Dagur - 24.01.1951, Side 6

Dagur - 24.01.1951, Side 6
6 D A G U R Miðvikudaginn 24. janúar 1951 Viðburðarríkur dagur Saga eftir Helen Howe. 22. DAGUR. (Niðurlag). ,-,Það fer nú allt eftir aðstæð- um,“ sagði Faith, og sér til undr- unar fann hún, að hún hafði skemmtun af samtalinu. Sú tíð er liðin, hugsaði hún, að þessi kona geti sært mig. „Ert þú búin að gera þínar á- ætlanir fyrir sumarið, elskan?" spurði Dusty, og var nú aftur kominn á slóðina. „Ekkert, sem í frásögur er fær- andi,“ svaraði Faith. „En hvem- ig er með þig.“ „Ja, Gogo Osterer er búin að biðja mig að koma með sér til Reno, en ég hef ekkert ákveðið. Eg hef tvisvar áður verið í Reno. Annars er ákaflega unaðslegt um hverfi þar. Hefur þú komið þang- að, elskan? „Nei, ég hef aldrei verið þar.“ „Ef það ætti fyrir þér að liggja — ég á við, að ef þú færir um Nevadafylki, láttu mig vita áður, ég þekki dásamlega skemmtileg- an stað tíu mílur frá borginni.11 „Þakka þér fyrir, Dusty. Eg skal muna það.“ „Jæja, ég ætla ekki að tefja þig. Það var leiðinlegt að þið Eric gátuð ekki komið í kvöld.“ „Já, mér þykir það leitt, en þú skilur að við getum það ómögu- lega. Við vorum búin að ákveða annað ,og svo er þetta sérstakur dagur, tíunda brúðkaupsafmælið okkar.“ „í dag? Segirðu satt? Það er einkennileg tilviljun.“ „Finnst þér það? Hvert árið er ekki lengi að líða.“ „Já, satt er það, en samt ein- kennileg tilviljun að afmælið skyldi endilega vera í dag — jæja — góða skemmtun.“ „Þakka þér fyrir. Við skemmt- um okkur áreiðanlega konung- lega.“ Faith lagði símann frá sér, og bros lék um varir hennar. Hún hafði talað án allrar beiskju, ró- lega og yfirvegandi, en samt ákveðið. Henni hafði ekki fund- izt neitt gaman að því beinlíns, að ná sér niðri á skrafskjóðunni, sem hafði búizt við allt öðru. En hún fann að hún var að öðlast nýtt viðhorf til lífsins, eftir raun- ir dagsins. „Hver var þetta?“ kallaði Eric. „Það var Dusty.“ „Hvað vildi hún?“ „Hún bauð okkur í kvöldverð.“ „Hvað sagðir þú?“ „Eg sagði, að við værum að fara í leikhúsið af því að við héld- um brúðkaupsdaginn hátíðlegan." Hún heyrði að hann var tauga- óstyrkur er hann spurði: „Lang- ar þig í rauninni í leikhúsið?11 „Já, mig langar." Hún sá nú sér til mikillar hug- arhægðar, að hún mundi ekki þurfa að segja meira en þetta við hann. Vitaskuld mundu þau .fara í leikhúsið og skemmta sér vel, eins og alltaf hafði verið ráðgert. Rödd Monu skaut upp í endur- minningunni: „Faith, þú þekkir ekki örðið.“ Hún gæti hafa sagt við hana, í fullu öryggi: „Jú, eg þekki það.“ Og hún sá það rist stórum stöfum á tjald hugans. Og það undarlega var, að það var ekkí hægt að segja orðið, heldur aðeins lifa merkingu þess: Það var ást. Faith gekk inn í herbergið og staðnæmdist við hlið Erics. Hann var enn að lesa fyrir Fay, og skær hlátur barnsins hljómaði um stofuna. „Jæja,“ sagði Faith, og röddin lýsti því að henni fannst tími til kominn að hann hætti lestrinum. Eric og Fay horfðu á hana. „En mamma.... “ Fay ávarpaði móðuf sína blíðlega. „Þú. mátt ekki fara strax. Eg þarf að tala við þig.“ „En e.g hef engan tíma til þess núna, elskan mín.“..... „En því komstu svona seint? Hvar varstu? Þú sagðir í morg- un, að þú ætalðir að vera heima seinna partinn." „Ja, en það fór nú allt svolítið öðruvísi, og guði sé lof, þrátt fyrir. allt, að þetta varð ekki venjulegur dagur.“ „En hvað varstu að gera, mamma? Hvar varstu?1.1 endur- tók Fay. „Æi, eg var bara inni í borg, í ýmsum snúningum.“ Faith stóð á fætur, leit bros- andi til mannsins síns og rétti honum höndina. Fay fór að hlæja. Og Eric tók undir. Og á leiðinni út úr her- berginu litu þau hvort í annars augu. Tár hrukku niður á vang- ana. SÖGULOK. Bollapör nýkomin. Járn- og glervörudeild. Te-stell 12 manna. Járn- og glervörudeild. ÍÞRÓTTIR Innanfélagsmót K. A. Innanfélagsmót K. A. hófst að þessu sinni 7. þ. m. með keppni í svigi yngri flokka. Fór keppnin hið betza fram í Búðargili og voru þátttakendur fjölmargir í þrem aldursflokkum, komu þar fram margir mjög efnilegir skíða- menn, sem ábyggilega eiga eftir að keppa í framtíðinni, félaginu og bænum til mikils sóma. Fyrir áramótin hélt félagið námskeið fyrir byrjendur í skíða- íþróttinni og var það ágætlega sótt, þrátt fyrir slæmar aðstæður unglinga og skólabarna til að sækja æfingarnar. I ráði er að á næstunni verði haldið annað námskeið með líku sniði. Úrslit í svigi, yngri fl.: Flokkur 9 ára og yngri. 1. Friðrik Árnason, 26,1 sek. 2. Hreinn Tómasson, 29,4 sek. 3. Stefán Jónsson, 36,4 sek. 4. Trausti Jónsson, 48,4 sek. Flokkur 10—12 ára. 1. Skjöldur Tómasson, 27,4 sek. 2. Þráinn Karlsson, 32,4 sek. 3. Eðvarð Jónsson, 33,5 sek. 4. Hörður Sverrisson, 37,6 sek. 5. Sveinn Pálmason, 37,9 sek. 6. Jóhann Sigtryggsson, 39,8 sek. 7. Tómas Sigurjónsson, 40,5 sek. 8. Jón Steindórsson, 44,5 sek. Flokkur 13—15 ára. 1. Magnús Ólason, 37,4 sek. 2. Sveinn Magnússon, 43,3 sek. 3. Árni Árnason, 44,0 sek. 4. Ingimar Jónsson, 52,7 sek. tíeðjiianiiband, úr gulli, tapaðist sunnud. 14. þ. m. á leiðinni írá Þingvallastræti 18 að Nýja Bíó. — Finnandi vinsam- lega beðinn að skila, gegn fundarlaunum, til Sigurðar O. BjörnsSonar. Bifreiðastöðin STEFNIR si. Símar 1218 og 1547 Nokkrar kýr til sölu Arni Asbjarnarson Kaupangi Tvö samliggjandi herbergi til leigu í Oddeyrargötu 5. Leo Sigurðsson B a r n a v a g n til sölu í Fjólugötu 15 (niðri). ílerbergi óskast, með húsgógnum. — Upp- lýsingar í Útgerðarfélagi Akureyringa h. f. Sími 1592. Brúnn foli vetrargamall, tapaðist frá Sigluvík á Svalbarðs- strönd í nóv. s. 1. — Vin- samlegast gerið mér að- vart, ef lians verður vart. Steingr. Valdimarsson Tómar flöskur keyptar liæzta verði. Sápuverksm. SJÖFN Úrarmbönd > á dömuúr. Ásgrímur Albertsson, gullsmiður. — Sími 1889. Til sölu: Borðstofuborð úr eik, 4 stólar og stofuskápur. Bragi Eiríksson, Austurbraut G. Sími 1612. ~ AÐALFUNDUR | Akureyrardeildar K. E. A. verður haldinn að Hótel K. E. A. (uppi) miðvikudaginn 31. janúar og hefst kl. 8.30 síðdegis. Dagskrá skv. samþykktum félagsins. Á fundinum verður sýnd kvikmynd af landbúnaðarstörfum, mjólkurframleiðslu og mjólkurvinnslu í mjólkursamlagi K. E. A., þótt ekki verði um lögmætan aðalfund að ræða. Deildarstjórnin. Tóm sultuglös Kaupum tóm sultuglös, /2 kílós. Þurfa að vera með góðu loki og gúmmí-pakkningu. Kjötbúð KEA ---- ■ ....- . . >J AUGLYSING I nr. 1/1951, frá skömmtunarstjóra Ákveðið hefir verið, að „skammtur 2, 1951“ (rauður litur) af núgildandí „Fyrsta skömmtunárseðli 1951“, skuli vera lögleg innkaupaheimild fyrir 500 grömmum - af smjöri, frá og með deginum í dag og til aprílloka 1951. Reykjavik, 16. janúar 1951 Skömmtunarstjóri. Bændur Höfum fengið eftirfarandi fóðurvörur: Amerísk kúafóðurblanda, Maismjöl, Hveitiklíð. Ameríska fóðurblandan er þegar orðin þekkt i flestum sveiturn landsins vegna gœða og hins lága verðs. Verzlunin Eyjafjörður h.f.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.