Dagur - 07.11.1951, Page 1
F orustugreinin:
Húsnæðismálin og dlvara
st j órnmálaf lokkanna.
AGU
Finunta síðan:
„Gift eða ógift“ á leik-
sviðinu hér á Akureyri.
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 7. nóvember 1951
44. tbl.
„Gift eða ógift“ á leiksviði
ingar í sjónum
„Brúðkaupsmyndin“ úr sjónleiknum „Gift eða ógift“, sem L. A. sýnir
um þessar mundir. (Sjá 5. bls.). Siifurbrúðhjónin eru, talið frá
vinstri, frú Ingibjörg Síeinsdóttir og Sigurður Kristjánsson, írk.
Freyja Antonsdóttir og Júhus Oddsson, frú Jónína Þorsteinsdóttir
og Vignir Guðmundsson. (Ljósmynd: Edvard Sigurgeirsson).
Starfræksla hefst bráðlega í ieigiihíisnæði
í fyrradag mun hafa verið cnd-
anlega ákveðið á hluthafafundi i
Þórshamri h.f., að endurbyggja
bifreiðaverkstæðið á Gleráreyr-
um, sem eyðiiagðist í eldi í sl.
mánuði.
Mun verða hafizt handa um
65 skráðir atvimiu-
lausir
í sl. viku lauk skráningu at-
vinnulausra manna hér í bæ og
mættu til skráningar 65 menn,
þar af 36 heimilisfeður með 55
börn á framfæri. Flgstir þessara
manna höfðu haft atvinnu í sum-
ar, en hafa nú enga atvinnu og
ekki neitt víst framundan.
Aðalfundur F. II. F.
í Eyjafjarðarsýslu
Félag ungra Framsóknar-
manna í Eyjafjarðarsýslu, held
ur aðalfund sinn næstk. sumui-
dag, 11. þ. m., að Hótel KEA á
Akureyri, og hefst hann kl. 2 e.
h. Venjuleg aðalfundarstörf
og lagabreytingar. Ennfreinur
verður rætt um vetrarstarfið.
í !ok fundarins verður sýnd
kvikmynd á sýningarvél, sem
félagið er búið að eignasí. —
Um kvöldið k!. 9 verður spiluð
Framsóknarvist. Að spilunum
loknum verður stiginn dans.
byggingu á sama stað eins fljótt
og kostur er. En verkstæðið mun
þegar taka til starfa í leiguhús
næði á yfirbyggingarverkstæði
KEA á Oddeyrartanga og mun
auglýsing um starfrækslu þar
verða birt nú á næstunni.
Hefur þá þannig úr þéssum
májum rætzt, að brunatjón þetta
orsakar ekki atvinnumissi fyrir
marga menn og er það fagnaðar-
efni.
Skáldsasja um Leif
c;
Eiríksson
Book-of-the-Mouth-Club
hók i október
Hinn kunni ameríski bóka-
klúbbur Book-of-the-Month-
Club hefur valið skáldsögu
um Leif Eiríksson og hina
fornu íslenzku landkönnuði
sem aðalbók sína í október. —
Sagan heitir „The Utmost Is-
land“ og cr eftir Henry Myers.
Auk landafundanna eru átök
kristni og heiðni á íslandi að-
aelfni sögunnar. í sögunni er
ekki — gagnstætt því sem oft
er í erlendum bókum um
þessi mál — reynt að gera
Leif og menn hans að Norð-
mönnum. Bókin fær allgóða
dóma ,t. d. í New York Times
Book Review nú fyrir
nkemmstu.
Flugfragi undir ávexti!
I gær mun flugvél hafa flutt
hingað um 2 smálestir af
ávöxtum, frá frá Reykjavík, til
verzlana í bænum. Er hér um
.að ræða ýmiss konar ávexti.
sem keyptir eru fyrir „báta
gjaldeyri“ og því dýrir. Flug
fragt mun dýrasta fragt, sem
til er, sem vonlegt er, og sýnist
lítil ástæða að hækka enn verð
þessarar vöru, sem kalla má
æskilega en ekki nauðsynlega,
með slíkum fluíningum. Verð
þessara ávaxta var hér í gær
niun hærra en í verzlunum í
Reykjavík. Von mun á ávaxta
scndingum hingað innan
skamms með bifreiðum.
Plötiissniðja Odcla eyðilagðist í eldi
síðastliðinn laogardag
Enn brennur óvátryggð bifreið
Á þriðja tímanum sl. laugardag
kom upp eldur í stórum verk-
stæðisskála við Kaldbaksveg á
Oddeyri, tilheyrandi vélsmiðj-
unni Odda, scm er eign Kaup-
félags Eyfirðinga.
í eldinum eyðilagðist skálinn
og vélar og áhöld þar inni
skemmdist- meira og minna og
þar að auki stórskemmdist vöru-
bifreiðin K—204, eign starfs-
manns i vélsmiðjunni. Mun bif-
reiðin ekki hafa verið bruna-
tryggð.
íkviknunin varð með þeim
hætti, að rafmagnshandljós
brotnaði, er verið var að vinna
við bifreiðina í skálanum og gaus
eldur þá upp í benzíngufu eða
benzíni, sem þar var nálægt.
í skála þessum fór fram ýmis
járnsmíðavinna í sambandi við
rekstur Odda.
Atliyglisverðar niðurstöður rannsókna - leitað
skýringa á fiskleysi fyrir Austfjörðum
Mörg hundruð endur
á andatjörninni
Þegar snjóana gerði um dag-
inn fjölgaði stórlega á anda-
t.jörninni í gilinu og voru þar þá
mörg hundruð endur. Þegar
hlýnaði fækkaði þeim nokkuð,
en enn er mikill fjöldi anda á
tjörninni og mun svo verða í vet-
ur, iíklega fleiri en nokkru
sinni fyrr. Kristján Geirmunds-
| son hefur beðið blaðið að minna
fólk á, að senda börnin með
| með brauðmola handa fuglunum.
í síðasta eintaki fiskveiðablaðs-
ins „Víðis“, sem Einar Sigurðs-
son útgerðarm. gefur út, er at-
hyglisverð grein um fiskleysið á
miðunum fyrir Austurlandi og
orsakir þess. Með því að fisk’.eysi
það á grunnmiðum, sem þar er
um rætt, er víðar en fyrir Aust-
fjörðum, án þess að bcinlínis
verði raltið til togaraveiða — t.
d. hér í Eyjafirði og næstu mið-
um — tekur Daguar sér Bessa-
leyfi að birta nokkur helztu atriði
þessara hugleiðinga Einars Sig-
urðssonar. Segir svo m. a.:
Breyttir túnar.
„Eitt sinn fyrir ekki ýkja löngu
voru blómlegar fiskveiðar fyrir
Austurlandi stundaðai' þar á
opnum bátum og síðar vélbátum
að sumarlagi. Fiskur gekk þá all-
mikið inn í firðina, þó að megin-
aflinn væri lengst af sóttur út
fyrir annnesin. Þá var svo mikil
fiskgengd fyrir austan, að menn
sóttu þangað í atvinnuleit úr
mörgum verstöðvum sunnan-
lands, þegar fiskur var genginn
bar af miðunum. Voru þá fisk-
veiðar stundaðar af kappi fyrir
öllu Austurlandi allt sumarið og
langt fram á haust.
Nú kemur það varla fyrir, að
fiskur gangi inn á firðina, og
aflabrögðin eru yfirleitt ov.ðin þar
svo rýr, að aðkomumenn eru svo
til hættir að fara þangað til róðra,
og hlutur heimamanna hefur með
hverju árinu farið minnkandi og
aldrei verið jafnrýr og í sum
ar---------
Síld gekk einnig oft inn á firð
ina, og mátti heita, að hún væri
bar allt sumarið. Var hún þá oft í
lásum langt fram á haust. Síld
veiddist einnig að vetrarlagi, upp
úr áramótum, og þarf ekki að
fara langt aftur í timann, um 15
ár eða svo, þegar hún veiddist
þar að nokkru marki síðast. En
nú virðist þetta alveg búið að
Ekki sök togara?
„Fiskþurrðin fyrir Austurlandi
er því athyglisverðari, sem mönn
um finnst, að ágengni togara hafi
verið þar minni en fyrir flestum
öðrum landshlutum. Og vart er
um það að ræða, að togarar raði
sér eins og veggur framan til á
miðunum, svo að fiskurinn nái
ekki til að komast upp að land
iviu. eins og á sér stað fyrir Vest-
fjörðum og á miðum Vestmanna
eyinga og Faxaflóamanna.
Það vaknar því sú spurning
hvort búið hafi verið áður að
eyðileggia þessi mið, því að ekki
er því að neita, að þar var mikil
ágengni af togurum á fyrsta
skeiði botnvörpuveiðanna hér við
land. Eða hafa lífsskilyrði fisks-
ins versnað frá bví, sem áður var,
eða hvort tveggja?“
Fiskurinn og breytingarnar.
„Nú hafa síðustu vísindarann-
sóknir leitt í Ijós, að fiskurinn er
ótrúlega næmur fyrir hinum
minnstu breytingum á umhverfi
sínu, hafinu. Þannig finnur hann
mun á 0.03 gráðu hita og 0.02
prósent saltmagni í sjónum. Aður
er það alkunna, hve ætíð í sjón-
um er mikilvægt fyrir fiskgöng-
urnar.
Hafa þátt átt sér stað slíkar
breytingar á lífsskilyrðum fisks-
ins fyrir Austurlandi? Eru þær
hinar raunverulegu orsakir fyrir
þverrandi fiskgengd á þessum
slóðum? Þegar um það er að
ræða, að fiskveiðar í heilum
landsfjórðungi leggist niður, þar
sem þær voru áður blómlegur at- ■
vinnuvegui', er þar um svo mikil-.
vægt mál að ræða, að það má
ekki horfa upp á það án þess að
hreyfa legg eða lið til þess að
leita orsakanna.“
Nýjar leiðir.
„Er hér nokkuð hægt að gera,
þegar fiskurinn er mikið til hætt-
ur að ganga upp að landinu? Það
er tvennt, sem hér gæti komið
til greina. Það er klak og ný fiski
mið. Um ný fiskimið er ef til vill
ekki að ræða, en hefur það verið
fullrannsakað? Hvað er langt síð-
an Eldeyjarbankinn fannst, Hal-
inn og nýju lúðumiðin? Geta
ekki verið þarna auðugir fiski-
bankar austar og norðar? Eru
ekki skilyrði til þess að hefja víð-
tækt fiskklak í hinum miklu
fjörðum eystra? Hvergi væri
betra að leiða í ljós árang'urinn af
fiskklaki í sjó en þar, ef skilyrðin
eru fyrir hendi, .þar sem nú er
þuri' sjór. En þetta kallar á rann-
sókn og þá fyrst og fremst á skil-
yruðm sjávarins til þess að fiskur
vilji vera þar.“
Að lokum bendir höf. á, að
fiskklak í sjó sé ekki nýung,
heldur hafi t. d. Japanir þegar
mikla reynslu í þessu efni.
Metsala „Kaldbaks“
„Kaldbakur“ seldi 240 lestir af
fiski í Grimsby 31. f. m. fyrir
13882 sterlingspund og er þetta
hæsta sala íslenzks togara síðan
í apríl. Þessi sala gerir kr. 2,65
pr. kg. Næst hæsta sala er hjá
„Júní“ frá Hafnarfirði, kr. 2,55
pr. kg.
lónas Þór forsljóri
látinn
í gærmorgun andaðist að
heimili sínu hér í bænum
Jónas Þór forstjóri Gefjunar,
cftir þunga sjúkdómslegu síð-
ustu mánuðina. Hann varð 70
ára. Þessa gagnmerka borgara
verður minnzt hér í blaðinu
síðar.
0