Dagur - 26.04.1950, Side 1
Forustugreinin:
Með lögum skal land
byggja.
Dagur
2. síða:
Er stöðvunarleiðin úr-
ræði?
XXXm. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 26. apríl 1950
21. tbl.
Þjóðleikhús Islendinga vígt með viðhöfn á sumárdaginn fyrsta
Leikhásið er mesta og glæsilegasta
bygging á íslandi
Reykjavík 22. april.
Á sumardaginn fyrsta varð stóra, drungalega steinhöllin, sem
blasað hefur við augum gesta og gangandi í Reykjavík síðustu ára-
tugina, allt í einu iðandi af lífi og starfi. Mörg hundruð landsmenn og
fjöldi tiginna erlendra gesta, fengu að kynnast því, að Þjóðleikhúsið
er glæsilegust bygging á Islandi og nýr og mjög merkilegur kapítuli
í menningarsögu íslands er hafinn. Þjóðleikhúsið var vígt og það
hóf starf.
Sögulegt sumardagskvöld.
Enginn, sem viðstaddur var
vígslu Þjóðleikhússins, mun auð-
veldlega gleyma þeirri hátíða-
stund. Af skrifum sumra Reykja-
víkurblaðanna fyrir opnunina var
helzt svo að sjá, að eftirvænt-
ingin væri að mestu tengd fínum
kjólum og orðufjölda gestanna.
Víst voru margir fallegir kjólar
til sýnis þar og orðufjöldi sumra
á stundum meira áberandi en
verðleikarnir. En hvorugt þetta
mun lengi í minnum haft. Hitt
ætla eg að festist í minni, að þegar
komið var inn fyrir veggi Þjóð-
leikhússins þetta kvöld, opnaðist
nýr heimur, heimur, sem fram til
þessa hefur verið lokaður flestum
íslendingum, — heimur glæsi-
legra salarkynna • leikhúsa og
söngleikhalla, sem bjóða gestum
fagra list í fögru umhverfi og
listamönnum áreiðanlega saman-
burð við beztu leikhús Norður-
álfunnar um búnað og ytri prýði,
en hver íslendingur, sem þar
„Uppstigning“
Frumsýning leiksins
nk. laugardag
Leikfélag Akureyrar hefur
fi’umsýningu á sjónleiknum
Uppstigning eftir prófessor Sig-
urð Nordal, í Samkomuhúsi bæj-
arins, laugard. þ. 29. apríl, kl. 8
e. h. Leikstjóri: Ágúst Kvaran. —
Aðgöngumiðar verða seldir í
Samkomuhúsinu kl. 2—4 og 7—8
leikdagana. Auk þess má panta
aðgöngumiða hjá gjaldkera L. A.,
Birni Sigmundssyni. — Fastir
frumsýningargestir vitji aðgöngu
miða sinna fyrir kl. 6 á föstud.,
28. þ. m., í Bókaverzl. Eddu. —
Onnur sýning á sunnudag.
Brynleifur Tobias-
son sextugur
Eins og skýrt var frá í seinasta
blaði átti Brynleifur yfirkennari
Tobiasson sextugsafmæli á sum-
ardaginn fyrsta. Fjöldi' manns
heimsótti hann á þessum merkis-
degi. Fékk hann fleiri hundruð
skeyta og margar merkar bækur
að gjöf. Sumar þeirra fágætar.
kemur inn fyrir dyr, finnur strax
að þótt þessi heimur sé honum
nýstárlegur, er hann samt ís-
lenzkur. Byggingin sjálf, hinn
einfaldi en mjög fagri búningur
hennar og andrúmsloftið allt, er
rammíslenzkt. Er aðdáunarvert
hversu öllum, er að byggingunni
hafa unnið, húsameistara, bygg-
inganefnd og ráðgjöfum hefur
tekizt að laða fram íslenzkt sér-
einkenni á virðulegan hátt og
samboðinn þeim tilgangi þessarar
merku stofnunar, að vera þjóð-
leikhús, miðstöð þjóðlegrar menn
ingar og gluggi með útsýni að
menningarverðmætum margra
þjóða.
Vígsluathöfniu.
Þjóðleikhúsið var fullskipað
boðsgestum þetta fyrsta sumar-
dagskvöld. Voru þar samankomn
ir valdamenn þjóðarinnar, for-
ustumenn ýmissa listgreina, tign-
ir erlendir gestir og fulltrúar
margra starfsgreina. Mátti fljótt
merkja, að allir voru í hátíða-
skapi. Fæstir boðsgestanna munu
hafa komið inn fyrir dyr hússins
fyrr en þetta kvöld. Var auð-
heyrt, að öllum þótti mikið til
koma hinna rúmgóðu og fögru
salarkynna, ekki aðeins hins
mikla leiksals og leiksviðs, held-
ur og annarra salarkynna, sem
þar eru til þæginda fyrir gesti og
starfslið.
Hér verður ekki gerð tilraun til
þess að lýsa ýtarlega því, sem
fram fór þetta fyrsta kvöld með
því að athöfninni var útvarpað og
flestir landsmenn feungu þannig
tækifæri til þess að fylgjast með
einstökum atriðum. Klukkan 7,15
voru gestir komnir í sæti sín.
Gekk þá forsetafrúin til stúku
sinnar, ásamt forsætisráðherra-
hjónunum, en gestir risu úr sæt-
um í virðingarskyni.
Þá var leikinn þjóðsöng-
urinn, af symfóníuhljómsveit,
undir stjórn dr. Páls ísólfssonar.
Hófst síðan vígsluathöfnin með
ræðuhöldum og tóku til máls Vil-
hjálmur Þ. Gíslason formaður
þjóðleikhússráðs, Hörður Bjarna-
son, formaður bygginganefndar,
Björn Olafsson, menntamálaráð-
herra, og Guðlaugur Rósinkranz
þjóðleikhússtjóri. Eftir að hljóm-
sveitin hafði leikið forleik að
vígslu hússins, hófst sýning á
Hér blasa við aðaldyr Þjóðleikhússins.
Nýjársnótt Indriða Einarssonar. I konu. Forseti íslands, sem nú
. dvelur erlendis sér til heilsubót-
! ar, sendi kveðju. Þjóðleikhús-
stjóri,
Má segja, að þetta vígslukvöld
hafi verið helgað minningu hans.
Nýjársnóttin hefur verið sýnd
mjög oft víðs vegar um landið á
undanförnum áratugum og efni
leiksins er flestum landsmönnum
kunnugt. En óhætt mun að full-
yrða að þarna hafi hún verið sýnd
í fyrsta sinn með þeim tæknilega
útbúnaði, sem nauðsynlegur er til
þess ,að þessi íburðarmikli ævin-
týraleikur geti notið sýn eins og
vert er. Sýningin á Nýjársnótt-
inni sýndi leikhúsgestum í einu
vetfangi hversu tæknibúnaður
hins milcla Þjóðleikhússsviðs er
glæsilegur. Má í því sambandi
nefna, að ljósaútbúnaður er sér-
staklega fullkominn og mun ekk-
ert leikhús í Norðurálfu standa
Þjóðleikhúsinu framar þar, en
nokkur eru nú að láta setja upp
slíkan útbúnað. Sýningin hefst
með íslenzku hríðaréli upp til
fjalla í náttmyrkri, en skrautbún-
ir álfar stíga dans um freðna
grund, en lýkur með brakandi
norðurljósum. Öll þessi sýning'
var mjög glæsileg og frammi-
staða leikenda góð. Leikstjóri var
dóttursonur skáldsins, Indriði
Waage.
Kveðjur og gjafir.
Að lokinni sýningunni voru
leikhúsinu fluttar kveðjur víða að
og' færðar góðar gjafir. Leikfélag
Re_ykjavíkur gaf málverk af Sig-
urði Guðmundssyni listmálara,
reykvískir leikarar ljósmyndir
af leiklistarfrömuðum, Leikfélag
Akureyrar sendi skrautritað
ávarp, Norðmenn gófu norskan
þjóðbúning, Svíar forkunnar-
fagran fundarstjórahamar, Danir
höggmynd af Önnu Borg leik-
Guðlaugur Rósinkranz,
þakkaði gjafirnar og bauð leik-
húsgestum til móttökuathafnar í
hinum rúmgóða og fagra veit-
ingasal leikhússins. Var þeirri at-
höfn ekki lokið fyrr en um kl. 2
um nóttina. Héldu gestir þá heim
eftir sögulegt og ógleymanlegt
fyrsta sumardagskvöld.
Leikliúsið skoðað.
Daginn eftir bauð Þjóðleikhús-
stjóri og: formaður bygginga-
nefndar gestum utan af landi að
skoða bygginguna. Fylgdu þeir
Hörður Bjarnason og Vilhjálmur
Þ. Gíslason, form. þjóðleikhúss-
ráðs, gestum um húsið. Var það
mjög fróðlegt og skemmtilegt
ferðalag um öll hin miklu salar-
kynni. Sérstaka eftirtekt vekur
leiksviðið sjálft og allur hinn
margvíslegi tækniútbúnaður, sem
því fylgir, svo og „litla senan“,
sem ætluð er fyrir minniháttar
sýningar og æfingar og tekur
áhorfendasvið hennar um 120
manns í sæti.
Fjalla-Eyvindur og
íslandsklukkan.
Að þessu sinni hefur leikhúsið
þrjú leikrit til sýningar, þ. e.
Fjalla-Eyvind og íslandsklukk-
una, auk Nýjársnæturinnar. Þeg-
ar þetta er ritað, er frumsýningu
Fjalla-Eyvindar lokið, og var sú
sýning mjög áhrifamikil, en ís-
landsklukkunnar er beðið með
óþreyju. Er auðheyrt, að leik-
húsgestir vænta mikils þar, enda
mun sagan um Snæfríði íslands-'
sól vera mjög tilkomumikil á
leiksviði. Gefst vonandi tækifæri
til þess að víkja nánar að því síð-
ar. H. Sn.
•egic
í liappdræíli Húsbygg-
ingarsjóðs Framsóknarmamia
Dreglð
var í happdrætti Húsbýggingarsjóðs Frarn-
sóknarmanna síðastliðiiln laugardag. Þessi númer voru
dregin út:
Nr. 2211 Ferguson dráttarvél með verkfærum.
— 28339 Skagfirzkur gæðingur.
— 3858 Ainerískur kæliskápur.
— 4525 Amerísk þvottavél.
— 1432 Flugfar til Kaupmannahafnar.
17124
17082
26087
8875
6516
16760
íslenzkar bækur.
Amerísk hrærivél.
, •>
íslenzkar bækur.
Flugfar til og frá F.gilst.—Reykjavík.
Flugfar til og frá Akureyri—Reykjavík.
Tíu daga dvöl í Hreðavatnsskála.