Dagur - 21.02.1951, Page 12

Dagur - 21.02.1951, Page 12
12 DAGUR Miðvikudaginn 21. febrúar 1951 2300 Ákureyringar félagsmenn í \ Frá aSalfundi Akureyrardeildar KEÁ síðastliðið Mánudagskyöld Aðalfundur Akureyrardeildar KEA var haldinn að Hótel KEA sl. mánudagskvöld og var fund- urinn vel sóttur. í skýrslu deild- arstjórans, Birgis Þórhallssonar, um hag deildarinnar á sl. ári, kom það fram, að 2297 Akurcyr- ingar eru nú félagsmenn í KEA og hafði þeim fjölgað um 141 á árinu. Hagur deidlarinnav er góður, sjóðeignir hennar um 40 þús. kr., en þar með talið er kr. 10 þús., sem aðalfundur í fyrra samþykkti að leggja fram til byggðasafns, er þar að kæmi. Að tilhlutan Akureyrardeild- ar var nemendum efsta bekkja skólanna í bænum boðið að skoða ýmis fyrirtæki KEA á sl. ári, og var því boði vel tekið af skólun- um. í ráði er að hingað komi í apríl næstk., á vegum deildarinn- ar, frk. Kristín Guðmundsdóttir híbýlafræðingur, til að flytja hér fyrirlestra um híbýlaprýði. Verð- ur deildarmönnum gefinn kostur á að heyra erindi hennar og má ætla að þau veki eftirtekt og um- hugsun. í skýrslu sinni minnti deildar- stjórin ná, að Kaupfélag Eyfirð- inga er 65 ára á þessu ári, og færði hann félaginu árnaðaróskir deildaripnar af því tilefni. Þá flutti Jakob Frímansson kaupfélagsstjóri skýrslu um rekstur KEA á sl. ári, og komu þar fram ýmsar upplýsingar, sem áður höfðu verið birtar á félags- ráðsfundi og hefur verið getið ýtarlega hér í blaðinu. Ný reglugerð fyrir deildina. Á fundinum var rædd og sam- þykkt ný reglugerð fyrir Akur- eyrardeild. Er þar m. a. gert ráð fyrir því að deildarstjórnin geti ráðstafað alít að 2/3 hlutum árs- tekna deildarinnar til fræðslu- Jón Sveinsson fær eftirlaun Á bæjarráðsfundi 15. þ. m. var rætt um erindi Jóns Sveinssonar um eftirlaun, en til er samþykkt bæjarstjórnar um eftirlaun til handa Jóni Sveinssyni. Samþykkt var að greiða honum 40% eftir- laun miðað við laun bæjarstjóra á hverjum tíma, enda fari saman- lagðar tekjur hans og eftirlaun ekki fram úr bæjai-stjóralaunum. Hins vegar var frestað að taka ákvörðunn um ýmis störf, sem Jón býðst til að vinna fyrir bæinn fyrir 300 kr. mánaðarlaun að við- bættum uppbótum. og útbreiðslustarfs og til styrktar öðrum menningarmálum. Kosningar. í deildarstjórn til þriggjá ára voru kjörnir: Ármann Dal- mannsson og Þorsteinn Þor- steinsson, og til eins árs: Tómas Árnascjn. Fyrir í deildarstjórn- inni erú, auk deildarstjórans, Birgis Þórhallssonar, séra Frið- rik J. Rafnar, dr. Kristinn Guðmundsson og Brynjólfur Sveinsson. Fulltrúi á félagsráðs- fund var kjörinn Snorri Sigfús- son námsstjóri. Þá voru kjörnir 77 fulltrúar á aðalfund KEA og 20 varamenn. Kjötbúðarútibú — kolasala. Á meðal atriða, sem upplýstust í umræðum á fundinum voru: KEA er að undirbúa að setja á stofn útibú frá kjötbúðinni í Ránargötu á Oddeyri, og mun sú framkvæmd verða til mikilla þæginda fyrir félagsmenn. Félag- ið mun á vori komanda láta steypa plan undir kolabirgðir sínar, eða ganga á annan full- nægjandi hátt frá kolageymsl- unni. Oviðráðanlegar orsakir valda því, að kolin hafa verið geymd á kambinum á Oddeyri án frekari umbúnaðar nú í vetur, m. a. að lóðarsamningur vav til eins árs aðeins, en hefur nú verið framlengdui' í fimm ár. Álagning á kol er nú svo lág (ca. 3%), að ekki er unnt að leggja í veruleg- an kostnað við kolaverzlun, t. d. að byggja yfir hana. Búnaðarþing hófst í gær Búnaðarþing hófst í Reykjavík í gær. Sitja þingið fulltrúar Bún- aðarsambandanna víðs vegar um landið. Fulltrúar Eyfirðinga eru þeir Hólmgeir Þorsteinsson og Olafur Jónsson. Á fundinum í gær afhentu fulltrúarnir úr Austfirðingafjórðungi Búnaðar- þingi fallegan fundarhamar og bjöllu, haglega útskorna gripi með myndum af austfirzku landslagi, til minningar um för Búnaðarþings til Austurlands. Frestað að ráða slökkviliðsstjóra Á fundi hæjarráðs 15. febrúar var samþykkt að fresta að ráða slökkviliðsstjóra fyrst um sinn, en núv. slökkviliðsstjóri gegnir embættinu til áramóta. Átta um- sóknir höfðu borizt um starfið. Umsækjendur eru: Aðalsteinn Austmar, Ari Jóhannesson, Gunn ar Jósefsson, Gunnar Steindórs- son, Gústaf Andersen, Haukur Pétursson, Stefán Halldórsson og Sveinn Tómasson. Mb. Björn Jönindsson sökk við Snæfellsnes Mótorbáturinn Björn Jörunds- son, frá Olafsvík, sökk í fyrradag, undan Ondverðarnesi, er bátur- inn var á leið í fiskiróður. Kom óstöðvandi leki að bátnurn. Ol- afsvíkurbátar bjögruðu skips- höfninni, 5 mönnum. Báturinn var 27 lestir að stærð. Báturinn var — eins og nafnið ber með sér — upphaflega gerður út frá Hrís- evy af Birni Ólasyni útgerðarm. þar, en var seldur til Ólafsvíkur fyrir nokkrum árum. VéSar Glerárstöðvarinnar eyði- s Rafveitan fær 130 þúsnnd kr. trygg- ingafé fyrir stöðvarhúsið - allt annaö ovatryggt Templarar vilja leigja Samkomu- hús bæjarins fil híóreksturs Líklegt að húsið verði leigt - enda verði starf- leikfélagsins tryggt rúin þar Fyrir bæjarstjórnarfundi í gær lágu tvö tilboð um leigu á Sam- komuliúsi bæjarins til bíó-rekst- urs. Voru þau frá NorSurlanldsbíó kr. 65 þús. ársleiga, og frá Skjald- borgarbíó (témþlarar) 75 þús. kr. ársleiga. Tilboðin miðast við það, að allt húsið sé tekið á leigu, að undan- teknu skrifstofuhúsnæði bæjar- ins á neðstu hæð. Skjaldborgar- bíó býður auk þess 200 þús. kr. lán með 5% vöxtum, sem endur- greiðist með leigunni mánaðar- lega. Bæjarráð hafði á fundi 15. þ. m. samþykkt að leggja til að til- boði Skjaldborgarbíós yrði tekið og var búizt við því í gær, að bæjarstjórnin mundi samþykkja leiguna. Leikfélaginu tryggt húsnæði. Leigan mun verða því skilyrði háð, að Leikfélag Akureyrar fái afnot hússins til starfsemi sinnar, en eins og kunnugt er hafa að undanförnu verið gerðra miklar breytingar á húsinu til þess að gera það að viðunanlegu leikhúsi. Mun salurinn nú ágætur til leik- og bíósýninga og allt önnur að- staða en áður var. Viðgerð hússins er nú langt komið. Það mun nú hafa komið í Ijós, að vatnsaflvélar Glerárstöðvar- innar og hráolíumótorinn, sem í stöðinni var, munu ekki hafa eýðilagst í brunanum í stöðinni sl. miðvikudagskvöld og munu liorfur á að hægt verði að nota vélamar aftur með nokkurri við- gerð. Hefur því farið betur en á horfðist, því að eldurinn í stöð- inni var mikill og magnaðui' og voru helzt horfur á því á mið- vikudaginn að allt mundi eyði- leggjast, sem í húsinu var. Þessi niðurstaða er því heppi- legri, sem það er nú upplýst, að vélarnar voru óvátryggðar og öll brunatryggingin á stöðinni var skyldutrygging hússins hjá Brunabótafélagi íslands í Glæsi- bæjarhreppi, 163 þúsund krónur. Mun bærinn fá 133 þús. kr. trygg ingafé út úr þeirri tryggingu og eru það allar bæturnar fyrir brunatjónið. Sú skýring mun á því að aflvélarnar voru ekki brunatryggðar, að svo erfitt sé að fá brunatryggingu á slíkum aflvélum, að tryggingaskírteini séu yfirleitt ekki keypt út á þær. Munu vatnsaflvélar yfirleitt hvergi tryggðar fyrir bruna hér á landi, t. d. munu orkuvélar Laxárvirkjunarinnar ekki tryggð ar þannig. En margt fleira var í húsinu en aflvélarnar, t. d. há- spennutæki ýmisleg, áhöld, olíu- birgðir o. fl. Ennfremur var að- staðan í Glerárstöðinni önnur en t. d. í Laxárverinu, því að þarna var hráolíumótor og sífelld eld- hætta af honum. Sýnist því all- undarlegt að skyldutrygging hússins skuli hafa verið eina brunatryggingin, sem bærinn hfaði á aflstöðinni og er þörf á því að upplýst sé, hvers vegna sá háttur var á hafður og hver ber ábyrgðina á því. Ætlunin mun vera að endur- reisa Glerárstöðina eins fljótt og kostur er og mun undirbúningur að því þegar hafinn. Húsið alelda á skammri stund. Eldur varð laus í stöðvarhúsinu við Glerá kl. 5,30 e. h. sl. mið- vikudag. Einn maður var þar á vakt, Njáll Bjarnason, og slapp hann nauðuglega út úr húsinu, svo ört breiddist eldurinn út. Er helzt gizkað á að kviknað hafi í olíu eða olíugasi í sambandi við hráolíumótorinn, sem í húsinu var. Komst eldurinn og brátt í hráolíutankinn, sem áfastur var húsinu og stóðu eldsúlurnar þá hátt upp úr gilinu, en kolsvai'tan olíureyk lagði norður yfir Gler- árþorp. Slökkviliðið kom brátl á vettvang en fékk ekki við neitt ráðið. Féll þak hússins brátt, en eftir það logaði lengi í olíutankn- um. Slökkviliðið reyndi einkum að verja aflvélarnar og tókst það að verulegu leyti með því að vélarnar eru nú ekki taldar ónýtar. Fyrsta rafstöð bæjarins. Glerárstöðin var byggð 1922 og var um 300 hestöfl og var þá aðal- rafstöð bæjarins. Um 1930 var 180 hesta hráolíumótor bætt við til þess að auka orkuna. Stöðin var nú hin seinni ár notuð til þess að létta undir með Laxárorkuver- inu, þegar spennan var lægst, og þegar orka frá Laxá brást, fram- leiddi stöðin orku fyrir spítalann, Kristneshæli o. fl. stofnanir, sem helzt þurfa rafmagns með. Er nú sú orka, sem fæst frá Hjalteyri, eina varaaflið, sem bærinn hefur yfir að ráða, ef Laxá bregst. Eru því mikil bein óþægindi að því að stöðin skuli hafa ónýtzt. Góð útkoma á merkja- sölu Rauðakrossins Merkjasala Rauðakrossins hér á Akureyri á öskudaginn gekk heldur betur í ár en í fyrra, og má útkoman kallast góð. Alls komu inn kr. 7.853.00 hér í bæn- um og næsta nágrenni, eða sem næst króna á mann. í fyrra var upphæðin nokkur hundruð krón- um hærri. Síðustu sölur togar- anna Harðbakur seldi í Grimsby sl. laugardag, 3.629 kit fyrir 9.771 sterlingspund. „Kaldbakur" mun væntanlega selja í Fleetwood í dag. Markaðshorfur eru slæmar. í þessari ferð Harðbaks var gerð breyting á lest skipsins, þannig, að pláss það, sem tekið var undir fiskimjölsverksmiðjuna var minnkað um eina stíu. Mun skip- ið lesta svipað magn og minni togararnir eftir þessa breytingu, en áður lestaði það minna magn af ísfiski, enda þótt skipið sé stærra. „Svalbakur“ og „Jör- undur“ eru á veiðum. A. m. k. tveir nýju togaranna syðra, eru farnir á ufsaveiðar, fyrir fiski- mjölsverksmiðjur, og munu fleiri bætast í hópinn, ef brezki mark- aðurinn skánar ekki.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.