Dagur - 06.06.1951, Blaðsíða 11
Miðvikudaginn 6. júní 1951
D A G U R
11
Jarðarför systur minnar,
ELÍNAR JÓNSDÓTTUR,
sem andaðist á Landaskotsspítala 24. f. m., er ákveðin laugar-
daginn 9. þ. m. og hefst með bæn á heimili hennar, Þverá á
Staðarbyggð, kl. 1 e. h. — Jarðsett verður að Munkaþverá.
Rósa Jónsdóttir.
Bílstjórar, Akureyri!
Þeir meðlimir Bílstjórafélags Akureyrar, sem liafa í
hyggju að dvelja í sumarbústað félagsins nú í sumar
með fjölskyldur sínar, skulu beina dvalarbeiðnum sín-
um til Hafsteins Halldórssonar (sími 1569), sem gefur
nánari upplýsingar.
STJÓRNIN.
ÍBÚÐ
Neðri iiæð hússins Aðalstræti 24 er til sölu. —
Tilboð óskast fyrir 15. júní.
Nánari upplýsingar gefur Ártii Valdimnrsson,
sími 1538, og eftir kl. 6 sími 1428.
’ o
STOPPUGARN
Ull og ísgarn.
Vefnaðarvörudeild
NÁTTKJÓLAR
Seljum næstu daga gallaða
náttkjóla.
Vefnaðarvörudeild
1
KAUPTAXTI
Trésmiðafélags Akureyrar og
Málarafélags Akureyrar
frá og með 1. júni 1951 til 1. september 1951.
Grunnkawp í- dagvinnu kr. 12.00 pr. klst., með vísi
tölu kr. 15.59. Eftirvinna greiðist með 60% álagi^ kr.
24.94, og nætur- og helgidagavinna með' 100% áíagi,
kr. 31.18.
Vinni félagsmenn utan bæjar, skulu þeir hafa frían
ferðakostnað og kaup á leiðinni. Ef uhnið er lengur
en hálfan mánuð, skal vinnuveitandi sjá um fríar ferðir
til heimilis á tveggja vikna fresti, sé vegalengdin styttri
en 100 km.; annars til næsta ver7.1unarstaðar, með sömu
tímalengd milli ferða. Ennfremur skulu félagsmenn
hafa frítt fæði og húsnæði þar, sem unnið er.
Slasist maður við vinnu, skal Iiann halda fullu kaupi
í 6 virka daga frá því slysið varð.
Stjórnir félaganna.
- Aðalfundur KEA
(Framhald af 1. síðu).
•afurðir fyrir rúmlega 8% millj.
krónur, sem var lítið eitt meira
1949. — Innanlands seldi
félagið landbúnaðar- og sjávar-
afurðir fyrir rúmlega 21 milljón
krónur.
Ástæður félagsmanna gagnvart
félaginu hafa mjög lítið breytzt á
árinu. Þó hafa innstæður minnk-
að í reikningum og innlánsdeild
um tæplega 70 þúsund krónur,
og er það fyrsta árið, nú um lang
tíma, sem félagsmenn hafa
ekki aukið innstæður sínar hjá
félaginu. Ný skuldasöfnun hjá
félagsmönnum hefur engin átt
sér stað og nema heildár-skuldir
allra félagsdeilda aðeins um kr.
85 þús. í árslok. Vona eg að
mestur hluti þessara skulda
greiðist á yfirstandandi ári, en
það er lífsspursmláál fyrir fram-
tíðarrekstur félagsins, að hægt sé
að halda í horfinu hvað útlán
snertir og sporna við skulda-
verzlun.“
Á fundinum í dag mun Jakob
F rímannsson framkvæmdastjóri
að venju flytja ýtarlega, tölulega
skýrslu um rekstur félagsins og
einstakra fyrirtækja þess.
Fulltrúar og félagsmenn.
í félaginu eru nú 5025 félags-
menn. í það gengu á árinu 331,
en úr því 330 og munar þar mest
um Olafsfirðinga, sem á árinu
stofnuðu eigið kaupfélag. Félags-
mannatala KEA hefur því ekki
hæ'kkað nema um 1 á árinu. Á
áðalfúndinum eiga sæti 178 full-
trúar frá 24 félagsdeildum, en
eigi er enn vitað, hvort full tala
mætir.
Kosningar.
Á þessum fundi fer fram kosn-
ing tveggja manna í stjórn, í stað
Ingimars Eydal, sem ekki tekur
kosningu á ný vegna heilsu-
brests, og Björns Jóhannssonar á
Laugalandi. Auk þess kosning
varamanns í stjórn í stað Bryn-
jólfs Sveinssonar kennara, end-
urskoðanda í stað Hólmgeirs
Þorsteinssonar, varaendurskoð-
anda í stað Elíasar Tómassonar
og í stjórn Menningarsjóðs KEA
i stað Snorra Sigfússonar. Auk
þess kýs þessi aðalfundur 12 full-
trúa á aðalfund Sambands ísl.
samvinnufélaga.
Nýtt tímarit.
í dag hefur göngu sína tímarit,
er félagið gefur út og nefnist
„Félagstíðindi KEA“. Er ætlast
til að það komi 3—4 sinnum á ári
og flytji fregnir af starfsemi
félagsins og verði sent fíestum
félagsmönnum. Kemur 1. hefti
þess nú í stað hinnar venjulegu
ársskýrslu. Ritstjóri þessa nýja
rits er Haukur Snorrason .
Fundi lýkur á morgun.
Aðalfundinum lýkur á morg-
un. í næsta blaði verður skýrt
frá störfum fundarins.
- Fokdreifar
(Framh. af 6. síðu).
arið enn, að starfsmenn bæjprins
eyðileggi verðmæti fyrir borgur-
unum svo að nemur stórum fjár-
hæðum? Hvers vegna er ekki
tekið fram fyrir hendurnar
þessu fólki? Það veit augsýnilega
ekki, hvað það er að gera.“
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Messað í Akureyrarkirkju kl.
2 næstk. sunnudag. — P. S.
Zíon. Samkoma á sunnudag-
inn kl. 8.30 e. h. —- Séra Jóhann
Hlíðar talar. Allir velkomnir.
Áheit á Akurcyrarkirjku. Kr.
.100.00 frá F. F. Þakkir Á. R.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ' ungfrú
Brynja Hermanrisdóttir Og
Haraldur Qlafsson, rakarnnemi.
Akureyri.
í » . KJ'J’- * ’ ' ‘ ■ -,K
Síðustu dagana hefur mátt sjá
börn hér 4 götimum með
plastic-byssur, gerðar til þess
að skjota nieð baunum. Danskt
mérki er á griþum þcssum og
er því svo áð sjá, sem þær séu
keyptar til landsins fyrir ípi ið
fé í erlendum gjaldeyri* Von-
andi sjá verzlanir sóma sinn í
því að táka ekki við svona
varningi til sölu- fyrst ein-
hverjum hefur liðist iað flýtja
ósómann til landsins. Er hvort
fveggjn, að með baunaskotum
þesstim ér verið að eyðileggja
matvæli, og engunt unglingi er
neitt gagn að því að handleika
svona, verkfæri og geta auk
heldur valdið meiðslum með
því.
Ábeit. á; Strandarkirkju. Kr. 50
frá N. N. — Kr. 100 frá J. S. —
Móttekið á afgr. Dags.
Að Stekkjarflötum, Eyjafirði,
verður haldjn, ki;Í5,tÍlé& samkoma
sunnudaginn 10. þ. m. kl. 4 e. h.
Allli4 Vélk'ómnir'.' Saemunclur G.
Jóhannésson,- .....-- ...-“••••
Munið samkomuna að Sjónar-
hæð'Wáéhtk '.súhhudág’kí.' K.! Álíir
vélkomhir!
Athugið. .Eíijs og , að; undan-
förnú er íáðgert að taka á móti
börnum til hálfs mánaðar dvalar
við Ástjörn í Heldúhvérfí, en þar
er Umhverfi> fagúrt1 fújög óg heil-
næmt skógarloft. Ðaggjöld
munu hækka eitthvað frá síðasta
ári, en fargjöld fram og aftur
falla niður að mestu vegna
rausnarlegs styrks frá trúuðum
manni hér í bæ. Verður því dvöl-
in raunverulega ódýrari en í
fyrra. — Gert er ráð fyrir að fara
að Ástjörn í byrjun júlí eða um
það leyti. Til kynnið því þátttöku
sem fyrst. — Nánari upplýsingar
í síma 1050 mlili 7 og 8 á kvöldin.
Sæmundur G. Jóhannesson.
Sjónarhæð.
Nú í vor bar það til tíðinda á
Helgastöðum í Reykjadal, að ær
bar fimm lömbum, voru þau öll
fullburða og talin á stærð við
venjulega tvílembinga, en svo
fór að öll lömbin drápust og
móðirin líka.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 150
frá S. J. Móttekið á afgr. Dags.
Síðastl. föstudag — hinn 1.
júní — hófst laxveiðin í Laxá í
Aðaldal og veiddust 5 laxar á
fyrstu tveimur dögunum. Að-
alveiðitíniabilið byrjar 15. þ. m.
Þingéýingar veiða aðallega
fram til 15. júní, en þá taka
Akureyringar við. Auk norð-
anmanna veiða stangveiði-
menn úr Reykjavík nokkurn
hluta sumarsins. Veiðitímabil-
ið stendur til 31. ágúst.
Sundkeppnin. Mikill áhugi er
nú í Eyjafirði fyrir Samnorrænu
sundkeppninni. U. M. S. E. leit-
aði til hreppsnefnda um styrk til
að standa straum að óhjákvæmi-
legum kostnaði við keppnina. —
Hafa þær er til hefur frétzt brugð
ist vel við. Enda gengur sá styrk-
ur til fólksflutninga í viðkom-
andi hreppi.
Gjöf til Ellihoimilisins í Skjald-
arvík. Laufey Haraldsdóitir,
Klapparstíg 1, Akureyri, hefur
gefið Elliheimilinu í Skjaldarvík
kr. 500.00 til minningar um
ömmu sína, sem átti 100 ára af-
mæli 23. maí síðastl. — Hjartans
þakkir. — F. h. Elliheimilisins.
Stefán Jónsson.
Það er til baga fyrir ókunnuga
hér í bæ, að illt er að átta sig
á því, hvar hér er pósthús og
landsímastöð. Hið myndarlega
póst- og símahús *er ekkert
auðkennt. Meira að segja, þeg-
ar komið er inn í forstofuna,
vantar glögg merkjaskilti.
Sundmerkin — fyrir þá, sem
lokið hafa norrænu sundkeppn-
inni — fást nú í Bókaverzl. Ax-
els.
Kvöldferðir Ferðafélagsins
virðast ætla að verða vinsælar.
Sl. miðvikudagskvöld var ekið
fram um Eyjafjörð og var þátt-
taka góð, enda fargjaldið sérlega
ódýrt, kr. 10.00 fyrir manninn. í
kvöld er ætlunin að aka um
Svalbarðsstrandarveg til Laufáss
og Grenivíkur. Lagt verður af
stað kl. 8.
Hjálpræðisherinn Strandg. 19B.
Föstudag kl. 8.30 e. h.: Útisam-
koma .— Sunnudag kl. 2: Útisam
koma við Höepfnér. Hvítasunnu-
menn taka þátt. Kl. 4: Útisam-
koma á Ráðhústorgi. Kl. 8.30 e.
h.: Samkoma í salnum. — Allir
velkomnir.
Frá Kvcnfélagiiiu Hlíf, Akur-
eyri. Frá öldruðum, ónafn-
greindum bamavini á Akureyri
barst Dagheimilinu Pálmholti
vegleg gjöf: kr. 4000.00 í vaxta-
bréfum Stofnlánadeildar sjávar-
útvegsins við Landsbanka ís-
lands. Færi eg gefandanum hug-
heilar þakkir fyrir þessa miklu
rausn. Drottinn blessi allan hans
hag. — F. h. Pálmholts. Elinborg
Jónsdóttir, formaður.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli. — Sunnudaginn 17.
júlí, Hólum kl. 1 e. h. — Sama
dag, Möðruvöllum kl. 3 e. h.
Handknattleiksmeistaramót
Akureyrar fer fram helgina 9. og
10. júní næstk. á nýja íþrótta-
svæðinu norðan við Lögbregs-
götu. Tvö félög taka þátt í mót-
inu, K. A. og Þór, og verður
keppt í þrem flokkum, meistara-
flokki, öðrum flokki og þriðja
flokki, karla og kvenna .Annars
verður tilhögun mótsins auglýst
nánar í götuauglýsingum. — Ef
dæma má eftir képpnum, sem
fram hafa farið í vor, má búast
við að þessi keppni verði afar
spennandi. — Handknattleiksráð
mun sjá um mótið.
ÍTÖLSKU KOSNINGARNAR.
(Framhald af 7. síðu).
— meira en 1/3 af þeim at-
kvæðum, sem samsteypa þess-
ara flokka fékk í heild. — Það
vakti athygli, að þar sem Kom-
infonn-þjónustan var mest
áberandi, gekk kommúnistum
kosningabardaginn erfiðlegast.
ÚRSLITIN SÝNA, að kommún-
istar eru enn sterkir á ítalíu.
Ástandið í landinu cr á ýinsan
hátt slæmt, atvinnuleysi er
mikið (2 millj. atvinnuleys-
ingja) og í þessum hópi at-
vinnuleysingja er að finna að-
alstyrk kommúnista, sagði
einn af leiðtogum Iýðræðis-
flokkanna og bcnti á nauðsyn
þess, að lýðræðisflokkarnir
kynnu að draga réttar álykt-
anir af því.