAR-VÖRUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.