Dagur - 07.01.1948, Blaðsíða 7
$L i i >» A \ c
: /úóL?
Mið\dkudaginn 7. janúar 1948
D AGUR
- Um málefni bændanna
(Framhald af 2. síðu).
röðinni.
Með stofnun sæðingarstöðvar-
innar á Akureyri á vegum S. N.
E., hefir stórt spor verið stigið á
sviði búfjárræktarinnar í héraði.
Sæðingarstöðin er og verður
hin eiginlega kynbótastofnun
héraðsins, en hvort starfsemi
hennar muni ná til allra búfjár
greina er fram líða stundir, skal
ekkert fullyrt um nú. Telja má þó
líklegt að svo muni reynast. Að
hve miklu leyti starfsemi sæð-
ingarstöðvarinnar getur sam-
rýmst eiginlegri ráðunautastarf-
semi í héraði, er auðvitað mjög
háð því hvaða starfsmönnum
verður á að skipa. En ráðunauta-
starfsemi í búfjárrækt er að sjálf-
sögðu að nokkru leyti leyst með
starfrækslu sæðingastöðvarinnar,
en þó aðeins að nokkru leyti. Hin
hlið málsins, fóðrunin, sem einnig
er mjög þýðingarmikið atriði, er
allt annars eðlis en kynbótastarf-
semin, en engu veigaminni þáttur
í undirstöðu búskaparins eigi að
síður. í sambandi við þetta er þá
og þess að gta, að tegundir bú-
fjár eru fleiri en sæðingarstöðin
hefir með að gera og allar teg-
undir búfjár er hægt að rækta,
þær ber að ræka, og gera arð-
meiri en þær eru
Ráðunautaskrifstofa.
i .. , /. '/r. .
í sártibarid ivið þá ráðunauta-
starfsemi, sem þörf éf á í héraði,
• •!••• • >(jr 'f
hlýtur að verða um talsverða
skriffinsku að ræða, og eru þau
störf þáttúr í hlutverki ráðunaut-
anna. Þess þekki eg.dæmi annars
staðar, að ráðunautarnir hafa
meira en nóg að gera við leið
beiningar, erindaflutning á nám-
skeiðum og í kvöldskólum bænd-
anna, hver á sínu starfssviði. Ef
ráðunautastarfsemi kæmist í líkt
horf hér, þá myndi og svo geta
reynzt, að sérstökum aðilum yrðu
falin skrifstofustörfin.
Skrifstofan er þá miðstöð ráðu-
nautastarfseminnar í héraði,.þar
eru niðurstöður. fundnar og málin
afgreidd vegna þeirra, sem búið
er að vinna hjá, á meðan ráðu-
nauturinn er að gera áætlanir og
sjá um framkvæmdir hjá öðrum.
Hér mun þó það fyrirkomulag
ráðandi, að sökum vetrarríkis
hljóti hin eiginlega ráðunauts-
starfsemi að nokkru að liggja
kyrr að vetrinum, að því er
snertir jarðræktina. Myndi þá
skýrsluhaldið eðlilega verða aðal-
starf ráðunautsins eins og nú. En
ekkert er því til fyrirstoðu að
sameina mætti í eipa stófnun
ráðunautaskrifstofu Eyjafjarðar,
og þar gæti þá einn unnið með
öðrum, svo að fljót afgreiðsla
fengist í þeim efnum, sem mikið
liggur á eða fremur öðrum þarf
að hraða. Verkefnin eru bæði
mörg og fjölþætt. Hvernig þau
verða bezt leyst má um deila, en
að gera ber það sem unnt er til
þess að mega til langframa njóta
góðra starfsmanna í þógu búnað-
armálanna í héraði, um það verð-
ur víst ekki deilt. Og eg hygg, að
starfsskilyrði gætu orðið fjöl-
breyttari en ella og viðunandi
lífskjör mætti skapa starfsmönn-
um með því að hafa eina allsherj-
ar stofnun, þar sem einn gæti
aðstoðað annan í verki eftir at-
vikum. Sú miðstöðú ráðunauts-
starfseminnar mundi verða sem
næst miðsveitis, líklega þá á Ak-
ureyri.
Landfræðileg afstaða og mikl-
ar vegalengdir meðfram Eyjafirði
á báða vegu gera nokkurt strik í
reikninginn, og ekki er ástæðu-
laust þótt einhverjir kynnu að
spyrja hvort ekki væri heppileg-
ast, að í héraðinu væru tveir
ráðunautar og hefði hver um sig
allar greinar búriaðarins að verk-
efnum, bæði á sviði jarðyrkju og
búfjárræktar. Hefði þá annar
verksvið sitt í Eyjafjarðarsýslu
utanverðri að Moldhaugahálsi t.
d., en hinn innhluta sýslunnar og
svo svæðið út með Eyjafirði að
austan í Höfðahverfi, en þessi
hluti Þingeyjarsýslu er eðlilegt
starfssvæði ráðunauts vestan
Vaðlaheiðar. Að óprófuðu skal eg
ekkert fullyrða um hvað hentast
þætti, en líklega mætti oftar ná
til ráðunautsins, ef svo væri fyrir
komið starfssvæðum.
Poki með hangikjöti
hefir verið skilinn eftir við
Brekkugötu 13 A. — Eigandi.
vitji hans til undirritaðs, gegn
greiðslu á auglýsingakostn-
aði. — Jakob Stefánsson.
Tapazt hefir
ljósbleikur foli, fjögra vetra,
fremur smár, með stjörnu í
enni og lauf á milli nasa. —
Mark óvíst. — Ef einhver
yrði var við hest þennan, er
hann vinsamlega beðinn að
gera mér aðvart.
Sigurður Eiríksson,
Vökuvöllum, Akureyri.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem aðstoðuðu og auðsýndu
samúð við jarðarför mannsins míns,
ÞORVALDAR FRIÐFINNSSONAR,
Ólafsfirði,
sem lézt þann 7. desember síðastliðinn.
Elín Þorsteinsdóttir.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, fjær og nær, er auðsýndu
samúð við andlát og jarðarför
BRYNJÓLFS STEFANSSONAR, kaupmanns.
Þökkum sérstaklega Oddfellowbræðrum og hr. forstjóra Jónasi
Þór og frú fyrir þeirra miklu hjálp.
Guðmunda Jónsdóttir. María Brynjólfsdóttir.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem auðsýndu samúð og að-
stoð við jarðarför konunnar minnar, móður og tengdamóður,
JÓNINU VILBORGAR PÁLSDÓTTUR,
er lézt þann 21. desember síðastliðinn. — Guð blessi ykkur öll.
Halldór Jóhanncsson, börn og tengdabörn.
'iiiiiiimiiiiiiiiiiiiimuMiiMiiiiiiiiii
iMmMmmmmmimimim
mmmmmimm
Áuglýsing
. Nr. 29/1947
frá skömmtunarstjóra
Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerðar irá 23. sept.
1947, um sölu og afhendingu benzíns og takmörkun á
akstri bifreiða, hefur viðskiptanefnd ákveðið eftirfar-
andi:
Á fyrsta skömmtunartímabili 1948, 1. janúar til 31.
inarz, skal benzínskammtur bifreiða vera sem hér segir
í 'þeim flokkum, er að neðan greinir:
Auglýsing
Tilboð óskast í efri hæð húseign-
ar hér í bænum fyrir 20. janúar
næstkomandi. — Áskilinn réttur
til að taka hvaða tilboði sem er
éða hafna öllum. — Afgr. vísar á.
Á ÁSLÁKSSTOÐUM
í Arnarneshreppi er í óskil-
um rauður hestur, ljósari á
fax og tagl. Mark: Stýft h.
fjöður fr. v. — Réttur eigandi
gefi sig fram sem fyrst.
Axel Björnsson.
ÐÖKKBLÁR VETRARFRAKKI
var tekinn, sennilega í mis-
gripum, á Hrafnagili um
fyrri helgi. — Vinsamlegast
skilist á afgreiðslu Dags.
Lítið skrifborð,
notað, til sölu.
Aclam Magnússon,
Bjarkarstíg 2.
1 Strætisvagnar . . . 5400 lítrar
9 Sérleyfisbifr. og mjólkurfl.bifr^iðar . . 2700 —
3 Leigubifreiðar til mannflutninga . . . . 1800 —
4 Einkabifreiðar 5 manna og stæiri . . 180 —
5 Einkabifreiðar 4 manna og minni . . 135 —
G ] eep-bifreiðar bænda . 300 —
7 Bifhjól 45 —
1 Vörubifreiðar yfir 5 smál . 2700 —
9 Vörubifreiðar 4001 kg.—5000 kg. . . . . 2250 —
3 Vörubifreiðar 3001 kg,—4000 kg. . . . . 1800 —
4 Vörubifreiðar 2001 kg.—3000 kg. . . . . 1575 —
5 Vörubifreiðar 1001 kg.—2000 kg. . . . . 900 —
6 Vörubifreiðar 501 kg.—1000 kg. . . . . 450 —
7 Vörubifreiðar 500 kg og minni . . . . 300 —
T ilgreind þyngd við bifreiðar í B-flokki er miðuð við
Sendisveina
vantar
Landsímastöðina.
lllllllttlllllllllllttlllllltlMlltllllllllltlllMMMIIIMIIIIMMtlll
•llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll*
IÚr bæ og byggð 1
■ II IIIIMIIIIIIIIIIMI1
llllllllllllllllll*
| mestu leyl’ilega hlassaþyngd samkv. skoðunarvottorði.
Framangreindir skammtar bilreiða eru skammtar
alls tímabilsins, þriggja mánaða, og skal þeim úthlutað
í einu lagi.
Engin bifreið getur fengið úthlutað skammti A 3
(leigubifreiðar til mannflutninga), án séi'staks leyfis
frá skömmtunarstjóra ríkisins.
Reykjavík, 30. desember 1947.
Skömmtunarstjóri.
I. O. O. F. — 129198V2 —
KIRKJAN. Messað á Akureyri
kl. 2 e. h. næstk. sunnudag. —
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. (5—6
ára börn í kapellunni, 7—13 ára
börn í kirkjunni). Æskulýðsfé-
lagsfundur kl. 8.30 e. h. í kapell-
unni.
Áheit á Akureyrarkirkju. Kr.
100.00 frá H. — Kr. 20.00 frá
^ ónefndum. — Afhent af séra Pétri
; Sigurgeirssyni: Kr. 50.00 frá
Unni. — Kr 20.00 frá S. H. Þakkir.
| Á. R.
Iljúskapur. Hinn 20. des. voru
gefin saman í Akureyrarkirkju
: af séra Pétri Sigurgeirssyni:
■ Ungfrú Aðalheiður Elísabet Þor-
leifsdóttir og Magnús Snæbjörns-
i son, bifreiðarstjóri. Heimili
þeirra er í Eiðsvallagötu 13. —
26. des. gefin saman í Akureyrar-
kirkju ungfrú Heiðdís Eysteins-
dóttir og Guðjón Njálsson, bif-
reiðarstjóri. Heimili þeirra er í
Norðurgötu 34. — Hinn 27. des.
gefin saman í Akureyrarkirkju
ungfrú Margrét Ólafsdóttir og
Vilhelm Hákonsson, málara-
meistari, Reykjavík.
Frá Heimilisiðnaðarfél. Norð-
urlands, Akureyri. Námskeið fé-
lagsins byrja um miðjan janúar
(auglýst síðar). Sauma-, bók-
bands- og sníðanámskeið. Um-
sóknum svarað frá 10. janúar,
kvölds og moi-gna, í síma 488.
Knattspyrnufélag Akuréyrar
minnst 20 ára afmælis síns' með
skemmtun að Hótel Norðurlandi
næstk. laugardagskvöld, 10, þ, m.
Áskriftarlisti liggur frammj hjá
Gunn. Tr. Jónssýni.
Barnastúkan Samúð heldur
fund næstk. sunnudag kl. 1.15 s.d.
Fundarefni: Inntaka nýn-a félaga.
Skemmtiatriði o. fl. — Félagar,
fjölmennið!
Austfirðingar! Vegna fyrirhug-
aðs Austfirðingamóts, laugardag-
inn 17. jan. næstk. að Hótél Norð-
urlandi, vill mótsnefndin mælast
til þess, að Austfirðingar og
venzlamenn þeirra, sem ætla að
taka þátt í því, skrifi nöfn sín á
áski-iftarlista, er liggja mun
frammi í Bókaverzl. Gunnl. Tr.
Jónssonar og Hattaverzlun Lillu
Gunnars. — Þetta er nauðsynlegt
til þess að mótsnefndin geti ein-
hvei'ja grein gert sér fyrir þátt-
töku í sambandi við hana og
samið við hótelið. — Vinsamleg-
ast, athugið þetta og hafið lokið
áskriftum 12. jan. næstk. — Að-
göngumiðar verða seldir dagana
13., 14. og 15. þ. m. að Hótel Norð-
urlandi. — Léttið mótsnefndinni
starfið. Takmarkið er: Minnst
150 þátttakendur áritaðir þann 12.
janúar næstk. — Mótsnefndin.
Dánardægur. Á aðfangadag jóla
varð bráðkvaddur að heimili sínu
Skáldalæk í Svarfaðardal, Guð-
jón Baldvinsson, bóndi þar, hinn
mesti dugaðar- og sæmdarmaður.
Hann verður jarðsettur að Tjörn
á morgun.
Zíon. Sunnudaginn 11. þ. m.
Sunnudagaskólirin kl. 10.30 f. h.
Almenn samkonia kl. 8.30 e. h. —
Allir velkomnir.
Stúkurnar Brynja nr. 99 og ísa-
fold-Fjallkonan nr. 1 halda sam-
eiginlegt skemmtikvöld laugar-
daginn 10. jan. n.k., kl. 8.30 e. h.
áuqIýsíS s ,
SRjaldborgar-Bíó..
fTÖFRABOGINN
I Siðustu sýningar i þessari
I vkiu.
Engin sýning laugardag.