Dagur - 29.10.1947, Blaðsíða 1

Dagur - 29.10.1947, Blaðsíða 1
Magnús Sigurðsson, bankastjóri, látinn Magnús Sigurðsson bankastjóri varð bráðkvaddur í Genúa á ítal- íu í fyrradag, er hann var þar á ferð ásamt dóttur sinni. Hann var 67 ára gamall. Hann tók við bankastjórastörfum árið 1917 og gegndi þeim <til dauðadags. — Hann var fullfcrúi íslands á mörgum alþjóðlegum ráðstefn- um og í viðskiptasamninganefnd- lum og fór síðast utan í opinber- uin erindum. Með honum er fall- í val'inn einn af glöggustu ínn fjármálamönnum þjóðarinnar á síðari tímum. LL agur XXX. árg. Akureyri, miðvikudaginn 29. oktober 1947 42. tbl. Landsbankinn hyggst reisa bygg- ingu fyrir starf- semi sína við Ráðhústorg Á fundi bæjartáðs fyrir skemmstu skýrði útibússtjóri Landsbankans hér frá því, að bankinn hefði hug á að réisa hús fyrir starfsemi sína á lóðum sín- um við Strandgötu 1 og Brekku- götu 2, en þær lóðir liggja sam- an. Bæjarráð ákvað að leita um- sagnar skipulagsnefndar um mál þetta, þar sem núgildandi skipu- lagsuppdráttur af Ráðhústorgi gerir ráð fyrir væntanlegu ráð- húsi á lóðinni Strandgötu 1. Byggingakyfi ekki afgreitt nema fjárfest- ingarleyfi sé fyrir hendi Bygginganefnd kaupstaðarins hefir samþykkt, að taka ekki fyrir til afgreiðslu framvegis umsóknir um leyfi til byggingafram- kvæmda í bænum, sem fjárfest- ingarleyfi þarf til að hefja, nema að slíkt leyfi sé þegar fyrir hendi. 18 ára piltur uppvís að mörgum bíla- þjófnuðum Að undanförnu hefir borið mikið á því hér í bænum, að bíl- ar væru teknjr ,við hús manna að næturþeli og þehn ekið um bæ- inn og væru skemmdir. Aðfara- nótt 24. þ. m. náði Gunnar Stein- dórsson, bílaeftirlitsmaður, í 18 ára pilt, sem var kominn inn í einkabíla í Helgamargrastræti. Hefur piltur þessi setið í gæzlu- varðhaldi síðan og hefur nú ját- að að vera valdur að öllum bíla- þjófnuðum, er hér hafa verið framdir að undanförnu'. Fyrst byrjaði hann á þessu aðfaranótt 9. sepfcember og þá nótt tók hann 7 bíla og færði þá úr stáð eða ók þeim, þar á meðal stórum vöru- bíl, er hann ók á herskála út á Gleráreyrum og skemmdist skál- inn mikið og bíllinn fcalsvert. Hinn 9. október tók hann bvö bifhjól og vöfcubifreið. Vörubif- reiðina skildi hann eftir í Kaup- vangsstræti og rann hún aftur á bak að húsi Eimskipafélagsins og staðnæmdist þar. Einhverjar skemmdir urðu á húsinu og bif- reiðinni. Hinn 12. október tók hann bifreiðir í Hamarstíg og Lögbergsgötu og valt önnur bif- reiðin á gatnamótum Oddeyrar- götu og Bjarmastígs, braut girð- ingu og skemmdist eitthvað. Hinn 24. október hafði liann brotið upp bíl í Oddeyrargötu og fært úr stað, snúið handföng af fólksbifreið í Brekkugönu og farið í Jeppa í Helgamagra- stræti og þar var hann tekinn. Piltur þessi mun hafa verið ölv- aður í öll skiptin. Mál hans bíð- ur nú dóms. Síldveiðin í ísafjarðardjúpi nýlunda á þessum árstíma Krefst þingrofs nágrenm Rætt um flugvallargerð í Akureyrar Embættismenn ríkisins og bæjarráð hafa rætt um möguleika á flugvallargerð í Eyjafjarðarárhólmum „Kata4i strandaði á Leirunni Catalinaflugbátur frá Flugfé- lagi íslands kom hér laust eftir kl. 1 í gær með farþega frá Reykjavík. Flugbáturinn settist innarlega á Pollinn og rann upp á grynnslin á Leirunum og strandaði. Útfall var og tókst ekki að ná bátnum út fyrr en með flóði i gærkveldi. Óvitað var hvort báturinn hefði iaskast eitt- hvað af þessum sökum. Framburður Eyjafjarðarár eyk- ur sífellt við grynnslin þarna og hefir marbakkinn sífellt færzt norðar. Virðist athugandi hvort ekki ætti að setja upp merki um grynningar þarna til leiðbein- ingar fyrir báta og flugvélar. De Caulle hershöfðingi hefir nú skor- að á stjórn Ramadiers að rjúfa þin& og efna til nýrra kosninga. Flokkur hershöfðingjans vann mikirtn sigur bæjar- og sveitarstjórnarkosningum í Frakklandi í þessum mánuði, en höf- uðandstæðingar hans, kommúnistar, biðu mikinn ósigur. De Gaulle telur að efnahagsástand landsirts sé þannig, að nauðsynlegt sé að breyta til um stjórnarhætti og útiloka kommúnista frá miklum áhrifum á stjóm landsins. Með nýjum þingkosningum mundi hagur kommúnista stórversna, ef dæma má eftir úrslitunum t bæjar- stjórnarkosningunum. Fyrir helgina voru á ferð hér þeir Agnar-Koifoed Hansen, flug- vallastjóri ríkisins, Erling Ellingsen, flugmálastjóri, og Bergúr Gíslason úr Flugráði. Erindi þeirra Var að athuga flugvallarmál Eyfirðinga, skoða Melgirðisflugvöllinn og athuga um ný flugvallar- stæði nálægt bænum. Embættismenn þessir héldu fund með bæjar- ráði um þessi máHefni-. í ljós kom, að talið er allmikl- um vandkvæðum bundið að gera við Melgerðisflugvöllinn, svo að hann verði til frambúðar og mun það kosta mikið fé. Hefir því komið til athugunar að hefja byggingu nýs flugvallar, sem væri nær bænum og því hentugri til afnota á leiðinni hingað. Hafa að vísu verið gerðar athug- anir á því máli áður, en ekkert ákveðið um það, hvernig þessum málum yrði skipað til frambúð- ar. Árangurinn af för þessara embættismanna hingað norður nú mun væntanlega verða sá, að framkvæmdar verða mælingar nú á næstunni á líklegustu flug- vallarstæðunum, en þau munu vera í Hólmunum hér framan við og við Þverá á Staðarbyggð. Voru báðir þessir staðir skoðaðir nú og hafa þeir marga kosti sem flugvellir, þótt engu endanlegu hafi verið slegið föstu um fram- kvæmdir ennþá. Strengleikum Björgvins. útvarpað á sunnudaginn Kantötukór -Akureyrar 15 ára um þessar mundir Kantötukór Akureyrar á 15 ára starfsafmæli um þessar mundir. Kórinn var stofnaður fyrir forgöngu Björgvins Guð- mundssonar tónskálds og hefiur hann stjórnað honuín alla tíð. Kórinn setti sér það hlutverk að kynna þjóðinni tónverk Björg- vins, ásamt annarri góðri tónlist, einkum óratóríóverk og er hann fyrsti hérléndi kórinn, sem hefur flutning slíkra verka. Hafa for- göngumenn þessarar starfsemi svo og allir hinir mörgu þátttak- endur í starfinu á liðnum árum, unnið merkilegt menningarstarf með flutningi þessara tónverka. Fyrsta árið starfaði karlakórinn Geysir með Kantöfcukórnum og nú hin síðustu ár hefur Karlakór Akureyrar æft og sungið með kórnum. Kantötukórinn minnist afmæl- isins með flutningi óratóríó- verksins Strengleika á sunnudag- inn kemur og verður söngnum útvarpað héðan í gegnum Rvík klukkan 2 síðdegis. Á sunnudags- kvöldið heldur kórinn samsæti að Hótel Norðurland fyrir yngri og eldri félaga. Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju stofnað Síðari stofnfundur n. k. sunnudagskvöld Sunnudaginn 19. október komu saman í kapellu kirkjunn- ar hér 108 fermingarbörn frá sl. vori og ákváðu þá að stofna æskulýðsfélag innan kirkjunnar, er hefði að markmiði að rækja það fermingarheit, sem þau unnu við fermingu sína. Fundur- inn stóð yfir í eina og hálfa klukkustund, og var ákveðið að halda framhaldsstofnfund, þar sem formelga yrði gengið frá stofnun félagsskaparins. Þessi fiundur verður haldinn næstk. sunnudag kl. 8.30 í kapellunni. Að fundi loknum verður kvik- myndasýning. Eyfirzk skip taka þátt , • í veiomni Talsverð síldargengd er í fjörðunum Við ísafjarðardjúp ennþá, að því að blaðinu var tjáð frá ísafirði í gær. Mörg veiðiskip eru nú í ísafirði inni í Djúpi og eiga þar talsverða síld í lásum. Telja sjómenn að mikil síld sé í sjónum þarna og em þó ókannaðir ýmsir fiirðir. Þessi síldveiði þarna er nýkmda á þessum árstíma og því hin merkilégasta. Þarna veiðist nú stór millisíld og smá hafsíld, en áður hefur ekki veiðzt nema smá- síld að neinu ráði við Djúpið á þessum árstíma. Vegir síldarinn- ar hér við land eru mönnum ráð- gáta ennþá og he'fur hún komið á óvart bæði við Faxaflóann í fyrravetur og í ísafjarðardjúpinu nú. Nokkuð af síld þessari er fryst til beitu og bætir að mjög miklu leyti úr beituskorti víðs vegar mm landið, en mest af afl- anum er flutt til Siglufjarðar til bræðslu. Er vinnsla síldarinnar þegar hafin. Fitumagn hennar mun ,vera um 17%. Eyfirzk skip fava á vettvang. Nokkur skip héðan úr Eyja- firði taka þátt í síldveiðnnum vestra. Narfi og Njörður voru fyrstir á vettvang og veiða í fé- lagi. Hafa þeir þegar landað 1300 málum til bræðslu og 100 tunrtum til fiystingar og telja, að þeir eigi í lásum vestra um 3000 mál. Akraborg og Gylfi munu einnig hafa fengið talsverða veiði og í fyrradag fóru Straum- ey og Andey á vettvang. Bátur frá Dalvík mun einnig vera far- inn vestur. Allmörg sunnlenzk (Framhald á 8. síðu). Mikil fiskigengd í Ey jafirði, en bátar geta ekki komið aflanum í verð Síldar hefur orðið vart Fregnum frá verstöðvunum hér við Eyjafjörð ber saman um mikla fiskigegnd hér í firðinum og á miðum hér úti fyrir. En sjói er lítt stundaður af því að ekki er hægt að koma alflanum í verð. Hraðfrystihúsin eru yfirfull og engir samningar hafa tekizt um ísfiskflutninga. Frá Dalvík róa þó þrír stórar bátar á djúp- <mið og afla vel. Er afli þeirra salt- aður. Smábátar frá Hrísey og víðar hafa aflað ágætléga í firðin- um, mest ýsu og þorsk, en eru í vandræðum með að losna við afl ann og því að hætta veiðum. — Stærri bátar frá Hrísey og Greni vík róa ekki. Kaupfélag Eyfirðinga hefir boðið útvegsmönnum að m/s. Snæfell hefji ísfiskflutninga með gildandi mannakjörum og verði skipið rekið á samvinnugrund- velli, þannig, að útvegsmenn fái það fyrir afllann, sem sala á brezka markaðnum gefur. Eru útgerðarmenn að athuga þetta, en munu yfirleitt ekki telja rekst- ursgrundvöll fyrir þessari útgerð. SÍLDAR VART, Síldar hefir orðið vart hér í firðinum og er hún veidd í lag- net frá Dalvík, Hrísey og Greni- vik og fryst ti’l beitu. Þetta er haf- , síld og telja sjómenn að talsverð gegnd geti verið af henni, en of lífcið gert til þess að veiða hana vegna skorts á veiðarfærum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.