Dagur - 20.10.1948, Blaðsíða 5

Dagur - 20.10.1948, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 20. októbcr 1948 DAGUR 5 FRA BOKAMARKÁÐENUM Innilegustu þakkir til allra þeirra fjöhnörgu ættingja og vina, er auðsýndu okkur samúð og hjálp við andlát og jarðar- för PALS G. JÓNSSONAR, Garði, Fnjóskadal. Vandamenn. Beztu þakkir til vina og velunnara fyrir góðar drnað- aróskir á afmœlinu minu 14. október síðastliðinn. HALLDÓRA BJARNADÓTTIR. JKfOttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttCHKHKBKHKHKHKI III 11111111 11111111 11 • II IIII....... M 11 ■ 111 111 111 • I 11 ■ I • I 11 I ■ I • 11 I I III ínna Nokkrar stúlkur geta fengið vinnu í vetur | í Garnastöð S. í. S. á Akureyri. § Upplýsingar ge-fnar í i Sláturhúsi K. E. A., sími 306. } Austurland. Safn austfirzkra fræða I. Ritstjórar Halldór Stef- ánsson og Þorst. M. Jónsson. Út- gefandi Sögusjóður Austfirðmga. Akureyri 1947. í formálsorðum rits þessa er þess getið, að stjórn Sögusjóðs Austfirðingafélagsins í Reykja- vík hafi ákveðið, í samráði við stjórn Austfirðingafél. á Akur- eyri, að hefja útgáfu sögu Aust- urlands og einstakra söguþátta varðandi Austurland, að hætti ýmissa annarra landshluta og héraða. Er svo til ætlazt, að ritið komi út í heftum, stærri eða minni, eftir því sem til leggst um efnisaðdrætti og annað, sem til þarf. Áformað er, að safna til út- gáfunnar sem flestu um Austur- land og sögu þess, án þess fýrir- fram að skipa því til kerfis eða heildar. Framkvæmdastjórar út- gáfunnar hafa verið ráðnir þeir Halldór Stefánsson, fyrrv. alþm., Reykjavík, og Þorsteinn M. Jóns- son, skólastjóri á Akureyri, og er hinn síðarnefndi auk þess aðal- umboðsmaður útgáfufyrirtækis þessa. Fyrsta bindi ritsafns þessa er nú komið út, og hefst það á kvæðinu Austurland eftir Sigurð Baldvinsson. En að öðru leyti er efni heftisins í stórum dráttum á þessa leið: Halldór Stefánsson ritar yfirlitsgrein um sjálft sögu- sviðið, hversu breytilegt það hef- ir verið á ýmsum tímum, og hversu nafn þess, Austfirðir, Austurland og Austfirðingafjórð- ungur, hefir verið á ruglingi og er enn. Greininni fylgir Aust- fjarðatal og kirkna, frá síðari hluta 16. aldar, að því sem talið er. Þá er ágrip af sögu Austfirð- inga eftir Jón prófast-Jónsson í Bjarnarnesi, fróðleg grein, þótt mjög sé þar stiklað á stóru, enda eina tilraunin, sem vitað er um að gerð hafi verið fram að þessu til að rita sérstaka sögu Austfirð- inga. Næst kemur Austfjarðalýs- ing eftir Guttorm prófast Pálsson í Vallanesi. Er þar að finna glögga og greinilega landlýsingu og ennfremur yfirlitslýsingu á náttúrufari, atvinnuskilyrðum og atvinnuháttum frá þeim tímum, sem greinin er rituð, en það mun hafa verið stuttu eftir miðja 19. öld. Fjórða ritgerðin nefnist Austfirðingar, eftir Pál bónda Vigfússon á Hallormsstað, en þetta er þáttur úr ritgerð, er birt- ist í blaðinu Fróða árið 1882. Þá koma sóknarlýsingar þrjár af Austurlandi, sem birtar eru sem sýnishorn, og loks er mikil rit- gerð eftir Halldór Stefánsson: Jökuldalsheiði og byggðin þar, og fyllir hún nærfellt helming bók- arinnar, enda efnismikil, stór- fróðleg og víða hin skemmtileg- asta aflestrar. Bókinni lýkur svo á nafnaskrám, örnefnaskrá, eftir- mála og öðru slíku. Það var ekki meiningin að rit- dæma þessa bók í þessum fáu lín- um, heldur aðeins að vekja at- hygli á útkomu hennar og sam- fagna Austfirðingum yfir því, hversu myndarlega hefir til tek- izt um upphaf þessa ritsafns, en annar ritstjóri þess, Þorst. M. Jónsson, getur þess í eftirmála, að reynt verði að koma út einu, allmyndarlegu bindi, helzt á hverju ári fyrst um sinn, og verði ritið þar með ársrit. Þetta fyrsta bindi, sem þegar er út komið, er hin myndarlegasta og prýðileg- asta bók, einkar smekklega prentuð á góðan pappír hjá Prentsmiðju Björns Jónssonar h.f. hér á Akureyri. Þó mættu myndirnar, sem annars eru margar og góðar, vera öllu skýrar og betur prentaðar, sumar hverj- ar a. m. k., að því er virðist. Von- andi tekst útgefendunum að standa við áætlun sína, þannig, að annað bindi komi út þegar á þessu ári, og mun því þá vissu- lega vel fagnað af öllum þeim, er lesið hafa I. bindið sér til fróð- leiks off ánægju. Rit Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili II. — Jón halti og fleiri sögur. Útgefendur Jónas og Halldór Rafnar, Akureyri, 1948. Það er gaman og þakkarvert, að afkomendur séra Jónasar frá Hrafnagili hafa nú hafizt handa að gefa rit hans út í veglegri og smekklegri heildarútgáfu. Fyrsta bindi þessa ritsafns, Sakamála- sögur, kom út í fyrra og mun hafa hlotið góðar og maklegar móttökur. Annað bindi er nú ný- komið á markaðinn, og flytur það skáldsöguna „Jón halti“, sem kom út í Nýjum Kvöldvökum 1913, en hefir e k k i verið sér- prentuð áður, og ennfremur sög- urnar „Glettni lífsins“, „Brot úr æ v i s ö g u“, „Ábúðarréttur“ og „Eiður , sem allar birtust upp- haflega í tímaritum en komu aft- ur út í smásagnasafni séra Jón- asar, „Ljósi og skuggum“, Rvík 1915. Loks er þarna sagan „Odd- rúnargrátur", en sú s a g a mun hvergi hafa birzt á prenti áður. Sögur séra Jónasar eru ram- íslenzkar að efni og yfirbragði. Og allar eiga þær sammerkt að því leyti, að þ æ r bregða upp sönnum og skýrum skyndimynd- um af aldafari og þjóðlífsháttum, sem nú taka óðum að fyrnast og gleymast í umróti nýrrar og þys- mikillar menningar. Ævikjörum sveitafólks á íslandi í lok síðustu aldar og byrjun þessarar er þar lýst af s a m ú ð, kunnugleik og skilningi — hugsunarhætti þess, vandamálum og búskaparháttum. Víða er þar og skyggnzt inn á svið harmsögulegra atburða og mannlegra þjáninga, sem orka raunar ávallt með líkum hætti á sálir okkar jarðarbarna, þótt aldir renni og' ytri hættir og að- stæður breytist. Oft leika geislar góðlátlegrar k í m n i um hið d i m m a svið frásögunnar, en stundum breytast þeir geislar fyrr en vaiir í eldingu napurlegs háðs, þegar ofríkismenn og stór- bokkar eiga í hlut. Ekki verður þó sagt, að stíll höfundar sé sér- lega listrænn né frumlegur á nú- tíma vísu, en hann er alls staðar einarður og karlmannlegur, en þó mótaður h 1 ý j u og mann- gæzku. Þótt séra Jónas hafi ef- laust verið meiri fræðimaður en skáld, sýna þó þessar sögur hans að hann hefur einnig verið ágæt- lega hlutgengur á sviði skáld- skapar og fagurra bókmennta. Símon Jóhann Ágústsson: Mannþekking. II. útgáfa. Hlaðbúð. Rvík,1948. Þessi ágæta bók mun kunnari kennurum og öðrum þeim, er á- huga hafa á hagnýtri sálarfræð, en svo, að þ e s s gerðist nokkur þörf að mæla sérstaklega með henni eða brýna það fyrir slíkum mönnum, að þeim sé nausynlegt að lesa hana, ef þeir vilja fylgj- ast vel með á sínu sviði. En þar eð fyrri útgáfan, sem út kom fyrir þrem árum, hefur verið ó- fáanleg á bókamarkaðinum n ú um skeið, þykir rétt að vekja at- hygli á því, að bók próf. Símonar er nú komin út að nýju í vand- aðri, ljósprentaðri útgáfu, og er sízt að efa það, að hún mun eiga engu minni vinsældum og eftir- spurn að fagna í nýju búningnum en sú hin fyrri útgáfan, sem seld- ist upp á óvenjulega skömmum tíma af fræðriti að vera. Dr. phil. Eberhard Dann- heim: English made easy. Kennslubók í e n s k u til s j á 1 f snáms. Bókaútgáfan Norðri, 1948. Bók þessi á að gefa mönnum tækifæri til að læra undirstöðu- atriði enskrar tungu og algeng- asta daglegt mál á auðveldan og aðgengilegan hátt. Henni er skipt í 24 „kennslustundir“. f hverri kennslustund er leskafli, mál- fræðikafli og íslenzk grein, sem ætlast er til, að snúið sé á ensku. I lesköflunum eru einkum setn- ingar úr daglegu lífi í samtals- formi. Reynt er að skýra aðal- atriði framburðarins með ein- földum, íslenzkum hljóðtáknum, en geta má nærri, að slíkt er ekki unnt til nokkurrar hlítar, enda getur enska — sannast sagna — aldrei orðið s é r 1 e g a auðvelt námsefni, hvernig sem að er farið og skyldi því e n g i n n byrjandi gera sér í hugarlund, að það geti orðið fljótlegt áhlaupa og ígripa- verk að ná á henni nokkru veru- legu valdi, hvað sem skrumaug- lýsingar um „nýjar kennsluað- ferðir“ segja um það efni. Hins vegar má gera ráð fyrir því, að kver þetta geti reynst g ó ð u r stuðningur í upphafi, og æ 11 u enskunemar og enskukennarar að kynna sér það. Gríma. Xímarit fyrir ís- lenzk þjóðleg fræði. 23. h e f t i. Ritstjórar Jónas Rafnar og Þorst. M. Jóns- son. Ak., 1948. A11 i r hinir mörgu unnendur ísl. þjóðsagna og þjóðfræða munu fagna hverju nýju hefti af Grímu. Tímarit þetta er nú orðið eitt hið mesta safn slíkra fræða að fyrirferð og vöxtum, bráðum 5 stór og þykk bindi. Og að efni og frágangi öllum má einnig telja það í fremstu röð slíkra bóka. — I þessu nýja hefti er langur og allmerkur þáttur af séra Oddi í Miklabæ og Sólveigu, ritaður af Jóni Jóhannessyni á Siglufirði, þáttur af Kjartani í Seli, sagnir um Jón Halldórsson frá Syðra- Hvarfi, ný frásögn um Hjalta- staða-fjandann, eftir gömlu fljót- skriftarhandriti, auk a n n a r r a smærri þátta og sagna um dul- ræna viðburði, drauma o. f. þ. u. 1. Er sumt af þessu fróðlegt og merkt, en allt skemmtilegt af'- lestrar. J. Fr. Skemtntiklúbbúrinn ALLIR EITT heldur dansleik í Sam- komuliúsinu laugard. 2. október kl. 10 s. d. — íþróttir og útilíf (Framhald áf 2. síðu). um hollara að standa við dyr íþróttahússins, í sókn eftir því, sem þar er á boðstólum. Nú á að gera tilraun með fimleikatíma fyrir karla, 1—2 tíma í viku, þar sem iðkaðar skulu létt'ar fimleikaæfingar, leikir og lokið tíma með góðu baði. Þetta á að geta hæft mönn- um á ýmsum aldri, ef lítt eru vanir leikfimi, vilja byrja, þeim, sem vilja rifja upp að nýjú, eða bara halda sér við. Fyrirtæki eins og KEA, Gefjun og „gatan“, svo að bara örfá séu nefnd, hafa menn í tugatali, sem ættu að kynna sér og byggja upp þessa starfsemi. Kvenfólk fær senni- lega ekki inngöngu í þenna hóp, svo að á vissan hátt verður þetta úrvalsflokkur en það gæti mynd- að annan á sama grundvelli í næsta sal! — En í alvöru skal fólki bent á þau ágætu tækifæri, sem gefast í fimleikahúsinu, brýnt fyrir því að nota sér þau og þess getið, að þar er sími nr. 617 og umsjónarfólk oftast til staðar að gefa hvers konar upp- lýsingar. Stúlka óskast Vegna forfalla vantar stúlku nú þegar í Mat- söluna, Möðruvallastr. 9. Einhildur Sveinsdóttir. Vil kaupa góða kolaeldavél. Eirikur Stefánsson, kennari, Klapparstíg 1. Viðskiptamcnn blaðsins eru!; beðnir að athuga, að auglýs- !| ingar þurfa að berast fyrir há- degi á þriðjudaga til þess að!; þær fáist birtar á miðvikudag.!; Teiknibretti Gráðubogar Bréfakörfur Stencii-pappír Skjalapappír, löggiltur Spilaveski Kubbakassar (ný teg.) Bókaverzl. EDDA li.f. Nýjasta bókin: FÁNI NOREGS Hafnarstræti 81 — Sími 444 Ritvél óskast Afgr. vísar á. Skagfirzk fræði, VII. BINDI (Riki Skagfirðinga) er komið út. Askrifendur, og meðlimir í Skagfirðingafélag- inu á Akureyri, vitji bókar- innar til Þormóðs Sveinssonar, Mjólkursamlaginu. . Karlmanns-armbandsúr fundið. — Réttur eigandi getur vitjað þess til Níelsar Halldórssonar, Brekkugötu 2, gegn greiðslu þessarar auglýsingar. Stjórnin

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.