Dagur - 16.01.1952, Blaðsíða 1

Dagur - 16.01.1952, Blaðsíða 1
Kaupsýslu- og iðnaðarmenn! Auglýsingar í Degi lesa fleiri Akureyringar og Eyfirðingar en í nokkru öðru blaði. Ferð til Miðjarðarhafsins er er meðal margra ágætra vinninga í blaðahapp- drætti Framsóknarmanna. Frestið ekki að kaupa miða! XXXV. árg. Akureyri, miðvikudaginn 16. janúar 1952 3. tbl. Truman flytur Bandaríkjajjingi ársskýrslu í sl. viku flutti Truman Bandaríkjaforseti þjóðþinginu hina árlegu skýrslu um hag landsins (State of thc Union message). Meðal áheyrenda hans voru Churchill forsætisráðherra og Eden utanríkisráð- herra Breta. Truman taldi að endurvígbúnaður Bandaríkjanna og samstaða Atlantshafsríkjanna hefði bægt mestu stríðsliættunni frá. Myndin sýnir forsetann í ræðustóli í þinghöllinni í Washington. — Notadrjúg fiskiniið em Brejtum að eilífu töpuð” Erlendis gert ráð fyrir, að íslendingar stígi fyrstir skrefið í landhelgismálinu Fiskimálaráðstefna að liefjast í London Til verkamaima íogarasjómenn segja upp samn- írá 15. íebrúar n. k. Áustfirðingar eru ekki með Dönsk og ensk blöð og tímarit rita nú allmikið um landlielgis- málin, og kemur hvarvetna fram, að við því er búizt, að landhelgin verði síækknð til mikilla muna við ísland, Grænland og annars staðar, þar sem góð fiskimið eru, en landhelgi verði lítil. Kemur fram í þessum skrifum, að fsland munf sennilega stíga fyrsta skrefið. Ráðstefna í London. Það er nú unnið að því í Eng- landi að fá ríkisstjórnina þar til þess að kalla saman evrópska fiskiráðstefnu um stærð land- helginnar. Var talið, að enska stjórnin vildi sérstaklega komast að samkomulagi við ísland, Nor- eg og Danmörk í fiskiveiðamál- unum. Nú er fiskiveiðaráðstefna þessi í þann veginn að hefjast, og eru á henni þrír fulltrúar frá íslandi. Að henni lokinni verður önnur ráðstefna í Kaupmannahöfn, þar sem lönd, sem hagsmuna eiga að gæta um stækkun landhelginnar, ráða ráðum sínum. Gerbreytt viðhorf. Enska tímaritið Fishing News ræðir þessi mál meðal annarra, og segir Haagdóminn valda ger- breyttum viðhorfum. Englend- ingar segja einnig, að dómurinn veiti íslendingum og Dönum full- komið tilefni til þess að koma í framkvæmd nýrri stefnu í land- helgismálum. Við Grænland verði landhelgin sjálfsagt færð svo langt út, að innan hennar lendi mörg ágætustu fiskimið heimsins, og hin notadrýgstu fiskimið við strendur íslands séu brezkum togurum að eilífu glöt- uð. Loks muni Danir sjálfsagt loka rauðsprettumiðum við Dan- mörk. Ilvað gerir ísl. ríkisstjórnin? Er þess nú af mörgum beðið með eftirvæntingu, hverju fram- vindur og hvað stjórnarvöldin aðhafast. ERKIBISKUPINN af Kant- araborg hafði þetta að segja við landa sína í tímariti kirkj- unnár í sl. mánuði, er hann ræddi veðurfar í Bretlandi og kvartanir fólks í sambandi við óstöðugleika þess: „Líf okkar og skapgerð mundi vera fá- tækari á margan hátt án þeirrar stöðugu agasemi, sem hið óútreiknanlega óstöðug- lyndi veðurfars okkar leggur okkur á herðar.“ á Akureyri frá J vÍMmmiðlunar- nefnd Til þess að komast hjá seinlegri og ógeðfelldri yfirheyrzlu, jafnan í viðurvist óviðkomandi, við vinnumiðlunarskráningu, þar sem henni er nú ætlað að fara f ram (bæ j arst j óraskrif stof unni), verða vinnuumsækjendur látnir, hvor fyrir sig, fylla út eyðublað á skráningarstaðnum með neðan- greindum spurningum: 1. Tala og aldur skjdduómaga umsækjanda? 2. Vinnutekjur umsækjanda síð- astliðnar 4 vikur? 3. Vinnutekjur konu hans, sama tíma, og barna innan 16 ára? 4. Hjá hverjum var greind vinna umsækjanda? 5. Hjá hverjum var greind vinna konu hans og barna? 6. Aðrar tekjur síðastliðnar 4 vik- ur og hve miklar? 7. Síðasti tekjurskattur vinnuum- sækjanda? 8. Býr umsækjandi í eignar- eða leiguíbúð? Hafið þessar upplýsingar til- búnar og tiltækar með ykkur á skráningarstaðinn, svo að af- greiðslan geti orðið liðleg og fljót. Með skylduómögúm umsækj- anda er átt við börn hans hjá honum innan 16 ára og ósjálf- bjarga foreldra hans og konu hans, er hjá honum búa. Hafi engar breytingar orðið frá fyrri vinnumiðlunarskráningu, á sama ári, t. d. á tölú skyldu- ómaga umsækjanda, tekjuskatti, (Framhald á 8. síðu). f gær sögðu 8 sjómananfélög upp sanmingum sínum við tog- araútgerðarfélögin og kernur uppsögnin til framkvæmda 15. íebrúar næstkomandi. Á meðal þessara 8 félaga er sjómannafélagið hér á Akureyri. Sameiginleg nefnd þessara félaga hefur samningamálin til með- ferðai'. Austfirðingar ekki með. Það vekur sérstaka athygli, að sjómannafélögin á Austurlandi eru ekki í hópi þeirar félaga, sem segja upp samningum að þessu sinni. Eru kommúnistar valda- mestir í togaraútagerð Norðfirð- inga ,sem er stærsta togaraút- gerðin á Austurlandi. Munu þeii' óttast um að halda togurunum ef kostur útgerðarinnar er þrengdur frá því sem nú er. Ekki virðast slík sjónarmið hafa átt mikil ítök í huga formanns sjómannafélags- ins hér, sem jafnframt er stjórn- armeðlimur í Útgerðarfélagi Ak- ureyringa h.f. Bnmaliðið gabbað - náðist í sökudólgana Aðfaranótt sl. sunnudags um kl. 3,30 vai' brunalið bæjarins gabbað með því að brotinn. var brunaboði í Hafnarstræti. Voru þarna að verki þrír ungir menn og tókst að hafa hendur í hári þeirra. Verða þeir nú, auk ann- ars, að greiða kostnaðinn við þessa kvaðningu brunaliðsins, sem í þetta sinn mun hafa numið á annað þús. kr. „Snæfell“ til Sví|)jóðar M.s. Snæfell er nýlega farið héðan til Reykjavíkur. Skipið lestar síld til Svíþjóðar og mun flytja timbur heiip. Mikil aðsókn að „Grænu lyftunni“ Leikfélag Akureyrar hefur nú sýnt gamanleikinn „Grænu lyft- una“ 11 sinnnm við ágæta að- sókn. T. d. var leikurinn sýndur við húsfylli um sl. helgi. Næstu sýningar verða næstk. laugar- dags- og sunnudagskvöld og er óráðið, hvort efnt verður til fleiri sýninga að sinni. Til tals kom í vetur að taka sjónleik Matthíasar Jochumsson- ar um Jón Arason til sýningar eftir nýjár, undir stjórn Gunnars Hansen, en nú hefur verið horfið frá því ráði og er ekki endanlega ákveðið, hvaða verkefni félagið tekur fyrir þegar Hansen leik- stjóri kemur hingað, væntanlega innan skamms. Kröfur um lengri hvíldartíma og bætt kjör. Kröfur þær, er sjómenn setja fram hafa ekki verið kunngerðar, en heyrzt hefur að þær séu m. a. um lengri hvíldartíma á ísfisk- veiðum og allmjög bætt kjör á saltfiskveiðum. Yfinnönnum sagt upp. Að tilhlutan Félags ísl. botn- vörpuskipaeigenda mun yfir- mönnum skipanna hafa verið sagt upp starfi frá 15. febrúar. Er svo að sjá, sem togaraeigendur vilji vera við öllu búnir ef til stöðvun- ar flotans skyldi koma í næsta mánuði. Vinna við flugvöllinn hafin á ný í gær átti að hefjast á ný vinna við flugvallargerðina á Eyja- fjarðarárhólmum. Er ætlunin að nota tímann meðan jörð er frosin og ryðja burt uppmokstrinum frá nýja farveginum fyrir árkvíslina, sem gerður var í fyrra. Vegna votlendis er óhæg aðstaða að gera þetta á sumrin. 1—2 jarðýtur verða notaðai' til þessa verks. r ......... Akureyri ætlar að gefa vinabæ sínum 22 {íús. króna bók Bæjarstjórn Akureyrar gerir vel til vinabæjar okkar, Ála- sunds, um þessar mundir. — Hún hefur gefið út forkunnar fagurt kynningarrit um Ála- sund, ev He'gi Valtýsson hefur ritað, og kostar til þess um 20 þús. kr., en pappirinn gáfu Norðmenn og iánuðu mynda- mótin. Á skrifstofu bæjar- stjóra er um þessar mundir gej'md bók, sem bærinn hyggst gefa bæjarstjórn Ála- sunds í þakklætisskyni fyrir heimboð það, er Steindór Síeindórsson þáði hennar vegna, er Álasund minntist 100 ára aú iælis síns. Er þetta Flateyjarbók og hefur verið beírumbætt í Reykjavík fyrir um 20 þús. krónur, en það mun verðið á bandinu, sem sagt er vera silíur- slegið ailt og hin mesta lista- smíð. I ráði mun að senda gjöfina úr landi innan skamms. Væntanlega leyfa bæjaryfirvöldin bæjarbúum að sjá gjöfina — sem minnir suma meira á afmælisgjafir Stalíns eða brúðargjafir Elísa- betar en samskipti norrænna smábæja — í einhverjum út- stillingarglugga áður en bókin hverfur úr bænum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.