Dagur - 06.06.1951, Síða 12
12
Dagur
Miðvikudaginn 6. júní 1951
Sonur pólfarans Scotts kemur
hingað í sumar
Verður fyrirliði leiðangurs 3-4ra fuglafræðinga
Laust eftir miðjan júlímánuð
eru væntanlegir hingað til lands-
ins 3—4 brezkir fuglafræðingar,
er vinna hér ag fuglarannsókn-
um u:n nær 2ja mánaða skeið.
Munu þeir vinna í samráði við
Náttúrugripasafnið hér og mun
dr. Finnur Guðmundsson nátt-
úrufræðingur starfa að þessum
rannsóknum ásamt Bretunum.
Forystumaður Bretann'a verð-
ur Peter Scott, sonur Scotts, hins
heimskunna Suðurpólsfara. —
Hann er listmálari að atvinnu, en
annars ferðamaður mikill og
lagði mjög stund á veiðar á fyrri
árum. Síðustu árin hefur hann
að mestu helgað sig rannsóknum
og athugunum á gæsum og önd-
um. Með Scott verður m. a.
Fisher, en hann kom hingað til
lands með fuglafræðileiðangri
þeim, sem Huxely stjórnaði 1949.
Til Mývatns.
Leiðangursfarar eru væntan-
legir til íslands 12. júlí næstk. og
fara þá í vikuför norður til Mý-
vatns. En þegar þeir koma úr
þeirri ferð, leggja þeir í sex
vikna leiðangur upp í óbyggðirn-
ar sunnan Hofsjökuls, Nauthaga,
Arnarfell hið mikla og verin þar
suður af. Tilgangur þeirrar farar
er að rannsaka lífsháttu heiða-
gæsinnar, kanna varpstöðvar
hennar og merkja.bæði unga og
fullorðna fugla eftir því sem við
verður komið.
Eins og að frarrian getur verð-
ur dr. Finnur Guðmundsson
þátttakandi í þessum leiðangri af
íslancjs hálfu. ,
Tekjur ríkissjóðs yfir
300 milljónir króna
síðastliðið ár
Ríkistekjumar námu árið sem
leið 308.8 milljónum kr., og er
það um 2 millj. kr. meiri tekjur
en árið áður.
Af því dragast' svo eftirstöðvar
frá fyrri árum, hálf tólfta millj.
krónur, Svo að raunverulegar
tekjur verða 297.3 millj. kr.
Rekstrarútgjöldin eru aftur á
móti 263.2 iriillj. kr., svo að
rekstt-áfafgangurinn nam 34.1
miílj .kr. Árið 1949 voru útgjöld-
in hins vegar meiri en tekjurnar,
eða 1-ösklega 800 þús. krónur.
Á tekjuhlið eru tekjur af ríkis-
stofnunum stærsti liðurinri, eða
85;5 millj. ki\ Þá er verðtollur
58.4 kr., söluskattur 53.8 millj.
kr. og tekju- og eignaskattur
kr. 44.8 millj. kr.
Konurnar áhugasamari við skóg-
ræktarstörfin en karlmennirnir
Þörf fleiri sjálfboðaliða við gróðursetjiingu
hjá Skógræktarfélagi Akureyrar
Eins og áður er frá skýrt hér í
blaðinu, hefur Skógræktarfélag
Akureyrar með höndum um-
fangsmikil skógræktarstörf, í
brekkunum hér á Akureyri og í
Vaðlaheiðarreit hér handan við
Poilinn.
Hefur þátttaka sjálfboðaliða í
þessu starfi verið allgóð, og var
ágæt í fyrstu ferðinni.
En það er áberandi að kven-
fólkið virðist áhugasamara í
þessu efni en karlmennirnir,
a. m. k. mæta miklu fleiri
stúlkur en piltar til starfa.
Þessar upplýsingar fékk blað-
ið hjá Þorsteini Þorsteinssyni,
sem stjórnar þessu staifi hér.
Það hefur verið bagalegt,
hversu fáir karlmenn hafa gefið
sig fram til starfs enn sem komið
er og hafa hinn erfiðari störfin,
sem þeir eiga að annast því líka
lent á stúlkunum.
Má með sanni segja, að þetta
ástand sé til vanza fyrir karl-
þjóðina og er ráð að bæta úr því
hið bráðasta og gefa sig fram til
starfa.
Unnið er í brekkunum á
þriðju,dögum og fimmtudögum, í
tveim flokkum, safnast menn
saman hjá. Sjúkrasamlagsskrif-
stofunni, og fara flokkarnir frá
sama stað kl. 1.30 og kl. 4 e. h.
í Vaðlaheiðarreit. á laugardag.
Eðvarð Sigurgeirsson
sýnir kvikmyndir af
björgun Geysis o. fl.
í gærkvöldi hafði Eðvarð Sigur-
geirsson frumsýningu í Sanikomu-
húsi bæjarins á lítkvikmynd' sinni
af björgun Geysismanna af Vatna-
jíikli sl. haust, og sýndi auk þess
nokkrar aðrar íslenzkar litkvik-
myndir. Allar eru myndirnar vel
gerðar og sérlega lallcgar, en mesta
athygli muri Vatna jiikulsniyndin
vekja. enda hefur hún tekiz.t vel
og cr mjög spennandi. Þarna getur
almelmingur i fyrsta sinn séð það,
hvernig raunverulega var umhorfs
við Geysisflakið, auk þess sem mynd
in bregðttr upp ógleymanleginn
myndurri frá fegtfrð og tign öræf-
anna norðan Vatnajökuls. Þessar
myndir Eðvards verða vafalaust
mjög eftirsóttar, éEki aðeiris hér,
heldur um land allt.
Vann kosningasigur
Eamon de Valera, írski stjóm-
málaforinginn, vann talsverðan
kosningasigur í sl. viku. — Fékk
flokkur hans 69 menn kjörna á
þing, en flokkasamsteypa ríkis-
stjórnar Costello aðeins 64. En
14 óháðir þingmenn náðu kosn-
ingu og er ekki enn vitað, hvem-
ið kaupin gerast á eyrinni, og
hvor nær hylli þeirra, de Valera
eða Costello.
Ferðaskrifstofan efnir
til ferðar í Þjóðleik-
húsið
Ferðaskrifstofan hér efnir til
ferðar í Þjóðleikhúsið nú um
helgina, og er ætlunin að sjá
óperuna Rigoletto á sunnudags-
kvöld. Farið verður héðan kl. 1
e. li. á laugardag, farið í leikhús-
ið á sunnudagskvöld, og lagt af
stað heim kl. 1 e. h. á mánudag.
Þeir, sem ætla að taka þátt í för-
inni þurfa að panta í dag með
því að ekki verður hægt að
tryggja aðgöngumiða í leikhúsið
eftir daginn í dag.
Verðlagsstríð
í New York
Hafið er í Ncw York verðlags-
stríð á milli stærstu verzlunarhús-
anna. Stærsta „department“-verzlun
veraklar, Macy’s, reið á vaðið og
lækkaði verð á ýmsum varningi, og
brátt tóku lrin verzlunarhúsin upp
hanzkann. Fyrsta daginn, sem verð-
lagsstríð jictta stóð yfir, lækkuðu
ýmsar vörur allt að 10%. Samband
smásöluverzlana hefur hvatt með-
limi sína til að færa niður vcrð á
viirum allt að því 20%.
Færeyingar leita
samnino;a við
Þjóðverja
Færeysk þingnefnd er nýlega
farin til Vestur-Þýzkalands til
þess að hefja þar samninga um
sölu á saltsíld og e. t. v. öðrum
fiski. Nefndin hyggst einnig leita
samninga í Austur-Þýzkalandi.
Ráðgert er að semja um vöru-
skiptaverzlun. Færeyingar hafa
hug á að fá þýzkar vélar.
Bygging votheysturna er nýlega
hafin í héraðinu
r
Odýrustu byggingar, sem völ er á,
yfir bvert kýrfóður
Bygging á votheystiifriuiii t
héraðinu er hafin á vegtmr Sáiri-
vinnubyggingafélags Eyjafjarð-
ar. Byrjað var að steypa fyrsta
turninn á þestsu sumri sl. mánu-
dag hjá Magnúsi Sigurðssyni
bónda að Björgum í Glæsibæjar-
hreppi. Er það 1212 m. hár turn.
Blaðið hefur leitað fregna af
þessum framkvæmdum hjá form.
Samvinnubyggingafélagsins,
Árna Jónssyni tilraunastjóra.
— Margir munu notfæra sér
hin hraðvirku tæki félagsins til
turnabygginga, sagði Árni Jóns-
son. Félagið hefur ráðið 3 menn
við hraðsteypumótin í sumar:
Sverri Árnason, Tryggva Bene-
diktsson og Erik Olsen, og ann-
ast þeir turnabyggingarnar.
Fjárfestingarleyfi fengin.
Allir þeir, sem SE annaðist að
sækja um fjárfestingarleyfi til
turnbygginga fyrir, fengu þau og
verður engin töf á framkvæmd-
um af þeirri ástæðu. Óvíst er
hins vegar ennþá um innflutning
þlásara, en vonir standa til að
einhver innflutningur fáist. All-
margir þeir, sem pantað hafa
turnbyggingar, gera ráð fyrir að
hafa þær ekki hærri en svo, að
hægt verði að komast hjá tækni-
fyllingu þeirra, enda þótt þygg-
ingakostnaður á hvert kýrfóður
sé töluvert hærri á lágum turn-
um en háum, sagði Árni enn-
f 1 emur.
Efnismagn turnanna.
Árni Jónsson lét blaðinu í té
pftirfarandi upplýsingar um efn-
ismágn til turnanna o. fl. í sam-
bandi við þá, til leiðþeiningar
fyrir bændur:
„Til athugunar fyrir þá, er
ætla að byggja turna eða hafa
það í huga, má gefa eftirfarandi
upplýsingar um efnismagn o. fl.:
14 pk. cement, 50 kg. þarf í
hvern meter, 25 tunnur af möl
og sandi þarf í hvern meter, 30
kg. kalk þarf í hvem meter, 17
pk. cement í undirstöðu, þar sem
steypa þarf undirstöðu. í 6 m.
turn þarf 200 kg. 8 eða 10 mm.
steypujárn, 12—13 m. turn þarf
750 kg. 8 eða 10 mm. steypujám.
f þak og lúgur á 6 m. turni þarf
um 20 rúmfet af timþri, en í Í2—
13 m. turn þarf um 45 rúmfet.
Eina rúllu af pappa 20 m2 þarf í
þak og til einangrunar á hlerum
í turnop.
Odýrasta byggingalagið.
Miðað við núverandi verðlag á
byggingarefni, vinnu og öðru, er
að byggingum lítur, verður ekki
byggð ódýrara á annan hátt fyr-
ir hvert kýrfóður, en með turn-
byggingum. Þurrheyshlöður
verða afar dýrar vegna hins háa
verðs á timbri -og þakefni, og er
því lítill vafi á að það eina sem
vit er í, fyrir þá sem vantar hlöð-
ur fyrir heyfeng sinn og ætla að
byggja, að snúa sér að bygging-
um á votheyshlöðum. Mun S. B.
E. kappkosta að verað við ósk-
um manna um byggingu turna
með mótum félagsins.“
Kínverjar virðast búa sig undir
langviima styrjöld
Ekkert mark takandi á orðrómi um frið, þrátt
fyrir „friðarhreyfingima“
Associated Press fréttastofan
birti á mánudaginn frétt þess
efnis, að svo væri að heyra á út-
varpi kommúnista í Peking, að
Kína hyggi sig undir laiigvinna
styrjöld.
í útvarpinu var nú um helg-
ina rekinn mikill áróður til jiess
að fá fólk til að leggja fram fé í
sjóð, sem á að standa undir
kostnaði við að kaupa þung her-
gögn til hersins í Kóreu. Jafn-
framt var frá því skýrt, að í jan-
úar 1952, mundi kínverska
kommúnistastjórnin þirta þjóð-
inni ýtarlega skýrslu um Kóreu-
styrjöldina og þátt Kínverja í
henni.
Allt þetta þykir benda til þess
að Kínverjar búizt við langvinnri
styrjöld og að minnsta kosti ráð-
geri þeir ekkert vopnahlé fyrir
janúar 1952.
Tækifæri til að semja nú í júní.
í Bandaríkjunum er hins veg-
ar áhugi fyrir að binda endir á
Kóreustyrjöldinni í júní, er ár er
liðið frá ái'ás kommúnista. Af-
staða herjanna er nú þannig,
að þúið er enn einu sinni að
hrekja kommúnista norður fyrir
38. breiddarbaug og heldur hver
sínu miðað við júní í fyrra, og er
þó' hlutur kommúnista heldur
lakari. Er svo að sjá, að ekki sé
mikill óhugi í kommúnistaher-
búðunum fyrir friði — þrátt fyr-
ir friðarhreyfinguna — og þessar
fréttir frá Kína eru lítið friðsam-
legar, því miður.