Dagur - 18.12.1946, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 18. desember 1946
DA&UR
Bréf úr höfuðstaðnum
- Störf Alþingis - Vega- og brúalög -
Fiskimálasjóður - Fjárlögin - Þingsköp
- Skattamálin -
innheimta með 100% álagi vita-
gjöld, aukatekjur ríkissjóðs sam-
ikv. lögum nr. 27 1921, stimpil-
gjöld, leyfisbréfagjöld og lestar-
gjöld. Og með 50% viðauka-
gjald af innlendum tollvöruteg-
undum og eignarskatt.
Reykjavík, í desember.
Þinghaldið.
Fjárlagaþingið ihefur nú setið
á rökistóluin kringum tvo mán-
uði. Búið er að leggja fram rúm-
lega 100 mál, sem þingið ej; að
fjalla um. Aðeins örfá þeirra hafa
hlotið fullnaðarafgreiðslu enn,
enda mun þingið sitja allengi
eftir áiamót. Fjárlögin eru til
athugunar í fjárveitingarnefnd,
og er vafasamt, að 2. umræða
þeirra fari fram fyrir jól.
Vega- og brúarlög.
A öndverðu þingi flutti þm.
N.-ísf., Sigurður Bjarnason, frv.
um breyt. á vegalögum og annað
ifrv. um breyt. á lögum um brú-
argerðir. Frv. um sama efni hafa
og ikomið frarn í ed. Við þessi mál
liafa kiomið fram fjöldi breyt-
ingartillagna frá mörgum þing-
mönnum. Sýnir það áhuga þeirra
á, að ráðnar séu bætur á sam-
gönguörðugleikum héraðanna.
Er það lofsvert, því að öruggar
samgönguleiðir eru líftaug hvers
héraðs, og sá veit gerst, hvar
skórinn kreppir, sem hann ber á
fæti.
F iskimálasjóður.
Eysteinn Jónsson hefir flutt að
nýju frv. :um fiskimálasjóð, sem
stjórnarflokkarnir hindruðu að
næði fram að ganga í fyrra. Að-
alnýmæli frv. eru þau, að tekjur
fjskimálasjóðs verði a. m. k. þre
faldaðar frá því, sem þær hafa
verið undanfarið og heimiluð 10
mil'lj. kr. Er það meira en öll
jöld fjárlaganna námu fyrir
stríð. Vitað er, að fjárlagafrv. á
þó eftir að hækka að mun í
liöndum þingsins, svo að ætla má
að gjöld ríkisins, sem ákveðin
eru í fjárlögum,,-verði allt að 200
millj. kr. Vísitala framfærslu-
kostnaðar er rúm 300 stig — og
þykir meira en nóg. En vísitala
ríkisútgjalda er orðin 900—1000
stig. Er augljóst, hvert fjárhag
ríkisins ber, ef slíku heldiur
áfram. *
... J -ó;-' dJLf
Þingsköp AJþingis.
Gylfi Þ. Gíslason hefir flutt
frv. um breyt. á lögum um þing-
sköp Alþingis. Samkvæmt því
skal forseta skylt, ef þingflokkur
er klofinn um afstöðu til máls,
að gefa minnihlutanum eða
minnihlutunum kost á að gera
grein 'fyrir afstöðu sinni í út-
varpsumræðu í allt að þriðjungi
af ræðutíma flokksins, en þó
aldrei lengri hluta af heildar
tíma hans en svarar til þess,
hversu tala þingmanna í minni-
hlutanum er mikill hluti af
heildartölu þingmanna flokks
ins.
Flutningsm. tekur fram í
greinargerð, að frv. sé fram kom-
ið að gefnu tilefni. í haust hafi
það komið í ljós, að þingflokkur
Alþýðuflokksins hafi verið klof-
inn um höfuðmál aukaþingsins,
þ. e. samninginn við Bandarík-
in um afnot Keflavíkurflugvall-
arins o. fl. Minniblutamönnun-
milljón króna lántaka að auki.
Fiskimálanefnd verði lögð nið-
ur, en Fiskifélagi íslands ætluð
sú forusta í málum sjávarútvegs-
ins, sem þeirri nefnd hefir Verið
falin. Félögum útvegsmanna og
fiskimanna er ætlaður forgangs-
réttur að þeim stuðningi, sem
fiskimálasjóður ‘ veitir til iðn-
rekstrar og nýjunga í sjávarút-
vegi. Fiskimálasjóði er og ætlað
að styðja sérstaklega bátakaup og a
bátasmíði á þeim útgerðarstöð-
um í landinu, þar sem tilfinnan-
leg vöntun er báta, en lítið fjár-
magn fyrir hendi til fram-
kvæmda/ Þetta nauðsynjamál
fann ekki náð fyrir augliti stjórn-
arflokkanna í fyrra, og ekki
bryddir enn á nefndaráliti frá
sjávarútvegsnefnd um málið,
þótt hún fengi það í hendur á
öndverðu þingi.
um hafði verið synjað um að fá
að gera grein fyrir skoðun sinni
í ræðutíma flokksins við útvarps-
umræður um málið og að þeir
hafi ekki heldur átt þess kost að
fá lesna yfirlýsingu um sérstöðu
sína í málinh. í ræðutíma Al-
þýðuflokksins hafi því hvergi
komið fram, að skoðanir þing-
manna hans á málinu væru
skiptar. Hér er vissulega drepið
atriði, sem vert er að gefa
gaum, þótt tilefni frv., eins og
jjað er skýrt af flm., minni á það
að biðja guð að vernda sig fyrir
vinum sínum.
Fjárlög.
Á síðustu árum hafa fjárlögin
faríb-síhækkandi. Stafar það af
^lýrtíðinni og þeirri miklu út-
þennslu, sem orðin er í ríkis-
kerfinu. Með fjárlagafrv. því,
sem nú er ti'l meðferðar á þingi,
er þó sett met í þessu efni. Gjöld
á rekstrarreikningi eru áætluð
146 milljónir króna og rekstrar-
lialli 9,7 milljónir. Heildarupp-
hæð á sjóðsyfirliti er aftur á
móti 162 millj. kr., og greiðslu-
halli áætlaður hér um bil 22
Skattar og tollar.
Þegar ríkisstjórn sú, sem setið
hefir að völdum undanfarið,
settist í stólana 1944, sá hún sig
tilneydda að leggja á nýja skatta,
til að draga saman sem mest í
dýrtíðar- og eyðsluhítina. Látið
var í veðri vaka, að Joeir nýju
skattar, sem þá voru á lagðir,
ættu aðeins að gilda eitt ár. Sú
hefir þó orðið raunin, að flestir
hafa þeir verið framlengdir síð-
an, nema veltuskatturinn. Svo
illræmdur var hann, að stjórnin
treystist ekki til að halda honum
við. ,
Nú er Jiingið að fjal'la um frv.
um tekjuskattsviðauka bg um
heimild fyrir ríkisstjórnina til að
innheimta ýmis gjöld 1947 með
viðauka. Er þar gert ráð fyrir að
Húsavíkurbréf
í dag er glæsimennið og“gleði-
maðurinn, Baldvin Baldvinsson,
fyrrum oddviti á Ófeigsstöðum,
til moldar borinn að Þóroddsstað
/
Kinn.
í Kinn stóð vaggan hans og
eftir 75 ára dvöl í Kinn bera nú
Kinnungar hann í dag síðasta
spölinn að gröfinni.
Framan af ánum dvaldi Bald-
vin sál. á Granastöðum, enda
lengi kenndur við þann bæ, en
laust gftir síðustu aldamót flutt-
ist hann að Ófeigsstöðum og bjó
Jiar alla tíð síðan.
Hann var giftur Kristínu Jón-
asdóttur frá Sílalæk, sem nú
dvelur á Öfeigsstöðum hjá syni
sínum, Baldri Baldvinssyni.
Baldvin sál. var á al'lan hátt
prýðilega vel gerður maður,
greindur vel og drengur góður.
Verður varla svo góðs manns get-
ið í Kinn, að hans verði ekki
rninnst.
Nýlega er látinn í Hlíð í Kinn
Halldór Marteinsson, gamall
maður og farinn að heilsu.
í haust dó á Akureyrarspíta'la
Friðjón Jónasson bóndi á Síla-
læk í Aðaldal, 46 ára gamall, góð-
ur bóndi og gjörvilegur maður.
Nýlega er látinn á Grænavatni
í Mývatnssveit Kristján Jónsson,
miðaldra maður og vel látinn.
•
í október síðastliðnum áttu
gullbrúðkaup hér þau Helga
þorgrímsdóttir og Maríus Bene-
diktsáon. Hafa jnessi sómahjón
búið allan sinn búskap í Húsa-
vík. Eiga Jiau 5 mannvænlega
syni og mörg barnabörn.
Færðu Húsvíkingar þeim, við
þetta tækifæri, skrautritað ávarp
ásamt ofurlítilli gjöf, sem þakk-'
lætisvott fyrir langt og vel unnið
starf í þágu bæjarfélagsins.
Húsvíkingar og allir aðrir vin-
ir brúðhjónanna í „Marahúsinu"
óskajDeim allrar blessunar og að
þau fái í mörg ár enn‘," að líta álf-
röðul þann, sem rís hvern einasta
morgun við austurbrún fjall-
anna.
(7. des. ’46).
Þrjár jrábærar
barna- og
unglingabcekur!
Dýrheimar
| eftir stórskáldið Rudyard Kipling
og
Nýir Dýrlieimar
| eftir sama höfund
Skógarsögur Kiplings hafa löngum
verið faldar meðal beztu barna- og
unglingabóka, sem til eru, enda mun
það ekki ofmælt, því að Kipling var
mikill rithöfundur, þekkti glögg skil á
frumskógalífi og kunni allra manna
bezt að segja börnum sögur. Þessar
sögur eru því flestum bókum betur
fallnar til þess að glæða fegurðar-
skyn og málsmgkk barna, en eru um
leið fræðandi og bráðskemmtilegar,
enda má segja, að þær hafi farið
sigurför um allan heim. Nú eru þess-
ar bækur komnar út í afburðasnjallri
þýðingu Gísla Guðmundssonar, fyrrv,
alþingismanns. — Þær eru í tveimur
bindum og nefnast Dýrheimar og
Nýir Dýrheimar, en eru þó hvor um
sig sjálfstæðar að frásögn. Útgáfan
er myndskreytt og forkunnaívönduð,
en verði þó mjög stillt í hóf.
Til sölu
Jörð til sölu og laus til ábúðar
á vori komandi. Góð bygging.
R. v. á.
Tapazt hefir
sl. sumar jarpur hestur, 5 v. —
Mark: Heilrifað h. biti fr.
Sneitt á. biti eða fjöður fr. v.
Brennimark á liófum JFe og
Þ10. — Verði einhver hestsins
var, bið eg vinsamlegast láta
mig vita.
1. desmeber 1946. «
Birningsstöðum, Ljósavatnssk.
Jón Ferdínandsson.
I Sól og regu
| eftir Raden Powell skátahöfðingja
• \: \
Skátahöfðinginn Baden Powell var,
auk þess að vera merkilegur æsku-
lýðsleiðtogi, frábær rithöfundur fyrir
börn. Ritaði hann allmargar dýra-
sögur svo frábærlega skemmtilegar
og viðburðaríkar, að hvert barn hefir
• yndi af, og teiknaði hann sjálfur í þær
marg'ar ágætar myndir. Ein helzta
þessara bóka er nú komin út í ís-
lenzkri þýðingu eftir Jón Helgason,
blaðamann, og nefnist hún Sól og
regn, sögur frá Kenya. — Þetta er frá-
bærlega skemmtileg og fróðleg bók,
einkum fyrir yngri börn.
V ^
| Betri gull en einhverja - eða allar -
1 þessara þriggja úrvalsbóka geta for-
&
| eldrar tæplega lagt í lófa barns síns.
t
Snælandsútgáfan