Dagur - 06.11.1946, Qupperneq 4
4
D AG U R
Miðvikudagur 6. nóvember 1946
DAGUR
Ritatjórl: Haukur Snorroson
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Marínó H. Pótursson
Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 186
Blaðið kemur út ó hverjum miðvikudegi
Árgangurinn kostar kr. 15.00
Gjalddagl er 1. júlí.
Prentverk Odds Bjömssonar
1=: ..
Fyrsta þjóðráðið
j SÍÐUSTU VIKU gerðust þau tíðindi í stjórn-
málaheimi okkar Akureyringa, að kaup-
mannablað bæjarins, „íslendingur“, tvöfldaðist í
roðinu á einni nóttu, og inun ætlunin, að sú
breyting gildi framvegis. Tíðindin eru auðvitað
ekki stór, enda eiginn héraðsbrestur þeim sam-
fara, en aðeins eðlilegir vaxtarverkir í hinum
pólitíska bakfisk blaðsins. Forustugrein á forsíðu
þessa fyrsta tölublaðs hinnar auknu og endur-
bættu útgáfu „ísl.“ nefnist „Víðtæk stjórnarsam-
vinna er þjóðarnauðsyn". Er þar svo að orði
kveðið, að „hið ábyrgðarlausa brotthlaup komm-
únista úr ríkisstjórn sé á góðri leið með að skapa
algert öngþveiti í stjórn landsins“. Telur blaðið
mjög þunglega horfa um nýja stjómarmyndun,
enda komst „stóri bróðir“ í Reykjavík, Morgun-
blaðið, að þeirri niðurstöðu í stjórnmálaleiðara
sínum nú á dögunum, að mælt sé, að enginn
stjórnarflokkanna kæri sig lengur um að bera
ábyrgð á ríkisstjórninni — og þá sjálfsagt heldur
ekki á stjórnarstefnunni, sem þeir hafa þó allir
til skamms tíma verið svo innilega hreyknir af og
ánægðir meðl
jyjEÐAN SUNDRUNGIN ræður þannig ríkj-
um á Alþingi," segir ennfremur í nefndri
íslendingsgrein, „er ekki annað sýnna en að ann-
ar aðalatvinnuvegur þjóðarinnar sé að stöðvast
vegna sílækkandi verðlags sjávarafurða á erlend-
um markaði. Margvíslegir utanaðkomandi erfið-
leikar valda því, að aldrei hefir verið meiri þörf
einbeittrar stjórnmálastefnu en einmitt nú.“ Lýs-
ir blaðið aðsteðjandi vandræðum lengi og fjálg-
iega í þessum sama dúr og virðist allt nýsköpun-
ar-skrumið rokið úr hinum liarðblásna belg
stjórnarliðsins, eftir að fyrsta títuprjónsstunga
veruleikans hittir hann á viðkvæmum stað. Getur
öll sú lýsing blaðsins staðist, en gjarnan mætti það
minnast þess, áður en það orðlengir fyekar en
þegar er orðið um „utanaðkomandi erfiðleika'*
og kennir þeim um öll vandræðin, að „ólög fæð-
ast heirna", og þyrftu íslendingar nú sízt að vera
í nokkrum fjárhagslegum vanda staddir, ef skyn-
samlega og af nokkurri forsjálni hefði verið um
stjórnarmálefni þeirra fjallað héfinnanlands hin
síðustu árin. Stærri görn hefði vissulega aldrei
verið steytt í íslenzku þjóðlífi frá upphafi en sú,
sem veitti hinum marglofaða stríðsgróða — og
þar með hagsældarhorfum alls almennings í
landinu um langa framtíð — hæga útrás og af-
plánun með svo skjótum hætti, að nærri stappar
hreinu kraftaverki.
£N „ÍSLENDINGUR" hinn nýi fæðist ekki
ráðalaus, enda skýrir hann strax í fyrsta blaði
frá manni einum, sem „eiginlega lifði á engu,
nema höfðinu og gáfunum". Mun blaðið telja
það gott hlutskipti, svo sem vonlegt er, og hyggst
þegar feta í framaslóð hans og benda á örugga
bót við hinu ægilega þjóðarböli, sem bíði lands-
manna á næsta leiti. Og ráðið er harla einfalt,
hreinasta Kólumbusaregg, eins og flest þjóðráð:
„I»ví ekki áskoranir?" hrópar blaðið í feitletraðri
fyrirsögn. „Nú er ástæða til þess að senda Alþingi
áskoranir“(!) „Hann (þ. e. Sjálfstæðisflokkurinn)
heitir nú á þjóðina til samstarfs um þessa stefnu
með því að samein'ast um eindregnar áskoranir til
Alþingis (leturbr. hér) um einlægt samstarf allra
flokka á hinum alvarlegustu tímum“ o. s. frv., o.
Goimánuður hinn góði.
JJAUSTVEÐRÁTTAN er vissulega
með eindæmum góð að þessu
sinni — komið fram undir miðjan
gormánuð, en þó hefir varla sézt
snjór á jörðu, og þá aðeins álengdar á
fjöllum uppi. Allir vegir opnir enn og
sæmilega greiðfærir, sem um hásum-
ar væri, og flesta daga þítt og blítt,
þótt sólargangur sé auðvitað lágur
orðinn og vetrarmyrkrið þyngist óð-
um og lengist. Margir munu gera sér
góðar vonir um, að veturinn allur
muni verða mjög í sama dúr og upp-
hafið, og þykjast byggja í því efni á
reynslu undanfarinna vetra. Það er
langt síðan, að veruleg vetrarharka
hefir lagt heljarhramm sinn með full-
um þunga og ósveigjanlegum strang-
leika á landið okkar og þjóðina. Og
veðráttan allan ársins hring virðist
hafa mildast og jafnast að sama skapi.
Frásagnir og annálar frá síðustu öld
og fram yfir aldamót herma t. d. frá
hverju ísasumrinu öðru verra. Ár
hvert að kalla sigldi „hvíta álfan“ öf-
ugum seglum inn á fiskimið okkar
Norðlendinga, og oft seildist þessi út-
vörður og framherji heimskautsins inn
á flóa og firði um allan norðurhjara
landsins og fyllti vík hverja og vog.
Nú teljast hafísafregnir til sjaldgæfra
undantekninga hér á landi.
Staðreyndir og getgátur.
OUMIR MENN gerast svo bjartsýn-
ir í tilefni þessara staðreynda, að
þeir telja, að varanlegar breytingar til
bóta hafi gerzt og séu að gerast á
veðurfari hér á landi. því efni er
leitað ýmissa misjafnlegra trúlegra
skýringa, og jafnvel vitnað til nýrra
„vísindalegra“ uppgötvana í því sam-
bandi. Heyrzt hefir stundum, að sjálf-
ur Norðurpóllinn sé kominn ákreikog
sigli hraðbyri frá okkur eitthvað út í
buskann. Þó munu fleiri leggja trúnað
á þá skýringu, að Golfstraumurinn
hafi breytt rís sinni um heimshöfin
og leggist nú fastar að ströndum Is-
lands en áður. Vissulega er sú skýring
ekki allsendis óhugsandi, en þó enn
full getagátukennd til þess að á hana
verði lagður fullur trúnaður, enda
hafa áður skipzt á langvarandi góð-
viðratímabil og harðærakaflar ó ís-
landi. En misjafnlega geta slíkar
breytingar staðið lengi og ráðið mikl-
um umskiptum. Fullsannað er t. d., að
hitabeltis frumskógar hafa vexið ó ís-
landi endur fyrir löngu, og á hinn bóg-
inn hafa ísaldir gengið yfir landið og
lagt allt líf og allan gróður í dróma
margfaldra Fimbulvetra. Tákn og
stórmerki hafa því gerzt í veröldinni,
s. frv. — allt í þessum dúr: Það,
sem þjóðin þarfnast, er áskoran-
ir og aftur áskoranir til hins ráð-
villta Alþingis, sem allt í einu er
búið að gleyma öllum kosninga-
áskorununum frá því í vor um
blessun stjórnarsamvinnu ný-
sköpunarflokkanna, og tekið að
leggja eyrun aftur við rödd bless-
aðra kjósendanna úti á lands-
byggðinni. — Hætt er við, að ein-
hver kunnf í þessu sambandi að
rifja upp fyrir sér, hvers konar
tillit þingið hefir að undanförnu
tekið til þeirra áskorana, sem
borizt hafa til þess utan af „út-
skæklunum" og jafnvel þótt
skemmri veg hafi farið. En hvað
sem líður hinni hryggilegu lífs-
reynslu, sem þegar er-fengin í
þessu efni, ber þó að þakka ís-
lendingi hinum nýja fyrsta þjóð-
ráðið og óska honum til ham-
ingju með „höfuðið og gáfurn-
ar“, sem hinn tvíefldi kappi
mun vafalaust lifa góðu lífi á um
langan aldur.
áður en kjarnorkuöldin rann upp yfir
heiminn, í sama mund og nýsköpun
Olafs Thors og kommúnista hófst á
Islandi. En báðir gerðust þeir verald-
arviðburðir, því miður, full seint til
þess, að þangað verði leitað trúlegra
skýringa á breyttu veðurfari hér ó
norðurhjaranum, sem annars hefði þó
verið líklegast og bezt til fallið í hví-
vetna
jyjANNKYNSSAGAN
harla fjölbreytileg
Tillíkingar veraldarsögunnar!
r að vísu
og slungin
mörgum og óskyldum örlagaþráðum.
En þó þykjast fróðir menn sjá furðu-
mörg dæmi þess, að „sagan endurtaki
sig“, og dásamlegs samræmis, ein-
hæfni og tillíkinga gæti tíðum í rás
heimsviðburðanna. Ssvo er þessu t. d.
farið um þau tvö stórmerki, er síðast
voru nefnd, að þar sýnist margt líkt
með skyldum: Lýðveldið með kjarn-
orkuna velur eyríki í Kyrrahafi miðju
sem bækistöð fyrir tilraunir sínar
með hinn nýja kynjakraft. Gömlum
og aflóga fleytum er stefnt þar saman
og þær sprengdar í loft upp að entu
löngu og dyggilegu dagsverki ásamt
fáeinum nýlegri og sjófærari skipum.
— Lýðveldið með nýsköpunina gerir
einnig eyríki í heimshafi miðju að til-
raunastöð nýrrar eyðingarorku.
Gömlum fleytum, sem oft hafa á sjó
komið í misjöfnum veðrum, svo sem
ríkiskassinn sjálfur, gjaldþol þegn-
anna og lánstraust þjóðarinnar, er
lagt þar við akkeri á tilraunasvæðinu
miðju, og nýrri stórskipum, svo sem
hinum mikla stríðsgróðadreka og
bankainnstæðubátum, sem legið hafa
við stjóra í erlendum Höfnum að und-
anförnu, er lagt þar út frá. Sprenging-
in mikla kveður við. Og sjá: 1200
miljónir króna í erlendum gjaldeyri
og tilsvarandi fúlgur innlendra verð-
mæta geysast þar í loft upp og breyt-
ast í tignarlegar skýjaborgir og glæsi-
lega flugelda á skammri stundu! Og
opinberir tilkynningar eru gefnar út á
báðum stöðunum: Tilraunirnar hafa
gengið vel og borið markverðan
árangur. Svona getur veraldarsagan
endurtekið sig í margháttuðum
myndum í austri og vestri.
Störfum tólfmanna-
nefndarinnar lokið
á föstudag?
S. 1. föstudag kvaddi forseti
ísl'ands formann Sjálfstæðis-
flokksins, Ólafs Thors, forsæt-
isráðherra, á fund sinn og
ræddi við hann um störf tólf-
manna nefndarinnar frá
stjómmálaflokkunum, sem nú
situr á rökstólum, ásamt
fjögramanna hagfræðinga-
nefnd, til þess að ræða stjóm-
armyndun. í lok viðræðnanna
bað forsetinn fyrir þau skila-
boð til tólfmanna nefndarinn-
ar, að hann teldi æskilegt, að
nefndin hefði lokið störfum
eftir viku, eða næstkomandi
föstudag, 8. nóvember. —
Ókunnugt er hvernig liorfir
um samninga í nefndinni en
verði hún við tilmælum for-
setans, má telja, að störf henn-1
ar hafi gengið hraðar, en bú-;
izt var við.
Kvenfél. Akureyrarkirkju efnir
bráðlega til bazars til kaupa á nýju
teppi í kirkjuna. Er þess vænzt, að
bæjarbúar bregðist vel við og styrki j
þetta málefni.
Tí zkan
lega“, en hér er þó um engar
Kjóllinn, sem lít-
ur út eins og kápa,
i og kápan, sem lítur
út eins og dragt,
eru mikið notað
árið um kring. —
• Þessi haustkápa er
^eitt þessara sniða.
Kápan er úr
svörtu ullarefni.
Heppt upp í háls
með flibbakraga er
mjög í tízku um
þessar mundir.
Beltið er breitt
og hið lausa stykki
neðan við mittið er
rykkt við og gefur
það kápunni dragt-
arútlit.
Ermarnar eru
nokkuð víðar og
uppslög á þeim.
Þessi kápa er nokk-
uð ólík „því venju-
öfgar að ræða.
(Vera Winston).
*
Námskeið í fatasaum
Undanfarnar fjórar vikur lieíir staðið yfir
námskeið í saumum (fatasaum) á vegum Heimil-
isiðnaðarfélags Norðurlands. Síðastl. sunnudag
var sýning haldin á munum þeiih, er saumaðir
hafa verið á námskeiðinu og hitti eg kennslu-
konuna, frk. Jóhönnu Jóhannsdóttur, að málum
í því sambandi.
Námskeið Jietta hófst fyrir fjórum vikum og
voru alls 16 konur, sem tóku þátt í því. Þeim hópi
var skipt í tvennt, þannig, að 8 konur saumuðu
frá 3—6 e. h. og hinn helmingurinn frá 8—11 e. h.
(eða 8—12 e. h. fimm kvöld vikunnar).
Konur vinna Jrarna úr sínum eigin efnum,
einnig mega þær breyta gömlum flíkum og
sauma upp, undir umsjá og kennslu afbragðs
kennara, sem sníður allar flíkurnar jafnframt og
útbýr ýmsa uppdrætti, sem til þarf.
Konurnar taka svo verkefni með sér heim og
vinna að því lieima eftir því sem ástæður leyfa.
Tilgangur Heimilisiðnaðarfélagsins með nám-
skeiðum sem Jressu, er að gefa húsmæðrum tæki-
færi til að komast nokkuð niður í kjólasaum og
barnafatasaum og eru barnakonur látnar sitja fyr-
ir Jrví að komast á námskeiðin,
Á þessu nýlokna námskeiði voru saumaðar 110
flíkur eða 5—9 flíkur af hverrí konu. x
Kennslugjald var kr. 150.00 og 'mun það lítið
meira en kostnaður á sniðum og teikningum, svo
a5ð kennslan sjálf má teljast ódýr með afbrigðum.
I>að þarf ekki Ameríku til — datt mér í hug sl.
sunnud. — er eg skoðaði hina umræddu sýningu.
Mjög fallegir kjólar voru þar til sýnis bæði kvöld-
kjólar, dagkjólar, afar smekklegir léreftskjólar
glöddu mig mjög, Jrví að eg hefi þá skoðun að við
kunnum ekki að meta og nota léreft í kjóla.
Þá var og nokkuð af undirfötum og barna-
fötum.
Allt bar þetta vott mikillar smekkvísi og kunn-
áttu kennarans — enda má segja að Heimilisiðn-
aðarfélagið og konur bæjarins hafi verið lánsam-
ar með afbrigðum að. fá jafn ágætan kennara og
snilling í þessum efnum sem frk. Jóhanna Jó-
hannsd. er, til þess að sinna þessu starfi. — Það
leynir sér heldur ekki, að konur kunna að meta
þetta, því að fjöldi mikill skoðaði sýninguna og
yfir hundrað umsóknir hafa nú borizt fyrir næsta
námskeið, sem hefst innan skamms.
Heimilisiðnaðarfélagið á mikið þakklæti skilið
fyrir að gangast fyrir jafn ágætum námskeiðum
og vonandi væri, að bæjarkonur styrktu það og
hlúðu að því fyrir hið ágæta starf þess.
P.