Dagur - 07.03.1951, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 7. marz 1951
Neikvæð gagnrýni stjórnar-
andstöðunnar
Sljórnarþátttaka Framsóknar-
flokksins
Fyrii' kosningar 1949 var það
álit Framsóknarflokksins, að fram
leiðslan væri raunverulega stöðv-
uð og ríkissjóður gjaldþrota,
nema breytt væri um fjármála-
stefnu. Flokkurinn benti á sem
úrræði, annað hvort niðurfærslu
eða gengisbreytingu í samræmi
við fall krónunnar, vegna fjár-
málastefnu fyrri ára. Þessa stefnu
birti Framsóknarflokkurinn í
kosningaávarpi og blöðum
flokksins. Það eru því hrein öfug-
mæli, þegar því er haldið fram,
að Framsóknarflokkurinn hafi
breytt öðru vísi eftir kosningarn-
ar, en hann lofaði.
Það telst nú þjóðkunn stað-
reynd, að Framsóknarflokkurinn
marg reyndi að koma á sam-
starfi við Alþýðuflokkinn, en
þingflokkur hans samþykkti að
taka ekki þátt í stjórn. Það leiddi
til óhjákvæmilegs samstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn, þar sem
Framsóknarflokkurinn taldi það
skyldu sína, að ef Alþýðuflokk-
urinn brygðist, yrði að leita
meirihlutafylgis við breytta fjár-
rriálastefnu eftir öðrum leiðum.
Fyrsta og helzta kosningaloforð
Framsóknarflokksins var að
vinna að heilbrigðari fjármála
stefnu. Þetta hefir flokkurinn
efnt, svo ekki verður á móti
mælt.
Hver er hin breytta fjármála-
stefna?
Með styrkja- og uppbótar-
leiðinni hafði ríkissjóður safnað
175 millj. kr. skuldum árin 1947,
1948 og 1949. Ríkissjóður heimt-
aði með góðu eða illu fé af
Lahdsbankanum. Þetta leiddi til
þess, að lánsfé bankans til fram-
kvæmda stórminnkaði. En minni
framkvæmdir orsaka einmitt at-
vinnuleysi. Samfara þessu voru
lagðir eins háir skattar á almenn-
ing og unnt var. Verðbólgan óx
alltaf, án þess að nokkur rök
væri hægt að leiða að því, að hún
stöðvaðist nokkurn tíma. Þjóð-
inni var að blæða út fjárhagslega,
vegna ósamræmis, sem orðið var
milli verðlags hér og annars stað-
ar. Stöðugt versnaði líka hlut-
fallið milli framleiðslukostnaðar
og afurðaverðs. Vöruskorturinn
jókst og ýmsii' erfiðleikar í vax-
andi mæli sýndu sig.
Hin breytta fjármálastefna er
aðallega fólgin í því að koma á
auknu jafnvægi í þióðarbúskapn-
um. IComa samræmi á milli þess
peningamagns, sem er í umferð og
framleiðsluverðmætis á hverjum
tímá. Og leggja þannig grundvöll
að aukinni framleiðslu og þar
með bættum lífskjörum almenn-
ings.
Fyrsta skrefið, sem stígið hefur
verið til aukinnar framleiðslu og
aukins jafnvægis ei' gengislækk-
un. Það er næsta auðskilið mál,
að það hlýtur að örfa framleiðsl-
una, að framleiðandinn fær nú
kr. 45.70 í stað kr. 26:22 fyrir
framleiðslu, sem selzt á erlend-
um markaði fyrir eitt sterlings-
pund og samsvarandi um dolíara
og gengi annars gjaldeyris.
Næsta skrefið var að gera ráð-
stafanir til að bæta afkomu rík-
issjóð í því augnamiði að rétta
hallann á ríkisbúskapnum. Ár-
angurinn er sá, að rekstraraf-
gangur ríkissjóðs^ árið 1950 var
34 millj. króna og skuldir þær,
sem ríkissjóður stendur straum
af, lækkuðu um 13 millj. kr. Þess
má vænta, að aukinn innflutn-
ingur á árínu bæti afkomu ríkis-
sjóðs þannig, að hann verði fær
um að greiðá Landsbankanum
skuldir, en það leiðir aftur til
rýmkunar á lánastarfsemi bank-
anná til aukinria framkvæmda og
meii'i atvinnu.
Samhliða þessum framkvæmd-
um vai'ðandi ríkisfjárhaginn hafa
verið gerðar ráðstafanir til þess
að draga nokkuð úr heildarfjár-
festingu og færa hana til sam-
ræmis við það, sem þjóðin legg-
ur til hliðar af árlegum
tekjum sínum, auk þess erlenda
fjármagns, sem flyzt inn í landið.
Fyrstu árangrar hinnar breyttu
fjármalastefnu eru nú að koma
í ljós. Kleift hefur orðið að losa
um viðskiptahöftin og gera
mögulegan nægilegan vöruinn-
flutning og bæta þannig lífskjör
almennings með bættum verzl-
unarháttum. En vænta má að
samíara umbótum á sviði fjár-
hags- og viðskiptamála örfist og
aukizt öll framleiðsla. Það liggur
því ljóst fyrir, að hin breytta
fjármálastefna hefur þegar skiljð
verulegum árangri,. þrátt fvrir
mörg og stór áföll á árinu 1950.
Fjárhagur ríkissjóðs er góður,
þrátt fýrir mjög lítinn innflutning
og þar af leiðandi minni tolla og
skatta. Gjaldeyrisafkoma lands-
manna hefur stórbatnað, þótt
togararnir hafi legið í höfn mán-
uðum saman og síldveiðarnar
brugðizt í sjöffiksinn í röð. Jafn-
hliða hefur svo verið unnt að
ráðast í nýjar stórframkvæmdir,
þar sem eru virkjanirnar við Sog-
ið og Laxá, stærstu og mestu
framkvæmdir, sem þjóðin hefur
ráðizt í til þessa. Auk þess er
bygging áburðarverksmiðjunnar
á öruggum grundvelli.
Fjármálastefnan miðar mark-
visst að því að tryggja rekstur
undirstöðuatvinnuveganna, sem
er grundvöllur efnalegi'ar af-
komu þjóðarinnar.
Nú er tækifærið til viðreisriar.
Eysteinn Jónsson, fjármála-
ráðherra, gerði mjög glögglega
grein fyrir fjármálastefnunni við
eldhúsumræðurnar. — Iiugsandi
mönnum hlýtur aö vera ljós sá
þjóðarvoði, sem yfir vofði, þegar
núvérandi ríkisstjórn tók við.
Þrátt fyrir óhöpp er þó hægt að
rökstyðja það, að sá grundvöllur,
sem þegar hefur verið lagður,
muni leiða til farsældar fyrir
Ðagskrármál landbúnaðarins:
UNDANRENNAN
í STUTTU MÁLI
NÝLEGA GENGU 1500
konur kröfugöngu um stræti
Cairo-borgar — flestar stú-
dcntar og háskólaborgarar. —
Þetta var fyrsta kröfugangan,
sem konur bcita sér fyrir í
Egyptalandi. Krafan var: Burt
með fjölkvænið, og við heimt-
um kosningarctt fyrir konur.
-k
BREZK ÞRÝSTILOFTS
sprengjuflugvél, af Canberra-
gerð, flaug nýlega yfir Atl-
antshafið á röskum 4 klst. —
Vélin flýgur með 900 km.
hraða á klst. För vélarinnar
seinkaði um nokkra daga
vegna bess, að á leið frá War-
ton í Lancashirc til Aldergrove
á Suður-Englandi, þar sem
Atlantshafsflugið átti að hefj-
ast, flaug vélin á máf. Höggið
var sVo mikið, að máfurinn
gekk í gegnum væng vélarinn-
ar og tók nokkra daga að gera
við skemmdimar.
-K
SONUR HINS fræga ítalska
vcrklýðsforingja Giacomo
Matteotti, sem Mussolini lét
myrða árið 1924, hefur til
skamms tíma stutt kommún-
istaflokkinn, en hefur nú snú-
ið við lionum bakinu. Gian-
carlo Matteotti hcíur tilkynnt
að hann styðji þá menn, sém
hafa sagt sig úr flokknum
vegna Rússadekursins. Mjög
margir kunnir ftalir hafa sagt
skilið við hirin erlenda of-
beldisflokk nú upp á síðkastið.
þjóðina, ef skynsamlega er haldið
á málunum. Fjármálaráðherra
lagði áherzlu á að verðbólgu-
kaupgetan væri fölsk kaupgeta,
en aukning framleiðslunnar á ölí-
Gísli Kristjánsson, ritstj., ræðir
um undanrennu og hagnýt-
ingu hennar á heimilunum. —
Notkun undanrennu færist
mjög í vöxt á mjólkurfram-
'lfeiðslúsvaiðúriúm. Hjá Mjólk-
ursamlagf- KEA kústar lítrinn
15 aurri, eri 6 kg., þar í 1 fóður-
einingu, og verður því að telja
haria mjög ódýrt fóður, þar serri
fóðureiriingin kostal' 9fl aura,
en í fóðúrblondu kostar fóður-
einingin úm 2.00 krónur.
Gísli Kristjánsson hefur orð-
ið. Á, J.
] - '•*. |ÍF.i ý? •* | , ,
ÞEIR SEM minnast snjóavetr-
anna á árunum 1910—2Ö verða
verla hissa þó að „ofan gefi snjó
á snjó“ enn um stund, því að
langt er enn til sumarmála. f þá
daga korriu aðalsnjóalög síðari
hluta vetrar. En ýmsum mun
finnast, að nú sé nógur snjór kom
inn og ekki sízt þeim, sem byggja
afkomu sína á því, að dagleg
framleiðsla búanna komizt á
markaðinn.
En þetta getur orðið erfiðleik-
um bundið og með öllu ómögu-
legt, úr vissum sveitum, ef það
sem eftir er vetrar og svo vorið,
verður með einkennum vetranna
1910, 1916 og 1920, svo að nokkur
dæmi séu nefnd. í þá daga var
mjólkurframleiðsla heimilanna
ekki nærri svo mikil, sem nú,
enda var þá auðveldara að full-
nægja þörfum neytenda í bæjun-
um, bæirnir voru þá svo fá-
mennir.
Torvelt hefur reynzt og ófært
getur orðið að koma mjólkinni á
markaoinn. En hvað á þá við
hana að gera?
Á sveitaheimilunum er fátt fóllc
og vafasami hvort það getur bætt
við sig því mikla starfi, sem er að
skilja mjólk úr mÖrgum kúm ög
strokka rjómann. Þar við bætist
sá arinmarki, að skilvindur eru
sums staðar alls ekki til eða þá
svo litlar, að mjög er seinlegt að
skilja í þeim mikið mjólkurmagn.
Ennþá verri munu ástæður
heimilanna vei-a með tilliti til
þess að gera smjör úr rjómanum.
Þegar um verulegt magn er að
ræða, þarf til þess vélknúða
strokka og þeir munu næsta fá-
gætir. En þó getur farið svo, að
þessum kóstum verði að sæta, ef
veturinn verðúr „snjóavetur“
fram á ýprdaga.
Það má auðsætt vera, að tak-
mörk éru fyrir því, hve mikið má
leggja í kostnað til þess að brjót-
ast með mjólkina á vinnzlustað.
Hins vegar er á það að líta, að
smjörekla er í landinu og vel til-
búið heimasmjör hlýtur að hafa
vísan markað.
Aukinn flutningskostnaður á
mai'kaðsstaðinn kemur fyrst og
fremst niður á undanrennu, en
sannleikurinn er sá, að það verð,
sem fyrir hana fæst í öðrum iðn-
aðarvörum en skyri, má ekki
lakara vera.
Vegna verðmætisins er það
kostur en ekki galli, að hafa und-
anrennuna heima og nota hana til
fóðurs. En öll mál hafa ýmsar
hliðar og einnig þetta. Það, að
koma mjólkinni ekki frá sér, er
að því leyti gott, að þá er undan-
rennan heima, en því aðeins er
hægt að telja þetta kost, að unnt
sé á auðveldan hátt að búa til
smjör og koma því í verð.
Hagnýting undanrenmmnar
um sviðum, væri lykill hinnar
raunverulegu kaupgetu. Hann
lagði og áherzlu á það, að nú væri
tækifæri til Viðreisnar og því
mætti ekki glata.
Hlutverk og háttsemi
stjórriarandstöðunnar.
Það er öllum ljóst, að margt
má firina að þeim aðgerðum, sem
gerðar hafa verið í viðleitninni
við að bjarga fjárhag þjóðarinnar.
Það var fyrirfram vitað, að geng-
islækkunin þýddi byrðar á al-
þjóð. Eri hvað erú þær byrðar
borið sárrían við stöðvun atvinnu-
veganna, atvinnuleysi og neyð,
sem annars hefði fyrr eða seinna
haldið innreið á íslandi?
Stjórnarandstaðan verður að
hafa hugfastan samanburð á nú-
verandi ástandi og því, sem ann-
ars hefði orðið, ef ekki hefði ver-
ið breytt um fjármálastefnu. —
Þessu gleymir hin konunglega
stjórnarandstaða. Um kommún-
ista er þetta eðlilegt. Af þeim hef-
ur enginn búizt við neinu. Öðru
máli gegnir hins vegar um Al-
þýðuflokkinn. Gegn betri vitund
staglast hann á því, að hægt hefði
verið að halda áfrarri styrkja- og
uppbótarleiðinni. Gegn betri vit-
und hvétui' flokkurinn tiÍ al-
mennra kauphækkana vitandi
vits, að það þýðir ekkert annað en
hærra verðlag á lífsnauðsynjum.
Nægir í því sambandi að benda á
niðurstöðu nefndarinnar, sem AI-
þýðusamband íslánds og Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja
skipaði til að athuga um áhrif
(Framhald á 7. síðu).
UNDANRENNAN er afbragðs
fóður eins og hún er gildisauðugt
næringarefni fyrir mannanna
börn. Sérstaklega ber að leggja
áherzlu á, að hún er gott fóður
handa mjólkandi kúm, kálfum
og hænsnum.
Það skal játað, að það er bund-
ið nokkurri fyrirhöfn að fóðra
með undanrennu. ílátin, sem hún
er geymd í og gefin skepnunum,
þurfa að vera vel hrein, svo að
ekki myndist í þeim óheillavæn-
legur gerlagróður, sem gæti gert
mjólkina saknæmt fóður ef van-
ræksla væri um hreinsun ílát-
anna. Það er allmikil vinna að
annast hreingerningar þessar og
svo hreinlæti í því húsi, þar sem
mjólkin er geymd
Ýmsir segja, að ómögulegt sé
að fá kýrnar til að drekka mjólk.
Mikið er hæft í þessu, en það
gerir óvaninn. Kýrnar eru vana-
fastar og einatt vandætnar, og þá
á mjólk sem annað fóður. Og það,
að kálfamir hafa aðeins fengið
mjólk skamman tíma, í uppvext-
inum, gerir það að verkum, að
þeir gleyma mjólkurdrykkju. —
Hámjólka kúm ætti að gefa und-
anrennu. Það mundi tryggja
steinefnajafnvægið og efla hreysti
þeirra.
Um kálfa og annað ungviði, er
það að segja, að undanrenna er
ágætt fóður handa þeim. Kálfum
má gefa það magn, sem nú er á
kraftfóðri og litið til þess, sem
raunverulega fæst fyrir undan-
rennuna til vinnzlu, þá er það
bóndanum ekkfert óhagræði að
nota undanrennuna handa kálf-
unum, jafnvel þegar hann getur
komið mjólkinni til mjólkurbús-
ins með góðu móti
Almennt er fjöldi hænsna tak-
markaður á bæjum, en á það er
að líta, að ef svo horfir framveg-
is, sem verið hefur, að undan-
rennan verði lítils virði til iðnað-
ar, af því að magn hennar er svo
mikið, þá er það engin fjarstæða
að hugsa sér, að breyta nokkru
magni undanrfennu í egg. Erlend-
ar tilraunir hafa sýnt, að hænan
getur drukkið’ allt að 150 gr. af
undanrennu á dag, en betur
borgar hún undanrennuna ef
hún fær aðeins um 80—100 gr.
á dag.
Viðhorfið er þetta nú, og getur
orðið marga aðra vetur, að þar
sem skilyi'ði eru annars góð til
mjólkurframleiðslu reynist tor-
velt að koma mjólkinni á markað
vissa tíma árs. Þá er ekkert vafa-
mál, að réttmætt er að senda enga
undanrennu að heiman, en nota
hana heldur til fóðurs. En þá er
auðvitað jafnframt sjálfsagt að
hafa úrræði til þess að vinna
smjör úr fitunni. En auk þess
geta komið tímar. jafnvel um
hásumar, sem ástæða er til þess
að gei-a sér grein fyrir, hvort
verðmæti undanrennunnar verð-
ur meira við að flytja hana heim
frá samlaginu og nota til fóðurs,
eða láta gera úr henni einhverjar
iðnaðarvörur til sölu innan lands
eða utan.
Fermingarkjóll
til sölu.
Afgr. vísar á.
2-3 lierbergi
og ELDHÚS óskast til
leigu nú þegar eða í vor.
Upplýsingar í síma 1468.