Dagur - 21.03.1951, Síða 1
12 SÍÐUR
\kureyringar! Áskrift að
DEGI er nauðsyn fyrir hvert
heimili. Hringið í síma 1166.
DAGUR er eina blaðið á land-
inu, sem flytur fastan búnað-
arþátt. — Bændur! Gerizt
áskrifendur!
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 21. marz 1951
12. tbl.
Frá frumsýningunni síðastliðið fimmtudagskvöld
Edvard Sigurgeirsson tók þessa Ijósmynd af Ieiksviðinu hér sl. íimmtudagskvöld, er lokið var
frumsýningu „Ókunna mannsins“ eftir Jerome K. Jcrome. Lítil stúlka er að færa leikstjóranum,
Ágúst Kvaran, blómakörfu, en umhverfis hann á sviðinu eru leikendurnir. T. h. á myndinni er
Guðmundur Gunnarsson, formað .ir Leikfélagsins. Annars staðar í blaðinu er rætt um sýninguna.
Hafin framleiðsla vinnufaia í Fataverksmiðjunni
Heklu hér á Ákureyr
Þessi nýjasta verksmiðja SÍS er í örum vexti -
silki iðnaður hafinn hér í bæ fyrir nokkru
Nýjasta verksmiðja Sam-smiðjan 4386 stk. vinnuföt, en A
bands ísl. samvinnufélaga erþessu ári verður framleiðslan marg-
Verkfailsalda i vor mundi hafa
háskalegar afleiðingar fyrir
Stutt samtal við Bernharð Stefánsson, 1. þingm.
Eyfirðinga, inn starf síðasta Alþingis
og horfur í þjóðmálum
rataverksmiðjan Hekla hér í
bæ, sem nú er í örum vexti
og hefur nýlega bætt við nýj-
um framleiðslugreinum.
Fyrir nokkru er hafiu þar vinnu-
fatagerð í nýtízku vélum, og mun
framleiðsla verksmiðjunnar mjög
bæta úr vinnufataskortinum, sem
ríkt hefur úti urn land að undan-
förnu. Á sl. ári framleiddi verk-
Akureyrar-kvöldvaka
i útvarpinu
f útvarpinu í kvöld er nýstár-
legur dagskrárliður. Er það Ak-
urey,~ar-kvöldvaka, tekin á
hljómplötur hér fyrir nokkru. —
Útvarpið á hér upptökutæki, en
salur í Gcysishúsinu Lóni var
sérstaklega innréttaður til þess að
hægt væri að taka þar upp söng
og hljófæraleik.
Mun þetta h-afa tekizt allvel, og
er vonandi vísir þess, að útvc-rp
héða < heyrist oftar í dagskránni.
Mundi það verða til fjölbreytni í
útvarpinu og nokkur lyftistöng
fyrir menningar- og félagsítí hér.
Kvöldvakan í kvöld er holguð
söng- og hljómlist. Áformað var
að Dav"r Stefánsson skáld flytti
erindi. e vegna veikinda gat ekki
orðið úr því. Þarna koma fram
kórar bæjarins, Geysir, Katiakór
Akureyrar og Kantatan, frú
Margrét Eiríksdóttir leikur á pí-
anó, Lúðrasveitin leikui- og loks
eru leikþættir. Fyrirhuguð er
önnur kvöldvaka bráðlcga og
verður hún bókmennta- og sögu-
legs efnis, héðan úr Eyjafirði.
földuð. Eru framleiddar allar al-
gengustu tegundir vinnufatnaðar.
Vinnufatagerðin er enn á byrj-
unarstigi, en Hekla er áður lands-
kunn sem stærsta og fullkomnasta
prjónafataverksmiðja landsins. —
Framleiddi verksmiðjan 19.775 stk.
af alls konar prjónafatnaði á sl. ári
á börn óg fullorna, og 33.719 pör
sokka og leista. Verksmiðjan vinnur
úr innlendu bandi frá Gefjun, og
úr erlendu bandi, þegar það er l'á-
anlegt. Með framleiðslu Hekhi hef-
ur íslenzkur prjónafatnaður fengið
á sig nýtt og fallegt útlit, og þykir
hann í senn ntjög smekklegur og
endingargóður.
Hekla starfrækir einnig kvennær-
fatadeild, en vegna efnisskorts gat
hún ekki starfað nema lítinn hluta
sl. árs. Framleiðslan var 6600 sett
kvennærföt og náttkjólar.
Starfsmenn eru nú 54 í I-leklu,
en greidd vinnulaun á sl. ári voru
rötklega 700 þúsund krónur. Fn
starfsemin er í örum vexti, og horf-
ur eru á þvi, að þetta fyrirtæki
verði á næstu árurn þýðingarmikill
atvinnuveitandi í bænum.
A sl. ári tók til starfa hér í bæn-
um fyrirtæki, sem nefnist Silkiiðn-
aður S.Í.S. Er þar um að ræða al-
gera nýjua.g í iðnaði hér á landi.
Rayr.-igarn er flutt til landsins á
spólum, ofinn úr því dúkur, sem er
litaður, þveginn og pressaður á
Gefjun. Er talsverður gjaldeyris-
sparnaður að þessari framleiðslu,
miðað við það, að kaupa dúkinn
alunninn erlendis frá.
Stjórnmálanámskeið
fyrir unga
Framsóknarmenn
í ráði er að efna til stjórn-
málanámskeiðs hér á vegum
Félags ungra Framsóknar-
manna, ef næg þátttaka fæst. —
Ætlast er til þess að námskeiðið
fyrir Akureyringa standi yfir
vikuna 1.—8. apríl, en fyrir utan-
bæjarmenn, frá 5.—8. apríl. —
Nánari upplýsingar geta menn
fengið á skrifstofu flokksins,
Hafnarstræti 93, 4. hæð, sírrii 1443.
Þýzka blaðið „Der Kurier“,
sem gefið mun út í Vestur-Ber-
lín, flutti í sl. mánúði heilsíðu
greiu um ísland og íslenzk mál-
efni, með mörgum myndum.
Auk almennra upplýsinga um
land og þjóð og atvinnuhætti, er
þar greint frá því, að stofnað sé
í Reykjavík þýzk- íslenzkt fyrir-
tæki með hvorki meira né minna
en 10 milljón króna hlutafé, og
heiti fyrirtækið Vulcan h.f. og sé
ætlun þess að vinna alúminíum,
járn og verðmæt efni í sambandi
við sementsvinnslu hér á landi.
Bernharð Stefánsson, 1. þin.
Eyfirðinga og forseti Efri deildar
Alþingis, kom heim af þinginu
með Esju nú fyrir helgina. Dagur
hefur átt stutt samtal við Bern-
harð um störf síðasta Alþingis og
horfurnar í þjóðmálunum.
— Þetta þing var meira en
mánuði styttra en þingið í fyrra,
sagði Bernharð, en samt afkastaði
það meira verki. Það afgreiddi
fjárlög fyrir jol og þau fjárlög
voru með tekjuafgangi og svo
varlega áætluð að mínum dómi,
að telja má líklegt að þau fái
fyllilega staðizt. Þetta eru allt
mikilsverð atriði, sem ekki hafa
verið til staðar undanfarin ár. —
Eftir að fj árlagaafgreiðslunni
lauk, voru störf þingsins að mestu
bundin við þýðingarmikil mál í
sambandi við rekstur atvinnu-
veganna og dýrtíðarmálin. Get eg
ekki rakið þau í einstökum atrið-
um hér, enda alþjóð kunnug.
En það mun álit allra þeirra,
sem nánust kynni hafa af horf-
unum, að á mjög miklu velti að
atvinnuvegirnir, sem nú er verið
að reyna koma á eigin fætur á ný,
Þýzkir bankar hliðhollir.
í greininni er frá því skýrt, að
iðnaður Vestur-Berlínar mundi
afgreiða vélar til fyrirtækisins,
ennfremur að Zentral-bankinn í
Berlín sé hliðhollur fyrirtækinu,
svo og utanríkiiíviðskiptadeild
borgarstjórnarinnar og viðkom-
andi ráðuneyti í þýzku sam-
brindsst j órninni.
Hér heima munu þessar fregnir
vekja nokkra furðu. Ekki er neitt
vitað um slíkt þýzk-íslenzkt
fyrirtæki og hvergi hefur komið
fram opinberlega að það sé stofn-
að. Hver kannast við milljóna-
félagið Vulcan h.f.?
verði ekki lamaðir með verkföll-
um eða kauphækkunum, sem þeir
fá ekki risið undir. Ef horfið
verður að því ráði með vordög-
unum, er það hin háskalegasta
stefna og getur vissulega haft al-
l'ai'Iegar afleiðingar fyrir þjóðar-
búskapinn í heild og efnahag
hvers borgara. — Þær ráðstaf-
anir, sem nú er búið að gera, voru
ekki gerðar af neinni fordild —
eða beinlínis af illvilja stjórn-
arflokkanna, eins og stjórnarand-
stæðingablöð virðast stundum
telja — heldur af brýnni nauðsyn,
sem allir skilja, er um þessi mál
hugsa. Þeir, sem harðast gagn-
rýna þessar ráðstafanir, eiga erf-
itt með að benda á aðrar færar
leiðir. Menn tala mikið um hátt
verðlag á vöru. Satt er það, að
verð er hátt, en þess er að gæta,
að ýmsar vörur voru hér dýrar áð
ur, keyptar fyrir hrognapeninga,
gotupeninga og hvað þeiv nú allir
hétu. Bátagjaldeyrisfyrirkomu-
lagið er því engin nýjung í sjálfu
sér. En aukið frjálsræði í verzl-
uninni mun þykja fengur fyrir
alla og mun fólk betur sjá það, er
tímar líða.
Málefni, er varða héraðið sér-
staklega?
— Af þeim er Laxárvirkjunin
vitaskuld mest og voru virkjana-
málin eitt helzta viðfangsefni Al-
þingis, og merkasta, svo og
áburðarverksmiðjumálið Þess er
að vænta, að héraðið njóti góðs af
hinni nýju virkjun og að unnt
reynist að koma rafmagninu út
um byggðina hið fyrsta eftir að
! virkjunarframkvæmdunum lýk-
ur. Mörg fleiri mál varða að sjálf-
sögðu héraoið, svo sem fjárveit-
ingar til nýja spítalans, hafna og
vega. Má í því sambandi geta
þess, að það er von mín að veg-
urinn austan Eyjáfjarðar verði
fullgerður í ár að brúnni við
Möðruvelli, með fjárveitingu,
sem til þess er ætluð, og því fé,
sem vegurinn á fyrir.
Hvað líður togaramáli Dalvík-
inga og Ólafsfirðinga?
— Það var ekki útkljáð, er eg
fór úr Reykjavík, en eg reyndi að
hlynna að því af fremsta megni
að bæirnir fengju togara og flutti
mál þeirra við ríkisstjórnina. —
Togaraútgerð gæti orðið atvinnu-
(Framhald á 12. síðu).
„Vulkan" - þýzk-íslenzkt íyrir-
tæki nieð 10 milljón króna
hlutaíé sagt stofnað
Þýzkt blað segir banka og iðjnhölda Veslur-
Berlínar vilja styðja fyrirtækið til alúminíum-
járn- og efnavinnslu hér á íslandi