Dagur - 30.04.1947, Blaðsíða 8

Dagur - 30.04.1947, Blaðsíða 8
3 Miðvikudagur 30. apríl 1947 DAGUR r Ur bæ og byggS ■■ -■— □ Rún 5947430 — Fundi irestað I. O. O. F. - 1295281/2. - Kirkjan. Messur n.k. sunnud.: Lög- mannshl. kl. 2 e. h., Akureyri kl. 5 e. h. Messur í Möðruvallakl.prestakalli. Sunnudaginn 4. maí á Möðruvöllum. Sunnudaginn 11. maí í Glaesibae. Upp- stigningardag, 15. maí, að Bakka. Sunnudaginn 18. maí að Baegisá. Aðallundur kvennadeildar Slysa- varnafélagsins verður næstk. mánud., 5. maí, að Hótel Norðurlandi, kl. 9 e. h. — Félagskonur! Munið söngæfing- arnar á miðvikudagskvöldum. Guömundur Guðmundsson, bóndi og hreppstjóri á Þúfnavöllum, lézt að heimili sínu sl. sunnudagskvöld, 92 ára að aldri. Þessa merka manns verður nánar getið hér í blaðinu innan skamms. Orðsending til Mennaskólans á Ak- ureyri, Gagnfræðaskóla Akureyrar og húsmæðraskólanna á Akureyri og Laugalandi. — Skjaldborgarbíó hefir ákveðið að bjóða kennurum og nem- endum þessara skóla að sjé hina merku mynd: Glötuð helgi, þeim að kostnaðarlausu. — Sýningar verða þannig: Fyrir Menntaskólann í dag kl. 5 (miðvikud.) og á morgun, 1. maí, kl. 1 e .h. Aðgöngumiða sé vitjað í dag til Arna Friðgeirssonar í Menntaskólan- um, kl. 1—2. — Sýning fyrir Gagn- fræðaskólann verður kl. 3 fimmtud. 1. maí og geta kennarar og nemendur vitjað miða í Skjaldborg næsta klukkutíma áður en sýning hefst, með- an húsrúm leyfir. — Húsmæðraskól- unum er boðið á sýningu laugardaginn 3 maí kl. 3 e. h. Guðmundur Jónsson söngvari er kominn til bæjarins og syngur hér á vegum Tónlistarfélags Akureyrar í kvöld kl. 7, eingöngu fyrir styrktar- meðlimi og gesti þeirra. — Onnur söngskemmtun Guðmundar verður á fimmtudagskvöld (1. maí) i Nýja-Bíó kl, 9. Fimleikasýningu heldur kvennafl. K A., undir stjóm Þórhöllu Þorsteins- dóttur, næstk. laugardagskvöld kl. 8.30 í Samkomuhúsi bæjarins. Dans á eftir. Sjá götuauglýsingar. Félag ungra Framsóknarmanna heldur fund næstk. mánudag kl. 8.30 t h. að Rotarysal Hótel KEA. Fund- arefni: Frá félagsstarfinu. Upplestur. Umræðuefni kvöldsins. Bindindismál- in. Félagar! Munið Framsóknarvistina í kvöld. — Stjórnin. Sýning á handiðju, teikningum og vinnubókum skólabarna verður í bamaskólanum næstk. sunnudag, 4. maí, frá kl. 2—8 síðdegis. — Athygli skal vakin á, að þennan dag fer fram kaffisala í skólanum til ágóða fyrir skíðaskála barnaskólans. Er þess vænzt, að bæjarbúar drekki þarna síðdegiskaffið, um leið og þeir skoða sýninguna. Síldarverksmiðjurnar nýju (Framhald af 1. síðu). 12000 krónur og 5000 krónur að auki fyrir ferðalög norður í land í snmar er leið, og taldi ráðherr- ann þessi feðralög hafa staðið í sambandi við Alþingiskosning- arnar. Fessi dæmi — og íleiri voru talin — gefa hugmynd um fá- dæma ráðsmennsku kommúnista á fjármunum þjóðarinnar. Aðrar markverðar upplýsingar sem fram komu' í fyrrakvöld, voru: í febrúarlok voru allir gjaldeyrissjóðimir til þurrðar gengnir, og skorti þá 3 millj. til, að bankarnir gætu fullnægt skuldbindingum nýbyggingar- reiknings. Landsbankinn hefir jjegar neyðzt til að t&ka gjaldeyr- islán. Stjómin telur vonlaust, að ríkið sleppi skaðlaust frá fisk- ábyrgðarlögunum. Líkur eru til, að samið hafi verið við Breta um fisksölu og lýsissölu. Mun þar um að ræða verulegt magn fyrir við- unandi verð. Endurbætur Krossanesverksmiðj. (Framhald af 1. síðu). Verksmiðjan býður út lán. Nú innan skamms geist bæjar- búum tækifæri til þess að sýna, hvern skilning þeir liafa á þess- um málum, hvort þeir hyggjast láta ríkjandi stefnur í lánveiting- um afmarka framkvæmdum bæj- arfélagsins þröngan bás, eða hvort þeir vilja sjálfir leggja nokkuð af mörkum, til þess að hrinda áfram þeim framkvæmd- um, sem hafnar eru í Krossanesi til hágs fyrir bæjarfélagið í heild. Með þessu er ekki átt við, að þeir eigi að leggja á sig nýja skatta. Síður en svo. Aðeins er farið fram á. að þeir láni verksmiðjunni, á ábyrgð bæjarfélagsins, lítið brot af því sparifé, sem þeir eiga í bönkunum. Fjárþörf verksmiðj- unnar nú er 600 þúsund krónur og hyggst verksmiðjustjórnin að afla þess með skuldabréfaláni. — Bæjarfélagið er í ábyrgð fyrir láni þessu og kjör.eru betri en yf- irleitt tíðkast nú á opinberum lánsútboðu-m. Lánið gefur 5% vexti og er til 12 ára, en afborg- unarlaust fyrstu tvö árin. Af þess- ari upphæð hefir þegar verið lof- að hátt á annað hundrað þús. kr., svo að fé það, sem verksmiðjan þarf nú er aðeins 450 þús. kr. Er þetta mjög lág upphæð, miðað við stærð bæjarfélagsins og þá fjárhagslegu getu, sem hér er til. Hvað vinnst með því að lána? Auk þess sem þeir, er kaupa þessi skuldabréf, tryggja sér ágæta vexti af fé sínu, stuðla þeir að því, að tryggja rekstur verk- smiðjunnar og áframhald þeirra endurbóta, sem þar er nú verið að vinna að. hegar þeim endur- bótum er lokið, verður verk- smiðjan orðin mikilsverð eign fyrir bæjarfélagið og þess megn- ug að skila góðum hagnaði í sæmilegu síldarári. Er fram líða stundir er þess og vænzt, að verksmiðjan geti orðið nokkur léttir fyrir borgarana í bænum og bætt fjárhag bæjarfélagsins. Hvað líður endurbótunum. Verksmiðjustjórnin bauð frétta- mönnuin, bæjarráði, útgerðar- mönnum o. fl., til kaffidrykkju nýlega og skýrði þar frá því hvernig liorfði um framkvæmd- irnar í Krossanesi. Fréttamaður blaðsins hefir einnig farið út í Krossanes og litast þar um. End- urbæturnar virðast vel á veg komnar. Búið er að ,,ramma“ niður staura við bryggjuna, fyrir bryggjuhaus, er á að taka við hin- um nýju, tvöföldu löndunar- tækjum, sem verksmiðjan mun fá bráðlega og verða tiltæk fyrir síldarthnann. Þá er langt komið að leggja rafmagnsleiðslu í Ivrossanes, en ætlunin er að breyta rekstrinum í rafmagns- vinnslu, að svo miklu leyti. sem hægt er. Eykur það afkomuörygg- ið stórlega. Mai'gar fleiri endur- bætur eru vel á veg komn^r og samkvæmt síðustu fregnum horf- ir vel um að verksmiðjan fái nægilega mörg samningsbundin sumar. Að öllu samanlögðu virðist rekstur verksmiðjunnar tryggur, takist nægilega vel til um útveg- un fjármagns og síld veiðist í sumar. Bæjarbúar eiga það nú við sjálfa sig, hvort þeir vilja stuðla að því eða ekki. Er þess að vænta, að það spyrjist ekki, að Akureyri hafi ekki átt handbærar 450 þúsund kr. til þess að leggja í acvinnufyrirtæki, sem í framtíð- inni getur haft mikla fjárhags- lega. þýðingu fyrir bæjarfélagið. ... ■ Hárgreiður og Hárkambar Vöruhúsið h.f. Drengjaföt á ca. 4 til 12 ára, nýkomin Brauns Verzlun Páll Sigurgeirsson ■■■ .........9 Kvensloppar hvítir og mislitir Brauns Verzlun Páll Sigurgeirsson Sundbuxur kvenna Sundhúfur Brauns Verzlun Páll Sigurgeirsson. L- -- —JJ - ---■■ ■' ^ Hænsnafóður nýkomið VÖRUHÚSIÐ h/f ,L — ,i Herlíergi til leigo, í Norðurgötu 53, nú þegar eða 14. maí n. k. Skafli Áskelsson. ATVINNA! 2—3 unglingar geta fengið atvinnu í Skinnaverksmiðj- unni „Iðunni“, nú þegar. Upplýsingar í síma 304. Jarðarför föður okkar og tengdaföður, AÐALSTEINS EINARSSONAR, sein and'aðist að heimili okkar, Hafnarstræti 37, 24. apríl sl., er ákveðin mánudaginn 5. maí næstk, kl. 2 e. h. frá Glæsi- bæjarkirkju. Einar Aðalsteinsson. Sigríður Bjömsdóttir. Til fermingargjafa: Myndavélar Sjónaukar Svefnpokar Tjöld Bakpokar Fótknettir Tennisspaðar Grammofónar Veski, Töskur, Skrifmöppur o. m. fl. Sportvöru- og hljóðfæraverzlunin Sími 510 — Ráðhústorgi 5 KB>iKH5iKH5lKHKHKHKHKHKH5ms<H5mKHKHKH5m5mKHKHKHKH>lKBKHKH: Fr jáls-í þróttamenn! íþrótfafélög! Æfingabúningar fyrir frjáls-íþróttamenn, 3 litir. Knattspyrnubuxur, svartar. Brynjólfur Sveinsson h.f. Sími 580 — Akureyri .............. Hreinlæfisvörur: Þvottaduft „Sana“ „Lye“ sódi Gólfklútar, verð frá kr. 1.35 T eppabankarar Olíuvélar Burstavörur o. m fl. VÖRUHÚSIÐ H.F. Rúsínur Kúrennur Mafarlím Þurrmjólk Kartöflumjöl o. m. m. fl. Vöruhnsið hi. Aðalmynd vikunnar: ÖRLÖG RÁÐA Stórkostleg sænsk mynd eftir skáldsögu F. Thorén Viveca Lindfors, Stig J'drrel o. fl. Vil skipta 2 tn. Renault-vörubíl með nýjum palli og vélsturtum, fyrir jeppa-bifreið. A. v. á. Tapazt hefir fyrir inokkru kvenarmbandsúr, á leiðinni frá KEA út í Laxa- götu. Skilist vinsamlegast gegn fundarlaunum í Brauðbúð KEA. Herbergi til leigu. Halldór Halldórsson, Austurbyggð 8, sími 467. 2 DJÚPIR STÓLAR, OTTOMAN, BORÐSTOFUBORÐ og STÓLAR til sölu. A. v. á. Brennimark initt er HTS. Bið fjallskila- stjóra að rita það hjá sér. Haraldur Ti-yggvason, Svertingsst., Öngulsst.hr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.