Dagur - 16.04.1947, Page 5

Dagur - 16.04.1947, Page 5
Miðvikudagur 16. aprfl 1947 DAGUR 5 Frá bókamarkaðinum Menn og minjar II. Daði fróði. — Með austanblænum. Nýtt rit hefir bætzt við hið skemmtilega og fróðlega safn, sem h.f. Leiftur í Reykjavík byrjaði að gefa út á síðastliðnu ári undir hinni sameiginlegu fyr- irsögn Menn og minjar. Þriggja hinna fyrstu bóka í ritsafni þessu hefir áður verið getið hér í blað'- inu. Kverið um Daða fróða er að vísu talið annað í röðinni, en kom þó síðast fullbúið á markað inn. Hefir Finnur Sigmundsson landsbókavörður búið það til prentunar eins og hin önnur rit- in, sem út eru komin í safni þessu, og ritar hann greinargóð- an formála, þar -sem æfiaLriði Daða eru að nokkru rakin og get- ið ritverka hans og fræðistarfa Aðalefni bókarinnar er annars kaflar úr prestasögum Daða, er hann nefndi Hungurvöku, og ennfremur nokkur ljóðmæli hans, þ. á. m. úr Tordensskjölds rímum. Þá birtist þarna sýnis- horn af rithönd Daða, gömul teikning af honum og tvö kvæði um hann, annað eftir Bófu- Hjálmar, hitt eftir Grím Thom- sen. Segir svo m. a. í kvæði Gríms um Daða: Sjá, þótt væri hann sjálfmenntaður, sögu var hann dyggur þegn, sannkallaður sagnamaður, sannleikanum trúr og gegn. Útgáfa þessi er vönduð og snot- ur. Nafnaskrá fylgir hverju riti \ erða Menn og minjar sjálfsagt eitt eigulegasta safn íslenzks fróð- leiks og skemmtunar, þegar stundir líða fram, ef svo heldur fram stefnunni sem horfir í upp- hafi. * Bókaútgáfa Púlma H. Jónsson- ai' gefur út smásagnasafn eftir Nóbelsverðlaunaskáldkonuna Pearl S. Budt, er nefnist Með austanblænum. Maja Baldvins þýddi úr ensku. Þarflaust er að kynna höfundinn fyrir íslenzk- um lesendum, jafn kunnur og vinsæll sem hann er orðinn hér af fyrri bókum sínum, sem þýdd- ar hafa verið á íslenzku. Skáld- konan mun þó kunnust hér á landi fyrir hinar lengri skáldsög- ur sínar, svo sem „Gott land“, „Drekakyn" og „Undir austræn- um himni“, svo að einhverjar þeirra séu nefndar. Hins vegar er þetta fyrsta smásagnasafn hennar á íslenzku, en fyrir smásögur sín- ar nýtur hún eigi minni vinsælda og aðdáunar í heimalandi sínu en fyrir hinar lengri sögur. Val þessara sagna virðist hafa heppn- ast vel og íslenzka þýðingin er ágæt, svo sem vænta mátti, því að frú Maja Baldvins hefir sýnt það áður svo rækilega, að ekki verð- ur framar um villzt, að hún er í hópi beztu þýðenda okkar eins og stendur. Er sérstök ástæða til að undirstrika þetta, því að í rit- dómi um smásagnasafn þetta, er birtur var í einu sunnanblaðanna eigi alls fyrir löngu, var mjög ómaklega að þýðingunni vikið, án þess þó að nokkur tilraun væri til þess gerð að finna aðfinnslun- um stað með dæmum eða rökum, enda báru ummælin það með sér, að þau gátu naumast verið af öðr- um toga spunnin en persónulegri óvild í garð þýðandans, hvernig svo sem annars kann á því að standa. „Með austanblænum“ er all- stór bók, 274 bls. í Skírnisbroti, vel vönduð og snotur að öllum frágangi. Sögurnar eru mann- lætandi og góðar skáldmenntir og skemmtilegt lestrarefni. J.Fr. Til píanóeigenda Eg vil leyfa mér að vekja at- ivgli þeirra, sem þurfa að láta stemma hljóðfæri sín, á því, að Otto Ryel, sem dvaljst hefir við nám í Danmörku um tveggja ára skeið, mun dveljast hér í bænum aðeins stuttan tíma í þetta skipti, sennilega lítið lengur en til næstu mánaðamóta. Ættu þeir, sem þurfa, þess vegna að leita til hans sem fyrst. Hann hefir hin ákjósanlegust-u meðmæli frá fyrr- verandi húsbændum sínunr og kennurum. Og auk þess geta þeir, sem hann hefir alla reiðu stemmt fyrir hér í bænum, þ. á. m. undirritaður, vottað, að hann gerir það með slíkum ágætum, að á betra verður ekki kosið. Akureyri, 15. apríl. Björgvin Guðmundsson. Lok frá varahjóli af híl hefir tapast hér í bænum. Finnandi vinsamlega beð- inn að skila því í Bólstruð Húsgögn h.f., Hafnarstræti 88. Iðnaðarpláss til leigu. Gólfiflötur rúmir 60 fermetrar. A. v. á. Lítill trillubátur með góðri vél, óskast keyptur. A. v. á. Tvær stofur og eldhús í timburhúsi til sölu. A. v. á. Svefnherbergishúsgögn til sölu með tækifærisverði Afgreiðslan vísar á. Ritvél til sölu. Nýja Bimtöðin. Herbergi til leigu í Hafnamræti 100 (GuM- foss). Gunnar H. Steingrimsson. Sími 302. Veggfóður Fallegt veggfóður nýkomið BEN. J. ÓLAFS, Skipagötu — Sími 523 Borðstofuborð úr eik og 4 stólar til sölu lijá Kristjáni Sigurðssyni, kennara. Tveir bílstjórar, með meira prófi, geta feng- ið atvinnu næsta fardagaár hjá Mjólkurflutningafélagi Saurbæjarhrepps. U msóknir ásamt kaupkröfu sendist til Magnúsar á Krónustöðum fyrir 1. maí n. k. Stúlkur vantar á Hótel KEA 14. maí Nokkrar stúlkur vantar að Kristneshæli 1. eða 14. maí n. k. Mjög hátt kaup! Upplýsingar gefa yfir- hjúkrunarkonan, ráðskonan eða skrifstofa hælisins, sfmi 292. Hurðarskrár Handföng fyrirliggiandi. Verzlun Konráðs Kristjánssonai Skipagötu 8 Stormtreyjur Axlabönd (alteygía) Ermabönd ÁSBYRGI h.f. Skipagötu 2 Söluturninn við Hamarsstíg Jarðarför konunnar minnar, GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR, fer fram frá heimili hinnar llátnu, Eyrarlandsvegi 4, fimmtudaginn 17. apríl, og liefst kl. 1 e. h. Fyrir mína hönd, barna okkar, tengdabarna og barnabarna. Hjörtur Lárusson. Jarðarför STEFÁNS D. GRÍMSSONAR fer fram laug- ardaginn 19. þ. m., og liefst með húskveðju kl. 1 e. K. frá heimili hans, Ásgerði, Glerárþorpi. — Jarðsett verður að Möðruvöllum í Hörgárdal. Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn. Jarðarför KRISTBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR, sem andaðist 10. apríl, fer fram mánudaginn 21. þ. m., kl. 1 e. h., og hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu, Lyng- holti, Glerárþorpi. Jarðsett verður að Lögmannshlíð. Börn, tengdaböm og barnabörn. Jarðarför sonar okkar, Jóhanns, er lézt 1. þ. m., er ákveðin næstkomandi laugardag £rá Akureyrarkirkju, kl. 1.30 eftir hádegi. Benedikta Sigvaldadóttir. Stefán Guðjónsson. Innilegustu þakkir til allra þeirra, er auðsýndu samúð og vináttu við andlát og jarðarför bróður okkar, ELINÓRS JÓHANNSSONAR. — Þökkum sérstaklega læknunum og hjúkrunarfólki á Kristnesliæli fyrir alla hjálp er það veitti honum í veikindum hans. Jónas Jóhannsson. Tryggvi Jóhannsson. & Hjaratnlegt pakklceti votturn við hreppsbúum okkar, svo X og öllum öðrum vinum og vandamönnum, nœr og jjcer, fyrir ómetanlegan styrk og stuðnÍ7ig i sambandi við hinn voveijlega % eidsvoða hjá okkur aðfaranótt 16. janúar sl. Guð launi ykkur öllum! Þverá, 16. apríl 1947. Arni Jóhannesson. Þóra Jónsdóttir. Rósa Jónsdóttir. 4> miiiii*iiiiiiiiiiiiiiiiii*i»***i»*ii»iii*iiii*iiiiiiiiiiii*ii*»*iiiii» Leikféiag Akureyrar heldur samsæti að Hótel KEA miðvikudaginn 23. apríl næstk. Flefst kl. 8 e. h. Öllunx leiklistarvinum heimiil þátttaka meðan húsrúm leyfir. — Aðgöngumiðar af- greiddir í Fornbókadeild Eddu, og skal þeirra vitjað í síðasta lagi næstkomandi laugardag. Undirbúningsnefndin. II11llllIIM111111III vantar við mötuneyti hér í bænum frá 1. maí næstk. — Einnig aðstoðarstúlku í eld- hús frá 1. eða 14. maí. Húsnæði getur fylgt. A. v. á. Góða stúlku vantar mig frá 14. maí næst- komandi. Einhildur Sveinsdóttir, Möðruvallastræti 9.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.