Dagur - 24.05.1950, Side 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 24. maí 1950
Ferðafélagið hefur seff upp
útsýnisskífu á Hamarkotsklöppum
Skemmtileg dægradvöl fyrir bæjarmenn
og ferðamenn
Ferðafélag Akureyrar hefur nú sett upp útsýnisskífu nyrst og
vestast á Hamarkotsklöppum, en klappimar eru nefndar eftir Ham-
arkoti, sem var hjáleiga frá Stóra-Eyrarlandi að því Þorsteinn
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri félagsins skýrir blaðinu frá. Er
þessa býlis fyrst getið í ritum á 17. öld. Voru þá tvær hjáleigur frá
Stóra-Eyrarlandi, Hamarkot og Barð.
Ferðaskrifsfofan efnir fil hópferðar
í Þjóðleikhúsið um hvítasunnuna
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi í dag
Bærinn Hamarkot stóð þar sem
húsið Staðarhóll er nú (vestur af
Hamarstíg). Býlið fór í eyði 1915.
Klappirnar norður frá bænum, og
annar klappahryggur nokkru
austar, hétu Hamarkotsklappir.
En milli klappahryggjanna var
mýrasund og mótekja í því, bæði
norðarlega (vestur af húsinu nr.
43 við Brekkugötu) og einnig
vestur af Hamarkotsbænum.
Skífan.
Nyrst á austari klapparhryggn-
um stendur útsýnisskífan. Á hana
eru letruð 18 bæjanöfn og 30 ör-
nefni annarra staða, sem til sést
frá fótstalli hennar. Er miðunar-
tæki á skífunni og með stuðningi
þess er hægt að þekkja alla þá 48
staði, sem nafngreindir eru. Einn-
Vorþing Umdæmisstúkunnar
nr. 5 var haldið á Akureyri laug-
ardaginn 20. maí sl. Á þinginu
mættu 26 félagar Umdæmisstúk-
unnar og voru 15 af þeim kjörnir
fulltrúar. Eiríkur Sigurðsson
Umdæmistemplar gaf skýrslu um
störf framkvæmdanefndar á
liðnu ári og hag Reglunnar í
umdæminu. Framkvæmdanefnd-
in hafði haldið útbreiðslufundi
síðastliðinn vetur á Skagaströnd,
Dalvík og Akureyri. Auk þess
hafði hún heimsótt barnastúkur í
nágrenninu. Þá heimsótti Jón
Hjartar, regluboði Stórstúkunn-
ar, flestar stúkur í umdæminu
og flutti erindi í skólum. Hann
stofnaði stúkuna „Höfðaborg“ nr.
267 á Skagaströnd og telur hún
nú 33 félaga. Æðsti templar stúk-
unnar er Kristinn Ásgrímsson. —
Þá var stofnuð barnastúkan
„Leiðarstjarnan" nr. 136 með 58
félögum á Dalvík að tilhlutun
framkvæmdanefndar. Gæzlumað
ur hennar er Freyja Antonsdótt-
ir. Stórgæzlumaður unglinga-
starfs, Þóra Jónsdóttir, hefur
einnig heimsótt allmargar barna-
stúkur í umdæminu á liðnum
vetri. Félagar í 6 undirstúkum
eru nú 706 og var fremur dauft
starf í flestum þeirra í vetur.
Bjarni Halldórsson, umdæmis-
gæzlumaður ungtemplara, gaf
skýrslu um störf barnastúknanna
í umdæminu. Eru nú starfandi í
umdæminu 13 barnastúkur mað
ig eru nöfn eyktanna, talið frá
miðnætti. Ótta kl. 3, rismál kl. 6,
dagmál kl. 9, hádegi kl. 12, mið-
mundi kl. 13.30 miðdagur kl. 14,
nón kl. 15, miðaftán kl. 18, mið-
nætti kl. 24. Þá er á skífunni
hnattstaða Akureyrar.
Það var Árni Jóhannsson, fyrr-
verandi formaður F. A., sem átti
tillöguna að uppsetningu slíkrar
útsýnisskífu, en Sigui'jón Rist
gerði teikningu af henni og fékk
hana gerða í Noregi.
Síðan skífan var sett upp, hefir
fjöldi fólks skoðað hana og
glöggvað sig á örnefnunum hér
nærlendis. Hefur þetta framtak
Ferðafélagsins verulega þýðingu
fyrir staðfræðikunnáttu bæjar-
manna og er auk þess skemmti-
leg dægradvöl fyrir ferðamenn.
samtals 1573 félögum og var starf
í mörgum þeirra mjög gott á síð-
astliðnum vetri.
í framkvæmdanefnd hlutu
kosningu:
U. Templar Eiríkur Sigurðsson,
— U. kanzlari Hannes J. Magn-
ússon. — U. Varatemplar Jónína
Steinþórsdóttir. — U. Ritari Jón
J. Þorsteinsson. — U. Gjaldkeri
Ólafur Daníelsson. — U. Gæzlu-
maður ungt. Bjarni Halldórsson.
— U. Gæzlumaður löggjafarstarfs
Jón Kristinsson. — U. fræðslum.
Kristján S. Sigurðsson. — U.
Kapellán Stefán Ág. Kristjáns-
son. — U. fregnr. Guðmundur
Mikaelsson. — Fyrrv. U. Templ-
ar Jóhann Þorvaldsson.
Mælt var með Brynleifi Tobi-
assyni sem umboðsmanni Stór-
templars. Fulltrúar á Stórstúku-
þing voru kosnir: Eiríkur Sig-
urðsson og Jón J. Þorsteinsson.
Á þinginu voru mjög fjörugar
umræður um framtíðarstarf
Reglunnar og eflingu bindindis-
starfsemi. Það vakti almenna
ánægju, að Stórstúkan gengst
fyrir námskeiði fyrir templara að
Jaðri í sumar. í umræðunum
kom fram áhugi fyrir norðlenzku
bindindismannamóti á næsta
sumri. Einnig var rætt um fjórð-
ungsmót ungtemplara. Á þinginu
ríkti mikill áhugi fyrir framgangi
Reglunnar og efling bindindis-
málsins.
Skátar á verði við
álftarhreiðrið!
í fyrrinótt vöktu skátar við
álftarhreiðrið við andapollinn til
þess að forða því, að rottur eyði-
legðu þau tvö egg, sem óskemmd
eru í hreiðrinu og álftin liggur á.
Hafa rotturnar þegar grandað
nokkrum eggjum. Munu þær
hafa grafið sér göng undir hreiðr-
ið og þannig komist að eggjunum.
Með þessari vörzlu hyggjast skát-
arnir tryggja það, að álftin geti
ungað út og er framtak þeirra
lofsvert.
Vísitalan nýja 105 stig
Nýja vísitalan var birt nú um
helgina og er 105 stig, miðað við
100 stig er gengisfellingarlögin
tóku gildi. í lögunum er svo
ákveðið, að kauþ skuli hækka eða
lækka ef vísitalan sýnir minnst 5
stiga breytingu í mánuði.
„Uppstigning“ sýnd
10 sinnum við ágæta
aðsókn
Á sunnudagskvöldið var síðasta
sýning Leinkfélags Akureyrar á
„Uppstigningu" eftir Sigurð Nor-
dal. Var þá lokið 10 sýningum á
leikritinu. Frumsýning var 29.
apríl. Leikurinn hefur hlotið
mjög góðar undirtektir og aðsókn.
Ráðgert hafði verið að hafa skóla
sýningar, að því er leikstjórinn,
Ágúst Kvaran, sagði blaðinu í
stuttu viðtali í gær, en vegna þess
hve áliðið er orðið og próf standa
yfir, var horfið frá því ráði að
þessu sinni. Hins vegar er ætlun-
in að hafa nokkrar sýningar á
leiknum í haust.
Minningarkeppni
Gunnars Hallgríms-
sonar
Minningarkeppni (golf) um
Gunnar Hallgrímss, hefst2. íhvíta
sunnu kl. 9 árdegis. Þátttakendur
mæti kl. 8,45. Keppnin er 72. holu
höggakeppni með forgjöf. Skorað
er á alla meðl. golfklúbbsins, er
það geta, að taka þátt í keppn-
inni, sem að þessu sinni hefst á
ártíð Gunnars, og heiðra með
því minningu hins fallna félaga.
U. M. S. E. K. A.
Dansleikur
■verður í Samkomuhúsinu að
Hrafnagili á annan livíta-
sunnudag kl. 9.
Hljömsveit leikur.
Aðgangur kr. 15.00.
Ferðaskrifstofa ríkisins efnir til
hópferðar í Þjóðleikhúsið um
hvítasunnuhelgina. Farið verður
héðan frá Akureyri lagardaginn
fyrir hvítasunnu 27. þ .m. kl. 1 e.
h. og haldið til Reykjavíkur.
Á sunnudaginn og mánudaginn
verður farið á Þingvöll og út á.
Keflavíkurflugvöll ef veður leyf-
ir. —
Á mánudagskvöldið verður „ís-
landsklukkan" eftir Halldór Kilj-
an Laxness sýnd, en enn er ekki
Hinar árlegu kappreiðar Hesta-
mannafélagsins Léttir fdru fram á
skeiðvelli félagsins við Eyja-
fjarðará sunnudaginn 21. maí kl.
2 e. h.
23 hestar voru skráðir til móts-
ins 5 í folahlaupi, 250 metra
sprettfæri. 10 í 300 metra sprett-
færi, 8 í 350 metra sprettfæri.
Margir þessara gæðinga hafa
ekki komið hér fram fyrr, aðrir
hafa getið sér hér góðan orð-
stír áður, svo sem Bóatýr, Þytur,
Neisti og fleiri.
Átta hestanna eru upprunnir í
Húnavatnssýslu, átta í Skaga-
fjarðarsýslu, sex í Eyjafjarðar-
sýslu og einn úr Borgarfjarðar-
sýslu. Einn mætti ekki til leiks.
Urslit urðu sem hér segir:
í 250 metra hlaupi sigruðu
Brúnn Stefáns Sigurðssonar og
Sörli Vilhelms Jensens á sama
tíma, 20,6 sek., og skiptu þeir I.
og II. verðlaunum á milli sín, Þór
fékk II. verðlaun, tími hans 21,1
sek.
í 350 metra hlaupi sigraði Logi
Helga Jónssonar á 25,2 sek. og
fékk H. verðlaun, náði ekki
áskildum hraða til I. verðlauna.
Ríkið innir af hendi
vangreitt framlag
til sjúkrahússins
Á sínum tíma notfærði þáv.
fjármálaráðherra, Jóhann Þ. Jós-
efsson, sér heimild Alþingis til
þess að skera niður fjárveitingar
skv. fjárlögum 1948, þ. á. m. til
sjúkrahúss Akureyrar, og nam
niðui’skurðurinn 100 þús. kr. til
sjúkrahússins ,eða 35% af fram-
lagi ríkisins skv. fjárlögum. Fjár-
málaráðherra sá, er við tók af
honum, Björn Ólafsson, fékkst
ekki til þess að greiða þessa upp-
hæð. Hinn 16. þ. m. íét núverandi
fjármálaráðherra, Eysteinn Jóns-
son, leiðrétta þetta og greiða
sjúkrahúsinu 100 þús. kr., og þar
með ljúka framlagi því fyrir 1948,
sem ríkinu bar að inna af hendi
skv. fjárlögum.
ákveðið, hvort einhver sýning
verður í Þjóðleikhúsinu á hvíta-
sunnudag.
Farið verður síðan heim á
þriðjudaginn, en ekki er fullá-
kveðið hvenær, sennilega um há-
degi.
Fargjald alla leiðina kr. 235.00.
Hér er um mjög ódýra fei'ð að
ræða. Heimsókn í Þjóðleikhúsið
er ógleymanleg, og því fé, sem
til þess fei', betur varið en til
flestra annarra skemmtana.
Stígandi Jóns Árnasonar hlaut
III. verðlaun. Gráni Kristjáns
Jónssonai' hlaut flokksverðlaun.
í 350 metra hlaupi sigraði
Þytur Jóhanns og Svavars Kon-
ráðssona á 27,5 sek., I. verðl.,
Hrani Stefáns Steinþórssonar
fékk II. verðlaun, tími hans var
27,8 sek., og III. verðlaun hlaut
Bóatýr Gunnbjörns Arnljótsson-
ar á 28,3 sek.
Veður var hið bezta og fjöldi
áhorfenda. Annars fóru kapp-
reiðarnar vel fram og völlurinn
var sæmilega góður, en þrátt
fyrir það var tími hestanna tæp-
ast eins góður og við hefði mátt
búast, eftir aðstöðu og áður feng-
inni reynslu.
Sækja þarf áburðar-
pantanir fyrir helgi
KEA hefur beðið blaðið að koma
þeim skilaboðum til bænda, að
þeir verði að hafa vitjað áburð-
arúthlutunar sinnar fyrir næstk.
helgi. Eftir þann tíma vei'ður
tekin upp ný úthlutun á því
magni, sem þá kann að verða eft-
ir. Með Fjallfossi nú eftir helg-
ina kom kalíið loksins og stend-
ur afhending þess nú yfir.
Norðanmenn ljúka
prófi við Sjómanna-
skóíann
Nýlega er lokið prófum við Sjó-
mannaskólann og Vélskólann í
Reykjavík. Meðal þeirra, sem út-
skrifuðust úr farmannadeild Sjó-
mannaskólans, var Ríkharð Jóns-
son, Lögbergsg. 3 hér í bæ, og
lauk hann hæstu prófi, aðaleink-
unn 7.47, sem er mjög há I. eink.
Ui' fiskimannadeildinni útskrif-
uðust m. a. Ámi M. Ingólfsson,
Hríseyjarg. 8, og Vilhelm Þor-
stémsson, Hrísey, báðir með I.
eink., en úr rafmagnsdeild norð-
anmennirnir Ásgrímur Tryggvas.,
í-afvirki, Laugabóli, S.-Þing., og
Invi Hjörleifss., rafvirki, Ak.,
báðir með góðri I. einkunn.
Áhugi ríkjandi fyrir norðlenzku
bindindismannamóti í sumar
Frá vorþingi Umdæmisstúkunnar
23 gæðingar reyndir á kappreiðum
„Léttis“ síðastliðinn sunnudag
Tími þeirra tæpast eins góður og vonir stóðu til