Dagur


Dagur - 01.08.1951, Qupperneq 7

Dagur - 01.08.1951, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 1. ágúst 1951 D A G UR 7 ÚR BÆ OG BYGGD - Dagskrármál landbúnaðarins (Framhald af 2. síðu). hring fyrir bændur víðs vegar um land. Hve miklu má offra og um hve langa vegu má sækja bruna eða vikur, sem notað sé á viðeigandi hátt til veggjagerðar, svo að byggja megi, eins og gert var í Gljúfurholti í hittiðfyrra, 25 cm. þykka veggi, er reynist nægi lega traustir og skjólgóðir, miðað við íslenzka veðráttu. Þetta atriði og mörg önnur eru til athugunar í , öllum sveitum, meðal allra þeirra, er byggja þurfa; en það er ekki á færi einstaklinga held- ur félagsskapar, að gera sér grein fyrir slíku, vegna allra þeirra, sem eiga eftir að byggja eða lag- færa þær byggingar, er þegar hafa verið reistar. Má vera, að á þessu sviði sé hægt að spara nokkrar krónur á hverjum rúm- metra í byggingum og hver króna, sem spöruð er, eru líka fjármunir. Verksviðin eru mörg og þau þurfa öll athugunar með. Dýrast af öllu dýru er íimbrið. Jafnvel timburframleiðsluþjóðir spara það, fremur en allt annað byggingarefni. Hvað gerum við í því? Á félagslegum grundvelli má eflaust spara timbur í stórum stíl. Það er svo margt, sem hægt er að gera með sameiginlegu átaki og í félagsstarfi, er til gagns og góðs má verða. Og einnig í því, sem snertir uppbyggingu sveit- anna. Teppaefni, rósótt Gardínutau Handklæði Kvensokkabönd Herrasokkar, m. teygju Herrabindi. ÁSBYRGI H.F. Ljósmyndastofa G. Funch-Rasmussen, Gránufélagsgötu 21, opin alla virka daga kl. 1—6 e. h. Tökum upp í dag ensk gabardínefni í brúnum lit. — Getum saum- að úr tillögðum efnum þenn- an mánuð. Saumastofa Björgvins Friðrikssonar, Hafnarstræti 81. Sími 1596. Til sölu: JÓN SVEINSSON hdl. Hafnarstr. SS — Sími 1211 Heima 1358 Eignaumsýsla, kaup og sala lasteigna og önnur lögfræði- störf eftir samkomulagi. Notað timbur til sölu. — Upplýsingar í SÖL USKÁLANUM. Sími 1427. Nú fást: Tappar í hitageyma. Stjörnu-Apótek. „Eterna“-armbandsúr tapaðist föstud. 27. júlí s. 1. á leiðinni frá Þórunnarstr. 118, um Hamarsstíg, Odd- eyrargötu, Bjarnrastíg, Gils- bakkaveg, að Skóbúð Kea. Finnandi vinsaml. skili því að Þórunnarstr. 118, gegn fundarlaunum. Messað kl. 11 næstk. sunnudag í Akureyrarkirkju. — P. S. Kristniboðshúsið „Zíon“. Sam- koma næstkomandi sunnudag kl. 8.30 e. h. — Allir velkomnir. Enn sjást ekki vegheflar á þjóðvegunum hér nærlendis, enda gerast vegirnir nú æ erf- iðari yfirferðar. Hvað dvelur orminn langa? Leiðrétting. í afmælisgrein um Gunnar Jóhannsson í síðasta blaði hafði nafn konu hans mis- ritast. Hét hún Kristín, en ekki Stefanía. Einnig var það mis- hermt, að þeim hjónum hafi ekki orðið barna auðið. Þau eignuðust 3 börn, sem öll dóu ung. Áheit á Akureyrarkirkju. Kr. 50.00 frá K. K. —J kr. 20.00 frá K. P. Móttekið á afgr. Dags. Áheit á Strandarkirkju. Kr. 20.00 fr. V- ,J. — Kr. 10.00 frá ónefndum. Móttekið á afgr. Dags. Bæjaryfirvöldin hafa látið koma upp ruslakörfum á nokkrum stöðum í miðbæn- um og er ætlast til þess að menn fleygi bréfarusli, app- elsínuberki og öðru slíku í dalla þessa, en ekki á götuna. Þetta er virðingarverð tilraun, en sorglegt er að sjá að marg- ir láta sem þeir sjái ekki framför þessa og halda áfram að fieygja rusli á götuna eft- ir sem áður. Gjafir til Elliheimilisins Skjald- arvík. Frá Líknarsjóði ísiands kr. 1000.00. — Frá ónefndri konu kr. 50.00 og frá ónefndum kr. 90.00. Hjartans þakkir. Stefán Jónsson. Ferðafélag Akureyrar fer kvöldferð í Svarfaðardal í kvöld. Lagt af stað frá Ráðhústorgi. Áheit á Strandarkirkju. Frá N. N. kr. 50.00. Móttekið á afgreiðslu Dags. Sjónarhæð. Samkoma næsta sunnudag kl. 5. Allir velkomnir. Áheit á Strandarkirkju. Kr. 100 frá N. N. Móttekið á afgr. Dags. Almenningssalernin undir kirkjutröppunum eru fyrh' nokkru tekin í notkun og eru þau til fyrirmyndar um frá- gang allan og snyrtimennsku. Hefur þessi framkvæmd tek- i?t vel, Eftir er að vita, hvort gengið verður þannig mn þessa staði, að þeir verði lengi með sama snyrtimennsku- bragnum og nú er. Fíladelfía. Samkomur verða í Lundargötu 12: Miðvikudag, 1. ágúst, kl. 8.30 e. h.: Biblíulestur fyrir trúaða. — Fimmtudag: Al- menn samkoma kl. 8.30 e. h. — Sunnudag: Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. — Erik Martinsson tal- ar á samkomunum. Verið vel- komin. - Fokdreifar (Framhald af 4. síðu). langferðamönnum lítt eða ekki kunnar yfirleitt .Þó liggja ágætir akvegir um mestan hluta þessa svæðis og öll meiriháttar vatns- föll eru þar vel og tryggilega brúuð. Hvað veldur? Vafalaust það, að alllangur kafli vegarins um Utdalinn og Dalsmynnið er með þeim endemum, að einstakt mun mega kallast í byggð hér á' landi nú orðið, og er þá vissulega djúpt tekið í árinni. EG SKRIFA þessar línur í þeirri von, að þær megi verða hlutaðeigendum ráðamönnum of urlítil hvatning til þess að taka þetta til athugunar og helzt að bæta rækilega úr ástandinu, áður en alltof langt líður.“ Dráttarhestar, hesta-sláttu- vél og sláttuvélaskúffa. Kristinn Sigmundsson, Arnarhóli. Vi! kaupa haustbæra kú. Skipti fyrir vorbæra koma einnig til greina. — Þeir, sem vildu sinna þessu, eru vinsamleg- ast beðnir að leggja nöfn sín inn á afgreiðslu Irlaðs- ins, ásarnt nafni og númeri kúnna og væntanlegu verði. Baldur Halldórsson. H1 íðarenda. Hitageymar Ásbyrgi h.f. og Söluturninn, Hamarsstíg. Systrabrúðkaup. Sunnudaginn 29. júlí voru gefin saman í hjóna- band í Bakkakirkju í Öxnadal ungfrú Jóhanna Aðalsteinsdóttir, Bakkaseli, og Hans Petersen, starfsmaður á bifreiðaverkstæði Jóns Loftssonar, Reykjavík. — Ennfremur ungfrú Jónheiður Eva Aðalsteinsdóttir, Bakkaseli, og Sigurgeir Sigurpálsso’n, starfsmaður á bifreiðaverkstæð- inu „Þórshamri", Akureyri. Sama dag átti móðir brúðanna, írú Steinunn Guðmundsdóttir, kona Aðalsteins Tómassonar, gestgjafa í Bakakseli, fimmtugs- afmæli. Möðruvalalkl.prestakall. Mess- að í Glæsibæ sunnudaginn 12. ágúst kl. 2 og að Bægisá sunnud. 19. ágúst kl. 1 e. h. Messan, sern ákveðin var að MöðruvoJlum næstk, sunnúdag, fellur niður. Sextugur varð 23. þ. m. Sig- tryggur Jónsson, verkamaður, Lækjargötu 2 hér í bæ. Lélegur fiskafli er á trillubáta sem róa til fiskjar frá verstöðv- unum hér við Eyjafjörð. Sjó- menn hér við fjörðinn segja að fiskgengd á grunnmiðum sé allt- af að minnka. Nokkrir norskir síldveiðibátar hafa leitað hér hafnar í sumar og komið hefur fyrir að þeir hafa verið teknir upp í dráttarbraut- ina til viðgerðar og eftirlits. Lokið er viðgerð Brekkugötu við Landsbankahúsið nýja og umferð hafin á ný um suðurhluta götunnar eftir nokkurt hlé. Þetta var mikil viðgerð og væntalega góð að sama skapi. Austurríska söngkonan vakti hrifningu Else Múhl, ópei-usöngkona, frá Austurríki, er fór með hlutverk Gildu í Rígólettó í Þjóðleikhús- inu í vor, hélt hljómleika á veg- um Tónlistarfélags Akureyrar hér í fyrri viku og söng lög eftir Schubert, Brahms, Wolf, Rossini, Verdi og Strauss, með aðtsoð dr. Urbantschitsch. Söngkonan hef- ur mjög fallega og vel þjálfaða rödd og vakti söngur hennar og framkoma hrifningu áheyrenda hér, sem fögnuðu henni ákaft.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.