Dagur - 05.01.1950, Blaðsíða 5

Dagur - 05.01.1950, Blaðsíða 5
Fimmtudaginn 5. janúar 1950 D A G U R 5 IÞROTTA Skíðanámskeið og mót. Þrátt fyrir lítið vetrarríki og bara nokkrar skóflur af snjó enn, sem komið er, hafa skíðamenn á Akureyri talsvert farið á skíði. Nú milli jóla og nýárs var náms- skeið í skíðastökki við Miðhúsa- klappir. Kennari var Guðm. Guðmundsson og þátttaka sæmi- leg, sérstaklega frá þeim yngri. Um áramótin versnaði færið, en strax er snjó gefur ofan á hjarn og klaka í brautinni verður námsskeiðinu haldið áfram. Á eða -sýningu fyrir fé eða hlunn- kvöldin var svo æft svig inni í indÍ! sem j0fna má tn fjár. Með Gili, og verður einnig þar haldið áfram þegar færi gefur. Þar er búið að iýsa upp, oftast gott veð- ur, þótt annars staðar gusti t. d. og brekkan skemmtileg, þótt ekki sé löng. Þessi námsskeið ættu sem flestir að sækja, bæði piltar og stúlkur, ofan af Brekku og neðan af Eyri með Innbæjar fólki! Svo er ákveðið að Stórhríðar- mótið hefjist með stökkkeppni og það þegar um fyrstu helgi á þessu nýja ári, sem snjór og veð ur leyfir. Verður slík keppni eðlilega ákveðin með stuttum fyrirvara og því bezt að vera viðbúinn! Frá S. K. í. „Stjórn S. K. í. hefir borizt álit flestra meðlima S. K. í. um möguleika á þátttöku á heims- meistaramótinu í Bandaríkjun- um á þessum vetri. Álitsgerð irnar eru allar á einn veg, að þátttaka sé ekki möguleg kostn- aðarins vegna. Stjórn S. K. I. er öll á sama máli og ákveður að afþakka boðið.“ S. K. í. hefir verið boðin þátt- taka í öðrum skíðamótum Bandaríkjunum, Frakklandi og víðar, en sennilega verður þeim boðum ekki heldur sinnt — af sömu ástæðum. Guðm. Guðmundsson, Knarr- arbergi er ráðinn til skíðakennslu hjá H. S. Þ. í jan. og febr., en hjá U. í. A. í marz og fram í apríl. —Q— Áhugamannareglur f. S. f. 1. gr. — Reglur þessar gilda um alla íþróttamenn innan vébanda íþróttasambands íslnds. Hvert sérsamband hefir þó rétt til þess að hafa strangari áhugamanna- reglur. 2. gr. — Áhugamaður telzt sá vera, sem iðkar íþróttir af ást og áhuga á íþróttunum, en ekki vegna fjárhagslegra hagsmuna. Atvinnumaður telzt sá vera, sem eigi á rétt til þess að kallast áhugamaður. 3. gr. — Aðeins áhugamenn eiga rétt á því að taka þátt í íþróttakeppni innán í. S. í. Atvinnumenn geta því aðeins tekið þátt í slíkri keppni, að undanþága hlutaðeigandi sér- sambands og framkvæmda- stjórnar í. S. í komi til hverju sinni. ÞATTUR Ritstjóri: JÓNAS JÓNSSON. 4. gr. — Áhugamanni óheimilt: a) Að selja eða veðsetja verð- launa- eða minjagripi sína. b) Að taka þátt í íþróttakeppni ætíð tilkynna framkvæmdastjórn í. S. í. um öll slík mál og getur hún krafist þess, að úrskurði sér- sambandsdómstóls sé skotið til íþróttadómstóls í. S. í. 9. gr. — íþróttamaður, sem misst hefir áhugamannsréttindi sín, getur öðlast þau aftur, ef til er þess fæst samþykki sambands- ráðs í. S. í. 10. gr. — Áhugamannareglur þessar ganga þegar ,í gildi, og þar með eru aliar eldri Áhuga mannareglúr í.; S: í. úr gildi felldar. því er þó ekki átt við nauðsyn- legan ferða- eða dvalareyri né íþróttabúninga. c) Að taka þátt í íþróttamótum eða sýningum, sem haldin eru til ágóða fyrir aðila utan í. S. í. eða einstaklinga, nema leyfi sérsam- bands komi til. d) Að leyfa að nafn sitt, sem íþróttamanns, sé notað í auglýs ingaskyni fyrir varning. e) Að veðjg um keppni, sem hann tekur þátt í. f) Að vera lengur í íþrótta- ferðum en 30 daga á ári, nema með leyfi sérsambands. g) Að keppa í íþróttum vís vitandi með eða gegn atvinnu- manni, nema undanþága hafi verið gefin skv. 3. grein. 5. gr. — Brot á 4. grein varða missi áhugamannsréttinda í öll- um íþróttagreinum og óhlut- gengi til trúnaðarstarfa innan í. S. í. um tiltekinn tíma, jafnvel æfilangt, en eigi skemur en eitt ár. Ef íþróttafélag veldur broti fyrrgreindum reglum, má dæma það frá keppni og sýningum allt að tvö ár og til fjársektar 500— 10000 kr. 6. gr. — Hver sá, sem kennir íþróttir fyrir hærri þóknun en | 1000 kr. á ári (miðað við vísitölu 100) auk hóflegs ferða- og gisti- kostnaðar, telzt atvinnumaður í öllum þeim íþróttagreinum, sem hann hefir kennt á árinu. Und- anþegnir þessu ákvæði er þó kennari í íþróttum við opinbera skóla. Kennarinn getur þó fengið áhugamannsréttindi sín aftur, þegar eitt ár er liðið frá því, að hann hætti þeirri kennslu, sem olli því, að hann taldist atvinnu- maður. 7. gr. — Hver sá, er kennir íþróttir fyrir þóknun, sem er ekki hærri en tilgreint er í 6. grein, telzt áhugaþjálfari. — Greiðsla fyrir kennslu og kostn- að áhugaþjálfara skal fara um hendur héraðsstjórnar eða sér- ráðs og skal það tilkynna hlut- aðeigandi sérsambandi um greiðsluna. 8. gr. — Sérsamböndin sjá um, að áhugamannareglum sé fram- fylgt, hvert í sinni grein. Mál út af reglunum skulu rek- in og útkljáð af dómstóli hlutað- eigandi sérsambands. Stjórnar sérsambanda skulu Samþykkt þann 26. nóvember 1949 af Sambandsráði í. S. í. FRÁ BÓKÁMARKASINUM FRA SÍÐASTA ÁRI. Beztu Evrópuárangrar í frjálsum íþróttum 1949. Hlaup 100 m.: 1. Bailey, Eng- land, 10.4. — 2. Eischer, Þýzka- land, 10.4. — 3. Wittekind, Þýzka land, 10.4. — Sá 11. í röðinni er Finnbj. Þorvaldsson á 10.5, sama tíma og sá 4. 200 m.: 1. Stawczyk, Pólland, 21.2. — 2. Bailey England, 21.3. 3. Bally, Frakkland, 21.3. — 9. í röðinni Haukur Clausen 21.6. 400 m.: 1. Siddi, ítalíu, 47.2. — 2. Geister, Þýzkaland, 47.8. — 3. 3. Hupperte, Þýzkaland, 47.8. — (ísland: Guðm. Lárusson, Á., 48.9). 800 m.: 1. Aberg, Svíþjóð, 1.50.0. — 2. Lindgárd, Svíþjóð, 1.50.8. — 3. Ulzheimer, Þýzkaland, 1.50.8. — (ísland: Óskar Jónsson, í. R., l. 55.5). 1500 m.: 1. Slijkhuis, Holland, 3.43.8. — 2. Strand, Svíþjóð, 3.45.2. — 3. Reiff, Belgía, 3.45.8. — (ísland: Óskar Jónsson, I. R., 4.05.2), 3000 m.: 1. Reiff, Belgía, 7.58.8. — 2. Slijkhuis, Holland, 8.13.8. — 3. Makelá, Finnland, 8.16.8. — (ísland: Þórður Þorgeirsson, K. R., 9.18.0). 5000 m.: 1. Zatopek, Tékkó- slóvakía, 14.10.8. — 2. Koskela, Finnland, 14.13.2. — 3. Mákelá, Finnland, 14.20.0. — (ísland: Hörður Hafliðason, Á., 17.15.8). 10000 m.: 1. Zatopek, Tékkósl., 29.21.2. — 2. Heino, Finnlaná, 29.27.2. — 3. Mimoun, Frakkland, 29.53.0. Hástökk: 1. Damitio, Frakkl., 2.02. m. — 2. Paterson, England, 2.005 m. — 3. Reiz, Svíþjóð, 2.00 m. — (ísland: Skúli Guðmunds- son, K. R., 1.95 m.). Langstökk: 1. Kreulich, Þýzka land, 7.58 m. — 2. Luther, Þýzka- land, 7.53 m. — 3. , Adamczyk, Pólland, 7.44 m. — (ísland: Torfi Bryngeirsson, K. R., 7.24 m.). Þrístökk: 1. L. Sitjerbakov, Rússland, 15.43. — 2. Áhman, Svíþjóð, 15.33. — 3. Moberg, Sví- KORLQG OG HLJOM- BLIK eftir Björgvin Guðmundsson. Nú rétt fyrir jólin hefir bóka- útgáfan Norðri sent frá sér tvær bækui', sem mér finnst ekki mega hjá líða að vekja athygli á. Eru það Áttatíu og átta kórlög fyrir samkynja og ósamkynja raddir og Hljómblik, hvoru tveggja eftir Björgvin Guð- mundsson tónskáld á Akureyri. Þjóðin hefir fyrir löngu fellt sinn dóm um Björgvin Guð- mundsson — karlssoninn í æv- intýrinu, sem fór út í lönd og vann kóngsríki — og skipað hon um veglegan sess meðal góð- skálda sinna og stórskálda á sviði tónlistarinnar. Það er göf- ugt og. gott einkenni mikillar menningar hinna almennu borg- ara í landinu, að vera fundvísir á sína beztu menn og virða þá og dá. Þá þegar, er lög Björgvins bárust með vestan blænum yfir hið víða haf, heim til íslands, vöktu þau þjóðina til meðvitund- ar um það, að þar væri hún að eignast dýran og góðan son, og nú eftir að hann hefir lifað og starfað um langan aldur meðal hennar, veit hún með vissu að svo var. Það er því sannfæring mín, að útgáfa Norðra á verkum Björgvins er kærkomin öllum tónelskum mönnum og konum. Eru áður komnar nokkrar bæk- ur, og nú bætast þessar tvær við. í „Áttatíu og átta kórlögum“ kennir margra grasa. Fimm lög- in eru raddsett af Björgvin, hin öll frumsamin, flest sett fyrir samkynja raddir, en nokkur einnig fyrir ósamkynja raddir. í hópi þeirra laga, fyrir karlakóra, sem þarna birtast, eru nokkur, sem efalaust eru meðal hinna stórbrotnustu slíkra verka, sem samin hafa verið á Norðurlönd um. En margt er þar miklu smærri laga, sem auðveld eru litlum kórum og þó hreinar perl- ur. Má með sanni segja, allir geta fundið þar eitthvað við sitt hæfi. Vil eg í því sambandi benda á, hve sjálfsagt er fyrir söngfélög að eiga all mörg eintök af bókum þeim, sem hafa inni að halda fjölbreytt efni kórlaga, til afnota á æfingum. Er hér um að ræða tilvalið tækifæri til slíks, þar sem þá líka verði bókarinnar mjög stillt í hóf. Það er fyrir sönglög sín, sem Björgvin er mest virtur og dáð ur, enda þau verk hans lang bezt þekkt. Um aðrar tónsmíðar hans, stórar og smáar, er mönn um minna kunnugt, þó nokkuð hafi komið út áður. I „Hljóm blik“ eru 105 smálög fyrir píanó eða orgel. Er þeim öllum valinn búningur við hæfi hinna al- mennu borgara, þ. e. hinna fjöl- mörgu, sem kunna að leika á hljóðfæri sér og öðrum til gagns og gleði, án þess að hafa átt þess kost að æfa þá íþrótt til mikillar tækni. Það er mikilla þakka vert, að Björgvin skuli hafa valið þessari útgáfu slíkan búning. — Efnið er mjög fjölbreytt. Skiptist það í þrennt: Hljómblik, Stökur og Yms hljóðfæralög. Flest eru án texta, en þó ekki nærri öll. Þar er einnig eitthvað við allra hæfi, allt frá léttum gamanmál- um til angurs og sorgar stefja. Má mikið vera, ef fjölmargir finna þar ekki hljóma og endur- óma strengi þeirra eigin hörpu, sem engan möguleika hafði til annars en vera hljóð. Svo fara góðskáldin nærri tilfinningum þjóðar sinnar. Frágangm- allur á bókunum er yfirlætislaus en smekklegur. Þá er og verði stillt í hóf. Hafi ein- hverjum ekki verið það ljóst áð- ur, ætti þeim hinum sömu að vera það augljóst nú,. eftir út- komu þessara bóka, að Björgvin lítur á sig. sem skáld þjóðarinnar, eins og þjóðin veit og skilur, að hann er hennar skáld. Hún (þjóðin) hefir veitt því athygli fyrir löngu, eftir hvern lögin eru, sem leikin eru í útvarpið — jafnvel í útvarpið — þegar þar er haft mest við, t. d. 17. júní og 1. des. Menn ættu því ekki að sitja sig úr færi með að eignast tón- verk þessa merka tónskálds í svo ódýrri og smekklegri útgáfu. Þau ættu að vera í heimilisbókasöfn- um sem flestra heimila á land- inu. Séu þau þar, verða þau um ókomnar aldir sungin og leikin. Páll H. Jónsson. þjóð, 15.15. — (ísland: Kristleif ur Magnússon, í. B. V., 14.21). Stangarstökk: 1. Lundberg, Svíþjóð, 4.30. — 2. Kataja, Finn- land, 4.25. — 3. Olevius, Finn- land, 4.24. — (ísland: Torfi Bryngeirsson, K. R., 4.12). (Meira). Hugrún: ÚLFHILDUR. Skáldsaga. Margt er.-það i skáldsagnagerð, sem hefir sitt gildi, en fer þó oft og tíðum fram hjá lesendunum. Lýtur þetta oftast að hinni tækni legu hlið sagnanna eða innri byggingu þeirra. Á þessu veltur það, hvort saga verður vel sköp- uð eða vansköpuð. Eitt af þessum hlutum, er nafn sögunnar, þvf að það er mikil heimanfylgja, að það sé vel valið. Fyrst er eg heyrði, að hin nýja skáldsaga Hugiúnar héti Ulf- hildui', taldi eg nafnið inntektar- megin hjá höfundinum. í nafni hverrar bókar ætti, að réttu lagi, að felast þungamiðja eða kjarni hennar. Við að lesa Úlfhildi finna merr., að höfundur hennar er þessu boðorði trúr. Hugrúnu er vel ljóst hvað hún vill segja, og hún segir það af sannfæringu. Hún grípur á kýlum þjóðfélags- ins og lætur eina af sögupersón- unum spyrja: „.... Skyldi það vera vegna óttans við dauðann, að fólkið lifir svona gáleysislega? Þarf það að drekkja honum í gleðskap og glaumi? í hjarta hvers manns hlaut að búa leyndur ótti við dauðann. Þess vegna varð mann- kynið að fá sér deyfiskammt í hringiðu og óstjórn skemmtana, fýsna og nautnadrykkju....“ Það er dauðvona maður, sem (Framhald á 7. síðu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.