Dagur - 14.11.1951, Page 6

Dagur - 14.11.1951, Page 6
6 D A G U R Miðvikudaginn 14. nóv. 1951 ÍÍ555555545Í55555555555555555555555555555555555555555ÍÍ5555555554555^ Þorp í álögum Saga eftir Julia Truitt Yenni 12. DAGUR. Wvwv' Nýkomið Epli kr. 10.00 pr. kg. Gráfíkjur kr. 10.00 pr. kg. Maðurinn minn, JÓNAS ÞÓR, verksmiðjustjóri, sem andaðist á heimili okkar þann 6. nóv., verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. þ. m. klukkan 2 e. h. — Blóm og kranzar afbeðnir samkvæmt ósk hins látna. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á að láta Sjúkrahús Akureyrar njóta þess. Vilhelmína Sigurðardóttir Þór. (Framhald). Hún strauk fellinguna af blað- inu. Rósa starði á bókina og blaðið. Hún rak augun í ljósmynd undir fyrirsögninni: Frá bóka- markaðinum. Og andlitið kom henni kunnuglega fyrir sjónir og þar að auki stóð skýrum stöfum á bókinni að hún væri eftir Faith Goodbind. Rósa fann blóðið stíga sér til höfuðsins og hún vissi að Fern hlaut að sjá það og þar með fá staðfestingu á því, að fréttin kom Rósu alveg á óvart. Hún heyrði þegar hið innra með sér sigurhreiminn í rödd Fern: „Eg vissi, að þú mundir verða hissa!“ Reiði kviknaði í brjósti hennar, hægt fyrst, en með vaxandi ákafa. Hún sagði ekkert, því að hún kom ekki upp orði án þess að opinbera, hvernig henni var inn- anbrjósts. Hún horfði stöðugt á bókina og blaðið. Setningar og setningabrot úr umgetningu blaðsins liðu fyrir augu henni: „------Bærinn, sem við öll vildum gjarnan hafa átt heima í og óskum öll í hjarta okkar að finna aftur------------ Ungfrú Goodbind skrifar um líf- ið í smábænum með skilningi og hlýhug---------Hún á sjálf heima í þorpinu Ármóti---------“ „Sjáðu,“ sagði Fern um leið og hún ýtti bókinni yfh> borðið til hennar, „þetta er Ijómandi falleg útgáfa.“ Rósa starði á myndina á bók- arkápunni. Hún opnaði bókina og leit yfir titilblaðið. Innan á það var prentað: „Til minngar um Singleton Goodbind." Ennfrem- ur: „Allar pei'sónurnar, sem fram koma í þessari sögu, eru tilbúnar af höf. Ef einhver þeirra líkist einhverri ákveðinni persónu einhvers staðar, er slíkt einvörð- ungu tilviljun.“ Rósa las þetta hægt. Fern hélt áfram að masa við hlið hennar. Rósu fannst eins og fluga væri að suða í hlustinni á sér. „-------Það er eg viss um, að Amos Tucker hefur vitað þetta, ha, ha, ha, en að þú skyldir ekki vita það, Rósa, það finnst mér slá öll met, ha, ha, ha--------“ Ekkert af því, sem á eftir fór, var fyrirfram ákvarðað af Rósu. Hún lagði út á óvissa braut af innri þörf og tilvísana, hún talaði hverja setningu jafnskjótt og hún kom henni í hug, en það, sem hratt þeim fram í huga hennar var reiðin, sem nú sauð og vall inni fyrir. „Jú, víst varð eg undrandi," sagði hún hægt og gætilega. — „Undrandi á því að hún skyldi samt sem áður ákveða að gefa þetta út.“ En Fern lofaði henni ekki að komast lengra áleiðis í bráðina. „Góða Rósa,“ sagði hún, „það þýðir ekkert fyrir þig að segja .mér ,að þú hafir vitað þetta áð- ur. Þú varst svi mér eins hissa og eg var.“ „Já, eg var hissa,“ sagði Rósa. „Eg hélt að hún hefði meira------ jæja látum það vera héðan af.“ Rósa færði sig í átt til bjór- stallsins, rétt eins og málið væri útrætt. Fern greip bókina á borðinu og hljóp á eftir henni. „Hvað ertu eiginlega að fara, Rósa?“ spurði hún með ákafa. „Hvað áttu við?“ „Eg er ekkert að fara og ekk- ert sérstakt að segja. En mundu það, Fern, að ef þessi kvenmaður hefði sérlegar ástæður til þess að flytja hingað og snuðra hér í bænum, þá vakti eg athygli þína á því.“ Fern horfði á hana stórum augum. Skilningurinn á orðum hennar var dálitla stund að grafa um sig .„Þú átt við — nei, Rósa, það gétúr ekki verið. Hvernig gæti hún skrifað um fólkið hér í Ármóti, hún þekkir engan?“ Rósa svaraði ekki heldur, horfði á hana með meðaumkunar- og fyrirlitningarsviþ, en Fern hélt áfram að malda í móinn. „Hún býr ekki einu sinni í (Framhald). - Skálar fyrir Westinghouse og Englisli Electric hræri- vélar. Kaupfélag Eyfirðinga Véla- og varahlutadeild. Nýja kjötbúðin. Kennsla! Kennsla: Stærðfræði, enska, danska og fleira kemur til gi'eina. Afgreiðslan veitir nánari upplýsingar. Peningaveski, brúnt, tapaðist s. 1. föstu- dag í Miðbænum. Vinsaml.. skilist á afgr. Dags, gegn fundarlaunum. Til sölu: Lítið notuð, brún gabar- dineföt. Verð kr. 500.00. Einnig gabardinefrakki, Verð kr. 600.00. Upplýsingar í síma 1726. Létt atvinna óskast. — Tilboð sendist blaðinu sem fyrst. Húsgögn Matborð (stækkanleg), stól- ar (bogið bak), úr góðri eik, til sölu. 4 stólar og borð kr. 1900.00. Húsgagnavinnustofa Haraldar 1. Jónssonar, Oddeyrargötu 19. Sími 1793. Sú, sern tók silki-„skýluna“ í misgripum á Hótel Norðurlandi s. 1. laugardagskvöld.skili henni strax í Bókabúð Axels. — Annars verður hún sótt. Tek að mér að sníða dörnu- og telpukjóla. Er við rnilli kl. 3—7. Ingibjörg Sigurðardóttir, Fjólugötu 13 (vesari dyr). Herbergi, í Oddeyrargötu, til leigu. Þorst. Þorstcinsson, Norðurgötu 60. Til sölu: 2 st. hjólbarðar, 750x20. Jón Ólafsson, Gilsá. Bifreiðaeigendur! Við tökum upp varahluti í Chevrolet næstu daga. Pantið þegar það, sem ykkur vantar. Kaupfélag Eyíirðinga Véla- og varahlutadeild. Jarðarför ÖNNU SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, sem lézt að heimili sínu, Naustum við Akureyri 6. þ. m., fer fram Iaugardaginn 17. þ. m. og hefst með bæn frá heimili hennar ldukkan 12.30 eftir hádegi. Vandamenn. Jarðarför MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR, sem lézt 5. þ. m., hefst með bæn að heimili hinnar látnu, Fróðasundi 10B, þann 15. b. m. kl. 1.30 e. h. Fyrii' hönd ættingja og vina. Hulda Ragnarsdóttir. Hjartanlega þakka ég ölliim þeim, sem heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, skeytum og gjöfum d átta- tíu ára afmœli rninu 4. þ. m. — Guð blessi ykkur öll. ELINRÓS BJÖRNSDÓTTIR. Hjartans þahklœti til ættingja og vina, sem á allan hátt sýndu mér vinsemd og kœrleili á sextugsafmœli minu, 5. þ. m. Guð og gæfan fylgi ykkur öllum. Daniel Júliusson, Syðra-Garðshorni. Innilegt hjartans þakklœti fyrir alla vinsemd okkur auðsýnda á fimmtiu ára hjuskaþarafmœli okkar. Kristín Sigfusdóttir. Pálmi Jóhannesson. Skíðasleðar mjög vandaðir VÖRUHÚSIÐ H.F. Kynbóíanauf fil sölu Vil selja svartan nautkálf, fæddan í október sl. Móðir: Gráskinna á Galtalæk við Akureyri. Faðir: Loftfari. — Verð um kr. 2000.00. Árni Jónsson, tilraunastjóri. DUKAR Kaffidúkar, mislitir, á kr. 48.50 Borðdúkar, hvítir, á kr. 51.00 Servíettur ! Vefnaðarvörudeild .***********+*4**+***+***,****,f**,t,»*t,*++****************

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.