Dagur - 18.12.1947, Síða 8

Dagur - 18.12.1947, Síða 8
8 Bagum Fimmtudaginn 18. desember 1947 Skipulagssfjóri ríkisins hefur lagf fil að gerðar verði róffækar skipu- lagsbreyfingar í miðbænum Aðkallandi, að Velja fyrirhuguðu ráðhúsi bæjarins stað Horfinn heim kapp á að fá í sínar bendur lóðir þær, sem nauðsynlegar eru undir ráðhús þar, og eru þær í eigu Landsbankáns. Bankinn mun hins vegar leggja kapp á að fá að byggja bankahús á þessum stað, og hefur sótt um það til bæjarstjórnarinnar. Verður bærinn þá að ákveða, hvort hann vill leyfa þá byggingu og falla frá hugmyndinni um ráðhús þarna, eða halda fast við hana og vera þá jafnfrarrit reiðubúinn að leggja fram fé til kaupa á lóðunum. Bent er á í þessu sambandi, að'Lands- bankinn muni eiga lóð við Hafnar- stræti, sem ætla má, að sé nothæf fyrir væntanlega bankabyggingu, og sé ástæðúlaust fyrir bæinn, að afsala sér Ráðhústorglóðinni þess vegna. Þá er enn fremur bent á, að vel gæti komið til mála að reisa ráðhúsið é mótum Oddeyrargötu og Brekkugötu og sameina þá í eina byggingu bókasafnið fyrirhug- aða og ráðhúsið. Þessi hugmynd virðist vel athugandi. Sömuleiðis munu hafa komið fram raddir, er telja heppilegt, að velja því stað á Eiðsvelli. Þótt ýmislegt reki á eftir um á- kvörðun þessara mála ,er þess að vænta, að bæjarstjórnin taki ekki ákvörðun, fyrr en hún hefir kynnt sér þessar tillögur og fleiri, sem fram kunna að koma, og kynnt >ér álit bcrgaranna í bænum. Það er vissulega mikilsvert atriði fyrir ramtíð bæjarfélagsins, hvar í bæn- um ráðhúsið stendur. — Yfirleitt munu menn sammála um það, að þvi beri að velja virðulegan og rúmgóðan stað i aðalhverfi bæjar- ins. A meðan samkomulag er ekki orðið um þann stað, getur bærinn tæpast afsalað sér byggingarrétt- inum á hinni gömlu ráðhúslóð við Ráðhústorg. Molotoff, utanríkisráðherra So- vét-RússIands, var fyrstur ráð- herranna til þess að leggja af stað heim, eftir að slitnaði upp úr samningunum í London. Hann kennir Vesturveldunum um ó- samkomulagið, segir þau hafa sameinast gegn Rússum. Stefnuviti fyrir flugvélar upp- settur við Kálf s- hamarsvík Fyrir nokkru er lokið við að setja upp stefnuvita fyrir flugvél- ar við Kálfshamarsvík á Skaga. Er það Flugráð, sem hefir staðið fyrir þeim framkvæmdum. Flug- menn hafa lengi haft mikinn áhuga fyrir því að fá stefnuvita á þessum stað og mun talið að hann auki öryggið á flugleiðinni hingað mikið. Þótt lokið sé við að setja hinn nýja stefnuvita upp, er enn- þá eftir að fullprófa hann og stilla af. Sífelld óveður fyrir Norður- landi nú að undanförnu hafa var'nað því, að flugvélar hafi komizt norður þessa leið, en gengið mun verða frá vitanum að fullu strax og mögulegt reynist. Hið nýstofnaða Flugráð á þakkir skildar fyrir að hafa hrundið þessu máli í framkvæmd fljótt og vel. ÚR BÆ OG BYGGÐ Samþykkf að hefja ýmsar fram kvæmdir á Akureyri Bæjarstjórnin afgreiðir erindi í sambandi við atvinnuþörfina í bænum Bæjarstjórnin hefir að undan- förnu haft til meðferðar erindi frá ýmsum aðilum í sambandi við at- vinnuþörf bæjarmanna yfir vetr- armánuðina. Á fundi bæjarráðs 4. þ. m. voru ákveðnar ýmsar framkvæmdir í bænum í vetur og er gert ráð fyrir, að 60 menn hafi að staðaldri atvinnu við þær. Bæjarstjórnin staðfesti þetta álit á fundi sínum í gær. Þessar fram- kvæmdir eru: Samþykkt var að halda áfram grjótnámi bæjarins á þeim stað, sem nú er unnið. Samþykkt var að fela bæjar- verkfræðingi og bæjarverkstjóra að athuga og gera tillögur og áætlanir um grjótnám á nýjum stað. Samþykkt að árétta við Vita- málaskrifstofuna og Skipulags- nefnd að hraðað verði uppkasti að skipulagi hafnarsvæðisins sunnan Strandgötu. Samþykkt að láta gera við Glerárgarðinn og lerigja hann. Ákveðið var að láta .rífa aust- urhluta Caroline Rest og hefja vinnu við það næstu daga sam- kvæmt samþykktum bæjar- stjórnar hér um. Samþykkt að leggja til við bæj- arstjórn að segja upp bráða- birgðaleigu á lóðum við Skipa- götu, er þeir hafa haft á leigu Tómas Björnss. og KEA, þannig, að lóðirnar verði lausar ekki síðar en 1. maí næstk., með það fyrir augum að gerð verði þar bif- reiðastæði, a. m. k. til bráða- birgða. Bæjarráð ályktar að óska um- sagnar hafnarnefndar um stækk- un og framlenging Leirugarðsins. Bæjarráð vísar til hafnarnefnd- ar tillögu um framhald á bygg- ingu hafnargarðsins á Oddeyri. Samþykkt að leggja holræsi í götur utan við barnaleikvöllinn á Oddeyri, þégar rör fást til þess. Ennfremur að púkka Glerárgötu frá Eiðsvallagötu út fyrir Fjólu- götu. Upplýst var að unnið verði í allan vetur við steypu á kant- steinum og gangstéttarhellum. Bæjarráð ætlast til, að til þess- ara verka verði teknir eins margir verkamenn og unnt er og áætlar bæjarverkstjóri að um 60 manns þurfi til þess fyrir utan nauðsynlegan snjómokstur. Felld var tillaga um að taka nú þegar 70 menn í bæjarvinnu, með 2 atkv. gegn einu. Gplin væntanleg fyrir jól Hvassafell er væntanlegt til Reykjavíkur í dag og mun það því væntanlega ná hingað fyrir jol, sennilega 22. éða 23. des. Eru því horfur á að jólaeplin nái hingað til bæjarins og næsta nágrennis hans fyrir jólin, en auðséð er, að flest héruð á land- inu verða af jólaávöxtunum að þessu sinni eins og svo oft áður. Það virðist því vera orðin föst regla hjá gjaldeyrisyfirvöldum landsins að draga að ákveða jóla- ávaxtakaup þangað til útilokað er orðið að allir landsmenn geti setið þar við sania borð. Ef eplin berast í tæka tíð, verða þau til sölu í verzlunum hér rétt fyrir jólin. Kaupfélag Eyfirðinga mun selja þau í öllum deildum 1 sínum. Rússar gera upp við „stríðsgróða- menn" hjá sér Gefa út eina nýja rúblu fyrir hverjar tíu, sem þeir kalla inn Bæjarráð hefir að undanförnu haft til meðferðar tillögur til nýrrar skipulagningar í miðbæn- um, sem skipulagsstjóri rikisins, Ilörður Bjarnason, hefir gert. — Samkvæmt þessum bráðabirgða- uppdrætti eru gerðar róttækar breytingar á miðbænum og ná- grenni hans. Kaupvangstorg er mjög stækk- að, með því að gert er ráð fyrir, að húsin við Hafnarstræti, sunnan Kaupvangsstrætis, hverfi allt að Gudmannsgarði. Sömuléiðis er gert ráð fyrir mikiili breikkúh Kaup- vangsstrætis í gilinu og plássi fyrir bíla, þar sem nú eru geýmsluhús og verksmiðjur, í milli verzlunar- húss KEA og Mjólkursamlagsins. Þá er og ætlunin, að skúrarnir á hafnarbakkanum hverfi og Skipa- gata breikki verulega, og loks, að gerð verði stórkostleg uppfylling sunnan Strandgötu, og komi vöru- skemmur sunnan við götuna. Ráðhústorg á, samkvæmt þess- um tillögum, að stækka geysimik- ið, en Ráðhúsi bæjarins er ætlaður staður ofarlega við Strandgötu. Fleiri breytingar eru taldar í skipulagsuppdrætti þessum, sem of langt mál yrði að rekja ýtarlega. Mundi verða of dýrt. Bæjarráð mun yfirleitt ekki telja sér fært, að fallast á þessar breytingar, einkum vegna hins gíf- urlega kostnaðar, sem af þeim mundi hljótast. Er augljóst, að ef slíkur uppdráttur yrði samþykktur, yrði bærinn jafnframt að vera við því búinn að kaupa upp lóðir og lendur fyrir stórfé, jafnvel svo að milljónum skipti, og mun bæjarráð ekki telja fært að leggja til að í slíkt verði ráðizt, jafnvel þótt fall- izt yrði á uppdráttinn að öðru leyti. Jafnframt telja margir, að ekki lcomi til mála að samþykkja þetta skipulag óbreytt, hvað sem kostnaðarhliðinni líður. Fleiri tillögur. Bæjarráð mun einnig hafa at- hugað aðra tillögu um skipulag miðbæjarins, er að vísu krefst ail- mikilla breytinga, en hvergi nærri eins míkilla og hin fyrrnefnda. Er ráðhúsi bæjarins þar valinn staður út undir Hótel Norðurlandi, eftir að miklar breytingar hafa verið gerðar á Geislagötu og umhverfi. Ekki mun þessi tillaga heldur hafa mikinn byr. Hvar á að byggja ráðhúsið? Þótt frestað verði eitthvað að taka endanlega ákvörðun um skipulag miðbæjarins í æðimörg- um atriðum ,er nú orðið aðkallandi að ákveða, hvar eigi að byggja ráð- hús bæjarins, er að því kemur. Upphaflega var talað um að byggja það á lóðinni nr. 1 við Strandgötu, og mun Ráðhústorgsnafnið hafa orðið til í sambandi við þær fyrir- ætlanir. En bærinn hefir ekki lagt Póststofan vill vekja athygli bæjarbúa á því, að að til þess að jólapóstur í bæinn verði borinn út fyrir jól, þarf að skila honum í póstkassana á Þorláksdag. — Póstur, sem kemur eftir það, verður borinn út á þriðja í jólum. Innanbæjarburðargjald er nú: Fyrir bréf 35 aurar, fyrir bréf- spjöld 25 aurar. Skólaskýrsla Menntaskólans á Akureyri, fyrir árin 1944-45 og 1945-46 er nýlega komin út og hefur borizt blaðiriu. Auk venju- legs fróðleiks um námsgreinar, próf, verkefni o. s. frv., flytur skýrslan greinargerð Sigurðar Guðmundssonar um byggingu heimavistarhúss skólans. Heiðbjört heitir snotur telpu- bók, er blaðinu hefir borizt. Höf- undur er Frances Duncombe, Þórunn Rafnar þýddi, en bóka- útgáfa Jónasar og Halldórs Rafn- ar gaf út. Þetta er hugþekk saga um börn og dýr, prýdd mörgum myndum og virðist vera hollt og gott lesefni fyrir litlar stúlkur. Leiðrétting. f trúlofunarfrétt í síðasta blaði misritaðist Svein- björg Pétursdóttir frá Siglufirði. Átti að vera frá Súgandafirði. Barnabækur. Blaðinu hafa borizt nokkrar barnabækur, er bókaforlag Æskunnar gefur út. Dóra og Kári nefnist hugþekk unglingasaga eftir Ragnheiði Jónsdóttur, sennilega skemmti- legasta íslenzka unglingabókin, sem lengi hefir komið hér út. Maggi varð að manni er skemmti- leg drengjasaga eftir kunnan danskan barnasöguhöfund. Litla kvenhetjan er saga fyrir litlar stúlkur, þýdd úr ensku. Adda og litli bróðir er framhald hinnar ágætu telpusögu um Öddu, eftir Jenny og Hreiðar á Akureyri, sem út kom í fyrra og hlaut miklar og verðskuldaðai- vin- sældir yngstu lesendanna. Hjálpræðisherinn, Akureyri. — Sunnudaginn 21. des. kl. 2 sunnu- dagaskóli, kl. 8.30 hjálpræðissam- koma. Allir velkomnir. Fregnir frá Moskvu lierma, að ákveðið hefði verið af hálfu ráð- stjórnarinnar að kalla inn gjald- miðil landsins, rúbluna, nú innan skamms. Samkvæmt frekari fréttum um þetta efni, mun aðeins ein ný rúbla verða gefin út fyrir hverjar tíú, sem kallaðar eru inn. Jafn- framt verður nokkur verðlækk- un ákveðin á ýmsum vöruteg- undum, en mismunandi mikil. — Mun verðlækkunin alls ekki vega upp á móti þeirri rýriiUn spari- fjár almennings, sem verður við það, að gefa ekki út nema eina nýja rúblu fyrir hverjar tíu. í Moskvaútvarpinu hefir kom- ið fram nýstárleg skýring á þess- ari ráðstöfun stjórnarinnar. Er hún sú, að gjaldmiðill landsins sé kallaður inn til að ná til auðsafn- ara og stríðsgróðamanna, sem hafi eflzt mjög þar í landi styrj- aldarárin. Skýtur sú skýring riokkúð skökku við það, sem áður hefir verið haldið fram um stjórnarfar Rússlands, að þar gætu engir stríðsgróðamenn þrif- izt. En þessi ráðstöfun .hlýtur að bitna mjög á öllum landslýð og rýja hann algerléga öllu því, er hann kann að hafa aurað saman styrjaldarárin, því að lækkun verðlagsins er svo hverfandi lítil samanborið við þá miklu rýrnun, sem með þessum ráðstöfunum er á sparifé landsmanna.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.