Dagur - 30.06.1948, Qupperneq 4
4
D AGUR
Miðvikudaginn 30. júní 1948
DAGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Marínó H. Pétursson
Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 166
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi
Árgangurinn kostar kr. 25.00
Gjalddagi er 1. júlí
°rentverk Odds Björnssonar h.f. Akureyri
Morgunblaðssannleikur
ALLIR KANNAST við, hvernig kommúnistar
hagræða sannleikanum í málgögnum sínum.
Stjórnarfyrirkomulagið í Sovétríkjunum dásama
þeir sem hina æðstu tegund lýðræðis, þó að þar sé
aðeins leyfður einn flokkur og öll stjórnarandstaða
harðlega bönnuð að viðlagðri þyngstu refsingu,
svo sem fangelsisþrælkun og jafnvel iífláti. Helg-
ustu mannréttindi, svo sem skoðanafrelsi, mál-
frelsi og ritfrelsi, eru þar fótum troðin af valdhöf-
unum. Allir verða að hugsa, tala og rita eins og
valdhöfunum þóknast, annars eiga þe'ir á hættu að
verða gerðir höfðinu lægri. En þetta kalla komm-
únistar hið dýrðlegasta frelsi og þá, sem við það
verða að búa, hinar sælustu mannverur á jarðríki.
í»EGAR BANDARÍKIN fóru þess á leit,- að þeim
væri leigður Keflavíkurflugvöllurinn til 99 ára,
neítuðu íslendingar því eindregið að gera slíkan
samning. Þetta volduga stórveldi hvarf þegar frá
málaleitun sinni við neitun smáríkisins og virti á
þann hátt vilja þess. Rússar fóru fram á hliðstæðar
kröfur gegn Finnum um afnot af landi þeirra.
Finnar neituðu. Tóku Rússar þá neitun til greina,
eins og Bandaríkjastjórn hafði gert? Nei, ónei,
Rússar svöruðu: Úr því þið viljið ekki láta okkur
fá land ykkar með góðu, þá neytum við þess, að
við erum sterkari en þið og' tökum það með valdi.
Og þeir tóku það með valdi. Létu hnefaréttinn
ráða.
Kommúnistar þagna aldrei á því ofríki, er
Bandaríkin hafi sýnt íslendingum með rhálaleit-
un sinni. Aftur á móti þykjast þeir ekkert sjá at-
hugavert við aðfarir Rússa gagnvart finnsku þjóð-
inni. Þeir meira að segja ljúka lofsorði á þær að-
farir.
Þessi misþyrming kommúnista á sannleikanum
hefir að vonum farið mjög í taugarnar á aðalmál-
gagni Sjálístæðisflokksins, Morgunblaðinu. Það
býsnast nær daglega yfir rakafölsunum kommún-
ista í Þjóðviljanum, svo sem því að túlka verstu
kúgun sem hið fullkomnasta frelsi, ef kúgunin er
framkvæmd af valdhöfum Sovétríkjanna.
EN HVERNIG lítur svo Morgunblaðssannleik-
urinn út, t. d. í verzlunarmálunum? Líklegt væri,
að Mbl. forðaðist eins og heitan eld að fara í slóð
kommúnista með misþyrmingu sannleikans. En þó
má þar um segja, að „það, sem að helzt hann var-
ast vann, varð nú að koma yfir hann.“
Mbl.menn segjast elska frjálsa verzlun meira en
allt annað. Nú er einn veigamesti þáttur frjálsrar
verzlunar í því fólginn ,að hver maður fái hindr-
unarlaust að hafa viðskipti við þá verzlun, er hann
telur sér hagkvæmasta. Sá, sem vill halla sér að
kaupmannsverzlun, á að eiga þess kost. Hinn, sem
kýs að hafa viðskipti við kaupfélag, á að vera
frjáls að því. Samkvæmt þessu á að skipta inn-
flutningnum milli kaupmanna og kaupfélaga, eigi
fullt frjálsræði að ráða. En Mbl. lítur öðruvísi á.
Eftir skrifum þess að dæma, á fólkið ekki að fá að
ráða því, hvar það^verzlar. Fáeinir embættismenn
í Reykjavík eiga að segjá fyrir um þetta, en sjálfs-
ákvörðunarrétt almennings á að taka frá honum.
Þetta fyrirkomulag kallar Mbl. .hið fullkomnasta
frelsi í verzlunarsökum. Hitt, að fólkið fái að ráða
því sjálft, hvar það verzlar, kallar blaðið verzlun-
areiiiokun!
Hvað segja menn um svona rökfærslu Mbl. og
heildsalanna? Hún ber ótvírætt
sama merki og rökfærsla kornm-
únista, þegar þeir halda því fram,
að þeir búi við mest frelsi, sem lifi
við harðsvíraðasta einræði. —
Morgunblaðssannleikurinn í fyrr-
greindum efnum sver sig greini-
lega í ætt við kommúnismann.
Mbl. hefir gert kommúnista að
lærimeisturum sínum i misþyrm-
ingu sannleikans.
FOKDREIF4R
„Einrænn“ skrifar blaðinu eftir-
farandi pistil um hópferðir til
hvíldar og skennntunar.
„KUNNINGI MINN, er nýskeð
kom til bæjarins austan úr sveit-
um, þar sem hann hafði verið á
ferðalagi nokkra síðustu dagana,
lét þess getið við mig, að hann
hefði verið staddur í Mývatns-
sveit, þegar hinn fjölmenni og
myndarlegi hópur sunnlenzku
bændanna gisti sveitina fögru við
siglungsvatnið bjarta, — þessa
perlu meðal íslenzkra öræfa-
byggða. Honum fannst það und-
arlegt og táknrænt fyrir mörg slík
hópferðalög, að þessi stóri flokk-
ur, sem aldrei hafði komið í Mý-
vatnssveit áður, nema þá örfáir
einstaklingar, fór svo alfarinn af
þessum slóðum, að ferðafólkið
fékk yfirleitt ekki að sjá neinn
þeirra staða, sem sérkennilegastir
og fegurstir eru þó jaínan taldir
og oftast er vitnað til, þegar nátt-
úruundur Mývatnssveitar ber á
gónfla: — Ekki Slúttnes, ekki
Dimmuborgir, ekki Stórugjá,
-jafnvel ékki Kálfastrandarvoga,
nema í fjarlægð og hillingum. —
Fólkið fékk að sjá það, sem sést
út um gluggarúður á bifreið, er
skröltir um þjóðveginn á þevsi-
spretti — og þá ýmist það, sern
sést gegnum gluggana til hægri
eða vinstri handar, eftir því
hvoru megin í bifreiðinni við-
komandi einstaklingur hafði hlot-
ið sæti, — og heldur ekki stórum
meira en það af hinu undurfagra
og fjölbi'eytilega umhverfi. Þegar
staðai' var numið, var etið og
drukkið, hlýtt á söng og ræðu-
höld, og loks sofið. og hvílzt af
skornum skammti, eins og geng-
ur, þegar svona stendur á
EG GET hér þessarra ummæla
kunningja míns sökum þess, að eg
er honum fullkomlega sammála
um það, að það sé undarlegt og
illa farið, að ferðamaður, er dval-
ið hefir daglangt í Mývatnssveit í
ljómandi veðri og ferðast eftir
endilangri sveitinni í kynningar-
skyni, skuli hvorki hafa séð
Slúttnes, Dimmuborgii', Stórugjá
né Kálfastrandarvoga. En fyrst og
fremst geri eg þetta þó að um-
tals efni vegna þess, að mér er
jafnljóst og honum, að hér er síð-
ur en svo um nokkurt einsdæmi
eða undantekningu að ræða,
heldur er þetta táknrænt, eins og
hann orðaði það, og mætti gjarn-
an verða þeim, er skipuleggja
slíkar kynningarhópferðir hæfi-
legt og fróðlegt íhugunarefni, og
eins hinum, er annast móttökur
slíkra gesta og gjarnan vilja sýna
þeim alla hugsanlega vinsemd og
gestrisni. Kunningi minn sagði
mér frá því, að sunnlenzku
bændurnir hefðu látið þess getið,
er hann hafði tal af nokkrum
þeirra þar austur frá, að ferða-
áætlunin væri orðin svo knöpp
sem raun bar vitni m. a. sökum
þess, að kvöldið áður hefðu þeir
setið veglega veizlu að Egilsstöð-
um á Völlum í boði austfirzkra
bænda, og klukkan um 2 þá um
nóttina hefðu ræðuhöldin í þeirri
veizlu loks verið „skorin niður“,
svo að ferðafólkið fengi þó ein-
hverja hvíld og svefn, áður en
það héldi heimleiðis að morgni.
Sjálfur hafði eg séð þess getið í
fréttum blaðanna af bændaför
þessari, að stundum hefði ferða-
fólkið oi'ðið að sitja tvær til þrjár
kaffi- og matarveizlur á dag í
sambandi við einhvers konar
„opinberar“ móttökur stéttar-
systkina í hinum ýmsu sveitum
og héröðum, og venjulega hafði
fylgt heillöng upptalning ræðu-
manna og kvenna, er ávarpað
hefðu gestina ýmist í lausri eða
bundinni ræðu, auk kórsöngva og
annarra skemmtiatriða.
ÍSLENZK GESTRISNI hefir
löngum veirð rómuð, og vissulega
hefir hún hvergi verið meiri né
heldur þarfari og velkomnari en
einmitt meðal sveitafólksins, en
þar hefir hún tíðum borið menn-
ingu þjóðarinnar og hjartaþeli
fólksins fagurt vitni. Það er því
fjarri mér að áfellast slíka útrás
eðlilegrar og lofsverðrar vináttu
og samkenndar, er birtist í hátt-
semi svipaðri þeirri, sem hér hafir
stuttlega verið lýst sem einhverju
nýjasta dæmi fjölmai'gra fyrir-
brigða af sömu tegund. Alls kon-
ar hópferðir, sem farnar eru í
kynningarskyni, en þó fyrst og
fremst til hvíldar, hressingar og
skemmtunai', fara nú mjög' í
vöxt, og er því tímabært að end-
urskoða allt skipulag þeirra frá
rótum, áður en lengra er haidið á
sömu braut. Það er t. d. ljóst, að
langferðafólki, er ferðast hef'ú'
allstrangai' dagleiðir á slæmurn
vegum og í misjöfnum faravtækj-
um, og það oft dag eftir dag, er
hæpin greiði með því gerður að
þeysa í skyndi með þaö fvam hjá
fallegustu og sérkennilegustu
stöðunum, en syngja síðan yfir
því og tala fram á nætur yfir
kaffi- og matborðum, þegai' það
kysi vafalaust heldur að ganga til
náða, eða þá að öðrum kosti að
ráðstafa tíma sínum sjálft til
frjálsrar kynningar af mönnum
og málefnum, en einkum þó með
því að svipast um í nýju og fram-
andi umhverfi. Þá er það og
vissulega takandi til athugunar í
þessu sambandi, hvort ferðaáætl-
un slíkra hópa sé ekki yfirleitt
alltof ströng, dagleiðir of langar
og meira lagt upp úr því að fara
sem víðast en að skoða nokkurn
stað til hlýtar og njóta hans í
næði og kyrrð. Og þannig breyt-
ist hvíldin í strit, skemmtunin í
leiðindi, fróðleikurinn í tómlæti
og yfirborðskynni. Og er ekki nóg
fyrir af slíku á þessari öld hrað-
ans og eirðarleysisins, þótt þetta
bætist þar ekki ofan á? — Margt
fleira mætti auðvitað spjalla um
fróðleg athugunarefni í sam-
bandi við hópferðii' og kynning-
arferðir nú á tímum, en þó skal
nú frekara skraf niðurfellt að
sinni.“
Vegna þrengsla i bláðinu í dag
bíður ýmislegt efni, m. a. bréf frá
Arnþóri Þorsteinssyni, sölustjóra
Gefjunar, um verðhækkun verk-
smiðjunnar, í t.ilefni af sknfum
bæjarblaðanna.
/w.u3, /v/*Ý/a
Umferðakeiinsla fyrir liúsmæðar
í lítilli bófc, sem heitir „Álit og tillögur um fræðslu
húsmæðra", og gefin var út af Búnaðarfélagi ís-
lands árið 1929, er grein að nafni Umferðakennsla
fyrir húsmæður, og all ýtai'leg greinargerð um
fyrstu umferðakennsluna, sem fór fram hérlendis,
rituð af konum þeim, sem höfðu hana með hönd-
um. Fröken Jóninna Sigurðardóttir var fyrsta kon-
an, sem byrjaði umferðakennslu hér á landi og var
það árið 1904. Hún stai'faði síðan að því í þrjá vetur
og kenndi á 31 bæ á Norðurlandi samtals 578 nem-
endum.
Um umferðakennsluna segir fröken Jóninna á
einum stað: „Umferðakennslan getur fært nýtt líf í
hverja sveit, veitt hlýjum straumum í skapgerð
hverrar konu, útrýmt gömlum venjum, en skilið
eftir menningu og manndáð.“ — Og á öðrum stað
segir hún: „Umferðakennslan er vakning og end-
urnýjun fyrir ungar og eldri húsmæður, sem áður
hafa lært matreiðslu, en vegna fjarlægðar og ann-
arrar aðstöðu ekki hafa getað fylgst með þarflegum
nýjungum á því sviði.“ — Af frásögn fröken Jón-
innu er auðsætt, hve mikill fengur þessi umferða-
kennsla hefir verið húsmæðrum. Á þeim tíma sem
hér um ræðir var ekki algengt að stúlkur færu í
matreiðsluskóla og er því ofur skiljanlegt, að slík
námskeið væru vel þegin. Annars hefir umferða-
kennsla, sem nú orðið er oftast sýnikennsla
(demonstration) eða með eirihverju slíku sniði,
ávallt verið mjög vinsæl og víða þótt géfa mikinn
og góðan árangui'.
Frú Ragnhildui' Pétursdóttir var umferðakenn-
ari i matreiðslu á Suðurlandi veturinn 1908—1909,
einnig á vegum Búnaðarfélagsins. í greinargerð
sinni bendii' hún réttilega á það, að vel væri hægt
að láta umférðakennsluna ná 'til fleiri greina en
matreiðslunnar og nefnir sem dæmi garðrækt,
saumaskap (á barnafatnaði, fatabsétingu og hreins-
un og pressun á fötum).
Árið 1902 hóf svo frú Jónína Sigurðardóttir frá
Lækjarmóti umferðakennslu á Noi'ðurlandi og
starfaði til vors 1915. Frú Jónína segir í greinargerð
sinni: „Það er álit mitt, að námskeiðin hafi verið til
hressingar og uppörfunar fyrir þær sem tóku þátt í
þeim, og fyrir margar einasta leiðbeining sem þær
hafa fengið í því, hverjar fæðutegundir séu hollast-
ar, heilnæmastar og ódýrastar og ennfremur í því
að nota sér matreiðslubækur. Venjulega var eitt-
hvert líf og fjör í sveitinni bundið við þessi nám-
skeið“ — Álit hennar er, að til þess að húsmæður
geti að jafnaði notað sér þessi námskeið skuli þau
ekki vera lengri en 2—4, í rnesta lagi 6 daga. —
Ymsar merkilegai' athuganir koma fram í greinar-
gerð þessari, sem gaman og gagnlegt er að athuga
fyrir þá, sem nú fást við svipuð störf.
★
Fræðsludeild KEA gengst um þessar mundii' fyr-
ir sýnikennslu í matreiðslu á félagssvæðinu. Lokið
er tveimu námskeiðum, öðru í Hrafnagilshreppi, þar
sem 20 konur sóttu, og hinu í Saurbæjarhreppi, en
það sóttu 30 konur .Þessa dagana stendur yfir nám-
skeið fyrir konur í Öngulsstaðahreppi og fer það
fram í kvennaskólanum á Laugalandi. 33 konur eru
á því, og lýkur námskeiðinu annað kvöld.
Mikil ánægja er ríkjandi meðal kvenna yfir þess-
um námskeiðum og hafa margar þeirra látið í ljós
við deildina mikla gleði og þakkir.
Reynsla þessara námskeiða, þótt ekki sé hún
löng, hefir sýnt að mikil þörf og nauðsyn er að halda
uppi einhverju slíku starfi fyrir húsfreyjur í sveit-
um landsins, eftir því sem auðið er, og hver sá, sem
komið hefir nálægt því mun komast að raun um, að
vart er hægt að finna betri né þakklátari nemendur
en einmitt þessar konur. P.
★
GOTT RÁÐ.
Þegar þú gefur kunningjakonunni græðling eða
afleggjara, eins og það er nú víst oftast kallað, þá
gættu þess vel að skera af plöntunni, þar sem eru
blaðamót. Plantan á auðveldast með að skjóta rót-
um á blaðmótum, og því mestir möguleikar á að
græðlingurinn lifi ef þannig er skorið.