Dagur - 29.11.1950, Side 5
Miðvikudaginn 2D. nóv. 1950
DAGUB
5
Þá telur flokksþingið nauðsynlegt, að gerðar verði ráðstaf-
anir til þess að tryggja það enn betur en nú er, að læknar
starfi í þeim héruðum landsins, sem erfiðast hefir reynzt að
fá lækna í.
III. Vinnumál.
Flokksþingið telur brýna nauðsyn bera til að gérðar séu
ráðstafanir til að koma í veg fyrir \innudeilur og langvar-
andi vinnustöðvanir, er lama frámleiðsluna og skapa neyðar-
ástand meðal almennings í landinu. Sérstaklega vill það leggja
áherzlu á eltirfarandi meginatriði:
1. Kaup og kjör fari eftir útreikningi á sannvirði vinn-
unnar á hverjum tíma.
2. Gerðir séu heildarsamningar milli landssamtaka verka-
manna og atvinnurekerída til a. m. k. eins árs í senn.
3. Tryggt verði, að ekki komi til verkfalls eða verkbanns,
nema sannað sé með leynilegri atkvæðagreiðslu, að meirihluti
félagsmanna í hlutaðeigandi stéttarfélagi sé því fylgjándi.
Flokksþingið skorar á samtiik launþega og sarntök atvinnu-
rekenda að fallast á og lreita sér fyrir því, að skipuð verði kaup-
lagsnelnd sérfróðra manna, sem aðilar gefi vald til að ákveða
kaup og kjör, þegar þess er óskáð af þeim sameiginlega, enda
starfi nefndin samkvæmt fyrirfram viðurkenndum megin-
reglum um skiptingu brúttótekna af atvinnurekstri milli
vinnu, stofnkostnaðar og rekstrarfjármagns.
Flokksþingið vekur athygli á því, að athuganir, sem gerðar
hafa t erið að tilhlutan Áiþýðúsambands íslands og Bandalags
sta'rfsmanna ríkis og bæja, leiða í ljós, að einhliða kauphækk-
unarstefna getur verið mjög varhugaverð fyrir launþegana
sjálfa, þar sem kauphækkun ber ekki tilætlaðan árangur nema
sérstök skilyrði séu fyrir hendi. Telur flokksþingið, að sam-
tökum launþega beri fyrst og fremst að vinna að því, að kaup-
máttur launanna verði sem rnestur, m. a. með því að hvetja
launamenn til að taka þátt í starfi samvinnufélaganna og
styðja það af fremsta megni.
Húsnæðis- og byggingantál.
Flokksþingið lítur svo á, að húsnæði sé ein af nauðsynleg-
ustu frumþörfum hvers ntanns, og þess vegna beri þjóðfélag-
inu að stuðla að því, að þessari þörf sé fullnægt svo sem bezt
má verða á hverjuin tírna.
Sökum hinna miklú fólksflutninga og hins öra vaxtar bæj-
anna, hefir mikið jafnvægisleysí myndazt i húsnæðismálum.
Gjaldeyrisöflun og fjárhag þjóðarinnar er nú þann veg
komið, að erfitt mun reynast að bæta úr þessu ástandi á
skömmum thna.
Flokksþingið telur því nauðsynlegt, að Framsóknarflokk-
urinn beiti sér fyrir ýmsum ráðstöfunum til þess, að sá gjald-
éyrir og jiað fjármagn, sem til íbúðabygginga er varið, komi
þjóðfélaginu að sem mestum notum, og að tryggð verði sem
bezt nýting þess húsnæðis, sem til er í landinu.
í þessu skyni bendir flokksþingið á eftirfarandi leiðir:
1. Byggingarsjóði Búnaðarbankans verði tryggt nægilegt
fjármagn til þess að hann geti st'arfað lögum samkvæmt, og
þannig unnið gegn flutningi fólks úr sveitum í bæina.
2. Fjármagn byggingarsjóða verkamannabústaða og sam-
vinnubyggingarfélaga verði aukið eftir megni, s\o að hægt sé
að veita sem hentugust lán til íbúðarhúsa.
3. Iðnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans verði tryggt
nokkurt fé til þess að gera tilraunir með nýjár og hagkvaémar
byggingaraðferðir og stuðla að útbreiðslu þeirra.
4. Byggjendum í bæjum og kauptúnum verði veitt aðstoð
hliðstæð þeirri, er Teiknistofa landbúnaðarins á að veita
byggjendum í sveitum.
5. Afnumið verði það fyrirkomulag, sem nú tíðkast, að
þóknun verktaka miðist við ákveðinn. hundraðshluta af kostn-
aðarverði bygginga.
6. Sett verði skýr lagáákvæði um gagnkvæmar skyldur og
réttindi leigusala og leigutaka húsnæðis.
7. Meðan húsnæðisskortur ríkir, verði reynt að draga úr
honum með húsnæðisskömmtun í einhverri mynd, eftir því
sem bezt hentar á hverjum stað.
8. Stuðlað verði að því, að framkvæmt sé leigumat á leigu-
húsnæði í kaupstöðum landsins á grundvelli þeirra húsa-
leigulaga, sem nú eru í gildi.
9. III. kafli laga nr. 44, frá 1946, um opinberá aðstoð við
byggingar íbúðarbúsa í kaupstöðum og kauptúnum, verði
látinn koma til framkvæmda eins fljótt og fært þykir.
V. Póstsamgöngur.
9. flokksjiing Framsóknarflokksins skorar á þingmenn og
ráðherra flokksins að beita áhrifúm sínum til Jress að póst-
ferðir verði hvergi sjaldnar en að póstur komi einu sinni í
viku, þ\ í að fyrii komulag Jrað, sem nú er, að póstur komi ekki
nema á hálfsmánaðar fresti, er algjörlega óviðundandi.
VI. Tryggingamál.
9. flokksjiing Framsóiknarflokksins skorar á þingmenn
fíokksins að athuga gaúmgæfilega, hvort eigl sé tímabært að
breýta löggjöfinni um brunatryggingar íbúðarhúsa á þann
\eg að leyfa fleiri aðiluin en nú að annast slíkar tryggingar.
Gíæsífeg barnaskólsbygging
vígð í Hofsós
Vatnsveita til þorpsins fullgerð fyrir nokkru
Vígsla nýs barnaskóla á Hofs-
ósi fór fram 29. okt. sl. að við-
stöddu fjölmenni. Prófasturinn,
sr. Guðbrandur Björnsson, flutti
messu í skólanum, en á eftir tal-
aði oddviti hreppsins, Kristján
Hallsson kaupfélagsstjóri, og af-
henti skólanefnd húsið til afnota.
Þá talaði skólastjórinn, Garðar
Jónsson, og því næstnámstjórinn,
sem þarna var mættur fyrir hönd
fræðslumálastjórnarinnar.
Skólahald á Hofsós var orðið
mjög örðugt vegna húsleysis.
Gamla húsið, sem á sinni tíð var
gott, brann í fyrra, en var að
vísu orðið gjörsamlega óhæft,
enda ekki kennt í því seinustu
veturna, heldur leigt hús, sem á
sumrin var notað fyrir gistihús,
en var óhentugt mjög til skóla-
halds. Þess vegna hefur um all-
langt skeið verið mjög ofarlega á
baugi að koma upp sæmilegu
skólahúsi, og réðst hinn litli
hreppur í það strax og hann var
orðinn sjálfstætt sveitarfélag, en
það varð hann 1949. Vann form.
skólanefndar, sr. Guðbrandur,
mjög að skólamálinu, og svo tók
hin nýja hreppsnefnd fram-
kvæmdina að sér, og fyrir frá-
bæran dugnað oddvitans og fórn-
fýsi hreppsbúa, er nú nokkur
hluti byggingarinnar risinn og
tekinn til afnota, en byggingin
öll er hugsuð í áförigum, jafn-
skjótt og þarfirnar kalla, en þetta
sem. nú er gert mun duga all-
lengi, að því er séð verður.
Þessi hluti byggingarinnar er
mikil þorpsprýði, fullgerður og
vel frágengið að öllu leyti. Húsið
er 22,6 metrar á lengd og 9,9 m.
á breidd, tvílyft og breiðir gang-
ar á báðum hæðum. Á neðri hæð
eru tveir inngangar, kennslustofa
fyrir 30 börn, hreinlætisherbergi
fyrir börnin, sitt fyrir hvort kyn,
geymslur og miðstöðvarherbergi.
Á efri hæð eru 2 kennslustofur,
sem hsegt er að gera að einum
sal, áhaldaherbergi, kennarastofa
og hreinlætisherbergi. Og allt er
húsið mjög bjart og vistlegt. Það
stendur á fallegum stað, ofarlega
í þorpinu, og verður stór og falleg
grund í.kringum það. Og gott er
til.þess að vita, aö með dugnaði
og hyggindum hefur reyhZt kleift
að koma húsinu upp fyrir lægra
verð en margir bjuggust við, en
talið er að teningsmetrinn muni
kosta um kr. 320.00. En eigi að
síður er það mikið fyrir fámennt
þorp, enda hafa gjaldendur látið
til skólans síðastliðin 2 ár 1/3 af
öllum tekjum hreppsins. Og þó
ber ekki að gleyma því, að jafn-
framt þessu hefur hreppurinn á
þessum árum náð því langþráða
marki, að leiða vatnsveitu ofan
úr fjalli um þorpið.
Það, sem þetta litla þorp hefur
gert með samhug og samheldni,
er til fyrirmyndar, og margbless-
ist þeim framtakssemin. — Sn. S.
Tilboð óskast
í ljó$asamstæðu, 12i/£ kw.,
ca. 18 hk. Víxilstraumur. —
Einnig í mjaltavélábenzín-
mótor.
Upplýsingar í síma Skjald-
arvík.
Verzlunarmann
og
x\fgreiðslustúlku
Vantar nú þegar.
Afgr. vísar á.
Kvenkjólar
Úrval fyrirliggjándi og
væntanlegt.
Verzlunm Ásbyrgi
Skipagötu 2
Jpplýsingar óskast um
fiogaveika sjiiklinga
Frá Geðverndarfélagi íslands
hefur blaðinu borizt eftirfarandi:
„Um flogaveika (,,krampa“)
hér á landi eru aðeins til litlar
upplýsingar. Líkur eru þó fyrir
að tala þessara sjúklinga skipti
nokkrum hundruðum.
Sjúkdómur þessi birtist í all-
mörgum myndum og er einkum
vægustu tilfellunum oft ekki
nægur gaumur gefinn, einkum
regar krampaköstin eru strjál,
eða um er að ræða smámeðvit-
unamissi, minnisleysisaugnablik,
skapbrigði eða þokuvitund, sem
fara oft undan eða eftir kramp-
anum eða koma í staðinn fyrir
hann. Oll þessi „vægari“ tilfelli
munu algengari en hin þyngri,
óar sem um er að ræða krampa
og meðvitundarmissi. Vægu til-
fellin skipta samt oft meginmáli
fyrir starfshæfni sjúklingsins og
geta jafnvel verið stórhættuleg
fyrir hann sjálfan og aðra.
Þyngstu tilíellin eru þannig, að
sjúklingarnir þurfa á langvarandi
sjúkrahússvist að halda.
Ekki er völ á neinum sjúkra-
húss- eða heimilisplássum fyrir
þá flogaveiku, sem á þeim þyrftu
að halda, og takmörkuð aðstoð,
sem hægt hefur verið að veita
öðrum flogaveikum.
Geðverndarfélag íslands vill
taka tií athugunar, hvort ekki
muni unnt að aðstoða þessa
sjúklinga og aðstanendur þeirra
meir en verið hefur, og beinir því
þeim vinsamlegu tilmælum til
sjúklinga þessara og aðstandenda
þeirra, að senda ritara Geð-
verndarfélags íslands, frk. Guð-
ríði Jónsdóttur, Kleppi, eftirfar-
andi upplýsingar fyrir 1. des.
næstkomandi:
Nafn (eða a. m. k. kyn og upp-
hafsstafi skírnarnafns og föður).
Fæðingardag og ár.
Heimili.
Hvernig íýsir veikin sér?
Örorka — ef um hana er að
ræða.
Hver er læknir yðar sern
stendur?
Samþykkið þér að hann gefi
félagsstjórninni nánari upplýs-
ingar, ef þeirra virðist þurfa?
Er aðbúð sjúklingsins fullnægj-
andi sem stendur?“
Jólagjafir lianda
börnum
Alls koriar húsaýr, fugl-
ar, stríplingar og fleira
úr óbrjótanlegu plástic.
Hljóða, Jiégar Jrau eru
kreyst.
Söluturninn . '
Hamarsstíg
og i.
Verzlunin Ásbyrgi