Dagur - 15.08.1951, Blaðsíða 8

Dagur - 15.08.1951, Blaðsíða 8
8 Dagub Miðvikudagiim 15. ágúst 1951 40 milljón króna óafturkræft, nýtt framlag Marshallaðsfoðar- innar til íslands Þetta er framlag til vörukaupa bæði í dollara- löndunum og Vestur-Evrópu Bein efnahagsaðstoð vegna Marshalláætlunarinnar nemur þar með 21,7 millj. dollara, auk óbeinnar aðstoðar til að mæta greiðsluhalla landsins lijá greiðslubandalagi Evrópu, 8,5 millj. dollara Samkvæmt fréttatilkynningu, sem blaðinu hefur nýskeð borizt frá skrifstofu Efnahagssam- vinnustjórnarinnar á íslandi hef- ur íslandi nú verið úthlutað nýj- um framlögum vegna Marshall- aðstoðarinnar, sem hér segir: Framlög. Efnahagssamvinnustjórnin hef- ur nýlega veitt íslandi 1 milljón dollara — 16 milljónir króna — í beinum framlögum til vörukaupa frá dollaralöndunum og 1,5 mill- jón dollara' — 24 milljónir króna — í óbeinum framlögum til inn- kaupa frá löndum Vestur-Ev- rópu. Upphæðir þessar eru fyrstu fjárveitingar, er Efnahagssam- vitmustjórnin veitir fslandi á fjárhagsári því, er hófst 1. júlí sl., og eru framlögin hæði óaftur- kræf. Bein efnahagsaðstoð á vegum Marschalláætlunarinnar til inn- kaupa á vörum frá dollaralönd- unum nema þar með samtals 21,7 milljónum dollara frá því að Marshalláætlunarinnar til inn- aðstoð til þess að mæta greiðslu- halla landsins hjá greiðslubanda- lagi Evrópu, en öll þátttökuríki efnahagssamvinnunnar eru með- limir í bandalaginu, nemur nú samtals 8,5 milljónum dojlara. Þessi nýja fjárveiting gerir kleift að halda áfram miklum innflutningi á nauðsynlegum neyzlu- og rekstrarvörum í sam- ræmi við stefnu ríkisstjórnarinn- ar, er miðar að frjálsari innflutn- ingi til landsins með það fyrir augum að koma upp vörubirgð- um í landinu, samræma verðlag og ná frekara jafnvægi í efna- hagsmálum. Innkaupalieimildir. í lok júnímán. sl. hafði efna- Balduin Ryel sjötugur í gær í gær var Balduin Ryel, ræðis- maður Dana hér í bæ og fyrrv. kaupmaður, sjötugur. Var mjög fjölmennt á hinu myndarlega heimili þeirra hjóna.Kirkjuhvoli, og Ryel margvísleg vinsemd og sómi sýndur í tilefni afmælisins, enda hefur hann nú um- langt skeið verið einn af þekktustu og mætustu borgurum bæjarins, og hann og hin ágæta kona hans, frú Gunnhildur Ryel, jafnan notið mikilla og verðskuldaðra vinsælda. hagssamvinnustjórnin gefið út innkaupaheimildir til kaupa á ákveðnum vörum og þjónustu samkvæmt beiðni ríkisstjórnar- innar fyrir samtals 20,290,000 dollara. Af upphæð þeirri voru gefnar út innkaupaheimildir í júnímánuði einum saman fyrir 1,685,000 dollara ,er notað var til kaupa á eftirtöldum vörum, og eru þær flokkaðar eftir hinum ýmsu atvinnugreinum, sem þær fóru til: Landbúnaður. Vélar og tæki fyrii- áburðar- vei-ksmiðjuna kr. 13,032,000. — Saxblásarar kr. 163,000. Sjávarútvegur. Brennsluolíur fyrir togara og bátaflotann kr. 3,258,000. — Pappír til fiskumbúða kr. 4,235,000. — Eimketill fyrir Lýsi h.f., svo og aðrar járn- og stál- vörur kr. 244,000. — Vélar og tæknileg þjónusta vegna Faxa- verksmiðjunnar kr. 668,000. Iðnaður, Vjnnufataefni, netagarn og garn til framleiðslu á baðpiullar- dúkum kr. 2,118,000. — Efnivörur fyrir málningaverksmiðjuna Hörpu h.f. kr. 489,000. — Járn og stál, aðallega til skipaviðgerða, o. fl. kr. 1,222,000. ' Ymislegt. Varahlutir í framleiðsluvélar, svo sem kúlulegur, hlutir í frysti- vélar, o. fl. kr. 326,000. — Vara- hlutir í jarðvinnslu- og flutn- ingatæki kr. 326,000. — Eirvír fyrir Landssímann og rafveitur ríkisins kr. 1,368,000. — Samtals kr. 27,449,000. Tófuhvolpur liandsamaður Fyrir nokkrum dögum bar það við að Munkaþverá í Eyjafirði, að drengir tveir, þeir frændurnir Vilhjálmur og Eysteinn, sem voru að sækja kýr í haga, hand- sömuðu tófuhvolp allstálpaðan. Varð sá fyrrnefndi hans fyrst var og náði honum eftir nokkurn elt- ingarleik. Bar þé félaga hans þar að. Hann lagði til peysuna sína, sem þeir vöfðu utan um hvolp- inn. Komu þeir honum þannig heim. Ekki þykir gott að liand- sama tófuhvolpa, því að þeir eru mjög grimmir og verja sig með kjafti og klóm. Báru sigurvegar- arnir þess nokkur merki á hönd- um. Vegna aukinnar dýr-1 tíðar og framleiðslu-i kostnaðar hækka landbúnaðarafurðir ; um 14,6 próeent 6. sept. n. k. Á fundi verðlagsnefndar landbúnaðarafurða sl. fimmtu dag — 9. þ. mán. — lagði hag- stofustjóri fram útreiknaðan verðlagsgrundvöll fyrir næsta verðlagsár, sem hefst 6. sept. næstk. samkvæmt samkojnu- lagi nefndarinnar. Verðlags- grundvellinum var ekki sagt upp, og gildir hann því næsta verðlagsár óbreyttur frá fyrra ári. En vegna hækkunar á rekstrarvörum bænda hækkar verð á landbúnaðarvörum samkv. verðlagsgrundvellin- um, um 14,6% frá 6. sept. í haust að. telja. Frá mjólkur- verðinu dregst þó hækkun sú, sem á því varð 1. júní í sum- ar, en liún mun hafa numið 13 aurum á hvern mjólkurlítra. Á fundi verðlagsnefndar lá enn ekki fyrir ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um það, hvort hækkunin frá í vor verði öll tekin með í kaupgjaldsvísitöl- una fyrir ágúst, sem reiknuð skal um miðjan þennan mán- uð, en nefndin hafði áður ein- ; róina'lagt til, að svo yrði gert. Iðgjöld almannatrygg- inganna hækkuð vegna vaxandi dýrtíðar Samkvæmt tillögum og áskor- unum Tryggingastofnunar ríkis- ins hefur ríkisstjórnin ákveðið að nota lagaheimild til þess að hækka iðgjöld til almannatrygg- inganna. Nemur hækkun iðgjald- anna 11%, en ríkisframlagið hækkar um rúmlega 2 millj kr. og framlög sveitafélaganna sam- tals urn 1,3 millj. kr. Stafar þessi hækkun af sívaxandi dýrtíð, sem valdið hefur stórhækkuðum bótagreiðslum tryggingarstofn- unarinnar. Af sömu ástæðum hafa einstök sjúkrasamlög, þ. á. m. Sjúkrasamlag Akureyrar, ný- lega ákveðið að hækka iðgjöld sín að sama skapi. Tekjur tryggingastofnunarinn- ar hafa að undanförnu verið inn- heimtar með 8% álagi, en vísi- töluuppbótin á bætur frá ára- mótum, hefur hins vegar verið 23%, þar til nú, að hún er komin upp í 32%, en hækkar eftirleiðis á þriggja mánaða fresti á sama hátt og almennt kaupgjald í land- inu. Hvert stig til hækkunar á kaupgjaldsvísitölunni mun kosta tryggingastofnunina um hálfa milljón króna, og mun því enn verða verulegur halli hjá henni, þrátt fyrir hækkunina. Fréttir frá Færeyjum Eins og kunungt er ,eru Færeyingar næstu nágrannar okkar og auk þess ein skyldasta frændþjóðin. Tunga þeirra er einnig svo ná- skyld okkar eigin máli ,að hætt er við, að hún verki í byrjun lielzt á okkur sem afbökuð íslenzka. Yfirleitt má segja, að við höfum gefið Færeyingum og málefni þeirra allt of lítinn gaum, og mætti það gjarnan standa til bóta. Hér á eftir er, sein sýnishorn og til gamans birt fregn, sem kom nýlega í færeyska blaðinu „17. september“, eða'„hósdagin 2. august“ sl. um ferðalag norrænu kvennanna með Brand V. hér á landi og í Færeyjum, en sá leiðangur má enn vera okkur Akureyringum í fersku minni. — í því sama blaði segir enn- fremur í feitletraðri fyrirsögn á fremstu síðu: „fslendsk saltfisasölu gongur framúr væl. At kalla einki óselt. Hægri prísur enn í fjör,“ o. s. frv. — Reynt hefur verið að velja leturgerð og haga uppsetningu klausunnar á þann veg, að hún líkist sem allra mest frumgerðinni í liinu færeyska blaði. NORÐURLENDSKU KONUFOLKINI koma leygarmorgunin Útferðir til Nólsoyar og Kirkjuböar STÓRAR MÓTT0KUR í ÍSLANDI Norðurlendsku konufólkini ~verða aftur á Havnini leygar- morgun kl. 8 verður sagt í fjar- riti frá Torgerð Mohr frá A- kuroyri í gjár. Skipið Brand V siglir ikki skjótt, og hevur ferðin seinkast av tr sama. Stpðgurin her verður tí held- ur ikki so langur sum í fyrst- uni ætlað. M. a. dettur ferðin undir Vestmannabjþrgini burt- ur. Men annars verður roynt at gera dvþlina her so hugna- liga sum umstpðurnar loyva. Verður veðrið til vildar, er ætl- ingin at fara ferð til Nólsoyar kl. 15.30 leygardagin. Sunnu- dagin verður koyrt til Kirkju- b0ar. Sunnudag seinna part verður fráfarningarfundur hild- in á Vaglinum. Kl. 18 sama dag siglir skipið. Mótt0kan i Islandi. Sum kunnugt, er tað norður- lendska konufólkafelagssam- bandið sum stendur fyri ferð- ini. í íslandi hava verið mikil hátíðarhþld. Skipið kom til Reykjavíkar hósdagin 26. juli. Hþvuðmóttþkan var í Tjóð- leikhúsinum um kvöldið, og fluttu har Tulltrúar frá teim 7 londunum kvpðu. Eisini gr0n- lendsk kvinna er við í ferðinni. Fararstjóri er Stella Kornerup, skúlastjóri úr Danmprk. Ur Reykjavík sigldi skipið til Akuroyrar, men 80 av teim 179 útlendsku gestunum fóru í bil. í staðinn fóru so 80 íslendsk- ar konur við skipinum. Meðan skipið stpðgaði í Rey- kjavík varð býurin skoðaður og ferðir gj0rdar til Gullfoss, Geysis og Laugarvatns. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna reynir að miðla málum í Kasbmir-deilunni Mikla athygli hefur sú heimsfrétt vakið, að Nehru, forsætisráðherra Indlands, hefur nýskeð sagt sig úr miðstjórn Þjóðveldisflokksins. Er talið, að sú ráðstöfun standi m .a. í beinu sambandi við ágreining innan flokksins um lausn Kashmir-dcilunnar milli Indlands og Pakistan. — Sameinuðu þjóðirnar hafa nýlega sent hinn kunna samningamann sinn í Austur-Asíumálum, dr. Frank P. Graham, til Indlands til þess að leita sætta í deilu þessari og undirbúa þjóðar- atlcvæðagreiðslu í Kahsmír, er skera skal úr um pólitíska framtíð landsins. — Hér á myndinni sést dr. Graharn (til vinstri) ræða þessi stór-pólitísku deiluinál við forsætisráðherra Pakistan, Mohammed Zafruilali Khan.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.