Dagur - 24.05.1950, Blaðsíða 6

Dagur - 24.05.1950, Blaðsíða 6
6 DAGUR Miðvikudaginn 24. maí 1950 LÁTTU HJARTAÐ RAÐA! Saga eftir Sarah-Elizabeth Rodger 25. DAGUR. (Framhald). giftast þér. Athugaðu málið ró- lega. Terry er að vísu ungur, en hann er enginn heimskingi. Hann sér aldursmuninn, og allt annað, og viðurkennir, að hamirigja ykk- ar sé í veði.“ „Sagði hann það?" „Nei, ekki beinlínis, en hann veit, hvað hann er að gera.“ „Nei, hann veít ekki það, sem mest er um vert nú, að ég elska hann.“ Rush var orðinn ólundarlegur á svipinn. „ Hann hefur þó haft tímann til að kanna tilfinningar þínar. Og þú getur ekki gabbað hann lengi. Fyrr eða síðar kemur sannleikurinn í ljós. Sá sannleik- ur, sem dylst í kossum þínum og atlotum. Alison, þú hefur sagt mér þann sannleika, þrátt fyrir stoltið.“ „Nei, það er aðeins líkamleg ástríða,“ svaraði hún, „og kemur stolti ekkert við. Þú ættir að vita það. Mundu eftir Jenny.“ Hún stóð á fætur. Hún var föl, en einbeitt á svip. „Þakka þér fyr ir morgunverðinn, Rush,“ sagði hún. „Hann var þó það minnsia. Þú hefur veitt mér tækifæri til þess að fá vitneskju um nokkuð, sem ég hefði annars ef til vill ekki kynnzt enn um langa hríð.“ Hann stóð líka á fætur, fölur og ólundarlegur. Hún hugsaði með sjálfri sér, að ef til vill hefði hann elskað hana eitt sinn, á sinn eigingjarna hátt, en ef hann hefði gert það, var hann Jöngu lækn- aður. Hann hafði Jenny, og ef ekki hana, þá einhverja aðra slíka. Hann gerði síðustu tilraunina. „Alison, þú getur ekki þurrkað burt í einu vetfangi allar minn- ingar okkar frá yngri árunum, allt, sem við eigum sameiginlegt/1 „Auðvitað get ég það,“ svaraði hún. „Þær minningar voru ekki raunveruleikinn, heldur umvafð- ar óraunverulegu gliti. Eg er vax- in upp úr þeim. Þú munt líka yaxa upp úr þeim.“ Hún hélt í áttina iil dyranna, án þess að kveðja hann. Hún gleymdi því. í dag þurfti svo margt að gera. Hún fór fyrst á hótelið, sem Terry bjó á, til þess að vita hvort hann væri heima. Auðvitað var hann þar ekki. Þá hi-jngdi hún á blaðaskrifstofuna. Henni var sagt að herra Mc Bride væri ekki við og þeir vissu ekki hvar hann væri. „Eg verð að ná í hann,“ sagði hún við þairn, sem talaði við hana á blaðaskrifstofunni. „Biðjið hann að hringja í mig,“ sagði hún og gaf upp símanúmer f'rænku sinnar. Brúðarkjóllinn hennar, allt stáss hennar til brúðkaupsins o. fl., var heima hjá frænku herm- ai\ Gert hafði verið ráð fyrir að hún klæddi sig þar fyrir brúð- kaupið. Hún fann nú að hún gat ekki di-egið það lengur að fara til frænku sinnar. Ef hún næði ekki í Terry hið bráðasta, mundi eng- inn brúðgumi vera til staðar. Jane frænka beið hennar í dagstofunni. „Það var gott að þú komst,“ sagði hún. „Eg hef verið að reyna að ná í þig.“ „Eg borðaði moi-gunvei-ðinn úti í bæ.“ „Er nokkuð að, kæi-a Alison? Þú ert svo þreytuleg.“ „Eg svaf mjög illa.“ Jane frænka brosti og lagði handleggina utan um hana. „Maður sefur sjaldan vel nóttina fyrir brúðkaupið. Eg held þú rættir að halla þér hjá okkur nokkra stund. Eg skal líta eftir fötunum og stássinu og engu gleyma." „Hvar er Jenny?“ „Hún sefur enn,“ svaraði fj-ænka hennar. „Og við skulum lofa henni.gð sofa meðan við er- um að ganga frá öllu hér. Var gaman í gærkveldi?" Alisön ætl- áði að fafá að segja að það héfði verið dásamlegt, en hætti við það því að hún sá að það var ekki hægt að blekkja Jane þannig og. allt mundi hvort sem er komast upp innan stundai-. „Það var hræðilegt,“ sagði hún. „Það kom upp misskilningur í milli mín og Ten-y. Það getur verið, að hann mæti alls ekki til brúðkaupsins. Eg hef kannske misst hann.“ Hún reyndi að verj- ast grátinum, en tár komu fram í augu hennar. „Eg elska hann svo mikið. Eg lifi það ekki af að missa hann.“ Og svo sagðí hún frænku sinni það helzta, sem gerzt hafði kvöld- ið áðitr. Frænka hennar hlustaði með athygli. „Þetta er I fyrsta sinn, sem eg hef álitið að þú elskaðir Terry nægilega mikið,“ sagði hún. Alison leit undrandi upp. „Nógu mikið?“ „Til þess að brúa fjögra ára aldursmun, mismunandi uppeldi og aðstöðu, til þess að geta horft björt um augum á framtíðina, til þess að skilja unga manninn, sem á að verða eigipmaður þinn. Því að Ten-y er að sumu leyti reynd- ari og eldri en þú. Terry er þrosk aður piltur, hann er fullorðinn, en eg hef stundum efast um að þú værir orðin nógu fullorðin til þess að komast klaklaust út úr ei-fiðleikum fyrsta giftingarárs- ins.“ „Eg hef sjálf efast um það, en nú veit eg að eg get það. Bara ef hann vill gefa mér tækifæi-i til þess að sýna honum, hvað mikið eg elska hann.“- (Framhald). Herbergi til leigu í Norðurgötu 43. Fimmföld píanoharmonika til sölu í Norðurgötu 37. 2 samliggjandi herbergi til leigu. Afgn' vísar á. Sokkar teknir til viðgerðar. — Upp- lýsingar í Hríseyjargötu 9. Fjármark mitt er: Biti fr. h„ sýlt v. fjöður fr. og biti fr. Tryggvi Jónalansson, Litla-Hamri. Silfur-eyrnalokkur, með hrafntinnu-steini, tap- aðist 10. maí s. 1., frá Sam- komuhúsinu að Geislagötu. Skilvís finnandi beðinn að skila honum í Geislagötu 1. — Fundarlaun. Stúlkur, athugið! Góð atvinna í boðL — Mig vantar tvær duglegar kaupa- konur, Aðra strax, liina 5. júlí. — Hátt kaup. JÓN LAXÐAL, Nesi. Símí Grenivík. Mann vantar í kaupavinnu frá 20. júní til septemberloka á sveita- heimili í næsta nágrenni Akureyrar. r- g Afgr. vísar á. Diesel-rafstöð til sölu 9 ha. diesel-rafstöð til söIll Upplýsingar ge-fur Albert Sölvason, Atla, Akurcyri. Stúlka óskast í vi«t stjax. Maria Ragnars, Þingvallastræti 27. Móðir mín, JÓNASÍNA JÓNSDÓTTIR, andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar 19. þ. m. — Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju, laugardaginn 27. maí kl. 2. e. h. Friðjón Tryggvason, Ægisgötu 8. AUGLYSING um áburðarverð Heildsöluverð tilbúins áburðar er ákveðið þannig: AmmoníaksaltpétiLr 33.5% . ... 45 kgr. kr. 66.00 1 Kalkammonsaltpétur 20.5% . .. . 100 - - 87.00 I Ammonsulfatsaltpétur 26.0% . . 75 - - 83.00 I Þrífosfat 45% . 50 - - 64.00 1 sama 45% . . . 45 - - 59.00 1 Superfosfat 20% . 45 - - 26.00 1 Kalí 60% . 100 - - 90.00 | sama 60% .. . 50 - - 46.00 1 Brennisteinssúrt Kalf . 100 - - 100.00 I Tröllamjöl . 50 - - 54.00 1 Verðið miðast við áburðinn kominn á hafnir, sem skip Eimskipafélags íslands og Skipaútgerðar ríkisins koma á. Verzlunum og öðrum sem áburðinn selja er heimil f, álagning fyrir uppskipun, flutning, áfhendingu og öðr- um óhjákvæmilegum kostnaði. ReykjaVík, 3. maí 1950. r Ahurðarsala ríkisins. ? i HKHKHKHKHKHKHKHKHKBKBKKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKI ^í^xíx^^^x^xixíxíxíx^mxS^^^^xS^xíx^xíxíx^xMx^xíxíxí^xixí^x^ T ilkynning Afhending nýju kartöflugarðanna á Oddeyri fer fram % miðvikudaginn 24. maí frá kl. 5—7 e. h. í Sunnuhvols- 1> görðum fimmtudaginn 25. maí á sama tíma. í Lunds- görðum föstudaginn á sama tíma. Og í Lundsgörðum á laugardag frá kl. 3—(i. Garðyrkjuráðunautur, | , ‘ II hátíðamatinn: Svína: Dilka: Kóteleitur Carbonade Steik Naufa: Buff Steik Gullash Kótelettur Carbonade Lærsteik Hryggsteik aS ógleymdu hangikjötL er vér fáum nýreykt daglega. f Húsmæður! Hringið til vor strax í dag, og gerið pantanir yðar til Hvítasunn-unnar. Vér sendúm yður svo vörurnar heim á laugar- daginn. tS»§X§>4>$x$><&$«&<$x$>G>&$><$h$><$>Gx§>®®4>®G>&G>&$>&$>G>$x§>G>$><$>Q>Q>G>Q»$>$>&$><í>3x$x&

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.