Dagur - 02.11.1949, Page 8
8
Daguk
Miðvikudaginn 2. nóvember 1949
Góður og batnandi fjárhagur
danska ríkisins
Fjárlagafrumvarpið fyrir 1950-1951
þegar komið fram
Danska ríkisþingið kom saman
til íundar eítir sumarleyfin hinn
4. október og litlu seinna lagði
fjármálaráðherrann fram greinar
gerð um fjárhagsafkomu ríkisins
á fjárhagsárinu 1. apríl 1948 til
31. marz 1949. Aðalniðurstaðan
er, að rekstursafgangur hefir
orðið á þessu tímabili, er nemur
um 100 millj. króna.
Tekjur ársins urðu 2.248 millj.
kr., en útgjöldin 2.148 millj. kr.
Á þessu tímabili lækkuðu einnig
skuldir danska ríkisins við þjóð-
bankann um 243 millj. kr., en til
þessara skulda var mest megnis
stofnað á stríðsárunum. Þar að
auki afskrifaði ríkið útgjöld, sem
stafa beinlínis af hersetu Þjóð-
verja um 175 millj. kr. og standa
þá eftir á þeim reikningi 385 millj.
kr.
Fjárlagafrumvarp næsta árs.
Fjármálaráðherrann hefir þeg-
ar lagt fram fjárlagafrumvarp
fyrir fjárhagsárið 1. apríl 1950 til
31. marz 1951. Frpmvarpið gerir
ráð fyrir rekstúrsafgangi 9,5
millj. kr. Útgjöldin eru áætluð
2.057 millj., en tekjurnar 2.066
millj. Reiknað er með sömu
tekjustofnum og syipuðum tekj-
um af þeim og árið á undan.
Gengislækkunin kostaði ríkið
375 millj. kr.
Verðfelling dönsku krónunnar
gagnvart dollar og nokkrum öðr-
um myntum, þýðir verulegt
gengistap fyrir danska ríkið á
útlendum lánum, sem eiga. að
greiðast í svissneskum frönkum
eða dollurum. Alls nema þessi lán
um 850 millj. og gengistapið því
um 375 millj. Áætlað er að af-
skrifa þessa upphæð á 10 ára
tímabili.
Dýrtíðarhættan fjarlægist.
í ræðú þeirri, er fjármálaráð-
herrann flutti er hann lagði fjár-
lagafrumvarpið fyrir þingið, sagði
hann, að ríkisstjórnin liti svo á,
að vaxtahækkun væri óæskileg
með tilliti til sparnaðar og fjár-
söfnunar almennings og upp-
byggingar landsins í heild. Hann
taldi að dýrtíðarhættan í efna-
hagslífi þjóðarinnar væri að fjar-
lægjast, að nokkru vegna þess að
peningar í umferð hefðu minnkað
á síðari árum og einnig vegna
þess að miklu meira vöruúrval
væri nú í landinu en fyrr.
Fjárhagsástandið í Danmörku.
Ríkisstjórnin birti Ríkisdegin-
um yfirlit um efnahagsþróunina
í landinu á árinu 1949. Einna at-
hyglisverðast í þessari skýrslu er
greiðslujöfnuðurinn við útlönd,
sem nú er ætlað að verði óhag-
stæður um 635 millj. króna á
þessu ári í stað 590 millj., sem
upphaflega var reiknað með. —
Ástæðan til þess er fyrst og
fremst minnkandi tekjur af
flutningsgjöldum skipaflotans. —
Framleiðsla landsins mun aftur á
móti verða mun meiri en ætlað
var að hún mundi verða um sl.
áramót. Framleiðsluverðmæti
Dana er áætlað 18.187 millj. kr.
Árið 1948 var það 17.366 millj.
Er verðlag ársins 1947 lagt til
grundvallar báðum þessum töl-
um. Aukningin hefir aðallega
orðið innan landbúnaðar, iðnaðar
og handverks. Atvinna innan iðn-
aðarins hefir verið svipuð á þessu
ári og var 1948 og aukningin mest
megnis til oi'ðin fyrir meiri af-
köst á hvern vinnandi mann.
Reykjavíkur-
ferðir aðeins
tvisvar í viku
Nú um mánaðamótin hættu
hinar daglegu hraðferðir póst-
stjórnarinnar landleiðina milli
Reykjavíkur og Akureyrar, enda
þótt akvegir séu eins og þeir eru
beztir á sumrin. Framvegis verða
ferðir tvisvar í viku, á þriðju-
dögum og föstudögum frá Reykja
vík kl. 8 árdegis, og á miðviku-
dögum og laugardögum frá Ak-
ureyri, einnig kl. 8 árd.
Allgóður afli frá
eyfirzkum verstöðvum
Allgóður afli hefir verið að
undanförnu frá eyfirzkum ver-
stöðvum, einkum þó af ýsu. Nú er
ráðgert að senda fisk ísvarinn á
brezkan markað og er m.s. Snæ-
fell nýlega farið til Hríeseyjar og
Dalvíkur til þess að taka fisk af
bátum.
Alþýðuflokksforingj-
unum brást reikn-
ingslistin
Það, hefir vakið athygli hér
á Akureyri, að Alþýðublaðið
skýrði frá því sl. laugardag, að
11 atkvæða muiiur hafi ráðið
því að Sjálfstæðisflokkurinn
en ekki Alþýðuflokkurinn
hlaut 11. uppbótarþingsætið.
Þetta þykir benda til þess að
Alþýðuflokksforingjunum hér
heldur fatast í reikningslist-
inni fyrst íhaldsbræðralagið
hefir þannig bcinlínis orðið til
þess að svipta þeirra eigin
flokk þingsæti! Um forustu-
sauð þessara viðskipta má
segja: Ekki sér hann sína
menn, svo hann ber þá líka.
é ■- ... .......
Reykvíkingar sigruðu í
landskeppninni í bridge
Landskeppni í bridge fór fram
hér í bænum nú um og eftir
helgina. Þátttakendur voru 4
sveitir, sveit Lárusar Karlssonar
og sveit Ragnars Jóhannessonar
úr Reykjavik, sveit Vilhjálms Sig
urðssonar frá Siglufirði og sveit
Svavars Zóphóníassonar, Akur-
eyri. Fyrsta umferð Var spiluð á
sunnudaginn og vann sveit Lár-
usar þá sveit Svavars með 22
stigum, en sveit Ragnars og Vil-
hjálms gerðu jafntefli. Á mánu-
daginn lauk 2. umferð svo, að
sveit Lárusar vann sveit Vil-
hjálms með 10 stigum og sveit
Ragnars vann sveit Svavars með
12 stigum. Síðari hluta dags var
síðasta umferð spUuð og fóru
leikar þannig, að sveit Lárusar
vann sveit Ragnars með 9 stigum
og þar með landskeppnina. Sveit-
ir Svavax-s oð Vilhjálms gerðu
jafntefli.
KVÖLDVÖIÍU
heldur
Austfirðingafélagið
miðvikudaginn 9. nóyember
að Gildaskála Kea kl. 81/, e. h.
Skem m tiatrið i:
Skuggamyndir, eftirhermur,
söngur með gítarspili og fé-
lagsvist.
Aðgangur gi'eiðist við inn-
ganginn.
Takið með spil.
Mætið stundvíslega.
NEFNDIN.
Kröfunni um stjórnlagaþing
vex fylgi
Tekið undir stjórnarskrártillögur Austfirðinga
og Norðlendinga í „Eimreiðinni“
f ritstjórnargrein í nýju hefti af
Eimreiðinni ræðir ritstjórinn,
Sveinn Sigurðsson, allýtarlega
um stjórnarskrármálið og álykt-
anir Þingvallafundarins í sumar,
sem lialdinn var urn tillögur Aust
firðinga og Norðlendinga í stjórn-
arskrármálinu.
Er þar tekið undir kröfu
Fjórðungssambandanna um
sérstakt stjórnlagaþing og
einnig undir höfuðatriði til-
lagnanna um nýja stjórnar-
skrá.
í greininni í Eimreiðinni
segir m. a. svo:
Stjórnlagaþing.
Fimm ár eru nú liðin síðan
ísland varð lýðveldi, og enn
hefir því ekki verið sett sú hin
nýja stjórnarskrá, sem þing-
flokkarnir lofuðu að setja.
Það hefir komið í Ijós, að Al-
þingi, eins og þar er háttað,
virðist ekki hafa skilyrði til
að leysa þetta mál. Þess vegna
er krafan um sérstakt þar til
kjörið stjórnlagaþing fram
komin, og þeirri kröfu vex
stöðugt fylgi. Tillögur þær um
stjórnarskrá og stjórnarlög,
sem áhugamenn um allt land,
án tillits til núverandi stjórn-
málaflokka, hafa á takteinum,
eru fyrst fram komnar á Aust-
ur- og Norðurlandi. Þær eiga
ekki upptök sín hjá neinum
sérstökum stjórnmálaflokki.
Hin nýja stjórnarskrá.
Eimreiðin greinir síðan ná-
kvæmlega frá ályktunum
Þingvallafundarins í sumar
um aðalatriði hinnar nýju
stjórnarskrár, en sem kunn-
ugt er, voru þær ályktanir
mjög í sama anda og tillögur
Austfirðinga og Norðlend-
inga.
Síðan segir svo:
„Ályktanir Þingvallafund-
arins eru aðeins um megin-
drætti í væntanlegri stjórn-
skipan. Um einstök atriði í til-
lögunum munu eðlilega verða
Stjórn Stefáns
Jóhanns situr enn
í gær var engin breyting oi'ðin
á stjórnmálaástandinu í landinu.
Stjói’n Stefáns Jóhanns hafði ekki
formlega sagt af sér né heldur
hafði lausnarbeiðni ráðherra
Fi-amsóknarflpkksins vei'ið svar-
að. Hins vegar var búizt við því,
að eitthvað mundi gerast í þess-
um málum í dag. — Væntanleg
stjórnarmyndun er helzta um-
ræðuefni manna um land allt, en
aðalblöð stjói'nmálaflokkanna eru
fáorð um þá hluti og enginn af
forustumönnum flokkanna hefir
látið uppi opinbei'lega álit sitt á
horfunum.
Vantar litla íbúð,
Iiel/.t sem næst miðbænum.
Afgr. vísar á.
skiptar skoðanir. Má þar til
nefna tillögurnar um skipt-
ingu landsins í fimm fylki,
sem þá kæmu í stað fjórð-
ungaskiptanna nú. Um þetta
og fleira mun þurfa að ræða
ýtarlegar, áður en endanlegar
ákvarðanir verða teknar, enda
virðist hér fremur um að ræða
stjórnarfarsákvæði en beint
stjórnarskráratriði. En málið
er komið á þann rekspöl, að
vænta má góðs árangurs. —
Fjórðungssambönd hafa verið
stofnuð til að fylgja því fram
til sigurs, og ný eru í undir-
búningi. Farsæl niðurstaða
fæst með sameinuðu átaki
þjóðarinnar allrar, og sem al-
þjóðarmál en ekki sem flokks-
mál, liggur það fyrir til úr-
lausnar.“
Hætt við fyrir-
hleðslur í Laxá
Rafveitustjói'nin hefir nýlega
samþykkt að hverfa frá fyrri
áætlunum um fyi'ii'hleðslur við
upptök Laxár til vai-nar krapa-
stíflum vegna þess að kostnaður
við verkið var talinn of mikill. —
Hins vegar hefir í'afveitustjórnin
enga grein gert bæjai'mönnum
fyrir því, hvei'jar ráðstafanir —
ef nokki-ar eru — hún hefir gei't
til þess að í'eyna að fyi'ii’byggja
rafmagnstruflanir af völdum
kraps né heldur hvort möguleikar
séu á því að tryggja stöðugan
rafmagnsstraum til bæjai'ins að
vetrinum án gífurlegs kostnaðai'.
Norðmenn framleiða
mikil verðmaTÍ
úr þangi
Norðmenn eiga eina vei'ksmiðju
til þess að vinna verðmæt efni úr
þangi og varð framleiðsla hennar
um 3 millj. ki-óna vix'ði á sl. ái'i.
En miklir möguleikar ei-u til
aukningar. Nýlega hefir vísinda-
maðurinn dr. Henrik Piintz lokið
rannsókn á þangbirgðum við
strendur Noregs. Niðui'staða hans
er að þangbirgðii’nar séu 20 millj.
tonn og verðmæt efni, sem mætti
vinna úr þeim nemi hundruðum
milljóna króna.
Ráðstefna
bifreiðastjóra
Bifreiðastjórai'áðstefna verður
haldin í Reykjavík í byx'jun þessa
mánaðai', og munu sækja hana
um 60—70 bifi'eiðastjói'ar víðs
vegar að af landinu. Á ráðstefn-
unni verður rætt um hagsmuna-
mál bifi'eiðasttjói'astéttarinnar og
skipulagsmál, og má búast við, að
á ráðstefnu þessari verði ræddur
undii'búningur landsambands,
sem síðar verði landsamband
stéttai'innar innan Alþýðusam-
bandsins.