Dagur - 23.06.1948, Blaðsíða 7
uniiiiiiiiaiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuir
Miðvikudaginn 23. júní 1948
D AGUR
\ Útgerðarfélag Akureyringa h.f.
Hlutafjár-úfboð
[ Samkvæmt ákvörðurí aðalfundar Útgerðarfélags Ak-
í ureyringa li.f., verður hlutafé félagsins aukið úr 800 þús-
| und kr. í allt að 1,5 milljón krónur, til kaupa á nýju
Í skipi. Þeir, sem óska að kaupa hlutabréf snúi sér til skrif-
Í stofu félagsins, Túngötu 6, Akureyri.
Í Útboðið stendur til 1. október næstk., ef bréfirt verða
| ekki uppseld fyrr.
I Akureyri, 21. júní 1948.
| S T J Ó R N I N.
Útgerðarfélag Akureyringa h.f.
ÚTBORGUN ARÐS
fyrir árið 1947, samkvæmt ákvörðun aðalfundar, fer
fram á skrifstofu vorri í Túngötu 6, Akureyri.
Akureyri, 19. júní 1948.
STJÓRNIN.
HEFTILSÖLU
grjót, stórt og smátt, eftir þörfum. — Einnig
góða steypumöl.
Akureyri, 23. júní 1948.
Zophonías M. Jónasson.
Sími 517.
Auglýsing
nr. 17, 1948,
frá skömmtunarstjóra
Akveðið liefur verið, að skömmtunarreitirnir „stofn-
auki nr. 14“ og „Skammtur 1“, sem gilda nú, lvvor um
sig til kaupa á einu kg. af skömmtuðu smjöri, skuli ekki
vera löglegar innkaupaheimildir lengur en til 1. júlí
næstkómandi.
Állar þær verzlanir, er selt hafa skammtað snrjör og
eiga ofangreinda skömmtunarreiti 1. júlí skrílu þann dag
skila þeirn til skömmtunarskrifstofu ríkisins, með því
annað hvort að afhenda þá á skrifstofunni, eða póst-
leggja þá til hennar, í ábyrgðarpóst.
Reykjavík, 21. júní 1948.
Skömmtunars tj ór i.
T ilkynning
frá Fjárhagsráði:
Fjárhagsráð hefur ákveðið að veita þeirn bændum, er
óska eftir að byggja votheysgi'yfjur til notkunar á þessu
sumri, og ekki höfðu sótt u.m það fyrir 1. maí s. 1., inn-
kaupaleyfi fyrir byggingaefni, enda sendi þeir ráðinu
umsóknir, þar sem tilgreind er efnisþörf og sá verzlunar-
staður, sem byggingaefnið verður keypt á.
Frestur til að skila slíkum umsóknum er til 25. þ. xn.
Fjárhagsráð.
....AUGLÝSÍÐ........í..DEGI^
— Sjálfstæðisflokkurinn
og landbúnaðarmálin
(Framhald af 2. síðu).
tal“ stendur í Stellurímum. Það
þarf ekki að vera neitt leyndar-
dómsfullt við það, þó að Sjálf-
sræðisflokkurinn og Mbl. hafi
öðlast skilning á því, að stefna
Framsóknai'flokksins í landbún-
aðarmálum sé rétt, og að fram-
Ivvœmd hennar sé eina tiltækilega
ráðið til þess að stöðva fólks-
strauminn til Reykjavíkur. Til
þess að sjá þenna sannleika þarf
ekki annað en heilbrigða skyn-
semi. Og nú hefir verið kveðið
uppúr með þetta í herbúðum
Sjálfstæðisflokksins. Mbl. hefir
talað, og það skynsamlega og
skörulega.
Vitanlega er það ekki nóg að
sjá, skilja og tala fallega urn
nauðsyn þess að bera landbúnað-
inn og málefni sveitanna fyrir
brjósti. Ef verkin fylgja ekki á
eftir, þá er þetta allt eins og
hljómandi málmur og hvellandi
bjalla. Landsmenn ættu því að
veita því nána athygli, hvernig
Sjálfstæðisflokkurinn bregst við,
| þegar til úrlausnar ákveðinna
framfaramála sveitanna kemur,
t. d. í rafoi'kumálum, bygginga-
málum, verzlunarmálum o fl.
Því miður hefir nú þegar sleg-
ið nokkrum skugga á fagui'mæli
Mbl. frá 28. maí. Viku seinnr
flytur blaðið grein, þar sem það
er staðhæft, að stjórn landsins
hafi versnað, síðan kommúnistar
hurfu þaðan, og Framsóknar-
menn komu í þeirra stað. Veröur
þetta ekki skilið öðruvísi en svo,
að þi'átt fyi’ir allt sé Mbl. að fal-
ast eftir pólitískri blíðu komm-
únista sér og Sjálfstæðisflokknum
til banda. Heilindum Mbl. við nú-
verandi stjórnai'samvinnu virðist
því vera allmjög ábótavant.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Borð og stólar
Kaupfélag Eyfirðinga
Jdrn- og glervörudeildin.
Tapast
hefui' armband, á Idrafna-
gili, s. 1. sunnudag. Finn-
andi góðfúsl. beðinn skila
því á aifgr. Dags.
i a n o
til sölu í
Helgamagrastrœti 34.
Sími 448.
□ Rún.: 59486247. — 1.
Jónsmessuf. Rós. Athv.
Dánarbú Kristínar Árnadóttur
hefir, samkvæmt ósk hinnar
látnu, gefið kr. 1000.00 í Elliheim-
ilissjóð Kvenfél. „Framtíðin“,
Akureyri. Kærar þakkir. G. R.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Anna
S. Snorradóttir, Sigfússonar
námsstjóra, og Birgir Þórhallsson,
skrifstofumaður hjá KEA.
Næturlæknar. 24. júní Árni
Guðmundsson, 25. júní Pétur
Jónsson, 26. júní Jón Geirsson, 27.
júní sami, 28. júní Pétur Jónsson,
29. júní Árni Guðmundsson, 30.
júní Ólafur Sigurðsson.
Það er mál f jölmargra bifreiða-
stjóra, að vegirnir hér nærlend-
is hafi margir hverjir sjaldan
verið í lakara ásigkomulagi en
nú. Vegamálastjórnin sýnist
furðulega spör á vegheflana,
Þvottabretti af illkynjuðustu
tegund eru á löngum köflum,
svo að mjög erfitt er yfirferðar.
Sums staðar eru komnar
hættulegar glompur í veginn og
látnar óviðgerðar dag eftir dag,
Má þar t. d. nefna djúpa holu
yfir þveran veginn vestan í
Vaðlaheiði. Vaðlaheiðarvegur
og leiðin yfirleitt austur í Þing-
eyjarsýslur, t. d. Aðaldalsveg-
ui', eru í hörmulegu ásigkomu
lagi. Sama er að segja um veg-
inn fraiii Eyjáfjörðinn.
Kaldbakur landaði í síðustu
söluferð 304 tonnum fiskjar
Þýzkalandi. Mun það um 12 þús.
punda sala.
Samband norðlenzkra kvenna
tilkynnir: Aðalfundur Sambands-
ins verður haldinn á Hólmavík í
Strandasýslu og hefst 30. júní n.k.
Farið verður með hraðferðum frá
Akureyri 29. júní kl. 8. Stjórnin.
Þegar vegfarendur lögðu leið
sína fram hjá andapollinum í
Laugarskarði snemma í gær-
morgun, urðu þeir þess varir,
að einhverjir óboðnir nætur-
gestir höfðu lagt leið sína þá
um nóttina fram í hólmann í
tjörninni, sem fuglum er ætl-
aður sem varphólmi og griða-
staður. Höfðu þessir þokkapilt-
ar lagt það á sig að flytja tvo
allmikla planka á staðinn til
þess að stildra á þeim út í
hólmann, sennilega í því skyni
að svipast þar um eftir eggjum,
eða þá að spilla gróðri, því að
önnur verðmæti munu þar vart
finnanleg. Sæmilega siðuðum
mönnum gengur að vonum illa
að átta sig á hugarfari og and-
legu ásigkömulagi þeirra
manna, sem ekki geta séð í friði
þá saklausu málleysingja, sem
haldið er þarna í fangelsi og
geta sér enga vörn veitt, en
veita hins vegar góðum gestum
skcmmtun og augnayndi, ef
þeir fá að lifa þar lífi sínu í
friði fyrir óþokkunx og úrkynj-
uðum lýð. — Gæzlumaður
fuglanna segir, að því miður
séu slík næturspellvirki ekkert
einsdæmi á þessum stað.
Frá Ferðaskrifstofunni. Laug-
ard. 26. júní farið í Ásbyrgi, að
Dettifossi, Grímsstöðum og um
Mývatnssveit.
Forsætisráðherrann, Stefán Jó-
hann Stefánsson, er gestkomandi
í bænum og að tilhlutan hans
hefir Alþýðuflokkurinn boðað til
almenns stjói-nmálafundar í Sam-
komuhúsinu annað kvöld. Máls-
hefjendur eru þar forsætisráð-
herx-a og Gylfi Þ. Gíslason. Aug-
lýstar eru frjálsar umræður á
eftir.
Sextugur varð 15. þ. m. Jóhann
Sigurjónsson, fyrrum bóndi að
Hlíð í Svarfaðardal.
Aðalfundur Leikfélagsins. Að-
alfundur Leikfélags Akureyrar er
nýafstaðinn. Formaður fél., Guð-
mundur Gunnarsson, gaf skýrslu
um störf félagsins sl. leikár. Hefir
félagið tekið þrjú leikrit til sýn-
ingar og liaft 33 leiksýningar alls.
Fjárhagsafkoma félagsins hefir
verið góð á þessu ári. Stjórn fél.
var öll endurkjörin, en hana
skipa hú: Guðmundur Gutmars-
son, form., Hólmgeir Pálmason,
ritari, en meðstjórnendur frú
Sigurjóna Jakobsdóttir og Júlíus
Oddsson. Leikstjóri fél. er Jón
Norðfjörð.
I happdrætti Heilsuhælissjóðs
Náttúrulækningafélags Islands
komu upp þessi númer: 1. Skoda-
bifreið nr. 49604. — 2. Málverk
eftir Kjarval nr. 31475. — 3. ís-
skápur (enskur) nr. 49096. —
4. ísskápur (amerískur) nr. 46891.
— 5. Þvottavél nr. 37389. — 6.
Hi'ærivél nr. 12482. — 7. Strau-
vél nr. 22597. — 8. Rafha-eldavél
nr. 40108. — 9. Stáleldhúsborð nr.
26750. — 10. Flugferð til Akur-
eyi'ar nr. 37995. — Vinninganna
sé vitjað til Björns L. Jónssonar,
Mánagötu 13, Reykjavík, sími
3884.
Mótið að Brautarhóli verður að
þessu sinni dagana 3. og 4. júlí
næstk. — Þeir, sem ætla sér að
sækja mótið, eru beðnir að til-
kynna þátttöku sína sem allra
fyi-st, eða í síðasta lagi 30. þ. m.,
til Georgs Jónssonar, Gránufé-
lagsgötu 6, eða Jóhönnu Þór,
Norðurgötu 3.
Hvassafell kom hingað fyrir
helgina beint frá útlöndum. Skip-
ið hlóð timbur í Finnlandi í þess-
ari ferð og verður það flutt til
ýmsra hafna hér fyrir norðan og
austan.
Happdrætti Háskóla íslands
Eríduriiýjixn til 7. flokks fer fram á Skrifstofu
Axels Kristjánssonar h.f., Ráðhústorgi 7.
Erídurnýjim hefst á morgun.
En d u rn ý ið snemma!
•
Þorst. Thorlacius.
Hrossakjöt
Hraðfryst,
nýreykt,
saltað.
REYKIIÚSIÐ
Norðurgötu 2.
Glíman við freistarann