Dagur - 29.11.1950, Side 1
12 SÍÐUR
Greiciíi blaðið s.Jlvíslega!
Póstkröfur fyrir árgjaldi blaðs
ins hafa verið sendar til ým-
issa póststöðva. Munið að
vitja þeirra!
XXXm. árg.
Akureyri, íniðvikudaginn 29. nóvember 1950
51. tbl.
„Brosir þá Goðmundur kóngur!“
Hér sjást talsmenn austurs og vesturs á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í Lake Success og virðist fara vel á með þeim. Vishinsky,
utanríkisráðherra Sovétstjórnarinnar t. v., Acheson, utanríkis-
hcrra Bandaríkjanna t. h. En á fundum þingsins, er fulltrúar austurs
og vesturs deila, fljúga hnútur um borð og orð eru ekki hógvær,
enda þótt persónulegt sainkomulag fulltrúa virðist gott utan
þingsalanna.
Hjalteyrarverksmiðjan hefur
brætt nær 9000 lestir af karfa
1 síðustu viku lönduðu fimm
togarar karfa á Hjalteyri, samtals
um 1500 lestum. Skipin voru Eg-
ill rauði, Goðanes, Egill Skalla-
grímsson, Askur og Hvalfell. Eru
þau öll farin á veiðar aftur, en
karfaveiðin gerizt nú tregari en
var í sumar.
Verið var að ljúka við bræðslu
á þessu magni á mánudaginn.
Hafði verksmiðjan á Hjalteyri þá
alls tekið á móti nær 9000 lestum
af karfa síðan í vor. Áður en tog-
Norðmenn fram-
leiða eggjalivítu-
efni úr þorski
í vísindafréttadálki stórblaðs-
ins New York Times var frá þvi
skýrt nú nýlega, að Norðmönn-
um hefði nú tekizt að framleiða
„gerfi-eggjahvítu“ (synthetic)
úr þorski. Telur blaðið þetta
meiHia framleiðslu og mikla
möguleika henni tengda.
Eitt pund af eggjahvítuefni úr
fiski (protein) jafngildir 150
eggjahvítum úr hænueggjum. —
jHreint fiskiprotein má nota til
þéss að framleiða brauð, vefnað-
arvörur, málningu, sápu, pappír
o. fl. vörutegundir. Tvö norsk
fyrirtæki starfa nú að framleiðslu
eggjahvítunnar, segir blaðið, en
hún er enn á tilraunastigi.
Fyrir stríð munu ÞjóSvorjar
hafa verið komnir á góðan rck-
spöl með slíka framleiðslu.
araverkfallið hófst hafði verk-
smiðjan tekið á móti nær 3000
lestum og í sumar og haust um
6000 lestum. Lönduðu Norð-
fjarðartogararnir og Seyðisfjarð-
artogarinn afla á Hjalteyri í
sumar og haust, og eftir að verk-
fallið leystist, bættust Reykja-
víkurtogarar í hópinn.
Mikil atvinna.
Geysileg atvinnuaukning hefur
verið að karfavinnslunni fyrir
Hjalteyringa og fólk úr nærliggj-
andi sveitum. Þegar svo mikið
berst að í einu, sem í sl. viku,
hefur þurft að fá aðkomuverka-
fólk, úr Arnarneshreppi, af Ár-
skógsströnd og héðan frá Akur-
eyri. Hefur þetta ár verið ágætt
atvinnuár á Hjalteyri.
Nú er búið að flytja út síldar-
lýsi frá Hjalteyrarverksmiðjunni,
og gert er ráð fyrir að allt karfa-
mjölið og karfalýsið fari á er-
lendan markað snemma í næsta
mánuði.
Samvinnunámskeið
á vegum KEA
Þessa dagana stendur yfir hér
í bænum samvinnunámskeið á
vegum KEA. Eru þátttakendur
TÖsklega 20 talsins, úr ýmsum
deildum félagsins, þar af nokkrar
konur. Frú Anna Snorradóttir
stýrir námskeiðinu, en ýmsir
af starfsmönnum kaupfélagsins
flytja erindi. Þá er og starf fé-
lagsins kynnt með heimsóknum
í deildir og verksmiðjur.
^■s#'#s#s#^s#>#s#s#s#s#s##»^#s#s#s#^>#'#s#s#'^#>^s#s#s#.<«
II Enn skortir 150 ;
þúsmid kr. til j
togarakanpanna |
!; Enn er ekki gengið frá tog- ;
!; arakaupum Útgerðarfélags;
!; Akureyringa, en málið er í;
!; deiglunni og má búast við því '•
j! að það verði endanlega af- !
'! greitt á næstunni. Togari sá,!
!! sem til mála kemur að Út- !
gerðarfélagið kaupi, fer í!
!; reynsluför nú um mánaða- ;
!; mótin og mundi skipið vænt-
!; anlega geta komið hingað fyrir
!; jól, ef sainningar takast.
!; í gær skorti enn 150 þúsund
;! krónur á að Útgerðarfélagið
;! hefði fengið þær 400 þús. kr. í
■! auknu hlutafé, sem þörf er á!
!! til þess að félagið geti lagt
1; fram nauðsynlegt fé til kaup- !
!; anna. Er þess vænzt að þeir;
!; bæjarbúar, sem þess eiga
!; nokkurn kost, kaupi hlutabréf
J; nú næstu daga. Bréfin eru
;! seld á skrifstofu félagsins alla
;! daga.
Jönmdur og Sval-
bakur á ísfisk-
veiðum
Togararnir Jörundur og Sval-
bakur eru hættir karfaveiðum og
farnir á ísfiskveiðar, en Kaldbak-
ur er farinn á karfaveiðar. Er
líklegt að þetta verði síðasta
karfaveiðiför hans að sinni.
Hörmulegt slys
á Þórshöfn
í fyrrinótt varð húsbruni á
Þórshöfn. Magnaðist eldurinn
með svo skjótum hætti, að ekki
varð unnt að bjarga öllum úr
húsinu og brann þar inni 4 ára
telpa, dóttir Indriða Guðmunds-
sonar á Þórshöfn. Húsið brann til
kaldra kola og innanstokksmun-
ir allir. Er harmur sár og mikið
eignatjón kveðið að hjónum
þeim, er þarna eiga hlut að máli.
Bátur ferst
við Sauðanes
Á laugardaginn strandaði vél-
báturinn Þormóður rammi frá
Siglufirði við Sauðanes, vestan
Siglufjarðar. Björgunarsveit frá
Siglufirði bjargaði mönnunum 4
talsins á sunnudaginn. Veður var
mjög slæmt og var ferð björgun-
arsveitarinnar hin erfiðasta. —
Þykir björgunin hafa tekizt
giftusamlega.
Freðfiskframleiðslan hefur mjög
dregizt saman, en saitf iskfram-
leiðslan vaxið
Saia á fiskafurðum gengur nú
greiðíega
Hinn 1. þ. m. var framleiðsla
landsmanna á frosnum fiski 1/3
minni en á sama tíma í fyrra, en
aftur á móti hefur saltfiskfram-
leiðslan aukizt stórkostlega.
Framleiðslan á freðfiskinum
skiptist þannig: Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna 583.000 kassar
(923.000 kassar í fyrra), S. í. S.
78.000 kassar, (81.000 lcassar í
fyrra). Aðrir aðilar 18.000 kassar
(35.000 kassar í fyrra). Samtals
1. nóv. sl. 679.000 kassar, en í
fyrra 1039.000 kassar. Athyglis-
vert er í þessu sambandi, að
framleiðsla hraðfrystihúsa kaup-
félaganna, sem S. í. S. hefur
söluumboð fyrir, hefur nær ekk-
ert gengið saman á þessu ári.
Greiður útflutningur.
Frosni fiskurinn er nú fluttur
viðstöðulaust úr landi, eftir því,
sem skiprúm leyfir. Dettifoss er
nýfarinn til Ameríku með 30.000
kassa, Foldin hefur verið að
ferma flatfisk til Bretlands, um
20.000 ks.GoðafossogVatnajökull
ferma í byrjun næsta mánaðar.
Tæpar 2000 lestir eru samt óseld-
ar enn af þessa árs framleiðslu.
Mikil saltfiskframleiðsla.
Hinn 15. þ. m. höfðu verið
framleiddar 49.000 lestir af salt-
fiski á öllu landinu, og er það
bæði togarafiskur og bátafiskur.
Á sama tíma í fyrra nam heildar-
framleiðslan 18.000 lestum, og er
hér því um mjög mikla aukningu
að ræða. En með nóvember-
komu tók af að mestu saltfisk-
verkun og bættust aðeins 100
lestir við fyrstu 15 daga mánað-
arins og var það framleitt hér
norðanlands og norðaustanlands.
Undanfarið hefur verið unnið að
því að lesta þurrfisk og blautfisk
í spánskt skip og þunnildi í
norskt skip, sem fer til ítalíu.
Katla er nýfarin til Portúgal
með fiskfarm, en Arnarfell flutti
saltfiskfarm til Grikklands fyrir
skömmu og er nú á heimleið.
Veiddi fyrir tvær og
hálfa milljón króna
á 32 dögum
Togarinn Bjarni Ólafsson frá
Akranesi hefur aflað karfa að
verðmæti 2V2 millj. króna á 32
dögum, en þessi togari varð
fyrstur á veiðar eftir að togara-
verkfallið leystist. Hlutur háseta
varð um 4000 krónur. Karfinn
var nær allur flakaður og fryst-
ur. Vinnlaun í landi nema hundr-
uðum þúsunda króna. Menn geta
gert það að gamni sínu að reikna
út hvað þessi togari liefði aflað
fyrir á 129 dögum, og sent Al-
þýðufl.forustunni reikninginn.
Þriðja Sambandsskipinu hleypf af
stokkunum í Svíþjóð
T)
Hinn 23. þ. m. var hleypt
stokkunum í Oscarshamn í Sví-
þjóð þriðja skipi Sambands ísl.
samvinnufélaga. Skírði frú
Linnéa Johansson, kona Albin
Johansson, aðalforstjóra KF,
sænska samvinnusambandsins,
skipið og hlaut það nafnið „Jök-
ulfell“.
Skipið er 1000 tonn dw., og er
frystiskip, búið nýtízku frysti-
útbúnaði, og á að halda 20 stiga
frosti. Rúmmál skipsins er ca.
60.000 cbf., ganghraði er 13 míl-
ur. Skipið verður væntanlega af-
hent Sambandinu á fyrri hluta
næsta árs.
Þetta nýja skiþ Sambandsins
er einkum miðað við þarfir hinna
smærri hafna kringum landið.
Hin stærri millilandaskip geta
ekki lagst þar að bryggju, og var
óleyst úr þeirri þörf að koma
framleiðsluvörum, svo sem fiski
og kjöti, með hagkvæmu móti á
markaðsstaði. Nú hefur Sam-
bandið greitt úr þessu með þess-
um skipakaupum og mun verða
mikið hagræði að því fyrir hér-
uðin og sú bættaaðstaða,semfæst
með komu þessa skips, verða til
þess að örva framleiðsluna.
Jökulfell“ er 1000 smálesta frystiskip
af