Dagur - 11.10.1950, Side 7

Dagur - 11.10.1950, Side 7
Miðvikudaginn 11. október 1950 D A G U R 7 Frétt frá Bandalagi íslenzkra leikfélaga Bandalag íslenzkra leikfélaga, sem stofnað var í Reykjavík af 35 leikfélögum og leikflokkum í ágústmánuði sl., í þeim tilgangi að vinna að eflingu leiklistarinn- ar utan höfuðstaðarins, hefur ákveðið að halda námskeið fyrir leikstjóra utan af landi þ. 15.— 30. okt. næstk. Ævar Kvaran annast tilsögn í leikstjórn, þar sem tekin verða til athugunar m. a. eftfrfarandi atriði: Skipulagning verkaskipt- ingar á leiksviðinu, leikritaval, undirbúningsvinna leikstjóra við handritið, hlutverkaskipan, æf- ingar og sýningin. Magnús Pálsson mun kenna grunnflatarteiknun og útskýra ýmis tæknileg atriði í sambandi við leiksviðið og byggingu og fyr- irkomulag leiktjalda. Magnús hefur stundað nám í Birmingham í Englandi í þessum efnum. Þá mun Haralaur Adolfsson, starfsmaður við Þjóðleikhúsið kenna andlitsförðun. Kennslustundir verða á tíma- bilinu 15.—30. okt. n.k. daglega kl. 8—12 f. h. og kl. 4—7 e. h. í teiknisal Handíðaskólans, Lauga- veg 118; forstöðumaður skólans, Lúðvíg Guðmundsson, hefur vinsamlegast lánað salinn til þessafa afnota .— Kennsla í and- litsförðun fer hins vegar fram í Þjóðleikhúsinu; en Þjóðleikhúss- stjóri hefur góðfúslega leyft það. Námskeið þetta, sem er hið fyrsta í þessari grein hér á landi er ókeypis fyrir félaga Bandalags íslenzkra leikfélaga og Ung mennafélags íslands, en síðar-! nefnda félagið hefur veitt nokk- úrn fjárstyrk í þessu skyni. Það er skoðun stjórnar Banda- lags íslenzkra leikfélaga, að leik- listin út um landið taki ekki verulegum framförum fyrr en hægt sé að veita efnilegum mönn- um, búsettum í sama héraði og leikfélag, nauðsynlega undir- stöðuþekkingu í leikstjórn, og er' framangreint námskeið fyrsta tilraunin til þess að bæta úr þessu. Félög þau, sem hafa í hyggju að senda menn á námskeiðið til- kynni það bréflega eða í skeyti til Ævars Kvarans, Bergstaða- stræti 3ö, Reykjavík, fyrir 10. okt. næstkomandi. ERLEND TÍÐNDI: (Framhald af 4. síðu). forvitnir krakkar eltu okkur ekki. Þau töluðu ekkert, betluðu ekki, bara horfðu undrandi á okkur. Allt virtist vel skipulagt þarna. Vinnan um borð hélt áfram dag og nótt og konurnar voru dugleg- ar við hleðsluna. Traktorarnir, sem þær notuðu voru nýir og fallegir gripir og þær'kunnu vel með þá að fara. En andrúmsloft þvingunar og ótta lá eins og mara á öllu. Nei, — af öllum hafnarbæjum, sem eg hef komið á um dagana, var þessi sá ömurlegasti. Eg vona að eg eigi aldrei eftir að koma til Rússlands aftur. Hins vegar get eg ekki neitað því, að það eru til menn hér heima, sem eg held að myndu hafa sérlega gott af því að fara slíka skemmtireisu til þess að sjá hvernig Sovét-para- dísin lítur út í reyndinni. Við höfðum einn af þeirri tegundinni um borð — en hann var læknað- ur þegar skipið sneri heim á leið. — Cóð stofa og eldhús til leigu fyrir reglusamt barnlaust fólk. Afgr. vísar á. Kökuduiikar Járn- og glervörudeild. Nokkrar ungar kýr til sölu nýkomnar. Nýlenduvörudeild og útibú. er komin aftur. Bl. Jarðarberja- og Eplasulta. Bl. Hindberja- og Eplasulta. Nýlenduvörudeildin og útibú. Einingarkonur Fyrirhugað SAUMANÁM SKEIÐ félagðsins hefst þ. 1. nóv., ef næg þáttaka fæst. Þær, sem hugsa sér að taka þátt í því, geli sig fram við éftirtaldar konur, sem gefa nánari upplýsingar: Anna Hallgrímsdóttir, Fjólugötu 13. Valborg Ingimundardóttir, Ægisgötu 5, Margrét Magnúsdóttir, Hríseyjargötu 8. Heiðrún Steingrímsdóttir, Ránargötu 1. Góð stofa til leigu í Skipagötu 2. Afgr. vísar á. 10-15 ær til SÖlll. Afgr. vísar á. v. a. Innilegustu pakkir jccri ég öllum peim, sern glöddu mig rtieð heimsóknum, gjöfum, blórnum og skeytum á áUrceðisafmccli mínu þann 29. september. Rósa Illugadóttir, Þórunnarstræti 104. x Innilega pakka ég vinum minum, sem glöcldu mig - á áttatiu ára afmœli mínu og gerðu mér daginn ó- gleyrnanlegan með hlýjum handtökum,S)lómum, gjöf- um og árnaðaróskum, sem yljuðu mér að hjartarótum. Eg óska ykkur gleði og hamingju á lifsleiðinni. Jón Samsonarson. Brennimark mitt er V 18. Valgerður Sigurðardóttir, Hlíðarhaga, Saurbæjarhreppi. SKEIÐ félagsins hefst þ. Vetrarstúlku vantar mig nú þegar. - Gott kaup. — Sérherbergi Valtýr Þorsteinss » Sími 1439 ÚR BÆ OG BYGGÐ Herbergi til leigu í Þingvallastræti 22 (niðri). S t ú 1 k a til aðstoðar við heimilis- störf og símagæzlu óskast að Möðruvöllum í Hörg- árdal (Lándsímastöð). □ Rún.: 595010117 — Frl.: I. O .O. F. Rb.st. nr. 2. Au. — 981011SU. Karlakói-inn Geysir. — Æfing annað kvöld kl. 8.30. Gjöf íil ÆFAK. Frá N. N. kr. 100.00. Þakkir. P. S. Messað í Akurevrarkirkju n.k. sunundag kl. 5 e. h. — P. S. Æskulýðsfcl. Akureyrar- kirkju. Aðal- fundur á sunnu daginn kemur. — í III. deild kl. 10 f. h. og í II. deild kl. 8.30 e. h.. — í I. deild var stjórnarkosn- ing sl. sunnudag, og voru þessir félagar kosnir í stjórnina: Jón Ragnar Steindórsson formaður, Jóhanna Björnsdóttir ritari og Olafur Hallgrímsson gjaldkeri. — Formaður I. deildar er jafnframt formaður félagsins. Áheit. Til Akureyrarkirkju: Kr. 25.00 frá Ernu M. Eyland. — Til Strandarkirkju: Kr. 30.00 frá N. N. Kr. 50.00 frá Laugu. Bazar. Kristniboðsfélag kvenna, Akureyri, hefir bazar í Zíon föstudaginn 13. október næstk. kl. 4 e. h. Opið til kl. 6. Gjöf til Akureyrarkirkju. Kr. 500.00 frá sænskum ferðamönn- um. Kr. 500.00 til að prýða kring- um kirkjuna frá ekkju. Barnastúkan „Sakleysið“ held- ur furid í Skjaldborg næstkom- andi sunnudag ld. 1 e. h. Rætt verður um vetrarstarfið. Kosnir embættismenn o. fl. Á eftir verð- ur sýnd kvikmynd. Barnastúkan „Samúð“ nr. 102 heldur fund í Skjaldborg sunnu- daginn 15. okt. næstk. kl. 11 f. h. Kosning embættismanna. Upp- lestur. Kvikmynd. Haustþing Umdæmisstúkunnar nr. 5 verður haldið ( Skjaldborg laugardaginn 14. okt. næstk. — Þingið hefst kl. 4 e. h. Guðspekistúkan „Systkina- bandið“ heldur fund á venjuleg- um stað þriðjudaginn 17. þ. m. kl. 8.30 e. h. stundvísleg'a. Fundar- efni: Erindi (Musterisdyrnar). Fréttir af aðalfundi guðspekifé- lagsins. Guðsþjónustur í Grundarþinga- prestakalli. Hólum, sunnudaginn 15. okt. kl. 1 e. h. — Möðruvöll- um, sunnudaginn 22 .okt. kl. 1 e. hh. — Grund, sunnudaginn 29. okt. kl. 1 e. h. Hjúskapur. Sunnudaginn 1. okt. voru gefin saman í hjónaband á Möðruvöllum í Hörgárdal ungfrú Ingunn Guðrún Kristjánsdóttir, Dalvík, og Jóhannes R. Krist- jánsson, Hellu á Árskógsströnd. Bókfærslunámskeið. Sigurðui' M. Helgason, sem augl. bók- færslunámskeið í síðasta blaði, biður þess getið, að þeir sem hugsa til þátttöku í námskeiðinu tali við sig eigi síðar en um næstu helgi. Sími 1543. fþróttafélagið I»ór. Allir þeir, sem ætla að æfa hjá félaginu í íþróttahúsinu, mæti þar kl. 8.30 á miðvikudagskvöld. Stjórnin. Hjúskapur. Matthea Kristjáns- dóttir, Jónss. bakaram., og Jón- as Þorsteinsson, stýrimaður á Svalbak. 3-4 nemendur geta bætzt við í leiklistar- kennslu mína í vetur. — Sími 1575 kl. 6-7 e. h. Jón Norðfjörð Akurcyringar! — Nú er kom- inn tími ti lað gefa fuglunum. — Látið þá ckki líða skort í vetrarhörkunum! — Zíon. Frk. Sigrid Kvam, kristni- boði frá Noregi, talar á samkomu í krifetniboðshúsinu Zíon á hverju kvöldi næstu viku kl. 8.30. Allir velkomnir. Xþróítafélagið Þór. Skemmti- kvöld í íþróttahúsinu föstudag- inn 13. okt. kl. 8.30 e. h. Ávarp: Jónas Jónspon, rpilúð Frámsókn- arwhist. Aíhendmg verclauna. Ferðasaga, austurferð Þórs, Guð- múndur Mikaelsson. Dans. — Frjálsíþróttadeild Þórs. Sjónarhæð. Næstk. sunnudag: Sunnudagaskóli kl. 1. Almenn samkoma kl. 5. Jóhann Steinsson talar. Allir velkomnir. — Næsta þriðjudag: Kl. 8 e. h. biblíulest- ur: „Hvað lærum vér af sögu Abrahams?" Sæm. G. Jóhannes- son talar. Allir velkomnir. Gjöf til barnaheimilisins Pálm- holt. Kr. 50.00 frá N. N. — Mót- tekið á afgreiðslu Dags. Fíladelfía. Kristilegar samkom- ur eru á sunnudögum og fimmtu- dögum kl. 8.30 e. h. í Gránufé- lagsgötu 9 (niðri), Verzlunar- mannahúsinu. Allir eru hjartan- lega velkomnir. — Sunnudaga- skóli er á sunnudögum kl. 1.30 e. h. Börn, verið velkomin. Frá starfinu í kristniboðshús- inu Zíon næstu viku. Sunnud. kl. 10.30 f. h.: Sunnudagaskóli. Kl. 2: Drengjafundur (eldri deild). Kl. 5: Drengjafundur (yngri deild). Kl. 8.30 e. h.: Almenn samkoma. Sr. Jóhann Hlíðai' tal- ar. — Þriðjud. kl. 5.30 e. h.: Fundur fyrir telpur 7—13 ára. — Miðvikud. kl. 8.30 e. h.: Biblíu- lestur og bænastund. — Fimmtu- dag kl. 8.30 e. h.: Fundur fyrir ungar stúlkur. Hjálpræðisherinn (Laxamýri), Strandgötu 19B. Föstudag 13. okt. kl. 8.30 e .h.: Helgunarsamkoma. — Sunnudag kl. 11: Helgunar- samkoma. Kl. 2: Sunnudagaskóli. Kl. 8.30: HjálpræðissamkoUia. — Söngur og hljóðfærasláttur er á samkomunum og öllum er heim- ill aðgangur. — Mánudaga kl. 4 e. h.: Heimilissambandið. Kl. 8.30 e. h.: Æskulýðsfélagið. Hjúskapur. 14. þ. m. verða gefin saman í hjónaband i Kaupmanna höfn ungfrú Elín Pétursdóttir Bjarnason (Péturs H. Lárusson- ar kaupmanns) og Ove Truelsen, arkítekt, M. A. A. — Heimili þeirra verður að Stavangergade 3, (3. hæð), Köbenhavn Ö. Silfurbrúðkaup áttu í gær hjónin frú Svava Sigurðardóttir og Samúel Ki istbjarnarson raf- virkjameistari, Eyrarlandsveg 14 hér í bæ. Skjaldborgarbíó sýnir um þess- ar mundir sænsku kvikmyndina „Glitra daggir, grær fold“, sem gerð er eftir hinni vinsælu skáld- sögu Margit Söderholm. Bíóið bendir í þessu sambandi á, að nauðsynlegt er fyrir fólk að vera stundvíst, með því að engin auka mynd er, og sýning aðalmyndar- innar hefst stundvíslega kl. 9 e. h. Bílsíjórafélag Akureyrar hef- ur kjörið Þorstein Svanlaugsson og Lárus Jóhannesson fulltrúa á Alþýðusambandsþing. Atvinnumáíanefnd bæjarins hefur verið skipuð og eiga þessir menn sæti í henni: Frá bæjar- stjórn: Guðm. Jörundsson bæjar- fulltrúi, Guðm. Guðmundsson framkvæmdastjóri, frá félaga- samtökum:' Þorsteinn Svanlaugs- son, Jóhannes Jósefsson og Tóm- as Björnsson. Barnavagsi til sölu Aðalsteinn Þórólfss. Norðurgötu 46.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.