Dagur - 09.05.1951, Blaðsíða 1
Akureyringar! Áskrift að
DEGI er nauðsyn fyrir hvert
heimili. Hringið í sínia 1166.
XXXIV. árg.
Dagu
Akureyri, miðvikudaginn 9. maí i951
Fimmta síðan:
Minnzt Geirs Þormars. —
Ymislegt frá bæjarstjórn.
19. tbl.
um varmr
Deildir úr flug
ílota og sjóher
r
Bandaríkjaima komnar til Islands
Ríkisstjórnin birtir
Snemma á mánudagsmorgun-
inn birti ríkisstjórnin tilkynningu
í útvarpinu um að gerður hefði
verið samningur við Bandaríkin
um varnir Islands, á grundvelli
Norðuratlantshafssamningsins, og
jafnframt að þá um morguninn
hefði bandarískt herlið komið til
Keflavíkurflugvallar og sezt þar
að.
Var þar með svipt hulunni frá
þeim viðræðum um öryggismál
íslands, sem staðið höfðu yfir í
Reykjavík að undanförnu, og
rætt var um hér í síðasta tbl., og
jafnframt bundinn endir á hug-
leiðingar manna um það, hvort
rikisstjórn landsins hyggðist
engar ráðstafanir gera til varn-
ar landinu er ljóst var, að land-
ræningja gat borið hér að garði á
einni nóttu er landið var gersam-
lega varnarlaust og opið öllum
óboðnum gestum. Þótt þessi tíð-
indi séu öll uggvænleg, því að
þau færa heim að bæjardyrum
okkar þau sannindi, að útlitið í
alþjóðamálum hefur aldrei verið
tvísýnna en nú vegna skefjalausr
ar yfirgangsstefnu kommúnista,
og enda þótt landsmenn kvíði erf-
iðleikum sambýlisins við erlend-
an her, má fullvíst telja, að vitn-
eskjan um þær ráðstafanir, sem
gerðar hafa verið, hafi létt þung-
um áhyggjum af miklum meiri-
hluta þjóðarinnar, enda mun
fólkið í landinu skilja nauðsyn
þessara ráðstafana allra og þau
sjónarmið, sem réðu því að þetta
skref var tekið.
Tilkynning ríkisstjórnarinnar.
í tilkynningu rikisstjórnarinnar
er það rakið, að þegar ísland
gerðist aðili að varnarsamningi
Atlantshafsríkjanna, tók þjóðin
þá skyldu sér á herðar, að vinna
með öðrum bandalagsþjóðunum
að sameiginlegu öryggi allra, og
enda þótt sérstaða íslands í sam-
tökum þessum væri skýrt mörk-
uð, var það skylda íslands að
stofna hvorki eigin öryggi né
nágrannaríkjanna í hættu, er út-
litið í alþjóðamálunum verður að
teljast sérstaklega viðsjárvert,
heldur láta í té nauðsynlega að-
stöðu til varnar. Ráð Atlants-
hafsbandalagsins fór þess á leit
við ríkisstjórnir íslands og Banda
ríkjanna, að þær semdu um nauð
synlegar varnaraðgerðir á íslandi
og lauk þeim samningaur.aleitun-
um með því að fulit samkomulag
varð og samningurinn var undir-
greniars
ritaður í Reykjavík hinn 5. þ.
m. og hinn 7. þ. m. komu fyrstu
liðssveitirnar til landsins.
í tilkynningu ríkisstjórnarinn-
ar er lögð sérstök áherzla á, að
þær aðgerðir, sem hér verða
framkvæmdar, eru ekki ætlaðar
til árása á neinn, heldur eru ein-
ungis til varnar og öryggis. Jafn-
framt er bent á, að svo er um
hnútana búið, að ísland getur
sagt upp samningnum og fengið
hann numinn úr gildi, þegar
stjórnarvöld landsins teljahættu-
ástandið hjá liðið.
Stuðningur lýðræðisflokkanna.
Allir þingmenn lýðræðisflokk-
anna, 43 talsins, hafa lýst sam-
þykki við samninginn. Ýmis
framkvæmdaatriði, er hann
varða, verða tekin fyrir á Alþingi,
er það kemur saman, segir í til-
kynningu ríkisstjórnarinnar. Þar
er og tekið fram, að stjórnin hafi
ekki talið rétt að hafa neitt sam-
ráð við þingmenn kommúnista
um mál þetta, og mun engan
furða á því. Furðu hefur það hins
vegar vakið um landið, að svo er
að sjá, sem kommúnistar hafi
haft greiðan aðgang að upplýs-
ingum um mál þetta áður en hin
opinbera tilkynning var birt og
höfðu birt allýtarlegar upplýs-
ingar í blaði sínu tveimur dögum
áður.
Samningurinn er birtur annars
staðar í blaðinu og í leiðara
blaðsins á 4. síðu er nánar rætt
um þessi mál.
Samningur undirritaSur í Reykjavík
5S maí — Áberzla iögð á varnareðli
samningsins —- Hann er uppsegjan-
legur hvenær sem er
Mjólkursantlags-
fundur á morgun
Ársfundur Mjólkursamlags
KEA hefst í „Skjaldborg“ hér í
bænum kl. 1 e. h. á morgun. Rétt
til fundarsettu hafa 154 fulltrúar
frá 13 samlagsdeildum. Fundur-
inn er haldinn seinna í ár en
venja er og stafar það af sam-
gönguerfiðleikum þeim, sem ríkt
hafa hér í vor og ríkja raunar
enn, þvi að sumir vegir, sem fær-
ir voru orðnir, eru nú ófærir eða
bannaðir vegna aurbleytu. Má
því gera ráð fyrir að fundarsókn
verði ekki eins almenn og venja
hefur verið.
KEA opuar kjöt-
og nýlenduvöru-
búð á Oddeyri
Á morgun opnar KEA kjöt- og
nýlenduvörubúð — í Ránargötu
10. — Er þar með stórlega bætt
aðstaða viðskiptamanna kaup-
félagsins á Oddeyri. Búðin er
mjög smekkleg og vistleg og vel
búin að öllu leyti.
Venjulegur dagur
í Keflavík - flutn-
ingaflugvélarnar
hurfu aftur
MÁNUDAGURINN var ósköp
venjulegur dagur í Keflavík,
símar fréttaritari blaðsins í
Reykjavík, en hann fór þangað
suður eftir síðdegis á mánu-
daginn eftir að tilkynningin um
að hervarnarsamningurinn
hefði verið gerður var birt.
Á flugvellinum var ekkert sér-
stakt um að vera síðdegis.
Millilandaflugið liélt áfram aft-
ur eins og ekkert hefði í skor-
izt, en völlurinn hafði verið
lokaður fyrir almennt flug fyrr
urn daginn.
NOKKRAR Skymasterflugvélar
hersins höfðu lent þarna um
morguninn. Þetta voru flutn-
ingaflugvélar og þær liöfðu
spúið mönnum og búnaði út á
völlinn, en síðau horfið burt,
líklega vestur um haf á ný. En
síðdegis var ekkerí að sjá
þarna, nema eittlivað af bún
aðinum, en mennimir voru
horfnir. Annars var almennt
gert ráð fyrir því, að flugvél-
amar mundu brátt koma aftur
og flytja meiri vistir óg fleiri
menn. Líklegt er talið að sá liðs
afli, sem hér mun setjast að,
komi allur á nokkrum dögum,
heidur muni það dragast tals-
vert enn.
'k
EN TILKYNNT hefur verið af
opinberri liálfu, að sveitir þær,
sem komnar eru, séu úr flug-
her, sjóher og landher Banda-
ríkjanna. Yfirforingi liðsins
heitir Brigadier-General Mc-
Gaw og birti hann tilkynningu
við komuna þess efnis, að hann
óskaði eftir góðri samvinnu við
íslendinga um hið sameiginlega
markmið, að tryggja vamir
landsins.
(Framhald á 8. síðu).
Hér fer á eftir varnarsamning-
ur íslands og Bandaríkjanna, er
gerður var í Reykjavík 5. þ. m.
og birtur var á mánudaginn. —
Blaðinu hefur að vísu ckki bor-
izt afrit samningsins frá stjóm-
arvöldunum og er textinn eiiis
og hann birtist liér, skrifaður eft-
ir simtali.
Inngangsorð.
Þar sem íslendingar geta ekki
sjálfir varið land sitt, en reynslan
hefur sýnt að varnarleysi lands-
ins stofnar öryggi þess sjálfs og
friðsamra nágranna þess í voða,
og þar sem tvísýnt er um al-
þjóðamál, hefur Norðuratlants-
hafsbandalagið farið þess á leit
við ísland og Bandaríkin, að þau
geri ráðstafanir til að látin verði
í té aðstaða á íslandi til varnar
landinu og þar með einnig til
varnar svæði því, sem Norður-
atlantshafsbandalagssamningur-
inn tekui' til, með sameiginlega
viðleitni aðila Atlantshafs-
samningsins til að varðveita frið
og öryggi á því svæði, fyrir aug-
um. Samningur sá, sem hér fer á
eftir, hefur verið gerður sam-
kvæmt þessum tilmælum.
■i]. | l
Fyrsta grein.
Bandaríkin *munu fyrir hönd
Norðuratlantshafsbandalagsins
og samkvæmt skuldbindingum
þeim, sem þau hafa tekizt á
hendur samkvæmt Norðuratl-
antshafssamningnum, gera ráð-
stafanir til varnar íslandi með
þeim skilyrðum, sem greinir í
samningi þessum. I þessu skyni,
og með varnir á svæði því, sem
Norðuratlantshafssamningurinn
tekur til, fyrir augum, lætur ís-
land í té þá aðstöðu í landinu,
sem báðir aðilar eru ásáttir um
að sé nauðsynleg.
Önnur grein.
ísland mun afla heimilda á
landssvæðum, og gera aðrar
nauðsynlegar ráðstafanir til þess
að i té verði látin aðstaða sú, sem
veitt er með samningi þessum, og
ber Bandaríkjunum eigi skylda
til að greiða íslandi, íslenzkum
þegnum eða öðrum mönnum
gjald fyrir það.
Þriðja grein.
Það skal vera háð samþykki
fslands, hverrar þjóðar menn eru
í varnarliðinu, svo og með hverj-
um hætti það tekur við og hag-
nýtir þá aðstöðu á íslandi, sem
veitt er með samningi þessum.
Fjórða grein.
Það skal háð samþykki ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar, hversu
margir menn h’afa setu á íslandi
samkvæmt samningi þessum.
Fimmta grein.
Bandaríkin skulu framkvæma
skyldur sínar samkvæmt samn-
ingi þessum þannig, að stuðlað
sé svo sem frekast má verða að
öryggi íslenzku þjóðarinnar og
skal ávallt haft í huga, hve fá-
mennir íslendingar eru, svo og
það, að þeir hafa ekki öldum
saman vanizt vopnaburði. Ekkert
ákvæði þessa samnings skal skýrt
þannig, að það raski úrslita-yfir-
ráðum íslands yfir íslenzkum
málefnum.
Sjötta grein.
Samningur sá, sem gerður var
7. október 1946 milli íslands og
Bandaríkjanna um bráðabirgða-
afnot af Keflavíkurflugvelli, fell-
ur úi' gildi við gildistöku samn-
ings þessa, og mun ísland þá
taka í sínar hendur stjórn og
ábyrgð á almennri flugstarfsemi
á Keflavíkurflugvelli. Island og
I Bandaríkin munu koma sér sam-
an um viðeigand: ráðstafanir
varðandi skipulag á rekstri flug-
vallarins til þess að samræma
starfsemi þar því, að hann er
jafnframt notaður í þágu varna
íslands.
Sjöunda grein.
Hvor ríkisstjórnin getur hve-
nær sem er, að undanfarinn til-
kynningu til hinnar ríkisstjórn-
arinnar, farið þess á leit við
ráð Norðuratlantshafsbandalags-
ins, að það endurskoði, hvort
lengur þurfi á að halda framan-
greindri aðstöðu og gert tillögu
til beggja ríkisstiómanna um
það, hvort samningur þessi skuli
gilda áfram. Ef slíka málaleitan
(Framhald á 8. síðu).