Dagur - 01.10.1947, Qupperneq 1
„Til íslands vil eg
halda“
Hið nýja bann brezku
stjórnarinnar við ferða
lögum Breta til út-
landa nær ekki til ís-
lands óg Færeyja ,seg-
ir Manchester Guard-
ian.
Hið frjálslynda brezka blað,
Manchester Guardian, skýrii-
í'rá því, að svo virðist, sem hin
nýja reglugerð brezku stjórn-
arinnar um bann við ferðalög-
um til úclanda (hvea- maður 5
pund til ferðar og dvalar) nái
ekki til Islands og Færeyja.
Menn megi fara þangað og
eyða mun meh'u fé. Þar sem
fimmpunda reglugerðin nær
til Noregs og Sviss — en þang-
að hafa Bietai- leitað í stórum
stíl til þess að dðka vetrarspoi t
— hefir blaðið látið rannsaka
hvað ísland háfi upp á að
bjóða í þeim efnum. Segir það
athugúnina leiða í Ijós, að Ak-
ureyri og Reykjavík bjóði upp
á ágætai' skiðabrekkur, en það
sé dýrt á Islandi, 5 steiilings-
pund á dag kostar það. Engai
járnbrautir em þar, en hægt
að leigja sér bíl fyrir 10 sterl-
ingspund á dag (265 kr.). —
Ferðin til íslands er erfið og
lleiðin stormasöm, tekur 4—5
sólarhringa. — Blaðinu virðast
þær upplýsingar, sem fyrir
hendi eru um hið stjórnleyfða
túristaland, ekki alltof upp-
örvandi, því að jafnvel þótt ís-
land hafi girætt vel á stríðinu,
er erfiðara að komast niður á
jörðina aftur ofan af dýrtíðar-
tindinum, og fyrir þremur vik-
imi, segir blaðið, varð Sögueyj-
an að taka upp skömmtun á
matvörum og fatnaði.
Lokið lagningu háspennu-
línu frá Laxárvirkjun til
Húsavíkur
Nýlega er lokið við að leggja
háspennulínu frá Laxárvirkjun-
inni til Húsavíkur, en þó er
þorpið ekki ikomið í rafmagns-
samband við virkjunina, þar sem
allmikið starf er óunnið við inn-
anbæjarkerfið. Þá er ennfremur
nnýlega lokið við að leggja há-
spennulínu frá aðallínunni heim
að 11 bæjum í Aðaldal.
Flugvél hlekkist á
Síðastl. sunnudag skemmdist
tveggja hreyfla Beechraft-flugvél
frá Flugfélagi íslands, er hún var
að hefja sig til flugs á flugvellin-
um í Vestmannaeyjum. Vélin var
komin á loft, en sveigði síðan til
jarðar aftur, og lenti utan við
flugbrautarendann. Farþega og
áhöfn sakaði ekki, en vélin er all-
mikið skemmd, þó ekki meira en
svo, að líklegt er talið að gera
megi við hana. Sérfræðingar hafa
farið til Eyja til þess að athuga
vélina og orsök þessa atburðar.
Skömmtun margra heðmilisnauðsynja og bensíns hefst í dag
Fornleifafundurinu á Sílastöðum
Þessa mynd tók Edvard Sigurgeirsson nf einni gröfinni á Silastöðum i sl. viku.
Alls hafa nú fundizt þarna 5 grafir og voru voþn í fleslum grnjiinum. Myndin
sýnir sverð 87 cm. langt, hauskúpu og bein, skjaldarbólu, axarblað og hnif.
Auk þess voru í. gröfinni spjótsoddur og tiokkur vogarlóð^ Reiðskjóti forn-
mannsins hafði verið grafinn við fótagafl grafarinnar ásamt með öllum reiðtygj-
um. Grafír þessar eru síðan á 10. öld. Má m. a. merkja það af gerð vopnanna svo
og þvi, að með hristnitökunni féll niður sá siður að heygja menn með voþnum.
Stjórnarvöldin skora á almenning að taka
hinum nýju sparnaðarráðstöfunum
af þegnskap og velvilja
í dag tekur gildi nýtt skömmtunarkerfi Um land allt. H,afin er
skömmtun á kornvörum og brauði, vefnaðarvörum og búsáhöldum.
hreinlætisvörum og benzíni. Skömmtunárskrifstofa ríkisins birtir í
blöðunum um þessar mundir aug'lýsingai- um framkvæmd hinnar
nýju skömmtunar, og er nauðsynlegt fyrir almenning að kynna sér
efni þeina nákvæmlega. Nýjir skömmtunarseðlar hafa verið gefnir
út og hófst afliending þeirra hér síðastliðinn mánudag.
300 hestar af heyi
breuna á Naustum
Vilja Eyfirðingar hlaupa
undir bagga með
bóndanum?
Síðastl. fimmtudag brunnu
300 hestar af töðu á Naustum hér
ofan við bæinn, sömuleíðis brann
þak af hlöðu og fjósi áður en
Slökkviliði Akureytar, sent kom
ávettvang, tókst að ráða niður-
lögum eldsins. Heilan sólarhring
logaði í rústunum. Ekki mun
upplýst til fulls um upptök elds-
ins og er mál þetta í rannsókn.
Kunnugir telja, að um íkveikju
hljóti að hafa verið að ræða. Eng-
inn var heima á bænum, er elds-
ins varð fyrst vart. Bóndinn, Jón
Guðmundsson og fólk hans vann
að kartöfluupptöku alllangt írá
bænum og varð einskis vart um
eldsupptökin.
Naustabóndinn hefir orðið fyr-
ir miklu tjóni, þar sem mestur
hluti heyja hans helir brunnið og
árangur sumarvinnunnar farið
forgörðum. Margir hafa áhuga
fyrir að hlaup aundir bagga með
honum og eru samskot hafin. —
DAGUR mun veita þeim mót-
töku. Blaðið vill gera það að til-
lögu sinni, að Eyfirðingar, sem
flestir hafa aflað mikilla og géðra
heyja í sumar, láti hey af hendi
rakna til þessa nauðstadda
bónda. Kaupfélag Eyfirðinga
liefir þegar iofað að sjá um flutn-
ing á því heyi, sem menn vildu
láta. Þurfa þeir bændur, er þarna
viíja verða að liði, að láta félagið
vita hvar baggana er að taka og
mtin það sjá um flutning þeirra
héint að Naustum. Ef margir gér-
ast til þess að hjálpa Naustaheim-
ilinu verður tjónið bætt á
skammri stund án mikilla fórna
fyrir hvern einstakling.
Þrír menn drukkna
Hörmulegt slys varð í Ólafs-
víkurhöfn sl. laugardagskvöld, er
mótorbátur, er var að flytja kol í
land úr flutningaskipi, sökk í
vonzku veðri. Mennirnir, sem
fórust hétu Lárus Sveinsson, Sig-
urður Sveinsson, og voru þeir
bræður, og Magnús Jónsson, allt
ungir og röskirmenn frá Ólafsvík.
GullbrúSkaup áttu hjónin ó Hesju-
völlum í Glæsibæjarhreppi, Sigríður
ísleifsdóttir og Vilhjálmur Jónasson,
s!. föstudag, 26. sept. Þau hafa búið á
Hesjuvöllum nær allan sinn búskap
og hafa bætt jörðina og prýtt á marg-
an hátt. Margir sveitungar þeirra
hjóna heimsóttu þau á þessum merk-
isdegi og færðu þeim árnaðaróskir og
þakkir fyrir langt og ánægjuríkt sam-
stárf og viðkynningu. Þau Hesjuvalla-
hjón hafa eignast þrjú börn, tvær dæt-
ur og einn son, sem öll eru búandi í
héraðinu.
Skömmtunarstjóri ríkisins flutti
ávarp urn hina nýju skömmtun í
útvarpið í gær og greindi frá
helztu atriðum hennar. Jafn-
framt skoraði hann á landsmenn
að taka hinum nýju reglum með
þegnskap og velvilja og stuðla að
því, að framkvæmd skömmtunar-
innar verði réttlát. Hér skal get-
ið nokkurra helztu atriða
skömmtunarkerfisins, en að öðru
leyti er vísað til auglýsinga frá
skömmtunarstjóranum annars
staðar í blaðinu.
Reitir nýja skömmtunarseðilsins.
Á hinum nýja skömmtunar-
seðlieru margir reitir, auðkennd-
ir nreð bókstöfum og tölum.
Hefir gildi þeirra verið ákveðið
í aðalatriðum þannig til áramóta.
Reitirnir A—1 til A—15 gilda
aðeins fyrir kornvörum og
brauðum. Hver reitur gildir fyrir
1 kg. af kornvörum eða brauð-
um, en litlu reitirnir, All— A15
eru skiptiseðlar til hagræðis fyrir
verzlanir og viðskiptamenn og
gildir hver þeirra 200 gr.
Reitirnir Bl—B50 gilda aðeins
fyrir vefnaðarvöru (annarri en
tilbúnum fatnaði) og búsáhöld-
um. Hver reitur gildir 2 krónur
miðað við smásöluverð varanna.
Heimilt er að kaupa fyrir þessa
reiti hvort heldur er vefnaðarvör-
ur eða búsáhöld í hverjum þeim
hlutföllum, sem kaupandi óskar.
Reitirnir Kl—K9 gilda aðeins
fyrir sykri og hver reitur fyrir þó
kg•
Reitirnir Ml—M4 gilda aðeins
fyrir hreinlætisvörur. Heimilt er
að kaupa gegn hverjum M-reit
eitthvað af þessu fernu: 1/2 kg.
blautsápa, eða 2 pk. þvottaefni,
eða 1 stk. handsápa, eða 1 ‘stk.
stangasápa. Hver miði dugar að-
eins til að kaupa EITT af þessu
fernu, til þess að kaupa það allt
þarf alla 4 M-reitina.
Reitirnir J1 —-J8 gilda aðeins
fyrir kaffi og hver reitur fyrir 125
gr. af br. og möluðu kaffi eða 150
gr. af óbrenndu kaffi.
Stofnauki númer 13 gildir fyr-
ir tilbúnum ytri fatnaði, þannig,
að gegn þessum stofnauka má
kaupa: 1 alklæðnað karla eða 1
yfirhöfn karla eða kvenna, eða 2
ytri kjóla kvenna, eða 1 alklæðn-
að og 1 yfirhöfn á börn undir 10
ára aldri. Aðeins eitt af því, sem
nú var talið, fæst gegn stofnauka
nr. 13. Þessi skömmtun gildir til
ársloka 1948, en allir aðrir reitir
til ársloka 1947.
Stofnauki númer 14 gifdir fyr-
ir 1 kg. af erlendu smjöri. Stofn-
auki númer 11 af matvælaseðli
þeim, sem úr gildi féll nú um
mánaðamótin síðustu, er enn í
gildi, fyrir 1 pari af skóm.
Takmarkanitr á afgreiðslu vara
til verzlana.
Litlar birgðir skömmtunar-
vara munu vera til í verzlunum
landsins. Hins vegar er óheimilt
að afgreiða skömmtunarvörur til
smásöluverzlana nema gegn skil-
uðum reitum skömmtunarvara.
Til þess að búa verzlanir nægum
byrjunarbirgðum, fá þær, er um
það sækja, fyrirfram skömmtun-
arleyfi. Innflytjendur skömmt-
tmarvöru fá hana ekki tollaf-
greidda framvegis, nema gegn
leyfi frá skömmtunarskrifstofu
ríkisins. Sérstakar reglur verða
settar um afgreiðslu skömmtun-
arvara til veitingaihúsa, iðnaðar-
fyrirtækja o. s. fnr.
Benzínskömmtunin.
Skömmtun á benzíni til allra
vélknúinna farartækja hefst
einnig í dag. Fáskrásett farartæki
bénzínskömmtunarmiða, semhér
segir á mánu%i, til áramóta:
Strætisvagnar 1800 lítra, aðrar
sérleyfisbifreiðir og mjólkur-
flutningabifreiðir 900 lítra,
'leigubifreiðir 5—7 manna 400
lítra, einkabifreiðir 5—7 manna
60 lítra, einkabifreiðir 2—4
nianna 45 lítra, bifhjól 15 lítra.
Vörubifreiðir yfir 5 tonn 600 ltr.,
4—5 tonna 500 ltr., 3—4 tonna
400 ltr., 2—3 tonna 350 ltr., 1—2
tonna 200 ltr., V2—1 tonns 100
ltr. og minni en l/fctonn 45 ltr.
Takmörkun akstuirs.
Leigubifreiðum er bannað að
aka frá kl. 11 á kvöldi til kl. 7 að
morgni, nema um nauðsynlegan
akstur sé að ræða, svo sem með
lækni, sjúkling eða komið sé úr
(Fram’hald á 8. síðu).