Dagur - 24.01.1951, Page 4

Dagur - 24.01.1951, Page 4
4 D A GUR Miðvikudaginn 24. janúar 1951 D A G U R I Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson Skrifstofa i Hafnarstræti 87 — Sími 1166 Blaðið keniur út á hverjum miðvikudegi. Árgangurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi er 1. júlí. PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F. //WWW'AAA/',/ Fyrir opnum tjöldum! Enn hefur það komið fyrir, að íslendingar verða að leita til erlendra blaða og útvarpsstöðva til þess að vita, hvað er að gerast í þeirra eigin landi. í þetta sinn birtu stórblöðin báðum megin At- lantshafsins fregnir af fyrirhugaðri hingaðkomu Einsenhowers, meðan þögnin ríkti í Reykjavík. Áður hafa slík tíðindi gerzt í sambandi við þátt- töku í Atlantshafsbandalagi og fleiri utanríkismál. Til þessa liggja þær ástæður, að íslenzk stjórnar- völd virðast ákaflega frábitin þvi að ræða utan- ríkismál við landsmenn sína. Sérstaklega þó þau mál, sem snerta öryggi landsins út á við. Um þau virðist ekki mega tala. Þó eru þetta þau mál, sem eru mest rædd hjá hverri þjóð í nágrenni okkar. Öryggismálin eru mikilvægustu dagskrármálin hjá hinum frjálsu þjóðum um þessar mundir. Þetta á við um íslendinga ekki síður en aðrar þjóðir, en samt er grafarþögn meðal forustumanna þjóðar- innar. Það er hvíslað um þessi mál, en þau ekki rædd fyrir opnum tjöldum. Treysta forustumenn irnir ekki þjóðinni eða eru þeir hræddir við kommúnista? Nýlega birtu tvö óábyrgustu blöð landsins fregnir, sem athygli vöktu. Annað skýrði frá komu amerískra sérfræðinga til Keflavíkur, en hitt frá fyrirhuguðu gjaldeyrislár.i, sem stjómar- völdin væru að undirbúa. Ekkert ábyrgt blað hef- ur svo mikið sem nefnt þessar fregnir á nafn, og enginn ábyrgur stjórnmálamaður gert þær að um talsefni. Nokkur hluti þjóðarinnar leggur trúnað á fregnirnar þegar í stað, en hinn hlutinn er mót tækilegri en áður fyrir þá áróðursstarfsemi kommúnista, sem miðar að því að skapa tortryggni í garð stjórnarvaldanna. Þetta blað hefur engar heimildir um það, hvort þessar fregnir hinna reyk- vísku blaða hafa við nokkuð að styðjast eða ekki. En hitt liggur ljóst fyrir, að þögnin, sem ríkt hefur um þær, hefur létt undir áróðursslarfsemi komm- únista og veikt það traust, sem þarf að ríkja í milli stjórnarvalda og almennings. Ekki af því, að al- menningur óttist það þótt nokkrir tugir banda- rískra sérfræðinga væru komnir til landsins, eða að láns væri leitað erlendis, heldur vegna þess, að fólk sér enga ástæðu til þess að hvísla um þau mál, sem vel má ræða um í heyránda hljóði. Það eru hvíslingarnar og leyndin, sem skapa tor- tryggnina, en ekki djarfmannlegar ráðstafanir, sem gei-ðar eru til viðreisnar og öryggis, og rædd ar eru fyrir opnum tjöldum. ^ ALMENNINGI VIRÐIST, sem stjómarvöld- in vantreysti honum, en stjórnarherrarnir verða að gæta þess, að traust er gagnkvæm tilfinning. Fólk hefur tilhneigingu til þess að vantreysta þeim, sem að óreyndu og ástæðulausu sýna því tortryggni. Það er kominn tími til að meta það réttilega, hvert gagn og styrkur er að frjálsum, einarðlegum umræðum um öll hagsmunamál landsmanna, fyrir opnum tjöldum. Slíkar umræð- ur eru styrkur lýðræðinu. Þær lýsa inn í skúma skot þau, sem nú eru helzta skálkaskjól kommún- ista, uppræta möguleika þeirra til þess að sá fræi úlfúðar og tortryggni í hugi borgaranna, og upp- lýsa mál, sem hverjum þegn er styrkur og nauðsyn að þekkja. Það er hvort tveggja, að umræður um utanríkis- og öryggismál fyrir opnum tjöldum eru styrkur fýjir málstað fullveldis og frelsis, og þegnarnir eiga heimtingu á því, að þeir, sem með stjórn landsins fara, ræði við þá sem ábyrga, hugsandi menn, en meti þroska þeirra og þekkingu ekki eins og kennari hæfileika smábarna. OG NÚ HERMA fregnir frá London, að Eisenhower hershöfð- ingi sé vætanlegur til landsins á morgun. Vonandi fer það ekki svo, að við fáum þá fyrst grein- argerð um ei’indi hans og erind- islok ,er næsta erlendan blaða- póst ber hér að ströndum. FOKDREIFAR Of mikil bjartsýni. MÉR VARÐ ÞAÐ Á í síðustu viku að herma upp á bæjar- stjórnina hér verk. sem hún hafði ekki unnið. Er skylt að leiðrétta það .Eg taldi bæjan-áð hafa lagt fyrir hana tillögu um að fella niður greiðslur til skömmtunar- skrifstofu og vinnumiðlunai-skrif- stofu og bæjarstjórn síðan hafa samþykkt þennan sparnað fyrir bæinn. En því miður varð ekkert úr þessum sparnaði. Þessir liðir eru eftir sem áður á fjárhagsáætl- uninni, eins og hún var sam- þykkt. En skemmtilegt hefði það vei’ið, ef þessi fregn hefði verið rétt, eða eins og einn borgari bæjarins sagði, er hann sá Kom- inform-blaðið reyna að gera sér mat úr þessari missögn: Það var of mikil bjartsýni að ætla bæjar- stjórninni svo skynsamleg vinnu- brögð að láta bæjarskrifstofurn- ar afhenda skömmtunar-skekla þá, sem eftir eru, og spara þann- ig stórfé. Og vinnumiðlunin? Mætti ekki koma henni hagan- legar fyrir? Ekki virtust bæjar- fulltrúarnir sjá neina 'möguleika til ess. En sem sagt: fjörutíu þús- und krónurnar til skrifstofuhalds þessa eru á fjárhagsáætlun bæj- arins 1951 og verður þessum mál- um ekki um þoka'ð héðan af. Ekki of mikil bjartsýni. • EN AF ÞVÍ að eg var hér að ofan að nefna of mikila bjartsýni, ætla eg hér á eftir að nefna dæmi um að bjartsýnin er ekki alltaf of riíikil. Er hér að vísu um mál að ræða, sém er með öllu óskylt fjár- hagsáætluninni og umræðunum um hana og í sannleika mun skemmtilegra viðfangs en hún. MIKILL HLUTI þjóðarinnar virðist til skamms tíma hafa talið forustumenn skógræktarmálanna hér á landi mikla bjartsýnismenn, jafnvel hálfgerða skýjaglópa. Því var almennt ekki trúað, að unnt væri að rækta skóga á íslandi. Og enn í dag trúir ekki nema lít- ill hluti landsmanna því, að unnt sé að rækta hér nytjaskóg. En í síðustu viku birti Tíminn fregn hér að norðan, sem mjnnir á hversu skógargróðurinn í landinu er harðgerður og lífsseigur. Þessi fregn hafði farið fram hjá okkur flestum Eyfirðingum, og hefði einhver mátt koma henni á fram- færi við blöðin hér fyrr. En fregn þessi greinir frá því, að fundizt hafi í sumar breiður af birki- plöntum á Þorvaldsdal hér í Eyjafirði. Voru það áhugamenn af Árskógsströnd og Ármann Dal- mannsson, framkvæmdastjóri Skógræktai’félags Eyfirðinga, sem gerðu uppgötvun þessa. Eru fornar skógarleifar þarna að koma í ljós, og ástæðan til þess að plönturnar vaxa nú úr grasi er sú, að ekkei-t sauðfé hefur gengið á Þorvaldsdal nú um skeið. ÞARNA ER að endurtaka sig ævintýi’ið, sem gerðist á Þela- mörk um árið, er Jónas Þór verk- smiðjustjóri tók eftir því, er hann var þar á berjamó, að lágvaxnar birkiplöntur voru til innan um lyngið. Landið var síðan girt af Skógræktarfélaginu, og nú ekur enginn svo um Þelamörk, að hann veiti ekki hríslunum þar athygli. Allar líkur benda til þess, að mjög víða megi koma upp fallegum birkiskógi með því að girða landsvæði og forða ágangi búfjár. Líklegt er að landsvæðið í Þorvaldsdal verði girt á næstunni og fallegur birki- skógur vaxi þar upp á næstu ár- um. En eru ekki miklu fleiri möguleikar af þessu tagi í hérað- inu? Mætti ekki hraða því, að klæða héraðið skógi, með því að endurtaka athuganirnar á Þela- mörk og Þorvaldsdal víðs vegar um héraðið? Hér er mikið verk- efni að vinna að fyrir félagasam- tök og einstaklinga. Hvar finnast foi’nar skógarleifar næst? Erfið störf. SKIPULAG ÞAÐ, sem sam- vinnumenn hafa komið á mjólk- urmál héraðsins hefur á fáum ár- um gjörbreytt samgöngunum innanhéraðs. Nú má kalla að dag legar ferðir séu í flestar sveitir, vetur og sumar. Þetta hefur geysilega þýðingu fyrir fólkið, sem sveitirnar byggir, það dreg- ur úr einangruninni, skapar betri afkomumöguleika og spyrnir í móti því að menn yfirgefi land- búnaðarstöi’fin. En þetta hefur ekki síður mikla þýðingu fyrir bæjarfólkið. Akureyringar þekkja ekki mjólkurskömmtun eða skort á mjólkurvarningi. Þeir heyra fréttir af slíku frá fjarlæg- um landshlutum, en sjálfir geta þeir keypt mjólkurvörur að vild allan ái’sins hring. Slík aðstaða er mikils virði, og kunna þeir l bezt að meta hana, sem búið hafa við skortinn annars staðar um hríð. En sambandið í milli neyt- enda og framleiðenda hvílir að verulegu leyti á herðum þeirra manna, sem starfa að því að flytja mjólkina til bæjai'ins, hvernig sem viðrar. Það eru er- ilsöm störf og erfið og þó einkum .er snjóþungir vetur ganga yfir, eins og sá, er nú ríkir. Mjólkur- bílstjórarnir hér í héraðinu hafa að undanförnu átt erfiða daga. — Dalvíkurbílstjórarnir bi’utust með mjólkina í bæinn í ófærðinni á dögunurn og voru 37 klst. á leiðinni uppihaldlaust! Bílstjór- ar hér framan úr firðinum voru 18 klst. á leið í bæinn á dögunum. Fleiri dæmi um þrautseigju og dugnað bílstjóranna mætti að sjálfsögðu nefna, en þessi nægja til þess að minna bæjarbúa á, að þeir standa í þakkarskuld við þessa ötulu og ósérhlífnu menn, sem setja stolt sitt í að komast á leiðarenda, þótt í móti blási og leggja nótt við dag, ef þurfa þyk ir, án þess að kvarta. Kuldajakkar, karlmanna Hettujakkar, barna og unglinga Vefnaðarvörudeild Böroin og peningarnir Við höldum áfram að ræða um börnin og pening- ana og vísast til teggja fyrri dálka um þetta sama efni, þ. e. í tölublöðunum frá 5. og 10. jan. sl. Að greiða vinnu í heimilinu. Við höfum áður rætt um vikupeninga barnsins og því verið haldið fram, að heppilegt væri, að börn fái fastákveðna upphæð vikulega til eigin nota og ráðstöfunar. Höfundar bókarinnar ,,Börn og pen- ingar“ telja, að þessi í’áðstöfun hafi tvímælalaust uppeldislegt gildi, þótt hún sé að vísu ýmsum tak- mörkunum háð. Með vikupeningunum lærir barnið, hvað hægt sé að kaupa fyrir peninga, og sum þeirra munu læra að kaupa skynsamlega. Ef vel tekst má einnig vera, að barnið læri að spara. En vikupening- arnir gefa því enga hugmynd um það erfiði, kunn- áttu eða aðra hæfileika, sem þurfti til þess að afla peninganna. Hvernig og hvenær á barnið að kynn- ast því? Um það atriði segir bókarhöfundur: „Oft er nauðsynlegt að haga því svo til, að barn- ið geti fengið eitthvað að gera í heimilinu, sem það á skilið þóknun fyrir. Vitanlega ber barninu ekki nein peningagi’eiðsla fyrir að hjálpa til við hin venjulegu heimilisstörf. Að þurrka diska, búa um rúm og bursta skó, eru verkefni fyrir börnin, þegar þau hafa aldur til þess. Það getur engan veginn tal- izt rétt, að gera þátttöku barnsins í þessum sameig- inlegu þörfum heimilisins að vinnu, sem það eigi skilið að fá þóknun fyrir. Það væri rangt bæði gagn- vart barninu og móðurinni. Slíkt fyrirkomulag myndi sundra þeirri heild, sem heimilið á að vera. Það liefur ákveðnar siðferðisskyldur að vera meðlimur fjölskyldunnar, eins og það í’aunar hefur í séi’hverri félagsheild. Aðrar skyldur tökum við að okkur gegn þóknun. Það er mjög æskilegt, að barn- ið læri snemma að gera greinarmun á þessum tvenns konar skyldum. Barninu ber vitanlega engin þóknun í peningum fyrir að ganga hljóðlega um, þegar einhver er veikur, eða sefur í næsta herbergi við það — eða væri rétt að gefa því einn brjóstsyk- urmola fyrir hverja mínútu, sem það hefur stjórn á hegðan sinni? Þegar barnið fer í sendiferðir fyrir einhverja verzlun, eða ber út blað, á það skilið borgun fyrir það í hlutfalli við erfiði og tíma, sem það hefir lagt að mörkum. Hér er ekki um siðferðisskyldur að ræða, því að með því að leysa slík verk af hendi, er barnið að fullnægja þætti sinum af gerðum samn- ingum. Þetta er mikilvægur munur. Ef foreldrar og börn gerðu sér hann vel ljósan, væri áreiðanlega hægt að komast hjá margs konar ruglingi og óþægindum í sambúð þeirra. Við ætlumst til að fá greiðslu fyrir vinnu okkar, en við getum ekki ætlast til að fá gi-eidda peninga fyrir að hafa ynnt af hendi okkar skerf af siðferðilegum skyldum þeirrar heildar, sem við tilheyrum. Ef við greiðum barninu fé fyrir að ynna af hendi þær skyldur, sem raunverulega hvíla á því sem fjölskyldumeðlim, gerum við því erfitt fyrir að skilja rétt samband þess við heildina. Dag nokkurn kemur Nonni til okkar og segir, að hann vilji heldur vera laus við að þurrka uppþvottinn, en að fá borg- un þá, sem hann var vanur að fá fyrir það. Senni- lega leggur Nonni þó ekki frá sér þurrkuna í þetta skipti, en hann er ráðinn í því að þui-rka ekki upp- þvottinn framar, frá deginum í dag að telja. Við getum krafizt þess, að hann gefi okkur uppsagnar- frest, en að öðru leyti hefur hann fullan rétt til þess að segja upp samningi, sem hann telur sér ekki hagkvæman. Þegar slíkt kemur fyrir, verða flestir foreldrar hissa og ráðþrota. Nú er of seint að tala um þakk- læti, hjálpsemi og siðferðisskyldur. Við höfum sjálf gert þjónustu Nonna að verzlunarvöru. Við höfum blandað saman gagnkvæmri hjálpsemi í heimilinu (Framhald á 7. síðu).

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.