Dagur - 16.01.1952, Page 6
6
D A G U R
Miðvikudaginn 16. janúar 1952
Þorp í álögum
Saga eftir Julia Truitt Yenni
19. DAGUR.
(Framhald).
Pearl Miller sat með blúndu-
verk sitt í eldhúsinu. Fingur
hennar gengu ótt, eins og ævin-
lega þegar hún var að starfi, en
andlit hennar var áhyggjufullt og
þreytulegt — en þó fulít eftir-
tektar þessa stundina. Hún var að
hlusta.
Nú er hann uppi á háalofti,
hugsaði hún; liann finnur þá
aldrei, nei, hann finnur þá
aldrei, en hvað á eg að gera?
Hann verður fullur tortryggni
og hann trúir mér aldrei aftur.
Eg get ekki búið með honum
ef hann verður alltaf á verði
gagnvart mcr og horfir sífellt á
mig eins og eg væri....
En hún gat ekki haft orðið yfir
í huga sér. Hana hryllti við því.
Hvernig get eg látið mér detta
annað eins í hug? hugsaði hún,
og hún skipti litum og titringum
fór um hana. En eg eyddi ekki
peningunum, hugsaði hún, ekki
grænum eyri, eg lagði þá bara
fyrir til þess að við ættum citt-
hvað í ellinni.
En hún vissi í hjarta sínu, að
hún mundi aldrei fá sig til að
snerta þá. Jafnvel þótt þau skorti
allt þegar þar að kæmi, gæti hún
aldrei fengið sig til þess að taka
af þeim — eyða fjársjóðnum, sem
hún hafði geymt og fóstrað öll
þessi ár. Hún hafði alltaf sparað
— geymt hvern eyri til þess
tíma, er neyðin kveddi dyra,
þannig hafði hún talað við sjálfa
sig, en í hjartanu var rödd, sem
sagði, að hún geymdi aurana
vegna þess fyrst og fremst, að það
var henni sálarfró að vita af þeim,
handfjalla þá, hagræða þeim og
raða á felustaðnum góða, sem eng
in lifandi sála vissi um nema hún
og aldrei, aldrei mundi hann
finna hann.
Nei, nei, hugsaði hún, og henni
vöknaði um augu af sjálfsmeð-
aumkun og tárin hrundu niður
kinnarnar. Hann hefur engan rétt
til þess að hugsa um mig sem —
eg hef ekkert rangt gert. Eg
hjálpaði til við kistulagninguna,
hann þurfti ekki aö kaupa neina
hjálp. í sannleika var það eg, sem
vann fyi-ir peningunum. Nú er
hann kominn í gestaherbergið. O,
eg get ekki litið hann réttu auga
cftir þetta.
Tárin streymdu og munnurinn
herptist saman í gráthviðunum.
Hvernig stóð á því, að leyndarmál
hennár, sem hafði verið stolt
hennar, og sigurhrós hið innra,
var. J?.Ú ,Útmálað_ sem synd af eig-
inmanni hennar? Hún gat aðeins
grátið örlög sín, hugsað ■ með
skelfirtgu til bónda sírts 1—já og
með heift og sársauka, þar sem
hann var að reyna að leita uppi á
lofti, leita að leyndardóminum,
sem hún gat ekki afborið að sjá
opinberaðan.
Blúnduverkið féll úr hendi
hennar, hún huldi andlitið í
höndum sér og grét beisklega.
Jósef Stafford pantaði hádeg-
isverð fyrir sig og Hampton og
hugsaði til þess með ánægjú, að
(Framhald).
■ iiiliiiuiliii
ii i ■ 111 ■ ■ i ■ ■ ■ ii 11 ■ i
iiiiiiiillliu
1111111111II111
Tilboð óskast
í smíði á stólum og borðum í samkomuliús yerka- \
lýðsfélaganna. — Upplýsingar veita: Jón Ingi- j
marsson, Klapparstíg 3, sími 1544, og Baldur \
Svanlaugsson, Bjarmastíg 3, sími 1685. — Tilboð I
um þar£ að skila fyrir 25. þ. m. \
H ÚSNEFNDIN.
111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111'
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111,,
Bifreiðaeigendur!
Tek að mér smíði á bifreiðayfirbyggingum og
aðgerðir á stálhúsum og íleira á verkstæði mínu
í Hafnarstræti 92 (Slipphúsinu). Efni fyrirliggj-
andi. Vönduð vinna. — Talið við mig, áður en
farið er annað.
BALD UR S VANLA UGSSON,
bifreiðasmíðameistari.
lllllllllllllllllllllllllll.tlllllllllllllllllllllll■lllll■■■■l||•■l■l||•l|||*||•■■lllllll■lll•lllllllllllll•ll■llllllllllllllllllllllllllll
Herrahaftar
fjölbreytt úrval.
Vefnaðarvörudeild.
Eftirtaldar vörur
hafa nú verið settar á
bátalistann, en fást hjá
okkur með gamla verð-
inu:
Ferðatöskur, 6 stærðir
Seðlaveski, leður,
kr. 12.00 og 15.00
Skólatöskur
Kventöskur, alls konar,
70 kr. stk.
Gardínutau, netofin,
gul. rauð, blá, .græn,
kr. 24.50 mtr.
Flauel
Ensk undirföt og nátt-
kjólar
Borðdúkar, með serviett-
um, kr. 40.00 settið.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Mjólkurflutningafötur,
20, 25 og 30 ltr.
Skilvinldur
Glerstrokkar
Stálstrokkar, 5 ltr.
Mjólkurfötur
Blikkfötur, st. og smáar
Olíubrúsar, 5 og 10 ltr.
Olíulugtir, kr. 16,80 og
18.85
Olíuvélar
Asbestkveikir
Trektar, með og án síu
Búrvigtar, 2 teg.
Hraðsuðupottar
Bánkarar
Þvottaklemmur
U ppþ vottabalar
Stálull
Vírsvampar
Vaskasugur
Sigti
Fiskraspar
Kökukefli
Kjöthamrar
Bakkar
Trésleifar
Hnífapör, Sósuskeiðar
Ostahnífar, Kleinujám
Skæri, margar tegundir
Sníðaskæri
Vasahnífar alls konar,
kr. 4.00 stk,
Skeiðahnífar
Tappatogarar
T eskeiðakassar
Peningakassar.
Sen'dum gegn póstkröfu.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Ensk morgunverðarstell
Bollapör, m. gylltri rönd
Kr. 6.60 parið
Postulínsbollar
Plasticbollar
Diskar, djúpir Sc grunnir
Leirkönnur
Vatnsglös
Niðursuðuglös,
3Á og 1 ltr.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Heilar kardemommur
Hvítur pipar í bréfum
Marenamjöl í pökkum
Pablurn barnamjöl. •
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin og útibú.
Karlmanna-bomsur
Krakka-bomsur
Skódeild KEA.
TILKYNNING
Þeir, sem eiga fatnað hjá oss frá 1949—1951, eru
beðnir að \'itja hans fyrir 25. þ. m. Eftir þann
tíma verður hann seldur fyrir áföllnum kostnaði.
GUFUPRESSAN s.f.
Skipagötu 12.
Bridgefélag Akureyrar hefur ákveðið að halda annað
Bridge-námskeið, fyrir byrjendur og þá, sem lengra
eru komnir.
Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að mæta í Lóni
næstkomandi föstudag, 18. þ. m., kl. 8.30 e. h.
STJÓRNIN.
TILKYNNING
Nr. 1/1952.
Fjárhagsráð hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á
fiski:
Nýr þorskur, slœgður
g með haus ............................... kr. 1,85 pr. kg.
hausaður ......................... kr. 2,35 pr. kg.
g Ekki má selja fiskinn dýrari, þó hann sé þverskorinn
& í stykki.
Ný ýsa, slœgð
með haus ...........................kr. 2,05 pr. kg.
hausuð ............................ kr. 2,60 pr. kg.
Ekki má selja fiskinn dýrari, þó hann sé þverskorinn
í stykki.
Nýr fiskur (þorskru og ýsa)
flakaður með roði og þunnildum kr. 3,65 pr. kg.
án þunnildá ....................... kr. 4,95 pr. kg,
roðflettur án þunnilda ............ kr. 5,90 pr. kg.
Ofangreint verð er miðað við það, að kaupandinn
sæki fiskinn til fisksalans. Fyrir heimsendingu má fisk-
salinn reikna kr. 0,75 og kr. 0,20 pr. kg, aukalega fyrir
þann fisk, sem er fram yfir á kg. Fisk, sem er frystur sem
varaforði, má reikna kr. 0,50 pr. kg. dýrara en að ofan
greinir. Ekki má selja fisk hærra verði, þótt hann sé
uggaskorinn, þunnildaskorinn eða því um líkt.
Meg tilkynningu þessari er úr gildi fallin tilkynning
Verðlagsskrifstofunnar frá 6. júní 1951.
Reykjavík, 11. janúar 1952.
Verðlagsskrifstofan.
£B!HSKH!B><HS-ÖKHSKBIH>KHS-)IBÍKB!BJ-)SKHSKBIBSKí<H><H!HIB!HS<BBIB>KH!B!H!HS<í-KB!HÍ