Dagur - 28.09.1950, Side 6
6
D A G U R
Fimmtudaginn 28. sept. 1950
Viðburðarríkur dagur
Saga eftir Helen Howe.
10. DAGUR.
„Eg verð að fara núna, Mona.
Eg þarf að taka á móti vinkonu
minni á járnbrautarstöðinni. Hún
er með veikt barn og ég get ekki
látið hana bíða eftir mér.“
„Er hún að heiman frá þér?“
„Já, Clara Hedman er elzta
og bezta vinkona mín.“
„Jæja, þá það. Þá er ekkert við
því að gera, fyrst þú vilt heldur
rifja upp gamlar minningar með
henni heldur en hafa ofan af
fyrir mér hér.“
„Það þýðir ekki að deila um
það. Eg verð að fara.“
„En þú getur þá borðað með
mér um hádegi?“
„Eg get það heldur ekki. Er
þegar búinn að taka matarboði.
Eg hef lofað að mæta þar og get
ekki brugðizt því loforði. Frú van
Eyck verður þar og býst við
mér.“
„Mér finnst dýrmætum tíma
til lítils eytt, að vera með henni.“
Það var sjálfsbjargarhvötin, sem
kom Faith til þess að segja: „Þú
hefur verið mjö'g hjálpleg, Mona,
og mér líður betur núna, eftir
að vera búin að tala við þig.“
„Sýndu þá að þú meinir það.
Komið þið Eric bæði til Sout-
hamton þann fimmta til að tala
við Kóvacovu.“
„Þá það. Við skulum koma.
Það er vingjarnlegt af þér að
muna eftir okkur.“
„Ekki né'itt, góða mín. Eg
mundi áreiðanlega ekki bjóða
ykkur ef ég hefði ekki ánægju
af því.“
Faith létti, er samtalinu var
lokið og hún var komin út á göt-
una. Hún þurfti ekki að bíða
lengi á járnbráutarstöðinni. Inni
í mannfjöldanum, sem streymdi
út úr lestinni, sá hún bregða fyr-
ir rauðum hárlokk. Þarna var
Clara. Faith létti. Það var gam-
an og hressandi að sjá góðan og
tryggan vin á slíkri stund. Faith
kallaði og veifaði, síðan féllust
þær í faðma Og svo hlógu þær
og þrýstu hendur hvor annarrar.
„Þakka þér fyrir, þau erU bæði
frísk. Fay hefur stækkað öll ó-
sköp, hún nær- mér í öxl.“ •
„Þú segir ékki satt?“
„Og hvernig líður Earl?“
„Ágætlega, þakka þér fyrir.
Hann héfur meira að gera en
hann hefur gott af, það er allt
og sumt.“
„Og þú ert auðvitað í kafi í
alls konar félags- og góðgerðar-
starfsemi eins og fyrri daginn?“
„Eg veit ekki hvað ségja skal,
en sitt af hverju í þá áttina lætur
maður til sín taka.“
„Hvernig ferðu að því, Clara,
hvemig hefurðu tíma til þess?“
„Það er ekkert, ekki meira en
svo, að ég gæti gert það allt með
annarri hendinni."
„Mér finnst eg Vera ódugleg
þegar eg heyri þig segja frá
þessu. En segðu rriér nú frá
Sonny. Eg vona....“
Áhyggjusvipur kom á andlit
Clöru. „Æi, það er svo. óskemmti-
legt, við skulum heldur fresta að
tala urn það. Mig langar svo til að
spjalla um skemmtilega hluti,
þótt ekki verði nema aðeins þessa
stuttu stund. Þú sagðir mér frá
því í bréfi að þið ætluðuð að
flytja í sumarhúsið upp með ánni.
Blessuð, segðu mér meira um
það.“
„Það er nú ekkert stórkost-
legt. Það bezta við húsið er, að
við höfum þar gestaherbergi, svo
að þú getur komið og verið hjá
rriér, Og svo er útsýnið dásam
legt.“
Skyldi hún taka eftir því, að
eg er róleg, hugsaði Faith. Setjum
svo, að ég segði henni allan sann-
leikann. Mér er alveg sama um
þetta Sumarhús. Eric á barn með
annarri konu. Hann hefur eyði-
lagt lífshamingju míná. En hún
sagði ekkert af þessu, heldur
hélt áfram í sama dúr: „Hverriig
gengur allt heima í gamla bæri-
um?“
„Allt sinn vanagang. Þú hefur
frétt að Ida Riggs er látin.“
„Nei, það vissi eg ekki. Hver
Þær voru nærri því búnar að i sér þá um bókasafnið? Það getur
gleyma drengnum í öllum ákaf-
anum.
En nú mundi Faith allt í einu
eftir því að Clara var ekki ein á
ferð . og hún kallaði: „Komdu,
Sonny, og kysstu Faith frænku
á kirinina. Það er reglulega gam-
ari að sjá þig aftur.“
Clara lagði hendina á öxl
drengsiris og sagði: „Soririy fer
á bíó meðan við sþjöllum saman.“
Þær komu drerignurii í bíóið
og héldu síðan á veitirigahúsið
við Oyster Bar og tóku' sér sæti
þar.: Jí\ ■
Clara grandskoðaði vinkonu
sína. „Þú lítur alltaf út eins og
þú sért 16 ára, -Faith,“ sagði hún.
„Eg gæti verið amma þín! Og þú
gætir hæglega verið systir Fays.
Hvernig hefur Fay það, og Eric?“
enginn komið í hennar stað þar.“
„Þú hefur þá heldur ekki heyrt
um bókasafnið? Það er verið að
rífa það og byggja nýtt, stórfeng-
legt glerhús.“
„Æi, þáð er ekki skemmtilégt.
Gamla safnið var sVo dásámlegt,
sérst'aklega barnadeildiri þar, það
Var eitthvað leyndardómsfullt
við það. Manstu þegar mamma
fylgdi okkar stundum þangað?
Manstu, manstu.... “
Og þá voru vinkonurnar komn-
ar á þá leið, sem þær hlutu 'að
fara, manstu, manstu, allar end
urminningarnar að heiman, löngu
löngu liðnir atburðir.
Faith hafði þekkt Clöru síðan
hún mundi eftir sér. Þær höfðu
verið óaðskiljanlegar.
Framh.
N ý k o m i ð!
Skrifborð (3 gerðir)
Stofuskápar, með skrif-
borði
Skatthol með skrifborði
Sófaborð (ljós og dcikk.
eik)
Borðstofuborð
Borðstofustólar
Bókahillur
o. fl.
Bólstrað húsgögn h.f.
Hafnarstrœti SS
Sími 1491
Stórt herbergi
með sérinngangi til leigu.
Innbyggður fataskápur
fylgir.
Afgr. vísar á.
Húsgögn
Ottóman og 3 stoppaðir
stólar til sölu.
Afgr. vísár á.
Tvær kýr
til Sölu, snemmbær og
vorbær.
Frimann,
Dvergstöðum
Atvinna
Blaðið vantar mann til að
bera Dag á Ytri-brekkuna.
Upplýsingar á afgreiðsl-
unm.
74” beiður, nýkominn.
Verzl. EyjafjörðiW* h.f.
GEFJUNAR
Ullardúkar
Kambgarnsband
Ullarteppi
Lopi,
margar tegundir
Fást í öllum kaupfélögum
landsins og víðar —
Gefjunar-vörur hafa löng-
um hlotið viðurkenningu
allra landsmanna fyrir
smekklegt útlit, gæði og
lágt verð. —
Ullarverksmiðjan
GEFJUN
AKUREYRI
BILL
Chevrolet-vörubifreið, í
góðu lagi, til sölu. Ódýr.
Afgr. vísar á.
Herbergi og fæði
handa 16 ára pilti óskast
frá næstu mánaðamótum.
Upplýsingár gefur
Elinór Þorleifsson.
Sími 1173.
Unglingspilt
vantar til afgreiðslustarfa
frá 1. október.
HAFNARBÚÐIN
Sírni 1094.
Kaðall
frá Yz’’ til 2”, fæst lijá
Verzl. Eyjafjörður h.f.
nýkomið.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Herbergi
ti leigu r Norðurgötu 51,
efri hæð. Sírni 1671.
til leigu.
Afgr. vísár á.
Stúlku
vantar mig allari eða liálfan
daginn.
Sigríður Guðmundsdóttir
Skólastíg 7. Sími 1273.
Skagfirzk fræði
tvær bækur
Drangey og Bæja- og
búendatal
komnar út. Vitjist til
Þormóðs Svéinssonar.
Saumanámskeið
c í ytri fatnaði barriá og ung-
linga liefjast 9. október.
Ingibjörg Þorvaldsdóttir,
Gilsbakkaveg 5.
Silfurskeið tapaðist
síðastliðna viku, merkt K.
O. S. Skilist á lögrégluvarð-
stofuna gegn fundárlauri
um.
sem ný, meðalstærð, til
sölu.
JÓN M. JÓNSSON,
Saumastofú Kaupfélags
verkamanna.
Atvinna.
Get útvegað stúlku og vetr-
armann á gott sevitaheimili
í vetur.
Pdll G. Rist,
Litla-Hóli.
ORGEL
óskást (þarf ekki að verá í
fullkomnu staridi). — Vin-
samlégast tilkynnist í síiria
1793.
Reglusamur maður
getur fengið fæði nú þegar.
Afgr. vísar á.
Merhergi
óskast til leigu, sem næst
Miðbænum (má vera lítið).
Tilboðum sé skilað á afgr.
blaðsins fyrir laugardag 29.
Jr. m.
Kaupum
KRÆKIBER
Akureyrar Apótek.
Kaupum hæzta verði
tómar flöskur,
flesta stærðir
Ennfremur SULTUGLÖS.
Ö1 og gösdrykkir h.f.
Simi 1337. Stskjum heim.
Eftirtaldar
Kryddvörur
fyrirliggjandi:
Pipar
Engifer
Karry
Allrahanda
Múskat
Negull, h'eíli og st.
Kanell, heill og st.
Saltpétur
Rúllupylsukrydd.
Nýlenduvörudeildin
og útibú.