Dagur - 28.09.1950, Blaðsíða 8
8
Daguk
Fimmtudaginn 28. sept. 1950
Vísindamenn teija síldarstofn-
inn í hrörnun
Vandamál þetta verður rætt á þingi alþjóða-
hafrannsóknarráðsins í Kaupmannahöfn
í næsta mánuði
Endurhygging leikhúss bæjarins
er hafin fyrir nokkru
í ljós kom, að gólf samkomuhússins var orðið
mjög étraust
Kaupmannahöfn 21. sept.:
Það hefur lengi verið kunnugt,
að fiskistofninn í Vesturhafinu,
Norðursjónum og Norður-Atl-
antshafinu er í verulegri hrörn-
un, en í þessu sambandi hefur
einkum verið rætt um flatfisk og
þorsk. Nú er spurt um, hvort
síldarstofnuninn sé einnig í
hættu, og mun þetta verða eitt
aðalviðfangsefni þings alþjóða-
hafrannsóknarráðsins, sem hefst
hér í borginni hinn 2. október n.
k. Á hafrannsóknarþinginu í Ed-
inborg á sl. ári var því slegið
föstu, að síldarstofninn væri á
hættusvæðinu, með því að vísa
indámenn þykjast hafa komizt að
raun um, að stofninn fari minnk-
andi ár frá ári. Þegar þess er
gætt, að síldin er einn langþýð-
ingarmesti fiskur fiskveiðimanna
Norður-Evrópuþjóða, er auð-
skilið, að þetta mál verður rætt
af alvöru á fundum fiskifræð-
inga og hafrannsóknarmanna.
Merkingar ræddar.
Líklegt er, að fulltrúar á þingi
þessu ræði um að senda sameig-
Þessa dagana stendur yfir hin
árlega firmakeppni Golfklúbbs
Akureyrar. Keppni þessari er
hagað þannig, að fyrirtæki þau,
sem þátt taka í henni, greiða kr.
200.00 þátttökugjald, hvert um
sig, og síðan keppir einn með-
limur klúbbsins fyrir hvert fyr-
irtæki, og ræður hlutkesti hver
keppir fyrir hvern.
Keppnin er útsláttarkeppni,
þannig, að hvert fyrirtæki, sem
tapar leik, fellur úr, þangað til
eitt stendur eftir, og verður það
sigurvegari, og hlýtur í verðlaun
mjög stóx-an og vandaðan silfui'-
bikar, sem er farandbikar, ásamt
litlum bikar til fullrar eignar.
Að Jsjálfsögðu er þátttaka í
þessari keppni — með tilheyrandi
þátttökugjaldi — einungis gerð
til þess að styrkja klúbbinn fjár-
hagslega, en fjárhagur hans er
mjög þröngur, vegna landkaupa
og kostnaðar við byggingu golf-
vallarins, og þakkar klúbburinn
fyrirtækjum þeim, sem þátt taka
i keppninni, mjög vel þennan
stuðning, og skoi'ar á alla vel-
unnara golfíþróttarinnar að láta
fyrirtækin njóta þess.
Þátttakendur firmakeppninnar
eru að þessu sinni 32 og eru það
inlega ályktun til ríkisstjórna
viðkomandi landa, þar sem rætt
vei-ður um ráðstafanir til þess að
vernda síldarstofninn. Á þessu
ári hafa farið fram víðtækar síld-
armei-kingar og vei-ður einnig
rætt um árangur þeii'ra. Vel má
þó svo fax-a, að rannsóknir þessar
halda áfram a. m. k. ár enn, áður
en farið verður í alvöru að ræða
um eitt eða annað foxrn síldar-
friðunar. — Holm.
Árbók landbúnaðarins
1950 komin út; - stór-
fróðlegt rit.
Árbók landbúnaðarins 1950,
útgefandi Framleiðsluráð land-
búnaðarins, ritstjóri Arnór Sig-
urjónsson, er komin út og hingað
norður og fæst í Bókabúð Akur-
eyrar. Bókin er 260 bls. að stærð
og kostar aðeins 30 krónur. —
Margir af forvígismönnum land-
búnaðarins rita athyglisverðar
greinar í bókina.
þessi fyrirtæki:
Bókabúð Akureyrar, Bókav.
Björns Árnasonar, Saumastofa
Gefjunnar, Dúkaverksmiðjan h.
f., Efnagerðin Flóra, Áfengis-
verzlun ríkisins, Efnagerð Akur-
eyrar h. f., Almennar tryggingar
h. f., Sjóvátryggingarfélag íslands
h. f., Kolaverzlun Ragnars Ólafs-
sonar, Kaupfélag Eyfirðinga,
Klæðagerð Amaro h. f., Tómas
Steingrímsson & Co. h. f., Flug-
félag íslands h. f., Brauðgerð K.
E. A., Brauðgerð Kr. Jónssonar,
Vélabókbandið h. f., Bifreiða-
verkstæðið Þórshamar h. f.,
Skipasmíðastöð K. E. A., Ullar-
verksmiðjan Gefjun, Skinna-
verksmiðjan Iðunn, Kjötbúð K.
E. A., Nýja Bíó h. f., Skjaldborg-
arbíó, Þvottahúsin, Súkkulaði-
verksmiðjan Linda h. f., Prent-
verk Odds Björnssonar h. f.,
Kaffibrennsla Akureyrar h. . f.,
Olíuverzlun íslands h. f., Hluta-
félagið Shell á íslandi.
*
Þar eð keppninni er enn svo
skammt á veg komið, er ekki
ennþá ástæða til að birta nein
úrslit, en í næsta blaði mun verða
hægt að greina frá gangi keppn-
innar, og ef til vill birta úrslit
hennar.
Tító fylgjandi
stefnu UN
Dönsk blöð henna frá því nú fyr-
ir skemmstu, að Tító marskálkur
hafi boðið norskum og dönskum
þátttakendum á alþjóða skák-
mótinu í Dubrovnik að heim-
sækja sig í Belgrad. Ræddi hann
þar við þá góða stund og var vel
heima í stjórnmálum Norður-
landa, að því er skákmaðurinn
Hartvig Nielsen hermir. Sagðl
hann Dönum fyrstur úrslit þing-
kosninganna dönsku! Tító sagðist
vera fylgjandi stefnu Sameinuðu
þjóðanna í Kóreustríðinu. í hópi
skákmannanna var Vestöl hinn
norski, er beztan orðstír gat sér
á Norðurlandamótinu í Reykja-
vík í sumar.
Ágætir píanóleikar
Rögnvalds
Sigurjónssonar
Rögnvaldur Sigurjónsson hafði
píanótónleika í Nýja-Bíó sl.
mánudagskvöld. Lék hann þar
verk eftir Mendelsohn, Beethov-
en, Debussy, Chopin og Lizst.—
Var leik hans ágætlega tekið,
enda var hann glæsilegur, tækni
á háu stigi, ásláttur mýkri og
fallegri en stundum áður og
túlkun heillandi á ýmsan hátt.
Hljóðfærið er hins vegar auð-
heyrilega mjög lélegt. Þessir
hljómleikar voru eftirminnilegur
tónlistarviðburður í tilbreyting-
arleysinu hér.
Norðmenn selja fisk-
afurðir til Abyssiníu
Norðmenn hafa nýlega selt
nokkuð af niðursoðnum fiskaf-
urðum til Abyssiníu, segir í nýju
hefti af Fishing News, og mun
þetta í fyrsta skipti, sem Abyss-
iníumenn kaupa fiskafurðir frá
Norðurlöndum. Þá liafa Norð-
menn einnig nýlega selt allmikið
af rækjum í dósum til belgísku
Kongó.
Landhelgisdeila Breta og Norð-
manna er óútkljáð fyríf alþjóða-
dómstólnum í Haag, en Norð-
menn halda áfram að varna
Bretum að veiða innan nýju
landhelginnar, sem er 4 mílur. —
Grimsbytogarinn Sletnes, eign
Rinovíatogarafélagsins í Grims-
by, var nýlega tekinn í landhelgi
og sektaður um 4000 krónur.
Fyrir nokkru eru hafnar end-
urbætur þær á leikhúsi bæjarins,
sem bæjarstjórnin samþykkti að
láta fara fram. Er þar með loks-
ins hafizt handa um að verða við
margra ára kröfum hæjarmanna
um betri að'búnað í Samkomu-
húsinu, sem jafnframt er leikhús
bæjarins.
Verður salnum gjörbreytt til
bóta og þæginda, föst sæti sett í
húsið, gólfi hallað og svalir
endurbyggðar. Er þess vænzt, að
endurbótum þessum verði lokið
svo snemma, að Leikfélag Akur-
eyrar geti haft frumsýningu á
Sauðfjárslátrun hjá KEA hófst
25. sept. sl., og mun standa til
miðvikudags 4. október. Er alls
ráðgert að slátra 4555 kindum, og
er það miklum mun færra fé en
nokkru sinni fyrr síðan KEA hóf
slátrun á sláturhúsi sínu hér.
í fyrra var t. d. slátrað rösklega
19 þús. fjár í aðalslátui'tíð og var
þó slátrun þá minni en oft áður.
Niðurskurðurinn er orsökin.
Orsök þeirrar fækkunar sauð-
fjár, sem orðin jer, er vitaskuld
sauðfjárpestirnar og niðurskurð-
ur og fjárskipti þeirra vegna.
Fjárstofninn í Eyjafirði er allur
nýlegur og í ár er engum gimbr-
um slátrað hér um slóðir, heldur
eru þær seldar til nýrri fjár-
skiptasvæða.
Niðurröðun deildanna.
Samkvæmt áætlun slátur-
hússins um slátrunina, skiptist
hún þannig héðan í frá: í dag
slátra Bárðdælir og fleiri Þing-
eyingar 510 fjár. Á morgun
Hrafnagilshreppur, Bárðdælir og
aðrir Þingeyingar, um 525 fjár.
Laugardaginn Þingeyingar 305.
Mánudag næstk. Ongulsstaða-
hreppur, Kaldakinn o. fl. Þing-
eyingar 565 fjár, þriðjudag 3. okt.
Ongulsstaðahr. og Þingeyingar
500 fjár, miðvikud. 4. okt. Öng-
ulsstaðahreppur, Fnjóskdælir o.
fl. Þingeyingar 615 fjár.
Slátur munu illfáanleg á þessir
hausti, sem vonlegt er, er svo
miklu færra fé er slátrað hér en
verið hefur áður. "
enskum sjónleik, er það hefur í
hyggju að færa upp, fyrir eða
um jól.
Gamla gólfið ótraust.
Það hefur komið í ljós við
rask það, sem gert hefur verið á
aðalsal Samkomuhússins, að gólf
hans var orðið mjög ótraust og'
hefði ekki orðið frestað lengur
að gera gagngerðar endurbætur
á því, nema sú hætta vofði sífellt
yfir að það brotnaði niður. Má
því segja, að vel sé farið, allra
hluta vegna, að í þessar endur-
bætur var ráðist.
Kosningar í Færeyjum
í október og nóvember
Samkvæmt tilkynningu frá
danska ríkisumboðsmanninum á
Færeyjum hefur verið ákveðið
að Iáta fram fara kosningar á
Færeyjum til þjóðþingsins
danska, 14. október.
Færeyingar, sem dvelja á ís-
landi, geta greitt atkvæði samkv.
þeim reglum, sem gilda við kosn-
ingar til þjóðþings í Danmörku.
Ennfremur hefur verið ákveð-
ið að láta fram fara kosningar til
færeyska lögþingsins, 8. nóvem-
ber. Sjómönnum og öðrum, er
hafa vinnu utan Færeyja, er
heimilt að greiða atkvæði sam-
kvæmt reglunum í lögum, 28.
apr. 1916, gr. 44—45, með breyt-
ingum í lögum nr. 538, 22. des-
ember 1947. Heimilt er að nota
atkvæðaseðla löggilta við kosn-
ingu til þjóðþingsins. Með fyrsta
skipi verða sendir sérstakir lag-
þings-atkvæðaseðlar.
V erknámsskólahús
tekið í notkun
á Laugum
Nú í haust verður tekið í notk-
un að Laugum í Reykjadal nýtt
skólahús, er byggt hefur verið í
sambandi við gömlu skólahúsin.
Er það verknámsskólahús, og fer
þar fram smíðakennsla o. fl.
verklegt nám. Hús þetta er all-
stór bygging og vandað.
Firmakeppni Golfklúbbs Akureyrar
stendur yfir
32 fyrirtæki taka þátt í keppninni
Aðeins 4500 fjár slátrað hjá KEA
á þessu hausti
Minnsta sauðfjárslátrun hér um slóðir
frá upphafi