Dagur - 14.11.1951, Page 2

Dagur - 14.11.1951, Page 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 14. nóv. 1951 JÚNAS ÞÓR, verksmiðjusljóri Gefjunar Þegar ættingjar, vinir og sam- ferðamenn Jónasar Þór minntust 70 ára afmælis hans nú í haust, og jafnframt 35 ára starfssögu hans á Gefjun bar stóran skugga á: Jónas hafði verið sjúk- ur í nokkra mánuði og var þá vitað, þeim er bezt til þekktu, að síðasta stundin nálgaðist óðfluga. Fregnin um andlát hans kom því ekki á óvart ættingjum hans né vinum. Hinzta stundin mun held- ur ekki hafa mætt honum óvið- búnum. Löng sjúkdómslega, sem hann bar með karlmennsku og miklu æðruleysi, mun þó ekki hafa verið aðal undirbúnings- skólinn, heldur mjög þroskuð kristin lífsskoðun hans og sterk trú á næsta tilverustig, sem mót- azt höfðu æ fastar á langri ævi og veittu honum innri styrk og frið. Hann mun ekki hafa yfir- gefið þetta tilverusvið með kvíðnum huga, heldur hafa geng- ið á guðs síns fund öruggum skrefum hins sterka trúmanns. Þannig hlýtur að vera gott að Ijúka löngum og dáðríkum starfsdegi. Mér var Jónas Þór kunnugast- ur og minnisstæðastur, sem ötull framkvæmdarstjóri stórfyrirtæk- is og hugkvæmur og sívakandi forustumaður á sviði ullariðnað- ar landsmanna. Hvoru tveggja þessara hlutverka gegndi hann með miklum ágætum og þarf ekki að svipast lengi um til þess að sjá árangur þessara starfa hans, því að hann blasir við hverjum manni. En svo fjölhæfur var Jónas, að önn hversdagsins, vélaskrölt og verksmiðjureykur, megnuðu ekki að byrgja honum útsýn til fjölmargra annarra mál- efna, er hann taldi þjóðinni til gagns og sjálfum sér til þroska. Hann var einn af stofnendum ungmennafélagshreyfingarinnar og kosinn í fyrstu stjórn UMFA 7. janúar 1906. Mun andi þess félagsskapar hafa búið með hon- um alla ævina. Hann kom mjög við sögu guðspekifélagsskaparins hér og var um langt skeið for- 'maður stúkunnar. Einnig mun hann hafa verið einn af stofn- endum og aðal-forustumönnum Co-frímúrarareglunnar hér í bæ. Rotaryfélagi var hann af lífi og sál og forseti Rotaryklúbbs Ak- ureyrar um eitt skeið. Hann gerðist snemma áhugamaður um skógræktarmál og lét þá ekki standa við orðin ein, eins og við margir hinir, heldur studdi hann það málefni með ráðum og dáð og gerði hér ýmsar merkilegar tilraunir með erlendar trjá- og blómategundir. — Hann var mjög söngelskur. Tók mikinn þátt í hinu merkilega brautryðjenda- starfi karlakórsins Heklu og var einn þeirra „Heklunga“, sem fóru í fyrstu söngför íslenzkra kóra, sem farin hefur verið til útlanda. Þá var hann og stofnandi og um mörg ár einn af aðal„kröftum“ Lúðrasveitar Akureyrar. Á sviði framfara- og atvinnu- mála var hann þó kunnastur og í sambandi við þau mun hans lengst verða minnzt. Fyrir utan forustu sína í ullar- iðnaðinum, gerðist hann einn af forvígismönnum þess, að hér bar stofnuð dráttarbraut fyrir skip. Hann var einn af stofnendum Flugfélags íslands. Um eitt skeið fékkst hann nokkuð við skipaút- gerð. Rafmagnsmál bæjarins lét hann sig miklu skipta og um mörg undanfarin ár hefur hann verið í rafmagnsnefnd Akureyr- ar. En aðalstarf hans var á Gefj- un, og þar hefur hann reist sér minnisvarða, sem lengi mun standa. Þegar litið er til þess, hvernig umhorfs var í ullariðnaði lands- manna 1916 og hvemig ástandið er þar í dag, er augljóst, að fram- þróun í þessum iðnaði hefur orðið meiri en í flestum öðrum iðngreinum og er hér þó um að ræða erfið og flókin viðfangs- efni, þar sem ekki var mögulegt að byggja á erlendri reynslu, nema að takmörkuðu leyti, vegna sérkenna íslenzku ullarinnar. Hefur Jónas Þór leyst þar af hendi brautryðjendastarf, sem iðnaður þessi mun byggjast á enn um langan aldur. Þegar Jónas tók við verk- smiðjustjórninni 1916 var hagur verksmiðjunnar þröngur og trú forustumanna fyrirtækisins á framtíðargildi þess átti í vök að verjast. Jónasi Þór tókst að breyta þessu á fáum árum. Obil- andi trú hans á gildi ullariðnaðar fyrir afkomu og heilbrigði þjóð- arinnar hafði áhrif á samstarfs- menn hans og jók þeim dug. Trú þessi var aldrei reist á óraunhæf- um dagdraumum, heldur á praktískri þekkingu og reynslu mjög hugkvæms manns. Jónas kom fljótt fram með nýjungar í framleiðslunni og vakti á ný at- hygli og trú þjóðarinnar á Gefj- unarvörum. Hann lagði áherzlu á meiri fjölbreytni í framleiðslu en áður hafði þekkzt og gerði meiri kröfur. til vandvirkni og afkasta en áður hafði tíðkast. Einkenni starfrækslu verksmiðjunnar á fyrstu árum Jónasar entust alla tíð meðan hans naut við og eru nú orðin hluti af dýrmætri „tradition" fyrirtækisins, sem haldið verður í heiðri um ókomna tíð. Fyrsta tæknilega umbótin á vélakosti Gef-junar, -sem verulega munaði um, vajr þegar Iðunnar- verksmiðjan í Reykjavík var keypt 1920 og flutt hingað. Jónas sá um þau kaup, annaðist um- búnað vélanna syðra og vann meginverkið við uppsetningu þ'eirra hér. Onnur þáttaskil urðu í sögú fyrirtækisins 1930, er Samband ísl. samvinnufélaga keypti verk- smiðjuna. Þá fékk Jónas stóraukin tæki- færi til þess að endurbæta haná, eins og hugur hans stóð til, því að samvinnusamtökin voru staðráð- in að efla ullariðnaðinn og full- komna. Næstu ár lét hann gera merkilegar tilraunir erlendis með vinnslu íslenzku ullarinnar og ferðaðist oft utan í þeim erindum og til frekari lærdóms. Stofnun kambgarnsdeildarinn- ar voru enn ein þáttaskil í sögu Gefjunar og má þá segja, að nýtt tímabil hefjist í sögu íslenzks ullariðnaðar .Síðan rak hver um- bótin aðra og nú síðast bygging hinnar stóru ullarþvottastöðvar og loks endurbygging verksmiðj- unnar sjálfrar, sem enn stendur yfir, er gera mun Gefjun að einu stærsta og nýtízkulegasta verk- smiðjufyrirtæki landsins. Jónasi Þór myndi engin þökk á því, að honum einum væru eignaðar alþar þessar framfarir. Hann hafði sér við hlið marga ágæta samstarfsmenn og hann hafði að bakhjalli voldug félags- samtök, sem vildu efla þennan iðnað, og treystu forsjá hans og kunnáttu. En því verður aldrei í móti mælt, að án forustu Jónas- ar, áhuga hans fyrir fram- kvæmdum og trúar hans á gildi íslenzku ullarinnar, mundi þess- um áfanga ekki vera náð. Hér hefur því verið unnið starf fyrir þjóðina alla. Gildi þess fyrir þennan bæ er þó mest og aug- ljósast. Jónas Þór naut lítillar annarrar skólagöngu á ævinni en í skóla starfsins og reynslunnar, en menntun hans þar entist honum vel. Hann var mjög vel að sér á mörgum sviðum, las mikið og braut mál til mergjar sjálfur. Hann var sjálfstæður í skoðun- um og fór ekki ævinlega alfara- leiðir, var hispurslaus í tali og framkomu, en þó hlýr og tillits- samur. Hann naut óskoraðs trausts hinna mörgu samstarfs- manna sinna og' allra annarra er honum kynntust. Jónas Þór var korninn af ágæt- um og sterkum bændaættum og mun hafa talið sér það til gæfu. Hann mat mikils hið bezta í lífi og háttum menningarheimila í sveit og mundi hafa kosið að sjá þjóðlífið sveigjast meira í átt til þess að tileinka sér ýmsar forn- ar dyggðir í störfum. En hann var jafnframt framsýnn og framsæk- inn og fullur áhuga fyrir nýjung- um og framförum. Þannig var samtvinnað í skapgerð hans og skoðun hið ramíslenzka og hið heimsborgaralega viðhorf, enda var hann maður víðförull. Með Jónasi Þór er fallinn einn af merkustu mönnum þessa bæj- arfélags, maður, sem vann hér mikið dagsverk og skilur hér eft- ir varanlegan minnisvarða. Eg vil fyrir hönd samvinnumanna, bæjar.og héraðs, votta minningu hans virðingu og þökk og senda Laust fyrir síðastliðin aldamót vann ungur og umkomulítill drengur fyrir sér inn í Saurbæj- arhreppi. Hann var af góðu bergi brotinn, þótt skapadísirnar yndu honum ekki langrar dval- ar í föðurgarði í æsku. Oft var þessi drengur kalduþ klæðlítill og svangur, eins og altítt var um unglinga í sveit á þeim árum. Vinnuharka var þá mikil víðast hvar og kom jafnt niður á ung- um sem öldnum, enda ekki um annað að gera, ef menn áttu að geta haldið velli í lífsbaráttunni við þær aðstæður, sem þá voru fyrir hendi almennt. Ekki naut þessi drengur neinn- ar skólagöngu í æsku, en lærði þó lestur, skrift og reikning í ígripum, þegar á unga aldri, og ávann sér þar með lykilinn að sannri menntun, sem hann seinna meir vissulega ávann sér, þótt skólaganga yrði aldrei löng, enda munu meðfæddar gáfur og and- legt atgerfi, ásamt dugnaði, áhuga og þekkingarþorsta, hafa gert honum létt fyrir við allt sjálfs- nám. Þessum dreng, Jónasi Þór, kynntist sá, er þessar línur ritar, fyrst löngu seinna, er hann var orðinn verksmiðjustjóri og þekktur borgari þessa bæjar. Eg var þá nýkominn tihlandsins eftir tæpi'a fimm ára útivist og átli fáa kunningja hér í bæ til þess að tala við um áhugamál mín. Varð mér all tíðfarið á fund Jónasar, er eg fann að var fullur af áhuga fyrir hvers konar fram- faramálum og auk þess gaman- samur og yfirlætislaus maður. Fjöllesinn og prýðilega skáld- mæltur, sem hann hafði þó ekki hátt um. Þrátt fyrir mikið ann- ríki vai' alltaf liægt að ná tali af Jónasi, og al»af var hann á skrifstofunni næstum nótt og dag. Enda óx og dafnaði fyrir- tæki það, er hann veitti forstöðu, dag frá degi, en út í það mál skal ekki farið hér. Sem kunnugt er, var stofnað skógræktarfélag á Akureyri vor- ið 1930. Var þá skógrækt hér mjög í kalda koli og áhugi og skilningur lítill á því mikla þjóðþrifamáli, ef undanskildir eru örfáir menn, sem nú eru sumir hverjir komnir undir græna torfu. Er elcki að orðlengja það, að Jónas Þór var einn af 12 stofnendum Skógræktarfélagsins, ástvinum hans innilegar samúð- arkveðjur. Jónas Þór var fæddur 8. sept- ember 1881 að Hofsá í Svarfaðar- dal. Foreldrar hans voru merk- ishjónin Þórarinn bóndi þar, Jónasson í Sigluvík, Jónssonar, og Olöf Þorsteinsdóttir hrepp- stjóra í Oxnafelli, Einarssonar Thorlacius prests í Saurbæ. Jón- as ólst upp með foreldrum sínum að Hofsá og í fram-Eyjafirði og fluttist með þeim til Akureyrar rúmlega tvítugur að aldri. Hann tók við verksm.stj. í Gefjun 1916 og gegndi verksmiðjustjórastörf- um þar til dauðadags. Árið 1916 kvæntist hann Helgu Kristins- dóttur frá Samkomugerði og eignuðust þau hjón 4 börn, sem öll eru á lífi. Konu sína missti hann árið 1928. Árið 1937 kvænt- ist hann í annað sinn, gekk að eiga Vilhelmínu Sigurðardóttur verzlimarstjóra hér í bæ, og lifir hún mann sinn. Jónas Þór.var sæmdur riddarakrossi Fálkaorð- unnar árið 1937. Hann andaðist að heimili sínu, Brekkugötu 34 hér í bæ, hinn 5. þ. m. Jakob Frímannsson. og efa eg að sá félagsskapur hefði komizt á laggirnar þá strax, hefði hans ekki notið við. Býst eg við að fáum sé ljóst hvílíkum erfið- leikum það var bundið að stofna til slíks félagsskapar á þeim tíma, er fjárkreppa var í uppsiglingu, og framkvæma þó það, sem gert var fyrsta áratuginn af fámenn- um og félausum félagsskap. Bjargaði það þó málinu, að félag- ið eignaðist þá strax nokkra vel- unnara, sem bæði fórnuðu fjár- munum og erfiði í þágu þess. Var Jónas Þór einn þessara manna. Sátum við saman í stjórn Skóg- ræktarfélagsins fyrsta áratuginn. Var framúrskarandi gottaðvinna með Jónasi vegna víðsýni hans og glöggs skilnings á hverju við- fangsefni. Þá var og ást hans á gróðri og ræktun landsins heill- andi. Hafði hann bjargfasta trú á því, að hægt væri að umskapa íslenzkar sveitir og klæða þær skógi. Sjálfur fékkst Jónas við tilraunir með aldinrækt, og náði þar athyglisverðum árangri. Þá gei'ði Jónas Þór merka til- raun með býflugnarækt hér á Akureyri, fyrir nokkrum árum, og enda þótt tilraun þessi félli niður, taldi Jónas að hún hefði leitt í ljós, að mikil líkindi væru til þess að hér á landi mætti stunda býflugnarækt með góð- um árangri. Eg get þessa hér að- eins til þess að sýna áhuga og ósérplægni þessa önnum kafna og aldurhnigna manns, sem aldr- ei virtist neitt skeyta um eigin hag, en alltaf var með hugann fullan af mai'gvíslegum framfara- málum. Nú er Jónas Þór horfinn héðan, en minningin um góðan dreng og merkan mann deyr aldrei. — Ef til vill eigum við eftir að hittast aftur á fjarlægari stjörnu, þar sem þörf er á að planta trjám og prýða umhverfið. J. R. —o— Akureyrarkaupstaður hefir vax- ið ört á undangengnum árum. Ibúatala bæjarins mun nú nema um 7000 íbúum, en var fyrir nokkrum árum aðeins helmingur þeirrar tölu. Mörgum mun verða á að spyrja: Hvaða orsakir liggja að þessari öru fólksfjölgun í þess- um bæ, þegar margir aðrir bæir Kynni mín af Jónasi Þór á landinu á sama tíma ýmist standa í stað, eða íbúum þeirra fækkar? Menn hafa varla almennt gert sér grein fyrir því sem skyldi, hversu farsæld eins bæjarfélags er oft háð því, að eiga innan sinna vébanda viðsýna og þróttmikla einstaklinga. Án þess að vanipeta félagssamtök og þann mátt, sem felst í félagssamtökum einstak- linga, þá má aldrei gleyma því, að innan félagssamtakanna þarf að vera framsýn og þróttmikil for- ysta. • Akureyri hefir misst einn af sín- um mætustu sonum á þessu sviði. Jónas Þór, forstjóri Ullarverk- smiðjunnar Gefjun, er horfinn yfir móðuna miklu. Nafn Jónasar Þór er svo ná- tengt þeirri þróun, sem orðið hef- ir í þessum bæ, til aukinnar, far- sældar fyrir hundruð einstaklinga, að nú, þegar hann er fallinn frá, þá gerum við oss ef til vill enn fyllri greii# fyrir því en áður, hversu Jónas Þór hefir verið merk- ur borgari þessa bæjarfélags, og samhliða góður Islendingur í orðs- ins beztu merkingu. Við, sem höfum starfað með Jónasi Þór, sum um tuga ára og önnur skemmri tíma, höfum alveg sérstaka ástæðu til að undirstrika þau orð, sem hér hafa á undan verði sögð. Við vitum, að Jónas Þór hefir lyft svo mörgu Grettis- taki til þess, að það mætti varpa aukinni birtu og farsæld inn í líf meðborgara hans og til farsældar fyrir þjóðina alla. Þó við höfum hér undirstrikað fyrst og fremst þá athafnaþrá og þann þrótt, sem Jónas Þór var gæddur í svo ríkum mæli, þá duld- ist oss eigi, að hæfileikar hans voru á fleiri sviðum. Oss var full- kunnugt um það, að Jónas Þór var listunnandi maður, skáldmæltur vel, ávallt reiðubúinn að leggja hverju góðu málefni lið, er til þjóðþrifa horfði, en auk alls þessa var hann ávallt leitandi að því, sem segja mætti að hefði dýpsta gildi fyrir lif og tilveru hvers hugs- andi manns; hann var mikill og einlægur trúmaður. Jónas Þór hefir alla sína starfs- tíð verið að leita að meiri og meiri fullkomnun í ullariðnaði þjóðar- innar. Við það mál hefir hann eytt miklum hluta af lífi sínu og lagt við það þá ræktarsemi, sem hon- um var svo eiginleg, þegar saman fóru hugsjóna- og menningarmál. Á sviði ullariðnaðarins má hik- laust fullyrða, að Jónas Þór hafi rutt margar nýjar brautir, og af einstaklingum þjóðarinnar átt mestan þátt í að hefja hann til meira vegs í meðvitund þjóðar- innar en hann átti um langa tíma við að búa. Ullariðnaðarmál þjóð- arinnar voru Jónasi Þór hjartfólg- in mál, og varla mun þróunar þeirra mála getið, annan veg en þann, að nafn Jónasar Þór beri þar hátt. *— Mikill harmur er kveðinn að ástvinum Jónasar Þór og ættingj- um við fráfall hans. En mikil harmbót má það vera, að minning þessa mæta manns mun lifa um langa ókomna tíma, og við minn- inguna er sú vrssa tengd, að þetta bæjarfélag sér á bak einum sinna beztu borgara. — Að lokum viljum við, starfslið Ullarverksmiðjunnar Gefjun, al- veg sérstaklega láta í ljós okkar dýpstu hryggð yfir fráfalli Jónasar þór. Við höfum ákveðið að heiðra minningu hans á þann hátt, að gefa hinu nýja sjúkrahúsi bæjar- ins, sem hér er verið að reisa, 1 herbergi, sem beri nafn Jónasar Þór. Blessuð sé minning hans. Starfslið Gefjunar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.