Dagur - 06.09.1950, Síða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 6. september 1950
Fréttabréf frá Skagaströnd:
Unnið við að setja upp nýju
hengibrúna á Blöndu
Steinker fyrir Ólafsfjarðarhöfn í smíðum
á Skagaströnd
Þingi stéítarsambands bænda
að Kirkjubæjarklaustri lokið
Næsta þing haldið að Hólum í Hjaltadal
Tíðarfar hefur verið frekar erf-
itt á Skagaströnd í sumar, svo
sem víða annars staðar. Heyskap-
ur hefur þó gengið sæmilega, og
hafa hey víða náðst inn óhrakin
Ógæftir hafa nokkrar hamlað sjó-
sókn trillubáta, en þeir hafa
gengið um tíu frá Höfðakaupstað
í sumar; hefur afli verið undir
meðallagi, og mestmegnis farið
i salt og lítils háttar til neyzlu
innan héraðs. Næg atvinna hefu'
verið í Höfðakaupstað þetta sum-
ar. Eru þar um sex ný einnai
hæðar hús í smíðum, auk þess
sem nokkur stærri hús eru ófull-
gerð. Að hafnargerð er talsvert
unnið, og hefur nú tekist að koma
steinkeri, sem keypt var frá
Frakklandi fyrir tveim árum á
sinn stað. En þar sem því hafði
verið sökkt til bráðabirgða, gróf
undan því, og brotnaði þá kerið,
svo að miklir örðugleikar voru
að koma því á flot aftur og koma
því á tilætlaðan stað, til fram-
lendingar á innsiglingar-
hafnargarðinum, en hann hefur
með þessu móti lengst um eina
60 metra. Hefur einnig verið unn-
ið að því að steypa plötu á kerið
og tryggja legu þess. Dýpkunar-
skipið Grettir vann og í sumar
Höfðakaupstað efni í nýju
í fjórar vikur að dýpkun hafnar-
innar. í júlí var skipað upp í
Blöndubrúna. Er það hengibrú,
smíðuð í Englandi. Er þegar
langt komið að reisa brúna, sem
verður hið mesta mannvirki og
mikil samgöngubót bæði innan
héraðs og milli héraða.
Steinker fyrir Ólafsfjörð.
Aðstaða til þess að steypa
steinker til hafnargarðar er all-
góð í Höfðakaupstað, enda hafa
þau verið talsvert notuð til hafn-
argerðar í Ólafsfirði. Verða lcer-
in sennilega fullgerð að vori og
þá dregin til Ólafsfjarðar.
Síldveiði í snurpunót hefur
engin verið í Iiúnaflóa á þessari
vertíð, og hefur síldarverksmiðj-
unni ekki borizt nein síld. Verka-
menn verksmiðjunnar háfa unn-
ið í sumar á vegum Nýbyggingar-
nefndar Höfðakaupstaðar að
lagningu skolpræsa og vatnsæða
i samræmi við framtíðarskipulag
staðarins.
Söltunarstöðvar ei-u þrjár í
Höfðakaupstað, og hefur þeim
borizt nokkur reknetaveiði, en
um tuttugu bátar víðsvegar að
af Norðurlandi og Vestfjörðum
hafa lagt upp reknetaveiði sína
í Höfðakaupstað. Einnig hefur
nokkuð af síldinni verið fryst í
tveim frystihúsum, og loks hefur
nokkru af síldinni verið ekið á
bílum til Sig'lufjarðar til verkun-
ar þar. Þykir mörgum það ein-
kennileg hagsýni, þar sem veið-
in hefur aldrei verið meiri en
svo, að hæglega mátti anna verk-
un hennar á staðnum.
Að vegalagningu út Skagann
að vestanverðu hefur lítilsháttar
verið unnið í sumar, og munar
litlu, að bílfært sé orðið út í
Hafnir, en fyrir utan Kálfsham-
arsvík er vegur að mestu ólagður
og ýmsar torfærur, sem ekki eru
færar nema jeppum.
Fjárstofn sem genginn var af
Vestfjörðum og Melrakkasléttu
haustið 1948 hefur reynst vel og
eru skepnuhöld góð, og sömuleið-
is spretta í görðum.
Um sl. Iwlgi höfðu Krossaness-
verksmiðjunni borizt 7321 fftál
sildar og 4369 mál ufsa. A vertið-
inni i fyrra fékli verksmiðjan 1S.750
mál sll'dar. Er peita pvi langsam-
lega Iclegasla sildarárið hjd verk-
smiðjunni, pvi að árið i fyrra var
laliara en nccstú ár par á undan.
Síðustu vikurnar hefir verksmiðj-
an fengið 4369 mál af ufsa.
iMIKIL BRÆÐSLA
í KROSSANESI
Þrátt fyrir þessar lágu tölur, liefir
mikið verið brætt í Krossanesi í
sumar. Togararnir hafa landað þar
um 13 þús. tonnum af karfa, ufsa
og öðrum fiski. Skiptist það þann-
ig: karfi 9294 tonn, ufsi og annar
fiskur 2614 tonn, bein 800 tonn.
Þar við bætist afli, sem togararnir
lönduðu í sl. viku. Kaklbakur kom
með 428 tonn eftir 4 daga veiðar,
og er það metafli. Var það allt stór-
ufsi. Auðun Auðunsson var skip-
stjóri í þesari lerð. Þá landaði Sval-
bakur 388 tonnum af ufsa. Fram að
síðustu löndun var aflaskiptingin
Síldveiði norðanlands hefur
verið lítil sem engin s. 1. þrjár
vikur, en lítilsháttar upsaveiði,
einkum austan til á veiðisvæðinu.
Um helgina fréttist til síldai- djúpt
af Langanesi, en ekki vitað enn,
hvernig úr rætist með hana.
Lítilsháttar reknetaveiði hefur
verið í Húnaflóa og afiast frá 10—
80 tunnur í lögn.
Frá Höfðakaupstað ganga um
tuttugu bátar frá ýmsum ver-
stöðvum norðanlands og vestan.
Kristiiin á Núpi
látinn
Hinn kunni vestfirzki bænda-
höfðingi, Kristinn Guðlaugs-
son á Núpi í Dýrafirði lézt í
Landsspítalanum í Reykjavík,
á mánudaginn, nær 82 ára að
aldri. Kristinn var eyfirzk-
ur að uppruna, fæddur að
Þröm í Garðsárdal.
Miðar hægt að upplýsa
Þorgeirsfjarðar-
málin?
Eftir því, sem blaðið hefur
frétt, mun miða hægt að
upplýsa Þorgeirsfjarðarmálin
svokölluðu, þ. e. ránið úr rúss-
neska skipinu, sem strandaði þar
fyrir nokkru.
Mun t. d. ekki upplýst enn,
hverjir hafa tekið vélarnar úr
nótabátunum og dýptarmælinn,
þrátt fyrir yfirheyrslur.
4660 tonn, Svalbakur 4337 tonn og
Jörundur 2909 tonn.
Síldarmagnið á Hjalt-
eyri og Dagverðareyri
meira en helmingi
minna en í fyrra
1 gar höfðu Hjalteyrarverksmiðj-
unni alls borizl um 22 pús. rnál af
sild og 15.600 mál af ufsa.
í fyrra fékk verksmiðjan 47 þús.
mál á vertíðinni.
Dagverðareyrarverksmiðjan hafði
í gær fengið 13.734 mál af síld og
9101 ntál af ufsa. í fyrra fékk verk-
smiðjan 36.500 mál af síld.
Er síldarmagnið hjá verksmiðjun-
um því meira en helmingi minna
en í fyrra. Nokkur skip, sem landað
hafa hjá þessum verksmiðjum, eru
hætt, eu önnur mhnu bíða fram
yl'ir norðaustan garðinn, sem gekk
liér yfir í gær, en hætta úr því, ef
Einnig ganga reknetabátar frá
Hólmayík, Djúpavík og Drang-
nesi. Það þykir í frásögur fær-
andi að nokkru af síldinni hefur
verið ekið á bílum frá Höfða-
kaupstað til Siglufjarðar, og það
enda þótt söltunarstöðvár og
frystihús á staðnum gætu hæg-
lega annað þeirri síld, sem þar
berst á land í ekki meiri veiði
en verið hefur. Er varla annað
hugsanlegt en síldin fari illa í
slíkum flutningUm, og að mikill
aukakostnaður falli á hana.
Stéttarsambandsþing bæntht,
sem haldið var í s. 1. viku að
Kirkjubæjarklaustri er nú lokiii.
Þingið sótti fjöldi bænda alls
staðar af landinu. Á þinginu voru
m. a. gerðar eftirfarandi sam-
þykktir, ályktanir og áskoranir:
Þingið samþykkti þá tillögu að
skora á ríkisstjórn og Alþingi að
fullnægja vélaþörf ræktunarsam-
barída á næsta ári. Enn fremur skor-
aði þingið á þesa aðila að láta véla-
sjóði, S. í. S. og öðrum innflytjend-
um nægan gjaldeyri til varahluta-
kaupa og taldi þingið enn brýnni
þörf á nægum varahlutum en inn-
flutningi nýrra véla, og taldi sjálf-
sagt að nota Marshallfé til þessa.
Skorað var á fjárhagsráS og ríkis-
stjórn að nota liinn takmarkaða
gjaldeyri, sem nota á til kaupa á
heimilisdráttarvélum þannig, að
scm flestar og beztar vélar fáist tii
landsins.
Fundurinn skoraði á búnaðarfé-
lagið að auka fræðslu á meðferð
véla og verkfæra, t. d. með umferða-
kennslu.
Marshallfé til
Jandbúnaðarins.
Skorað var á búnaðarþing og rík-
isstjórn að beita sér fyrir því, að
einni milljón dollara af Marshallfé
verði varið til uppbyggingar í sveit-
um á næstu þremur árum. Féð verði
látið í urnsjá Búnaðarbankans og
notist til innkaupa á girðingarefni
og byggingarefni til ibúðarhúsa,
votheysgryfja og einkarafstöðva.
Þetta er nauðsynleg viðbót við fé
það, sem Búnaðarbankinn hefir yfir
að ráða
Skorað var á búnaðarþing að
breyta lögum um alþýðutryggingar
þannig, að sjúkratryggingar verði
á vegum sveitarfélaganna eins og
áður, en að öllum sveitarfélögrím
verði gert að skyldu að stofna
sjúkrasamlög.
Talið var réttmætt, að allir, sem
eru slysatryggðir, greiði sjálfir til-
skilið lágmarksiðgjald, en að at-
vinnuveitandi greiði það, sem þar
er fram yfir.
Fundurinn skoraði á Al])ingi að
breyta 109. grein laga, um að sveit-
arfélögum sé ekki gert að skyldu
að greiða iðgjöld fyrir aðra en þá,
sem cru á sveitarframfæri.
Rafmagnsmál sveitanna.
Fundurinn samjjykkti áskorun til
Alþingis og ríkisstjórnar um að
beita sér engu að síður fyrir bygg-
ingu rafstöðva einstakra héraða en
byggingu hinna stóru rafstöðva, er
nú er ákveðið að reisa, og telur
fundurinn það réttlætismál, að raf-
magnið sé ekki hærra í sveitum en
kaupstöðum.
Fundurinn harmaði það, að ekki
hafi náðzt samkomulag milli útgerð-
armanna og sjómanna um kaup og
kjör og benti á það, að jjjóðin hefði
beðið mikið tjón við stöðvun togára
llotans, og m. a. landbúnaðurinn,
sem liefði tekið á sig byrði vegna
gengislækkunarinnar, sem sett hefði
verið Jyrst og fremst vegna sjávarút-
vegsins. Taldi fundurinn ]>að höf-
uðnauðsyn, að sá skilningur sé ríkj-
andi með útgerðarmönnum og sjó-
mönnum og ríkisstjórn, að skipin
séu rnestan hluta ársins að fiskveið-
um.
Búnaðarmálastjóri ávarpaði fund-
, armenn í fundarlok og Jrakkaði
Imönnum lundarsókn og fundarsetu.
Formaður Stéttarsambands bænda,
Sverrir Gíslason, lýsti yfir því, að
næsta þing Sambandsins skyldi
haldið á Hólum.
I
Bílstjórar vilja aukinn
hjólbarðainnflutning
Á fundi í Bílstjórafléagi Akur-
eyrar 28. f. m., var eftirfarandi
ályktun samþykkt með tilliti til
skortsins á hjólbörðum, sem nú
er í landinu:
„Fundur í Bílstjórafélagi Ak-
ureyrar, haldinn mánudaginn 22.
ág. 1950, leyfir sér að skora á
háttvirta ríkisstjórn íslands, að
hún hlutist til um við gjaldeyris-
og innflutningsnefnd, að veitt
verði nú þegar gjaldeyris- og
innflutningsleyfi fyrir hjólbörðum
handa atvinnubifreiðastjórum.
Vill fundui'inn í þessu sambandi
benda á, að nú þegar eru hjól-
barðavandræðin orðin svo mikil,
að atvinnubifreiðastjórar eru
farnir að leggja bifreiðum sínum
vegna hjólbarðavöntunar.
Telur fundurinn, að hér þurfi
skjótrar úrlausnar við, ef ekki
á að koma til frekari vandræða
hjá atvinnubifreiðastjórum.
Væntir því Bílstjórafélag Ak-
ureyrar þess, að hæstvirt ríkis-
stjórn verði við áskorun þessari
og stuðli þar með að því, að lag-
færing fáist á þessum málum hið
fyrsta."
Knattspyrnumenn frá
„Val“ væntanlegir
hingað
Knattspyrnuflokkur frá „Val“ í
Reykjavík, II. flokkur, er væntan-
legur liingað næstkómandi föstu-
dag, og mun flokkurinn keppa við
knattspyrnufélögin hér um næstu
helgi.
Vestur-íslenzkir gestir
heiðraðir
Kaffisamsæti var hinum gé)ð-
kunnu Vestur-Islendingum, frú
Maríu og dr. Sveini E. Björnssyni,
haldið að Gildaskála KEA sl. laug-
ardagskvöld. — Sátu ])að um 60
manns, ættingjar og vinir Jteirra
hjóna og fleiri bæjarbúar. Gekkst
Austfirðingafélagið á Akureyri fyrir
hófi Jtessu, en hjónin eru bæði aust-
firzkra ætta. Formaður Austfirð-
ingafélagsins, Björgvin Guðmunds-
son tónskáld, stjórnaði hófinu, eu
fyrir minni heiðursgestanna mæltu
sr. Benjamín Kristjánsson og frét
Halldéira Bjarnadóttir. Einnig té>ku
til máls Jón Sveinsson skattdómari,
sr. I’étur Sigurgeirsson, frk. Þura
Árnadétttir frá Garði og Guðm. Karl
Pétursson, yfirlæknir. Helgi Valtýs-
son rithöfundur flutti frumort 1 jóð,
en hciðursgestirnir þökkuðu með
ræðum. A milli ræðna voru sungin
ættjarðarl jóð. Eftir að staðið var
upp lrá borðum, ræddu gestirnir
við ættingja sína og vini, en sumt
skvldmenna sáu ]>au hjónin þarna
í fyrsta sinn.
Aðeins 7000 mál síldar í Iírossanesi
En 13 þúsund tonn af öðrum fiski úr togurunum
þannig milli togaranna: Kaldbakur | veiði glæðist ekki.
Síld íiuíl á bílum frá Skagaströnd
lil Siglufjarðar!
Nær engin síldveiði í herpinót í þrjár vikur