Dagur - 29.11.1950, Blaðsíða 12

Dagur - 29.11.1950, Blaðsíða 12
12 Baguk Miðvikudaginn 29. nóv. 1950 Norsk þara- og þangrannsókn Þangmjöl hefur reynzt ágætur og verðmætur fóðurbætir í Noregi Rússar hafa skorið niður kaup á dönskum vörum nær alveg Leggja kapp á að fá dollara og pund fyrir útflutningsvörur sínar Norska blaðið Handels- og Sjö- Kaupmannahöfn í nóv. Undir nafninu „Norsk Institut for Tang- og Tare-Forskning“, er sofnsett þangrannsóknarstöð í Oslo til þess að rannsaka enn betur en orðið er auðæfi gróð- ursins í hafinu. Stofnunin er undir stjórn prófessors Henrik Printz, sem er jafnframt prófes- sor í grasafræði við landbúnað- arháskólann. Norðmenn hafa nú um nokk- urt skeið verið forustumenn í hagnýtingu þangs og þara. Þeir vinna þangmjöl í stórum stíl og nota til fóðurbætis heima fyrir, en auk þess er mjölið verðmæt útflutnignsvara. Þangmjölið hef- ur reynzt mjög þýðingarmikið fóðurefni, bæði fyrir nautgripi, svín og hænsni. Hins vegar er það fátækt af eggjahvítuefnum, þ. e. protein. Menn leita líka til hafs- ins og auðæfa þess, til þess að fá protein-efnin, aðallega í síld- ar- og fiskimjöli. Límvatn og þangmjöl. Hins vegar er vitað, og m. a. sannað af prófessor Printz, að mikið af verðmætum efnum týn- ist við síldar- og fiskimjöls- vinnsluna, og telur hann að efni fyrir ca. 30 millj. n. kr. fari í haf- ið frá norskum síldar- og fiski- mjölsverksmiðjum árlega. Hafa menn í Noregi því snúið sér að •því að blanda þangmjölið með h'mvatni frá síldarverksmiðjun- um, og hafa þannig fengið fyrsta flokks fóðurbæti. Ymsir dýra- sjúkdómar eru taldir stafa af röngum efnasamsetningum fæð- unnar, m. a. fóðunrbætis, og talið er líklegt að unnt sé að bæta úr þessu með nýjum blöndum af fóðurbæti og er stofnuninni æth- Þjóðverjar vilja gerast aðilar að : Norðursjávar- samþykktiiini Nýlega var skýrt frá rafmagns- fiskveiðum Þjóðverja í Norðursjó hér í blaðinu, og gremju danskra fiskimanna vegna þess að slíkt ránfiski er bannað í Norður- sjávarsamþykktinni um fiskveið- ar, en Þjóðverjar voru ekki aðil- ar að henni. Nú skýra dönsk blöð frá því að fundur þýzku hafrann- sóknarnefndarinnar í Kiel nú fyrir skemmstu hafi samþykkt að mæla með því að Þjóðverjar ger- izt aðilar að Norðursjávarsam- þykktinni, sem gerð var í London 1946, og studd er af öllum öðrum fiskveiðaþjóðum við Norðursjó. Hefur þessi samþykkt vakið ánægju meðal fiskimanna á Norðurlöndum. að að rannsaka þetta atriði í sam- bandi við nýtingu þangs og þara og annars gróðurs í hafinu og við ströndina. Milljón tonn af þara. Prófessor Pi'intz heldur því fram, að á ári hverju skoli hafið milljón tonnum af þara upp á norsku ströndina, og ef þetta magn væri nýtt til að framleiða alginsýru, mundi verðmæti hennar nema 400—500 millj. n. kr. Hann telur að alls finnist nú við ströndina um 20 millj. tonn af þara, og alginsýran úr þéssum forða væri gífurlegt verðmæti. Aukinn áhugi er nú víða um lönd fyrir ýmiss konar þaragróðri og þeim verðmætum, sem sjávar- gróðurinn geymir. — Holm. 784 félagsmenn í Knattspyrnufélagi Akureyrar Aðalfundur Knattspyrnufélags Akuareyrar var haldinn í íþróttahúsinu sl. sunnudag. Var fundurinn fjölsóttur. Stjóm fé- lagsins var að mestu endurkosin, en hana skipa: Tómas Stein- grímsson, formaður, Magnús Björnsson, varaformaður, Gunn- ar Þórsson, gjajdkeri, Rögnvald- ur Gíslason, ritari, Níels Ilall- dórsson, spjaldskrárritari, Vignir Guðmundsson og ísak Guð- mimdsson meðstjórnendur. Á síðastliðnu ári var sú breyt- ing gerð á félaginu, að því var skipt í deildir og hefur þettá gef- izt mjög vel. Eftirtaldar deildir starfa nú í félaginu: Frjáls- íþróttadeild, form. Halldór Helgason, Knattleikjadeild, form. Magnús Björnsson, og Skíða- deild, form. Sigurður Steindórs- son. Starfsemi félagsins hefur aldrei verið meiri en á síðasta ári og um 400 félagar hafa tekið þátt í mót- um á vegum félagsins. Á árinu gengu í félagið 190 nýjir félagar og eru þeir nú alls 784. Á fundinum var Magnúsi Bryn- jólfssyni skíðakappa áfhentur bikar frá félaginu fyrir frábæra frammistöðu á síðasta Skíða- móti fslands, þar sem hann varð þrefaldur íslandsmeistari og hafði auk þess beztan tíma í sveitakeppninni. Kennarar hjá félaginu á síðasta ári voru: Inga Rúna íngólfsdóttir, Har. M. Sigurðsson, Hafsteinn Guðmundsson og þýzki frjáls- íþróttaþj álfarinn Ulric Jonath. Endurkjörinn fram- kvæmdastjóri S. Þ. TRYGVE LIE var nýlega endurkjörinn aðal- framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Varð nokkurt hark út af kjörinu með því að Rússar og leppríki þeirra snerust gegn Lie og liafa nú tilkynnt að þau viður- kenni ekki kjör hans eftir að núv. starfstímabili lýkur í febrúar n.k. - Fokdreifar (Framh. af 6. síðu). enda þótt mjög einfalt mál sé að slá hann niður. Ekki þyrfti ann- að en kaupa nægilegt magn sokka fyrir kvenþjóðina og dreifa magninu réttlátlega um lani allt, til viðurkenndra verzlana Toll- tekjur ríkisins af þessu yrðu á- litlegar, kvenþjóðin fengi sokka sína á sæmilegu verði, en svarta- markaðsbraskararnir misstu af strætisvagninum. En þetla kostar gjaldeyri, segja menn. Satt er það. En halda menn að svarta- markaðssokkarnir séu gefnir hingað til lands? Þeir eru Keypt- ir fyrir gjaldeyri og mundi lög- legur innflutningur litlu >ða engu breyta í því efni.“ Það var engin iðrun. í SÍÐASTA tbl. var bent á þau ummæli Kominform-blaðsins hér, að það væru takmörk fyrir því „hve lengi er hægt að blekkja almenning og ljúga að honum“. Þótti ýmsum þetta viturlega mælt og af nokkurri lífsreynslu og hugðu sem svo, að batnandi mönnum væri bezt að lifa. Fór að vonum að ýmsir væntu þess að lesa áframhald þessara játninga í blaðinu og að fá að þreifa á ágæti mannlegrar náttúru, sem þrátt fyrir allt væri af hinu góða. Hefði það vafalaust orðið til þess að auka bjartsýni ýmsra lesenda Kominform-blaðsins, ef þeir hefðu mátt lesa áframhald játn- inganna í föstudagsútgáfunni síðustu, t. d. um upphaf Kóreu- stríðsins og um annan viðlíka fréttaflutning blaðsins á undan- förnum árum. En góður ásetning- ur verður ekki ævinlega að fram- kvæmd, og svo fór að rithöfund- arnir hröpuðu ofan af fjalli hinna góðu áforma og iðrunin varð aldrei nema stundarásetn- ingur. í föstudagsútgáfunni eru þeir aftur komnir á fjóra fætur fyrir framan skurðgoð Komin- form og teknir til við fyrri iðju, að segja svart hvítt og sannleika lygi. Góðfúsir lesendur Komin- form-blaðsins verða því enn um sinn að biðja fyrir sálum fallinna félaga og halda dauðahaldi í bjartsýnina á eðli mannlegrar náttúru meðan tímans rás sker úr um það, hvort sannleikskorn dylst í þeim munnmælum, að þeg ar neyðin er stærst sé sáluhjálpin næst. fartstidende flutti nýlega at- hyglisverða grein um utanríkis- verzlun Rússa. Segir blaðið, að síðan um áramót hafi Rússar lagt kapp á að skera niður innflutn- ing frá löndum með „veika“ val- útu og lagt meginkapp á að fá harða valútu fyrir afurðir sínar, aðallega dollara, en einnig sterl- ingspund. í þessu sambandi nefnir blaðið það sem dæmi, að Rússar hafi skorið niður kaup sín á dönskum vörum, úr 52 millj. króna á sl. ári, í 1 milljón króna á þessu ári. Ut- flutningur til Danmerkur minnk- aði á þessu ári úr 57 millj. í fyrra í 15 millj. krónd það sem af er þessu ári. Aukinn útflutningur til Bandaríkjanna. Utflutningur til Bandaríkjanna jókst mjög á sama tíma, en inn- flutningur þaðan minnkaði mik- ið. Með þessu munu Rússar hyggjast eignast dollaravarasjóð, sem þeir geta notað til þess að hjálpa nauðstöddum leppríkjum, eins og Ungverjalandi og Rúm- eníu, sem hafa orðið hai't úti vegna Molotoff-áætlunarinnar svonefndu, sem gerir þessi ríki að mjólkurkúm fyrir efnahagskerfi Rússa. Utflutningur til Bretlands hefur mjög aukizt á þessu ári, nær þrefaldast, en innflutningur frá Bretlandi hefur minnkað um helming. Hvemig mundi þessi stefna hafa komið við íslandsviðskipti? Menn geta velt því fyrir sér, Dollarinn er 58 centa virði miðað við fyrirstríðsgildi Kaupmáttur dolíarans í dag er ekki nema 58 cent miðað við það, sem var fyrir stríð, segir blaðið „U. S. News & World Report“ nú nýlega og spáir því jafnframt, að kaupmátturinn muni enn minnka á næstu mánuðum og dýrtið vaxa í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú, segir blaðið, að peningar í um- ferð aukast, en á næstunni verða færri hlutir að kaupa. Þjóðin hefur nú þrisvar sinnum meiri peninga handa í milli en fyrir stríð. Ríkisstjórnin hefur vald til þess að stöðva launa- og verð- lagsskrúfuna, en enn sem komið ér hefur hún ekki notfært sér heimildina nema að litlu leyti þótt því sé nú spáð, að stjórnin muni láta til sín taka, þar sem kosningarnar til þjóðþingsins eru um garð gengnar. hvernig þessi stefna í utanríkis- viðskiptum hefði komið við ís- landsviðskipti Rússa, ef þau hefðu verið einhver. Er ósenni- legt að þeir hefðu verið mjúk- hentari við okkur en Dani. Varpa þessar fregnir nýju ljósi á full- yrðingar kommúnista um óþrjót- andi markaði okkur til handa austur þar. Söngskemmtun „Geysis“ Karlakóriun Geysir hafði söngskemmtun í Nýja-Bíó sl. föstudagskvöld. Kórinn er nú orðinn 28 ára gamall og hefur hinn ágæti söng- stjóri Ingimundur Árnason stýrt honum, þjálfað hann allan þann tíma af eldlegu fjöri og áhuga. Söngurinn á föstudagskvöldið hafði öll þau einkenni, sem æv- inlega hafa fylgt „Geysi“ undir stjórn Ingimundar. Þótt manna- skipti hafi orðið í kórnum á ævi hans, er blærinn hinn sami, hressilegur, léttur, stundum ang- urvær en þó oftar gneistandi af lífskrafti og fjöri. „Geysir“ hef- ur sungið sig inn í hjarta þjóðar- innar á liðnum árum og skipar þar veglegt sæti. Á þessum hljómleikum flutti kórinn ýmis ný viðfangsefni og að auki nokkra eldri kunningja Árni Ingimundarson annaðist píanóundirleik. Hér verður ekki lagður neinn dómur á meðferð einstakra laga, en það látið nægja að segja, að heildarsvipur hljóm- leikanna var kórnum og söng- stjóranum til sóma. Einsöngvarar voru þeir Hermann Stefánsson og Kristinn Þorsteinsson og gerðu báðir sínum viðfangsefnum góð skil. Auk þess sungu þeir Jóhann Guðmundsson, Hermann Stef- ánsson, Gísli Konráðsson og Guðmundur Gunnarsson í sóló- kvartett, létt lag eftir Romberg, og var ánægja að því. „Geysir“ hefur nú nokkrum sinnum tekið til meðferðar hin léttu og „charmerandi“ amei-ísku lög, á borð við þetta lag Rombergs og Blökkustúlkuna eftir Speaks, sem Kristinn Þorsteinsson söng skemmtilega. Þessi tónlist ristir ekki djúpt, en hún er létt og leik- andi, melódían er oftast falleg og aðlaðandi, og sum þessara laga liggja ágætlega fyrir karlakór. — Kórinn mun væntanlega gefa bæjarbúum kost á fleiri. söng- skemmtunum af þessu tagi, því að hann er nú vel þjálfaður og hefur æft stórt „prógram". Hafi „Geysir“ og söngstjóri hans beztu þökk fyrir ánægjulega kvöld- stund. — A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.