Dagur - 26.04.1950, Síða 5
Miðvikudaginn 26. apríl 1949
D AGUR
5
ÍÞRÓTTIR
og
ÚTILÍF
Ritstjóri: JÓNAS JÓNSSON
Badniintonmót íslands'.
Mót þetta fór fram samkvæmt
áætlun, í Stykkishólmi um pásk-
ana. Eins og getið hefur verið um
hér í þættinum fóru tveir Akur-
eyringar á þetta mót sem kepp-
endur, þeir Bendikt Hermanns-
son og Jóhann Egilsson. Þeir eru
nú heim komnir fyrir nokkru og
„segja sínar farir ekki sléttar“, en
eru þó ánægðir yfir förinni. Þeir
telja sig hafa lært ýmislegt af
keppinautunum og keppninni í
heild, bæði hvað snertir leikregl-
ur, áhöld og þjálfun. í einmenn-
ingskeppniinni lék Benedi. á móti
Einari Jónss. úr Rvík og tapaði —
þó með litlum mun, — og var þar
með sleginn út. Jóh. lenti á móti
einum sterkasta keppandanum,
Þorg. Ibsen, Stykkish., og vann í
fyrri umferð með nokkrum mun.
Jóh. var svo þrotinn og tapaði al-
veg í síðari — og þar með úr. f
tvíliðakeppni sigruðu þeir sína
fyrstu mótstöðumenn, en komu
þá á móti íslandsmeisturunum og
gegn þeim stóðu þeir ekki snún-
ing.
Helztu úrslit:
Einmenningskeppni:
íslandsmeistari kvenna:
Halla Árnad., Sykkishólmi.
Islandsmeistari karla:
Ágúst Bjartmars, Sykkish.
Tvíliðakeppnina unnu Reyk-
víkingar.
f Stykkishólmi virðist mjög
mikill og almennur áhugi fyrir
badminton, aðstaða góð til keppni
í nýju húsi og notuð vel. Sumir
æfðu daglega í vetur, enda
virtust „Hólmarar" lang þolnast-
ir, áttu t. d. alla 4, sem komu til
úrslita í einmenningskeppni. í
Stykkishólmi æfa konur og karl-
ar og á öllum aldri frá 8—60 ára
eða meira! Akureyringarnir, sem
vestur fóru, láta vel yfir dvöl
sinni vestra og kenna hvorki
„matnum eða hitabylgju“ um
ófarir sínar, en fyrst og fremst of
lítilli þjálfun, of litlu þoli. Og þeir
leggja ólíkalega spaðana áhilluna,
þótt við sterka keppinauta sé að
etja en segja: „Betur má ef —“!
Kvöld í sveitinni.
Laugardagskvöld. „Sveitaball! “
„Bíllinn þaut sem örskot út úr
bænum“. En vegurinn, maður!
Fjöll og dalir, gjár og grafningar!
Þeir segja, að vegamálastjórinn í
héraðinu sé búinn að „spila sig
upp“ í meistaraflokki í „bridge“,
en vegurinn hérna talar um að
hann sé að „spila rassinn úr bux-
unum“. En „jeppinn“ sveiflar sér
frá brún til brúnar, forðast af
snilld bilstjórans allar meiri hátt-
ar holur, en hoppar þó og skopp-
ar stundum svo, að farþegarnir
eru ýmist á gólfi, uppi í þaki eða
í lausu lofti — og það síðasta er
auðvitað bezt!
Eyjafjarðará er auð og lygn.
Andahjónin hérna niðri í bugð-
unni eru víst farin að líta í kring-
um sig eftir hreiðurstæði, hann
rogginn, hún auðmjúk og prúð.
Byggðin er snjólaus að kalla hér
um miðsveitina, en við fjallsræt-
ur hattar alveg um; þar sér varla
á dökkan díl. Eyjafjörður er
merkilegt hérað um veðurfar og
snjóalög. Ætli mætti stundum, —
fremur þar, en víða annars stað-
ar — að ekki rigndi jafnt — eða
snjóaði — á réttláta og rangláta!
Við Reykhús stígur ljós og hlý
gufa frá mörgum grænbryddum
laugarvætlum. Fölgræn strá eru
þar farin að teygja sig upp úr
mosanum og fullyrða, að vorið sé
komið. Kvöldhiminninn er heiður
— og enn bjartur — boðar frost í
nótt, en e. t. v. vor að morgni
sumarmálasunnudagsins.
Á samkomustaðnum er allt kalt
og autt að kalla, er við komum,
enda stund til stefnu enn, þar til
byrja skal. Húsið er þó nærri
fullbyggt — verið að setja í það
síðustu rúðuna! En fimleikamenn
Haraldar og glímukempur hita
sér við að tuskast og með gaman-
sömum „ákjaftinngjöfum“. Þeir
raða sér líka á litla leiksviðið í
salnum til þess að sjá, hve mörg-
um er hægt að koma að á sýning-
unni fyrir sveitafólkið. Með bezta
samkomulagi geta þar verið 8—10
í senn!
Síðan göngum við nokkrir upp
snarbrattan hólinn bak við húsið,
gizkum á aldur kirkjunnar og
þykjumst sjá á hlaðinu framan
við íbúðarhúsið, hvað bærinn
heitir.
Nú húmar óðum að, ög þá sjást
leiftrandi bílaljós hér og þar, inni
í botni og úti við ósa — er öll
stefna að sama punkti — sam-
komustaðnum. — Stundin er
komin. Drengirnir hlaupa inn í
salinn og upp á pallinn. Fána-
kveðja, — en fólkið tekur nú
varla undir svoleiðis óþarfa(!), —
aðeins 4—5 rísa hikandi úr sæti.
Við eigum margt ólært. — Létt-
klæddu piltarnir þarna uppi eru
þó búnir að læra ýmislegt — og
gera allt, sem kennarinn býður og
eitthvað fleira, t. d. sparka í ná-
ungann og slá í veggina! Þrengsl-
in eiga sinn þátt í þessu. En sam-
tökin eru góð og sýningin vekur
mikla ánægju. Stökkin verða
reyndar bara svipur hjá sjón við
þessa aðstöðu, — tilhlaupið getur
talizt hindrunarhlaup — og verð-
ur að fella niður hin erfiðustu.
Glímumennirnir koma inn, 8 í
röð, vasklegir og alls ekki ill-
mannlegir, þótt einvígið verði
stundum nokkuð heitt. Til þess
kemur nú ekki þarna, en glíma
þeirra er liðleg og aldrei þung.
Sumir eru þegar orðnir knáir
glímumenn. En þeir þurfa meiri
æfingu — gjarnan fleiri æfingar
eins og þessa — og leggja rækt
við hrein brögð, bæði hin stærri
og smærri. Báðir flokkar hljóta
óspart lof í lófataki fólksins.
Skömmu síðar hefst dansinn.
Harmonikan er ekki hávær, en
laðar þó fólk á gólfið miklu fyrr
en mörg hljómsveit stórbæjanna.
Hér ætlar fólkið sýnilega að
dansa. „Gömlu dansarnir“ fara
svona að nokkru leyti út um þúf
ur en fólkið er glatt og fylgist
með. Þarna dansar það líka
„samba“ og jóðlar „tugguna“
taktlaust eins og í höfuðborg
Norðurlandsins. — Og menn eru
hér „bláir", „hálfir" og rúmlega
það eins og gengur, Lilli hlær og
allir hlæja og flestum þykir eitt-
hvað gaman.
Stúlkurnar bjóða bezta kaffi og
það má segja að kökurnar eru
kónginum sjálfum fullgóðar.
— Á heimleiðinni leika íþrótta-
mennirnir karlakór og tekst vel.
Stjornurnar tindra og norður
ljósin dansa — af hrifningu! Og
þrátt fyrir veginn komumst við
óskaddaðir heim til Akureyrar
aftur.
Ritstjóraskipti.
Það hefur orðið að samkomu
lagi, að með næsta mánuði taki
Tómas Árnason lögfræðingur við
ritstjórn þessa þáttar. Vona eg, að
honum takizt að auka hann bæði
að efni til í blaðinu og gildi fyrir
málefnið. Mun Tómas með þökk
um taka á móti íþróttafréttum úr
héruðunum hér nyrðra og gjarn
an góðum smámyndum með, ef
til væru. Með þakklæti fyrir við-
skiptin og íþróttakveðju.
Jónas Jónsson.
Álfheiður Einarsdóttir
Minning
Deyr fé, deyja frændr,
en orðstír deyr aldrei
hveim sér góðan getr.
Þessi orð eru efst í huga mín-
um, er eg minnist með nokkrum
fátæklegum orðum vinkonu
minnar, Álfheiðar Einarsdóttur.
Við fráfall hennar á Akureyri að
sjá á bak einni af mætustu og
beztu konum. Hún átti sterk ítök
í huga og hjörtum margra hér og
víðar um land, enda urðu henn-
ar nánustu þess áþreifanlega var-
ir við fráfall hennar. 011 þau sam-
úðarskeyti, blóm og annar virð
ingarvottur, sem henni var auð-
sýndur, báru þess glögg merki. Eg
átti því láni að fagna, að mega
telja mig til vina hennar. Þegar
maður kom til hennar með ein-
hver áhyggjuefni, hafði hún ætíð
sérstakt lag á því að dreifa þeim
og veita manni innsýn í nýjan og
betri heim. Fyrir nokkrum árum
starfaði eg um tíma á Vinnu-
miðlunarskrifstofu Akureyrar,
vegna þess að maður hennar
þurfti á sjúkrahús. Þeim dögum
gleymi eg aldx-ei. Eg dvaldi hjá
henni öllum þeim stundum, sem
eg ekki þuríti að.vei'ja stai'finu.
Og sá þróttur og. lífsspeki,, sem
fólst í fi'ásagnarlist hennar kom
manni til að gleyma stað og
stundu. Hún hafði líka til a'ð bera
sérstaka kímnigáfú, sem veítti
manni margar ánægjustundir
Hún var í fáum orðum sagt sönn
kona, trúhneigð. Eg efast ekkium
að bænir hennar hafi veitt mörg-
um lið, þótt hún ekki í'æddi mik
ið um þess háttar við óviðkom
andi. I rriargs j konar féíagsskap
starfaði Álfheiður hér í bæ og öll
sú starfsemi bar vitni um frábæra
hæfni ög i*étu til að ljá góðu mál-
efni lið, enda mun minningin um
stöi'f hennar hér lifa, þótt hún sé
kölluð héðan til æðri stai-fa. Sam
líf hennar við hennar nánustu
var eins gott og bezt vei’ður á
kosið. Þeir kunnu að meta það
hve hún var óendanlega ástrik og
góð, og sannai’lega er það gleði
efni fyi'ir þá, nú að hoi'fa til baka
því að þeir hafa ætíð reynst henni
frábærlega vel. Það sakna Álf-
heiðar Einarsdóttur fleiri en
hennar nánustu, þó þeirra sé
söknuðurinn sárastui*. En það
mýkir söknuðinn, að minningin
um hina glæsilegu og merku konu
gleymist eigi.
Helga Jónsdóttir.
r
Utvarpstæki
til sölu. Tækifærisveið
Strandgötu 45, niðri,
austan.
Reglusöm og dugleg
stúlka
óskast 1. eða 14. maí n. k
Rakarastofa Sigtr. & Jóns.
Sími 133.
LINDIN
Kvæði þetta var lesið upp 1. apríl
1950, í tilefni af fimm ára afmæli
vatnsveitnu Glerárþorps.
Hátt í fögru fjalli
fæddist þú og lifir,
líður létt af stalli
lyng og mosa yfir. '1
Möi'gum svölun sendir ^
sái-a þyrstum manni, ■■{
okkur alla hendir
að elska þig með sanni.
Tilsölu
R-steinsmótavél og skil
rúmssteinn.
Afgr. vísar á.
íbúð óskasf
Barnlaus lijón óska eítir
tveimur herbergjum og eld
húsi í vor eða sumar.
Marino Viborg, Hafnarst. 100
■;j
Á
Heima brunnar bíða
bannfærðir af öllum,
en lindin fékk að líða
lífsglöð upp í fjöllum.
ímynd alls hins hreina
ætíð kát í spori,
ljóðar létt við steina
lauguð sól og vori.
Þeir sem götu greiða
gegna boði og kalli,
vildu láta leiða
lindarvatn úr fjalli.
Fyi'st skal fræga róma
þó fengju ei heiðursmerki,
er sýndu þannig sóma
sinni byggð í verki.
Þá var hafizt handa
hakað, stungið, mokað,
tenging bræðrabanda
bjargi hefur þokað.
Glaður vildir vinna,
vökna í fót og mæðast.
Lífsæð þín og þinna
þai'na var að fæðast.
Fannstu ei fögnuð skína
fyrsta heiðursdaginn,
er leið um leiðslu þína
lindarvatn í bæinn.
Að grípa um gilta krana
og geta látið streyma,
loks má lofa hana
lind sem nú er heima.
0
Glei-árþorp mun geyma
glaða minning þína,
meðan húsfrúr heima
hita könnu sína.
Saman hér við setu
sjálfsagt er að kætast,
þökk sé þeim er létu
þessa drauma rætast.
I hlíðarfaðmi fríðum
fram og upp til dala,
reifuð rörum víðum
rennur lindin svala.
Óskum öll af hjarta
að okkur viljir næi'a.
Framtíð fagra og bjarta
fjallalindin tæra.
Halldór Jónsson, Gili.
r\
. i
íi
- Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
eigi aðeins vel klæddir heldur
einnig „uppáklæddir“!
Eg hef hoi'ft á þennan ósóma á
hvei'fju vori árum saman — og
þagað. Nú þegi eg ekki lengur! —
Hvers ltonar ómenning er þetta!
— Þessi þjóðalöstur verður að
hverfa tafarlaust! — Reiðhestar
og hirðuleysi eiga ekki saman.
Hirða hestsins er heilsuvci'nd
hans samtímis! Það ætti hver
hestaeigandi að vita, enda er það
undii-stöðu-ati’iði barnalærdóms-
ins í þeim efnum!
Þetta væri efni í miklu lengra
mál. En eg læt þetta nægja að
sinni. — Enda er nú náttúran óð-
um að breiða yfii' syndir mann-
anna í hárarfari hestanna. — En
„eg kem aftur“, sagði Álfur mal-
poki. Og það segi eg líka!
Helgi Valtýsson.
Tvö herbergi
og eldhús til leigu geg'n lxús-
hjálp. — Upplýsingar í
Hafnarstrœti 41. ,