Dagur - 05.09.1946, Page 7
Fimmtudagur 5. september 1946
D A G U R
7
STROKKAR
SEPARATOR
Samband íslenzkra samvinnufélaga
S'SSotsSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS^
ö
Ávallt fyrirliggjandi
Ullardúkar - venjulegir - (tweed)
Kamgarnsdúkar, ýmsar gerðir
Jllarteppi
Stoppteppi
Kamgarnsband, margir lit4r
Lopi í ýmsum litum
Komið - Skoðið - Kaupið!
Ullarverksmiðjan G E F J U N
CHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHK
Einangrunarefni
fyrirliggjandi
Iíaupfélag Eyfirðinga
Byggingarvörudeild.
lö*H:H:H>i:t<f<H*#<HWHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKBKHKHKBKHKHKH>^^
Jafnvel húsbóndinn
er liðtækur við matreiðsluna,
þegar þér notið
Gula bandið og Flóru!
Gula bandið steikir bezt — brúnar bezt
%
>ö©<
Þönglabakkaprestakall.
Jón Jónsson Útibæ.
(Niðurlag).
Hann var íæddur að Firmstöðum á
Látraströnd 28. febrúar 1857. Voru
foreldrar hans komnir af góðum
bændaættum við Eyjafjörð. Hann
lærði stýrimannafræði, fyrst hjá Val-
ves Finnboéasyni, föður Valdimars
Snævarrs skálds o£ skólastjóra og síð-
ar sjá Jóni Loftssyni skipstjóra í
Grenivík, sem kertndi þessi fræði ung-
um mönnum, sem kunnugt er.
Jón íluttist að Vík á Flateyjardal
1883 og gekk þá að eiga Emilíu Guð-
mundsdóttir Jónssonar bónda þar
hinn 8. okt. það ár. Emilía var fædd
26. júní 1861 en andaðist 30. nóv.
1929.
Hún var mesta gæðakona, sem ekki
mátti neitt aumt sjá, án þess að bæta
úr því ef unnt var.
Þau hjón, Jónas og Emilía, býrjuðu
búskap á Útitíæ í Flatey 1894 og átti
þar heima til dauðadags. Jónas and-
aðist 26. maí 1938. Jónas var góðum
gáfum gæddur, hann átti mikinn þátt
í ýmsum framfaramálum sveitarinnar.
1 samráði við sóknarprestinn, séra
Arna Jóhannesson á Þönglabakka, var
stofnað lestrarfélag í Flateyjarsókn
1889 og barnaskóli tyrst haldinn 1891
og var Jónas fyrsti kennari hans, þá
var Jónas frumkvöðull að stofnun
sparisjóðs í Flatey 1892 og veitti hon-
um forstöðu til dauðadags, hjálpaði
sparisjóður þessi mörgum er voru að
koma sér upp íbúðarhúsum í sveit-
inni. Jónas var sýslunefndarmaður og
oddviti Flateyjarhrepps frá 1907, er
íorna Hálshrepp var skipt, í full 20
ár. Harm var lengi verzlunarstjóri fyr-
ir útibúi Orum & Wulfs verzlunar i
Flatey, sem lét reisa 1904 verzlunar-
hús í Flatey, en áður urðu Flateying-
ar að sækja vörur til Húsavíkur.
Þóttu það mikil og góð umskipti á
þeirri tíð og átti Jónas mikinn þátt í
þessari framkvæmd.
Jónas bætti jörð sína allmikið,
sléttaði stóran part af túninu og
byggði upp bæjar- og peningshús, en
vegna þess að steinsteypuöldin var þá
ei þekkt hér um slóðir, varð ending
þeirra ekki varanleg, og hefir nú Guð-
mundur sonur hans byggt mest allan
bæinn úr steinsteypu. Þau hjón, Jón-
as og Emilía ,eignuðust 6 börn er upp
komust (4 syni og tvær dætur). Eru
þau þessi: Guðmundur, bóndi í Úti-
bæ, var kona hans Elísa Pálsdóttir frá
Brettingsstöðum, Jónas, cand. phil.,
kvæntur Guríði Kristjánsdóttur, Sig
urjón, oddviti í Miðgörðum í Flatey,
kvæntur Jakobínu Pálsdóttur frá
Brettingsstöðum, Þorsteinn, ókvænt
ur, á heima í Útibæ i Flatey, María,
gift Guðmundi K. Jónssyni i Kross-
húsum í Flatey, Lovisa, dó um tvítugt.
Þegar Jónas andaðist voru börn
hans og barnabörn 43 og áttu öll
heima í Flatey, má hartn því með
réttu kallast ættfaðir Flateyinga.
J■ B. J.
Enginn bókamaður
á íslandi má láta hina
nýju útgáfu
ÍSLENDINGASAGNA
vanta í bókaskáp sinn.
Gerizt því áskrifendur
þegar í dag.
Aðalumboðsmaður
á Norðurlandi:
Árni B jarnarson
Bókaverzlunin Edda.
Akureyri — Sími 334.
Ford-drossía
(eldri gerðin)
er til sölu. Afgr. vísar á.
'EVERSHARP
OG ÞÉR GEFIÐ
HIÐ BEZTA/