Dagur - 11.10.1950, Side 6
'/* '/* '/+?*/*■'/+'/* '/+'/* '/* '/*
6
D A G U R
Miðvikudaginn 11. október 1950
Hið nýja úiibú vort
í GLERÁRÞORPI
hefir á boðstólum ALLAR VÖRUR, sem seldar eru í Nýlenduvöru-
deildinni, svo sem:
Alls konar Matvörur - Hreinlætisvörur
Snyrtivörur - Tóbaksvörur og
Sælgætisvörur
E n n f r e m u r :
Brauðgerðarvörur:
Rúgbrauð, Franskbrauð, Heilhyeitibrauð, Kúmenbrauð,
Vínarbrauð, Smjörkökur, Hringi, Lengjur, Bollur, Form-
kökur, Jólakökur, Tertur, Rjómakökur, Smákökur, og fleira
og fleira.
Kjötbúðarvörur:
Kjöt, Kjötfars, Fiskfars, Hakkað kjöt, Vínarpylsur, Jarðepli,
Gulrófur, Tomata. — Alls konar álegg, Smjörlíki o. fl.
NÝMJÓLK - RJÓMI - SKYR
Fóðurvörur:
Maísmjöl, Kurlmaís, Varpmjöl, Fóðurblanda og fleira.
Kaupfélag Eyfirðinga.
GEFJUNAR
Kaffibrennsla
Akureyrar h.f.
. - ■ ---------------— -------- —^
Framsóknarkonur á Akureyri!
Fundur verður haldinn í „SÓKN“, félagi fram-
sóknarkvenna á Akureyri, mánudaginn 16. okt.
1950, og hefst hann kl. 9 síðdegis, stundvíslega.
Félagskonur! Fjölsœltið fundinn.
Stjórnin
Ullardúkar
Ullarteppi
Kambgarnsband
Lopi,
margar tegundir
Fást í öllum kaupfélögum
landsins og víðar —
Gefjunar-vörur hafa löng-
um hlotið viðurkenningu
allra landsmanna fyrir
smekklegt útlit, gæði og
lágt verð. —
Ullarverksmiðjan
GEFJUN
AKUREYRI
Kýr
að fjórða kálfi, til sölu. Á
að bera um næstu mán-
aðarmót.
Upplýsiilgar hjá:
Aclolf Friðfinnssyni,
Sólvöllum, Akureyri.
Úthey
Vil selja 70—100 hesta af
snemmslegnu útheyi.
Afgr. visar á.
Atvinna
Vantar stúlku til heimilis-
starfa í sveit. Nálægt bæn-
um. Til áramóta eða allan
vetur. — Má hafa barn með
sér.
Afgr. vísar á.
Rafstöð
5 kw. rafstöð, 110 V.,
benzínknúin, til sölu hjá
Velsmiðju Steindórs h.f.,
Akureyri. — Stöðinni rná
breyta fyrir 220 V.
spennu.
Til sölti:
Kvenkápa og skíðabuxur á
unglingstelpu.
GUFUPRESSAN,
Skipagötu 12.
Herbergi
til leigu á góðum stað í
bænum.
Afgr. vísar á.
Vaniar stúllíu
til lieimilisstarfa.
Upplýsingar í síma 1972.
Aeglýsing
Stúlka óskar eftir herbergi
strax gegn húshjálp.
Afgr. vísar ;i.
Ráðskonu
vantar á fámennt sveita-
heimili. — Má hafa með sér
krakka.
Afgr. vísar á.
Herbergi til leigu
Gott herbergi til leigu nú
þegar fyrir 1—2 stúlkur.
Einhver aðgangur að eld-
húsi gæti komið til greina.
A. v. á.
- FOKIFREIFAR
(Framhald af 4. síðu).
bifreiðum til Ferðaskrifstofunnar
frá 25. maí og 4. júní sl.
Hvað viðkemur afgreiðslu hóp-
ferðabifreiðanna hér á flugdag-
inn, er það rétt hjá Jóni, að þegar
hann spurðist fyrir um þær fáum
dögum áður, hafði tveimur ver-
ið lofað til berja um þessa helgi,
en aðrar tvær'voru lofaðar Svif-
flugfélagi Akureyrar til sæta-
ferða á Melgerðismela. Eigendur
bifreiðanna óskuðu eftir, að af-
greiðslan væri á Ferðaskrifstof-
unni, en eftir ósk forráðamanna
Svifflugfélagsins var það ekki,
þar sem þeir bjuggust við mikilli
aðsókn að flugdeginum og vildu
þá heldur hafa ferðir frá tveimur
stöðum.
Það er staðreynd, sem ekki
verður í móti mælt, að fyrir at-
beina og í skjóli Ferðaskrifstofu
ríkisins hér, hafa aðkomubílar
gripið það mikið inn í atvinnu
bifreiðastjóra hér á Akurcyri, að
til stórra vandræða horfir, ef
ekki fæst lagfæring þar á, og for-
ráðamenn þeirrar skrifstofu
skilji þau viðhorf, sem hér hafa
skapast.
í þessu sambandi má geta þess,
að sumarið 1949 var halli á
rekstri hópferðabifreiðanna hér,
sem stafaði eingöngu af því,
hversu margar ferðir gengu til
utanbæjarbifreiða fyrir bein til-
stilli Ferðaskrifstofunnar. Á yfir-
standandi ári hafa sætaferðir með
aðkomubílum frá Ferðaskrifstof-
unni á dansleiki hér í kring og
um nágrenni bæjarins haft mjög
alvarleg áhrif á afkomu smábíla
hér og bakað þeim svo mikið at-
vinnutjón, að bílstjórar og fé-
lagsskapur þeirra getur ekki lát-
ið slíkt óátalið, ef þeim stendur
ekki alveg á sama um atvinnu
sína.
Ummæli forstjórans um til-
gang og verkefni Ferðaskrifstof-
unnar, mun ég leiða hjá mér að
svara að sinni. Mun ef til vill gef-
ast tilefni til þess síðar. En með-
an skrifstofan leggur mesta
áherzlu á að starfa sem almenn
bílaafgreiðsla í stað þess að
skipuleggja og koma á hentugum
orlofsferðum fyrir almenning,
dreg eg mjög í efa, að hún sé
vaxin því starfi, sem landslög
ætla henni að rækja.
Að lokum vil eg geta þess, að
þó að hér hafi risið mjög mikið
og alvarlegt deilumál milli Ferða
skrifstofunnar annars vegar og
starfandi bifreiðastjóra hins veg-
ar, er það von mín og bifreiða-
stjóra almennt, að takast megi að
kippa þessu í lag, en það getur
því aðeins orðið, að forstjórinn
viðurkenni félagssamtök okkar
bílstjóra og sé fús til samstarfs af
heilum huga, en ekki með hang-
andi hendi eins og hingað til hef-
ur verið.
Eg tel stofnun og tilgang Fer'ða-
skrifstofunnar nau^syn, sé hún
rétt rekin, og því nauðsynlegt,
að öll deilumál víki, en gott sam-
starf ríki milli þeirra aðila, sem
fyrir skrifstofuna þurfa að vinna,
svo að hún geti notið trausts og
álits almennings.
f trausti þess, að þetta megi
takast, vona eg, að forstjóri
Ferðaskrifstofunnar verði við
niðurlagi samþykktar Bílstjóra-
félagsins frá 13. sept og ósk bæj-
arstjórnar Akureyrar frá 27. júní
síðastl
Með þökk fyrir birtinguna. —
Þorsteinn Svanlaugsson, formað-
ur Bílstjórafélags Akureyrar.
Svar forstjóra Ferðaskrifstof-
unnar við grein þessa, bíður
næsta blaðs vegna þrcngsla í
blaðinu.