Dagur - 07.07.1948, Síða 1

Dagur - 07.07.1948, Síða 1
XXXI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 7. júlí 1948 27. tbl. r Þátttaka Islands í viðreisnaráætlun Evrópu: Ekfei samið um lántöku, og sérstakur fyrirvari gerður viðvíkjandi fiskveiða- og atvinnulöggjöf íslendinga Ríkisstjórn íslands skuldbindur sig til að hafa upp á og nota innstæður íslenzkra ríkisborgara í Bandaríkjunum Á LAUGARDAG undirskrifaði Bjarni Benediktsson utanríkisráð- herra, f. h. ríkisstjórnar íslands, og Richard P. Butrick sendiherra, f. h. ríkisstjórnar Bandaríkjanna, samning milli íslands og Bandaríkja Ameríku um efnahagssamvinnu beggia landanna. viðskipfi og samhjálp Ræða utanríkisráðherra. Við þetta tækifæri mælti Bjarni Benediktsson útanríkisráðherra m a. á þessa leið: Með þátttöku sinni í því starfi, sem nú er framundan, stúðlar ís- land af sinni hálfu að því, að við- reisn takist, í þeim hluta heims, er vér hyggjum. fslandi væri bæði skylt og ljúft að leggja þar fram sinn skerf, 'þó að það hefði sjálfi af því engan beinan ávinning. Hlutur íslendinga verður hins vegar vissulega ekki góður ti] lengdar, ef örbirgð og öngþveiti ríkir í Evrópu. Markaðir fyrir út, fiutningsvörur íslendinga og möguleikar til vöruútvegunar til landsins eru háðir því, að góð skipan komizt á mál viðskipta- þjóða vorra. ísland sjálft hefir þess vegna ríka hagsmuni af því, að viðreisn verði í Evrópu. íslendingar fá og samkvæmt þessum ráoagerðum kost á fé til að halda áfram og efla þá ný- sköpun atvinnulífsins, sem oss ríður á, að ekki stöðvist. Ríkisstjórn íslands er þess því viss, að með fullri þátttöku í þessu starfi er unnið að heill ís- lands í bráð og lengd. Ný slökkvistöð við Geislagöhi Á fundi bæjarstjórnar í gær var samþykkt tillaga frá sameigin- legum fundi bæjarráðs og bruna- málanefndar þess efnis, að ný slökkvistöð fyrii' Akureyrarbæ verði byggð á þessu sumri og henni valinn staður vestan Geislagötu, norðan Verzlunar- mannahússins. Er svo til ætlazt, að bygging þessi verði allvegleg, þriggja til fjögra hæða hús, og verði efri hæðirnar notaðar fyrir skrifstofur. Rseða sendiherra Bandaríkjanna. Sendiherra Bandaríkjanna á ís- landi, Richard P. Butrick, skýrði frá því í yfirlýsingu, er hann las við þetta tækifæri frá utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, að nú væri búið að ganga frá frumdrög- um að sameiginlegri viðreisnar- áætlun, sem byggð væri á fram- taki Evrópuríkjanna og gagn- kvæmri aðstoð: Stofnunin er tek- in til starfa og Banaaríkin hafa tryggt veigamikla aðstoð: Áfram- haldandi samstarf og fram- kvæmdir . þátttökuríkjanna myndu á þennaiv hátt geta stuðlað að góðum árangri viðreisnaráætl- unarinnar. 1 Sendiherra skýrði ennfremur frá því að Bandaríkin hefðu veitt 5 milljarða dollara fyrir fyrsta tímabil áætlunarinnar. Yfirlýsing utanrÍK.isráúuneylisi;is. í gærmorgun gaf utanríkisráðu- neytið síðan út tilkynningu um samningsgerðina og birtast hér aðalatriði hennar: Samningaviðræður hafa und- anfarið farið fram í Washington um samninga Bandaríkjanna við hin ýmsu Evrópuríki er hlut áttu að Parísarráðstefnunni 16. febr. sl., varðandi aðstoð þá sem Banda- ríkin munu láta í té, og höfðu Ev- rópuríkin fullt samráð sín á milli meðan á þeim stóð. Höfðu Bretar, Frakkai', Danir og Svíar forystu í þessum samningum, samkvæmt því, er Evrópuríkin 16 komu sér saman um, og náðu ýmsum breytingum frá upphaflegu frumvarpi Bandaríkjanna. Af ís- lands hálfu þótti þó nauðsynlegt að gera sérstakan fyiirvara um íslenzka fiskveiða- og atvinnu- löggjöf, vegna sérstöðu landsins, umfram það, sem er í samningn- um við hin ríkin, og verður þeim fyrirvara nánar lýst hér á eftir. Thor Thors, sendiherra, var full- (Framhald á 8 síðu). Þegar simnlenzku bændurnir voru hér á ferð á dögunum, skoðuðu þeir m. a. Gróðrarstöðina hér undir leiðsögu Olafs Jónssonar framkvæmdastjóra. Skýrði hann þeim frá tilraunum sínum og frá þroska trjágróðursins hér. Fannst bændunuin mikið til trjágróðursins koma og létu nokkrir þeirra svo um mælt, að þessi heimsókn hefði sannfært þá um mátt íslenzkrar gróðurmoldar til þess að fóstra fagran trjágróður. — Myndina tók Guðni Þórðarson, blaðam., í Gróðrarstöðinni. Rússar Imupliiðii iiótabátunmn, - ea hafa nú skilað þeim; Nótabátarnir 14, sem getið var um í síðasta blaði að hefðu horfið með dularfullum hæíti undan ströndum rússneska hernámssvæðisins við Porkk- alaskaga, eru nú komnir í leit- irnar. Reyndist það rétt vera að Rússar höfðu hnupplaS þeim, líklega haldið að Finn- ar ættu þá, og væri því óhætt að kasta eign sinni á þá, án t þess að óttast frekari eftirmál út af ráninu. En þegar það kom í Ijós, að bátarnir voru eign þjóðar, sem enn býr þó vestan „járntjaldsins“ og nýt- ur því ennþá málfrelsis og venjulegs réttaröryggis vest- rænna þjóða, tóku Rússar þó þann kostinn að skila bátun- unt, eftir að hafa haldið þeirn í 19 daga. Engar nánari skjTÍng- ar hafa verið gefnar á þessu austræna athæfi, né heldur hafa fregnir borizt af áhöfnum bátanna, sem liurfu með þeim. En það voru Finnar, og því réttlausir gagnvart „vinaþjóð- inni“ stóru, og naumast þess að vænía, að landar þeirra treystist til að gera ndn 7'e" ^ út af því, þótt þeir kunni aS vera algerlega úr sögunni. | Opinber mál höfcfiið gegn ýmsum kommúnista- forsprökkmn fyrir árásirnar á héraðssáttasemj- arann í upphafi síldarvertíðar í fyrra Nýlega eru fallnir dómar í mál- um, sem hið opinbera höfðaði á hendur ritstj. Verkamannsins hér og nokkrum öðrum skriffinnum kommúnista í tilefni af liinni óvenjulega rætnu og illmannlegu herferð, sem hafin var í málgögn- um kommúnista í fyrra á hendur héraðssáttascmjaranum, Þorsteini M. Jónssyni skólastj., í sambandi við kaupdeiluna við síldarverk- smiðjurnar í fyrra. Um það leyti flutti Verkamað- urinn hverja stóryrðagreinina á fætur annarri og um líkt leyti flutti Þjóðviljinn grein eftir Þor- stein Jónatansson, ritstj. æsku- lýðssíðu Verkamannsins, sem enn er í minnum höfð fyrir ljótt og ómenningaiiegt orðbragð og furðulegar og tilefnislausar ásak- anir. Þessir skriffinnar báðir hafa nú verið sóttir til saka með þeim úrslitum, að öll ummæli þeirra voru dæmd dauð og ómerk og þeir báðir í þungar fjársektir fyr- ir tiltækið. Hlaut Þorsteinn Jóna- tansson mjög þungan dóm fyrir skrif sín, svo þungan, að sjald- gæft má telja fyrir blaðaskrif. — Ritstj. Verkamannsins var gert að greiða 600 kr. sekt í ríkissjóð og allan sakarkostnað og ummæli hans dæmd dauð og ómerk. Þor- steini Jónatanssyni var gert að greiða 800 kr. sekt í ríkissjóð, 1000 kr. til Þorsteins M. Jónsson- ar og 150 kr. fyrir dómsbirtingu, auk alls sakarkostnaðar. Dómur fyrir 17. júní bréf. Flestum bæjarmönnum er í fersku minni, er ofstæki komm- únista keyrði svo úr liófi fram í fyrra, að þeir rituðu 17,-júní- nefnd Akureyrar bréf, þar sem þeir létu liggja að hótunum, ef Þorst. M. Jónsson, forseti bæjar- stjórnarinnar, flytti aðalræðuna á (Framhald á 8. síðu). Sunnlenzkir bændur í Gróðrarstöðinni á Akurevri •/ ^ J > ) Fimmta siðan: Norðlenzkii' kennarar l æða áhugamál sín að Hólum. — íþróttaþáttur. F orustugreinin: Innihald síðasta „Verka- manns“ skoðað.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.