Dagur - 28.09.1950, Qupperneq 1
Dagur
Dagur kostar aðeins kr. 10.00
til áramóta.
XXXni. árg.
/Vkureyri, fimmtudaginn 28. september 1950
42. tbl.
Rússinn í Þorgeirsfirði
Myndin sýnir flakið af rússneska skipinu Júpíter, sem strandaði í
Þorgeirsfirði í sumar. Skipið var þrísigld skonnorta. Tvö siglutré
voru brotin, er myndin var tekin, skömmu eftir strandið. Skipið
liggur enn í Þorgeirsfirði og hefur ekki heyrzt að nein tilraun
verði gerð til að bjarga bví.
Áburðarverksmiðjumálinu hefur
þokað verulega áleiðis með
sendiför Vilhjáfms Þór
Málið verður rætt á fiilltrúafundi í París
í næsta mánuði
Vilhjálmur Þór forstjóri kom
heim úr för þeirri, er hann fór á
vegum ríkisstjórnarinnar vegna
áburðarverksmiðjumálsins, sl.
sunnudag og hefur hann þegar
lagt skýrslu um för sína fyrir
ríkisstjómina.
Hefur iandbúnaðarráðherra
látið svo ummælt, að málinu hafi
þokað verulega ' áleiðis fyrir
sendiför hans, en ekki liggja
fyrir aðrar upplýsingar um
framgang málsins. Eins og kunn-
ugt er hefur fsland sótt um
Marshallfé til að byggja áburðar-
verksmiðju hér, með þeim rök-
stuðningi, að slík verksmiðja
mundi stórvægilegur liður efna-
hagslegrar endurreisnar hér og
mundi tryggja afkomu atvinnu-
veganna stórlega umfram það,
éem nú er.
Mun Vilhjálmur Þór hafa rætt
Bridgefélagið byrjar
starf
Bridgefélag Akureyrar er nú
að hefja vetrarstarfsemi sína.
Mun félagið halda fundi á þriðju-
dagskvöldum í vetur, í Gilda-
skála KEA, a. m. k. fyrst um
sinn. Vetrarstarfsemin hefst með
tvímenningskeppni. Nú eru 70
meðlimir í félaginu. Þeir, sem
hafa óhuga fyrir að taka þátt í
vetrarstarfseminni, þurfa r.j snúa
sér til félagsstjórnarinnar sem
fyrst.
málið við forvígismenn Mars-
hallstofnunarinnar í París og
kynnt þeim sjónarmið íslend-
inga. — Mál þetta mun verða
tekið fyrir á fulltrúafundi Mars-
halllandanna, sem haldinn verð-
ur í París í næsta mánuði, en sá
fundur hefur ráðgefandi vald.
Urskurðarvald um fjái-veiting-
una er í höndum Marshallstofn-
unarinnar í París og endanlega
hjá Marshallstofnuninni í Banda-
ríkjunum.
Bæjarsfjórn Veslmannaeyja boðar fil
nýrrar kaupstaðaráðstefnu
Haírannsóknaskip
flytja þátttakendur til
þings hafrannsókna-
ráðsins í Khöfn
Kaupmannahöfn í sept.
Hinn 2. okt. næstk. verður þing
alþj óðahafrannsóknarráðsins sett
í Christiansborg. Þing þetta mun
standa í viku og sækja það marg-
ir útlendingar, og munu sumir
koma á hafrannsóknarskipum til
Kaupmannahafnar. — Þannig
senda Norðmenn hið nýja rann-
sóknarskip G. O. Sars (sem var
m. a. við ísland í sumar). Eng-
lendingar senda eftirlits- og haf-
rannsóknarskipin „Welcome" og
„Cygnet“, og Frakkar senda eft-
irlitsskipið „Ailette". Allur þessi
floti mun liggja við Löngulínu, er
þingið hefst. Dr. Harald Blegvad,
aðalritari hafrannsóknarráðsins,
hefur boðið öllum þáttakendum
í heimsókn um borð í danska
rannsóknarskipið „Galathea“,
sem innan tíðar byrjar tveggja
ára ferð kringum hnöttinn til
þess að kanna hafdjúpin og lífið
þar. — Holm.
Gunnar Huseby
og fleiri íþróttagarpar
keppa hér um helgina
Ef veður leyfir munu íþrótta-
garparnir Gunnar Huseby,
Evrópumeistari í kúluvarpi,
og spretthlaupararnir Pétur
Einarsson og Guðmundur
Lárusson, koma liingað um
helgina á vegum K. A., og
keppa við bæjarmenn hér um
helgina. Verður nánari til-
högun auglýst á götunum.
Snæfell" flyfur batafisk á
Þýzkalandsmarkað
Fyrsta salan þar á þessu hausti
Útgerðarfélag KEA er um
þessar mundir að láta skip sitt,
m.s. Snæfell, hlaða fisk í ver-
stöðvum hér við Eyjafjörð og í
Húsavík til flutnings til Þýzka-
lands.
Mun skipið leggja af stað með
fullfermi á morgun. Verður þetta
fyrsta salan á Þýzkalandsmark-
aðinum nú á þessu hausti,- Hef-
ur markaðurinn verið góður að
undanförnu og má gera ráð fyrir
að fiskurinn seljist vel ef engin
óhöpp koma fyrir.
Tregur afli nyrðra.
Það eru aðallega trillubátar,
sem stunda fiskveiðar hér nyrðra
um þessar mundir og hefur afli
verið heldur treghr. Hefur reynst
allerfitt að fá farm í skipið. Tak-
ist þessi tilraun vel mun vænt-
anlega verða haldið áfram að
sigla á Þýzkalandsmarkað með
fisk héðan. Ætti slík afsetning
fisksins að örva útgerðina og
verða til þess að meira kapp
verði lagt á fiskveiðarnar í ýms-
um verstöðvum hér um slóðir en
verið hefur síðan síldarvertíð
lauk.
Umræðuefni verða hagsmunamál kaupstaðanna
úti á landi og forréttindastaða Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar í þjóðfélaginu
Bæjarstjóm Vestmannaeyja hefur ákveðið að boða til nýrrar kaup-
staðarráðstefnu til þess að ræða fjárhagsvandamál kaupstaðanna
utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar og aðstöðu þeirra í þjóðfélag-
laginu og gagnvart ríkisvaldinu, nefndunum og ráðunum. Vilja
Vestmannaeyingar að ráðstefnan verði haldin þar dagana 21.—22.
október næstkomandi.
Bæjarstjórn Akureyrar barst
bréf um þetta efni frá bæjarstjór-
anum í Vestmannaeyjum s. 1.
þriðjudag og segir þar svo:
„TiIIaga um boðun ráðstefnu
Á fundi bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja 15. sept. s. 1. var eft-
irfarandi tillaga samþykkt: Bæj-
arstjórn Vestmannaeyja sam-
þykkir að beita sér fyrir því, að
bæjarfélög utan Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar efni til sameigin-
legrar ráðstefnu um hagsmuna-
mál sín og verði ráðstefna þessi
haldin í Vestmannaeyjum í n. k.
októbermánuði. Bæjarstjóra er
falið að leita eftir þátttöku við-
komandi bæjarfélaga í ráðstefnu
þessari þar sem mæti 2 fulltrúar
með atkvæðisrétti frá hverju
bæjarfélagi, auk áheyrnarfulltrúa
eftir því, sem viðkomandi kunna
að óska.“
Greinargerð — sameiginleg
hagsmunamál
í greinargerð fyrir tillögunni,
segir bæjarstjórinn í Vestmanna-
eyjum: „Bæjarfulltrúum er að
verða það æ ljósara, að vegna
vaxandi f járhagsörðugleika vegna
dýrtíðar og jafnvel atvinnuleys-
is, er nauðsynlegt fyrir bæjar-
félögin utan Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar að standa sem fast-
ast saman í hagsmunabaráttu
sinni, bæði atvinnulega og um
réttindakröfur sínar til ríkis-
stjórnar, ráða hennar og nefnda.
Oll eiga þessi bæjarfélög afkomil
sína undir gengi sjávarútvegsins
að meira eða minna leyti. Slík
samstaða ætti að verða til þess
að hægara ætti að verða að ná
samkomulagi um hin ýmsu mál.“
Sérstaða Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar
Enn segir í greinargerðinni:
„Reykjavík og Hafnarfjörður
hafa sérstöðu móti öðrum kaup-
stöðum landsins vegna þess, að
flestir þingmenn þjóðarinnar eru
borgarar þessara bæja. Þar er
ríkisstjórnin, aðalbankarnir og
allar nefndirnar og ráðin, sem
ekki er hægt að komast fótmál
fyrir þó að menn fegnir vildu.
Oll aðstaða forustumanna í fyrr-
nefndum bæjarfélögum er mun
betri til að vinna að framgangi
ýmissa mála ef til nefnda og ráða
þarf að sækja. Fer enda oft sam-
anað sami maður gegnir stöðu
bæjarfulltrúa og jafnvel ráð-
herra.“
Ráðstefnan 21.—22. október.
í lok bréfsins segir: Vér vænt-
um þess fastlega, að þér sjáið
yður fært að senda fulltrúa á
ráðstefnu þessa, sem verður, ef
þátttaka fæst, dagana 21.—22.
október næstk. —
Líklegt að undirtekir verði góðar.
Mál þetta hafði ekki borið á
góma í bæjarstjórn Akureyrar í
gær, enda ekki haldinn bæjar-
stjórnarfundur í þessari viku.
En líklegt má telja að erindi
þetta fái góðar undirtektir þar,
svo og hjá öðrum bæjarstjómum
landsins. Bæjarfélögin eiga
mörg hagsmunamál sameiginleg
og eiga öll undir högg að sækja
þarsem ei/ r íkisvaldit jog'af sprengi
þess, hið leiða nefnda- og ráða-
fargan. Er þess að vænta, að
bæjarfulltrúarnir hér telji það
hagsmunamál fyrir Akureyri að
eiga aðild að þessum samtökum.
Ráðgert að byggja
íbúðarhús í sambandi
við vinnustofurnar
í Kristnesi
Berklavarnadagurinn er á
sunnudaginn og verða þá seld
merki og blöð hvarvetna um
landið til ágóða fyrir starfsemi S.
í. B. S. Rennur allur ágóði af
deginum til starfseminnar að
Reykjalundi og til starfrækslu
vinnustofanna að Kristnesi. Er
nú ráðgert að reisa þrjú íbúðar-
hús þar í sambandi við vinnu-
stofurnar. Þá stendur fyrir
dyrum að byggja vinnuskála að
Reykjalundi í stað herskálanna,
sem notaðir hafa verið og eru nú
að verða ónothæfir.